Dagur - 20.12.1997, Qupperneq 6
22 - LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1997
LÍFIÐ t LANDINU
Amór Guðjohnsen er
án efa skærasta knatt-
spymustjama okkar
íslendinga á allra síð-
ustu ámm.
Hann er á heimleið, hyggst
hasla sér völl sem knattspyrnu-
þjálfari hér á landi. Margir
undruðust það í sumar, þegar
hinn nýi landsliðsþjálfari, Guð-
jón Þórðarson, tók að skipu-
leggja Iandsliðið, að hann setti
Arnór út af sakramentinu, enda
þótt hann væri óumdeilanlega
besti maður liðsins. Astæðan var
sú að hann er orðinn 36 ára, -
fínn leikmaður en of gamall! En
Arnóri er nokk sama, hann var
orðinn þreyttúr á landsliðinu og
þreytandi ferðalögum í kringum
það. „Eg var kannski ekki alveg
hundrað prósent með hugann
við landsliðið lengur, ég get al-
veg \iðurkennt það, en ég lagði
mig hundrað prósent fram í
hverjum leik,“ sagði Arnór í við-
tali við Dag. Arnór bendir líka á
að atvinnumenn sem mæta í
landsleiki séu sífellt að taka_
áhættu. Það hafi sannast á Eiði
Smára syni sínum, sem slasaðist
í unglingalandsleik með alvar-
legum afleiðingum fyrir hann og
feril hans.
íslensk jól aðþessu sinni
Arnór er um þessar mundir
heima og ætlar að njóta ís-
lenskra jóla. Aður hefur hann
haldið jól erlendis, en ævinlega
haft þau eins íslensk og unnt
var. Hann kom heim i byrjun
nóvember í tveggja mánaða vetr-
arfrí frá sænska liðinu Örebro.
Fjölskyldan sameinast hér
heima, því Eiður Smári, 18 ára
sonur Arnórs af fyrra hjóna-
bandi, atvinnumaður í Hollandi,
er hér heima að jafna sig eftir
uppskurð á fæti, sem gerður var
ytra fyrir tveim vikum. Og með
þeim Arnóri og Önnu Borg konu
hans er yngri sonurinn, Kjartan
Borg Guðjohnsen, aðeins 4 ára
gamall.
Arnór segir að Kjartan litli sé
ekki alveg sami áhugamaðurinn
um fótbolta og hálfbróðir hans,
Eiður Smári á sínum tíma. „En
hann er sparkviss strákurinn,"
sagði Arnór í samtali við Dag
fyrir helgina. „Trúlega verður
hann fljótlega skrifaður inn í
GoIIklúbb Garðabæjar og Kópa-
vogs, því áfi hans og“'nafúi,
Kjartan Borg ræðismaður, gaf
honum golfkylfu um daginn,“
segir Arnór og hlær.
Arnór segir að jólin heima á
Islandi séu talsvert öðruvísi en
úti í Evrópu. Fyrr á árum átti
hann iðulega jól erlendis, sér-
staldega í Belgíu. Þar var gott að
vera um jólin, en ekki þessi rétta
stemmning sem fæst aðeins á
íslandi. Þá var reynt eftir megni
að búa til „íslensk jól“ með
hangikjöti, uppstúi, ora-baunum
og öðru því sem skapar rétta
stemmningu. Oft komu foreldr-
arnir yfir til Belgíu og héldu há-
tíðleg jól með Ijölskyldunni. Þá
Iék danskur leikmaður með Arn-
óri og hann var vanur miklu
jólahaldi og svipuðu okkar.
Hann var afar duglegur að fram-
kalla réttu jólastemninguna.
Langeygur eftir að flytja
heim
Arnór lætur ekki jólahlaðborðin
og allt góðgæti jólamánaðarins
freista sín um of, enda er ekki
eitt aukagramm að finna á hans
skrokki. Hann segist halda sér
váð með æfingum hjá Val, auk
þess sem hann skokkar í blíð-
viðrinu, sem varað hefur svo til
látlaust sfðustu vikurnar á
Fróni. Félagar hans í Örebro
eru hins vegar að æfa þrisvar í
viku. En æfingatíðnin eykst til
muna eftir áramótin, og þá verð-
ur Arnór kominn með í hópinn.
Og hann ætlar að ljúka 20 ára
keppnisferli með stæl.
„Eg stefni á það að flytja heim
til Islands eftir næsta keppnis-
tímabil í Svíþjóð. Eg verð nú að
segja eins og er að ég er orðinn
langeygur eftir að flytja heim.
Þetta verður orðið Iangt úthald í
atvinnumennsku, meira en tutt-
ugu ár. Ég veit ekki hvort ég get
slitið mig frá
fótboltanum.
Ætli maður fari
ekki út í þjálfun
eða eitthvað svo-
Ieiðis, það liggur
beinast við. Ég
hef farið á nám-
skeið úti og von-
ast til að halda
áfram að læra í
vetur.“
Ferill Arnórs
er langur og
glæsilegur. En
hann vill ekki
ræða um það
hvort hann hafi
orðið ríkur á knattspyrnunni.
Hann segist hafa haft ágæt
laun. Hann segir að reynslan
sem hann hafi eignast sé sinn
fjársjóður, - en sá stærsti séu
tveir synir og miklir efnispiltar,
Arnór Guðjohnsen
hlakkar til að flytja
heim eftirað vera í tvo
áratugi í víkingi á
knattspymuvöllum
þriggja landa
og góð fjölskylda. Daginn áður
en Arnór varð 17 ára skrifaði
hann undir atvinnusamning við
belgíska félagið Lokeren. Það
þýddi að hann gat Ieikið í Belgíu
með sömu rétl. idum og inn-
fæddir. Með Lokeren lék Arnór í
5 ár. Þá tóku við 7 ár hjá stór-
klúbbnum Anderlecht. Þaðan lá
leiðin til Frakklands, þar sem
Arnór Iék með Bordeaux í tvö ár.
Loks hélt Arnór til Svíþjóðar þar
sem hann gerði samning við
Örebro og hefur
notið gífurlegra
vinsælda þar í
landi.
„Keppnis-
tímabilið sem
framundan er
hefst í apríl og
lýkur í október.
Ég hef ekki
skrifað undir
samning en hef
komist að sam-
komulagi og ég
verð með tví-
skiptan samning
sem kveður á
um að ég geti
keppnistímabil-
inu,“ sagði Arnór.
Ertu orðinn þreyttur á fótbolt-
anum?
„Nei, ekki get ég nú sagt það.
En ég vil hafa varann á ef ég fer
hætt
miðju