Dagur - 20.12.1997, Blaðsíða 2
18-LAUGARDAGUR 20.DESEMBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
Úr Þjóðleikhúsinu berast þær fréttir
að síðasta sýningin á Fiðlaranum á
þakinu hafi verið í byijun desember
og þá hafi Edda Heiðrún Backman
leikið í síðasta sinn í þessu fræga
stykki, í bili að minnsta kosti. Edda
Heiðrún á nefnilega von á barni í
mars eða apríl og tekur því rólega
fram á haust. Hún er einmitt nýgift
og það engum öðrum en Jóni Axel
Björnssyni myndhöggvara. Sýningar
á Fiðlaranum eru þó ekki með öllu
búnar þ\a að Ragnbeiður Steindórs-
dóttir tekur við hlutverki Eddu
Heiðrúnar þegar sýningar hefjast aft-
„Mér finnst gaman að forsætisráð-
herrann skrifi bækur og því hve góður
upplesari hann er,“ segir Hulda Há-
kon, vert á Gráa kettinum við Hverf-
isgötu í Reykjavík. Kötturinn er kaffi-
hús vikunnar eftir umræður á Al-
þingi, þar sem Davíð Oddsson for-
sætisráðherra fékk skömm í hattinn
frá Steingrími J. Sigfússyni fyrir að
mæta á köttinn gráa til að lesa upp úr
bók sinni þar í stað þess að sitja og
verma stól sinn á þingi meðan at-
kvæði voru greidd um fjárlög. „Grái
kötturinn er búin að fá ágæta um-
fjöllun og ég held að þessi umræða í
þinginu skipti ekki sköpum fyrir okk-
ur. Eg set þetta ekki upp sem neina
auglýsingu fyrir okkur,“ segir Hulda.
Þorláksmessuskatan er að verða alls-
heijar tilræði við andrúmsloftið og
alltaf fjölgar þeim sem láta eins og
þeim þyki þetta gott. Þó nokkrar „el-
ítur“ koma saman þennan dag og eru
farnar að hlakka til, enda Ieikur grun-
ur á að þetta sé meiri sókn í snafs en
úldinn fisk. Þó er ekki að efa að
menning mun blómstra í bland, eins
og til dæmis hjá Lillukórnum í Víði-
dal. Þær stóðu fyrir velheppnuðu
Lomberkvöldi fyrr í vetur og stefna
nú á skötuveislu í Víðigerði á messu
heilags Þorláks.
Listunnendur í pottinum voru eitt-
hvað að pískra um það sín á milli að
Haraldur Ingi Haraldsson, væri orð-
inn eitthvað þreyttur á heimamark-
aðnum í myndlistinni. Allavega telji
hann einhverrar tilbreytingar þörf.
Kvisast hefur út að Listasafnið á
Akureyri sé að taka drjúga forystu í
alþjóðlegum samskiptum listamanna
og vinni hörðum höndum að því að
nýta sér menningarstyrki Evrópusam-
bandsins. Aætlaðar eru sýningar er-
lendra Iistamanna á næsta ári sem
eru afrakstur ýmis konar samstarfs.
Meðal þeirra sem frést hefur að muni
sýna er þekktur Svíi, Roj Friberg að
nafni og mun efniviður sýningarinnar
vera sóttur í Réttarhöldin eftir Frans Kafka.
Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra. Eins og grár
köttur.
Edda Heiðrún Backman.
ur eftir áramót.
slaufu sem mér finnst voðalega
flott. Eg ætla bara að vera í
þessum fötum öll jólin. Og líka
á gamlárskvöld."
Hvar fékkstu skóna?
„Þeir eru nýir. Pétur bróðir
minn átti þá einu sinni og ég
fékk þá núna til að vera í á jól-
unum.“
Ertu búinn að fara t jólaklipp-
ingtma?
„Já og ég gleymdi bara að setja
gei í hárið núna. Eg vil hafa gel
ef ég er gera mig fínan."
Finnst þér gaman að vera fínt
klæddur?
„Já, en mig langar til að vera
alltaf svona fínn. Eg get ekki
verið svona ef ég ætla að vinna í
búð.“
Hvar viltu þá vinna?
