Dagur - 12.12.1997, Blaðsíða 2

Dagur - 12.12.1997, Blaðsíða 2
18- FÖSTUDAGUR 12.DESEMBER 1997 LÍFIÐ í LANDINU Speimusaga eða göngu- ferð „Eg ætla að reyna að eiga frí frá skólanum um helgina, en ég er á fyrsta ári í Myndlista- og handíðaskóla Islands, í svokölluðu fornámi. Þegar ég vil eiga frí finnst mér best að lesa góða spennusögu eða fara út að ganga. Það er besta hvífdin frá því að sitja inni og teikna eða vera á sundæfingum," segir Kristín Rós Há- konardóttir, sem í vikunni var kjörinn Iþrótta- „Ætla aö hvíla mig vel frá maður ársins í röðum fatlaðra. „Það má vel skólanum um helgina," vera að ég þurfi að fara í að kaupa jólagjafir segir Kristín Rós Hákonar- um helgina,“ segir Kristín. Hún á fimm systk- dóttir, íþróttamaðurársins jnsem ö|] skiptast á gjöfum, og því þarf í hjá fötluðum. mörg horn að líta varðandi jólagjafakaup. Kristín segist nýlega vera búin að skrifa á jóla- kortin, sem voru í kringum 20 talsins, og huga að sínu hverju fleiru í ' jólaundirbúningi segist hún síðan þurfa að gera á næstu dögum. Laufabrauð og viuua „Ég býst við að við förum í Iaufabrauðið um helgina og ég þori ekki að Iofa því að ég þurfi ekki að koma hingað á skrifstofuna til að taka til á skrifborðinu og vinna upp ýmis verkefni sem ólokið er,“ segir Hreggviður Jónsson, ný- bakaður framkvæmdastjóri Islenska útvarpsfé- lagsins. Hreggviður er fæddur og uppalin norður á Þórshöfn og ólst þar upp við þann sið að skera út og steikja laufabrauð fyrir jólin. „Ég er að reyna að innleiða þennan sið í fjölskyld- una. Konan mín er af Suðurlandinu og er ekki vön þessari menningarhefð. En þetta er að komast í vana hjá okkur nú,“ segir Hreggviður. Síðan segist hann búast við að þurfa að koma eitthvað í vinnuna til að huga að verk- efnum þar, því í mörg horn sé að líta á stóru heimili. „Síðan gæti verið að við þyrftum eitthvað að lara í verslanir og huga að innkaupum." „Er að innleiða laufa- brauðsmenningu i fjöl- skylduna, “ segir Hreggvið- urJónsson, nýr forstjóri íslenska útvarpsfélagsins. Jólatré og gönguskíði „Síðdegis á laugardag verður kveikt á jólatré okkar Selfossbúa við Olfusárbrú og ég verð þar, en það kemur í minn hlut sem forseti bæjar- stjórnar að fíytja ávarp við það tældfæri," segir Sigurður Jónsson, deilarstjóri hjá KÁ og bæjar- fulltrúi. Sigurður getur þess að á föstudag opni bæjarskrifstofurnar á Selfossi formlega í nýjum húsakynnum og verði efnt til móttöku af því tilefni. „Heima er síðan jólaundirbúning- ur að hefjast og fjölskyldan sameinast við það. Nú er kominn tími á hreingerningar og að skrifa á jólakortin,“ segir Sigurður. Hann bætir við að á Selfossi sé jafnfallinn ökkladjúpur snjór yfir öllu og haldist það og verði veður gott sé freistandi að draga göngu- skíðin fram um helgina og fara að taka sprett um víðar lendur. „Jólaundirbúningur að hefjast og fjölskyldan sameinast við þaö, “ segir Sigurður Jónsson. Jólagleöi í gömliun bæ „Það er í mörg horn að líta hjá mér um helg- ina,“ segir Ingibjörg Siglaugsdóttir í Laufási við Eyjafjörð, eiginkona sr. Péturs Þórarinssonar. Helgarannir Ingibjargar hefjast á laugardags- morgun, en þá eru kirkjuskólar íyrir yngstu sóknarbörnin í prestkallinu. A Svalbarðseyri fyrir hádegi og rétt efir hádegi á Grenivík. „Við þurfum síðdegis til Akureyrar, þar sem ég ætla að lesa jólasögu fyrir fóikið í Félagi eldri borg- ara.“ Hápunktur helgarinnar hjá Ingibjörgu er Einsog búast má við hjá jólagleðin í gamla Laufásbænum á sunnudag. maddömu ístóru sveita- Þar verður brugðið upp lifandi svipmyndum af prestakalli er I mörg horn jólahaldi fyrri tíðar með því að sjóða hangikjöt að líta fyrir jólin. Ingibjörg 4 hlóðum, skera laufabrauðið á rúmstokknum í Siglaugsdóttir í Laufási. torfbaðstofunni og einnig verða búin til tólgar- kerti. Börn í grunnskólanum frá Grenivík selja kakó og piparkökur til að afla fj'ár í ferðasjóð sinn. „Á sunnudags- kvöld er aðventukvöld í Grenivíkurkirkju, þar sem sr. Arnaldur Bárð- arson á Hálsi er ræðumaður." -SBS. Hann gat sér snemma góðs orðs í bæjarmálum heima á Húsavik. Samvinnuskólagenginn bankamaður, glaður á góðri stundu, ráð- hollur hverjum sem á hans fund leitaói. Upplagt þótti að senda okkar mann til frekari metorða í landsmálapólítikinni. Uppá síðkastið hefur hann verið i umhverfismálunum. Er nú á heimleið frá Kyoto, þar sem hann hefur verið að tala um gróðurhúsaloft. Þarf sjálfsagt að sofa alla helgina til að jafna sig á tímamismuninum og eins gott að ónáða hann ekki. Leyfið þreyttum að sofa. En á mánudag verður hann kominn á fullt blúss i ráðuneytinu. Frábær listaverkabók „Ég hef verið að lesa bókina Sögu listarinnar, þýdda af Birni Th. Björnssyni, sem Mál og menning gefur út,“ segir Margrét Kröyer, hönnuður á Auglýsingastofunni Ari og co á Akureyri. „Þetta er frábær bók og það var tími til þess kominn að loksins kæmi út góð listaverkabók á íslensku. Ég er að blaða í þessari bók, á milli þess sem við mæðgurnar erum í því saman að búa til jólagjafir." Jólalög í vinnuimi „Við erum oft með einhverja tónlist á hér í vinnunni. Síðustu daga höfum við verið með undir geislanum disk sem heitir Simple best of christmas, sem er með lögum mðe Bing Crosby og ýmsum fleiri góðum. Síðan hlustum við hér oft á Tom Waits," segir Margrét. Með vinkonu í bíó „I gærkvöldi fór ég með vinkonu minni í Borgarbíó að sjá myndina My best fri- ends weddings. Þetta er svona virkileg afþreyingarmynd og gaman að sjá hana. En annars geri ég ekki mikið af því að fara í bíó eða sjá bíómyndir. En núna um jólin ætla ég að fara að taka áskrift að Stöð 2 og Iiggja í bíómyndunum um jólin.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.