„A hóteli. Þá vildi ég vera
stjóri. Nei, ég vil verða bæjar-
stjóri. Það er svo flott. Þá verð
ég alltaf fínn.“
Viltu þáfáfínföt íjólagjöf?
„Nei, mest action karl, Bat-
man og Robin. Mig langar bara í
svona karla sem eru vondir."
Afhverju bara vonda?
„Mér finnst þeir flottir því ég
geri þá góða. Þeir breytast í góða
karla strax og verða svo góðir all-
an tímann." HBG
Þau hlakka til aðfara í
jólafótin sín á að-
fangadagskvöld.
Finnst svo gaman að
verajint klædd. Nanna
Gunnarsdóttir verður í
síðum kjól með
blúndukraga og Stefán
Emir Valmundarson
verður í dökkbláum
jakkafötum.
Finnst ég rosalega fín
Nanna Gunnarsdóttir er sex
ára.
„Amma mín á Grenó gaf mér
jólakjólinn sem ég verð í núna á
jólunum. Hún gefur okkur
stelpunum sfnum alltaf jóla-
kjóla. Við erum Ijórar stelpurnar
hennar en bara einn strákur og
hún gefur okkur öllum jólaföt.
Við fáum ekki að velja kjólana
sjálfar heldur ákveður amma
bara hvað hún
ætlar að gefa
okkur.“
Fékkstu
að sjá
kjólinn
áður en
þú fórst í
hann
ég mátaði hann út á Grenó hjá
ömmu og var strax ofsalega
ánægð með hann. Það þurfti að
athuga hvort ég passaði í hann.“
llvað finnst þér fallegast við
kjólinn?
„Munstrið sem er ofan á hon-
um, þetta saumaða. Eg hef
aldrei átt svona kjól áður.“
Hvemigfinnst þér litirnir?
„Bara flottir."
En blúndukraginn?
„Bara ágætur. Mér finnst
kjóllinn er allur rosalega flottur
og ég er mjög fín í honum. Mér
finnst rosalega gaman að vera
fín.“
Hvar féklzstu þessa fallegu skó?
„Mamma mín keypti þá í
Reykjavík. Eg valdi þá ekki heid-
ur, hún valdi það sem henni
þótti fallegast. Mig langaði í
svona svarta lakkskó."
Hvernig ætlarðu að hafa hárið
umjólin?
„I spennu. Eins og ég er á
myndinni. Mér finnst ég mjög
fín þannig.“
I hverju ætlarðu að vera hina
jóladagana?
„Ég verð kannski í einhverju
öðru en þessum kjól. Ég á gamla
jólakjólinn minn og hinn sem er
gamall. Gamli gamli er bara
svona köflóttur og síður og hinn
sem var í fyrra er líka síður
nema grænn með blómum á. Ég
fæ nýjan kjól á hveiju ári.“
Færðu ný náttföt fyrir jólin?
„Já, ég verð í einhvern veginn
kjól þegar ég fer að sofa, svona
náttkjól. Það er sparináttkjóli."
Hlakkarðu til jólanna?
„Já, en sérstaklega að mamma
komi heim úr skólanum
Reykjavík. Ég er bara búin að
vera í bænum með pabba
því mamma er að læra.
Ég vildi að mamma
væri hjá okkur að
undirbúa jólin því
mig langar að
vera hjá þeim báð-
um. Hún verður hjá
í 20 daga, 5
daga af nýja árinu.“
Ertu búin að gera óska-
lista yfir það sem þig langar
í tjólagjöf?
„Nei, ég ætla að gera hann
á eftir. Ég er ekki alveg búin
að ákveða hvað á að vera á
honum. Mig langar í ein-
hvern veginn buxur.“
Vil alltaf vera í jakkafot-
um
Stefán Ernir Valmundar-
son er fimm ára.
„Ég ætla að vera í sömu
jólafötunum og £ fyrra á
jólunum. Ég passa ennþá
í þau og finnst ég flottur í
þeim.“
Hvað finnst þér flott
við þau?
„Mér finnst vasaklút-
urinn flottastur og líka
Iiturinn.“
Eru þetta spari-spari
föt?
>Já og ég nota
þau bara á
jólunum. Þá
er ég með