Dagur - 10.01.1998, Blaðsíða 5
I
X^HI-
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR ÍO.JANÚAR 199 8 - S
Meirihlutiiui deil-
ir iim bókasafnið
Oft hefur hrikt nokkuö i meirihlutasamstarfi krata og Jóhanns Bergþórssonar og Ellerts
Borgars i Hafnaríirði en aldrei eins og nú eftir að tillaga þeirra tvímenninga um húsnæð/s-
kaup fyrir bókasafnið var felld.
Enn á ný hafa blossað
upp deilur í meiri-
hlutanum í hæjar-
stjóm Hafnarfjarðar
og nú út af husnæðis-
málum bókasafns
bæjarins.
Átakafundur var í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar í fj-rrakvöld þegar
greidd voru atkvæði um fjárhags-
áætlun næsta árs. Valgerður
Guðmundsdóttir, Alþýðuflokki,
sat hjá við afgreiðslu um kaup á
húsnæði fyrir bókasafn bæjarins
og Tryggvi Harðarson, flokks-
bróðir hennar, greiddi atkvæði
gegn tillögunni. Mikið uppi-
stand varð vegna þessa í meiri-
hlutanum. Hann gerði fundar-
hlé og skaut á aukafundi. Varð
þar mikið háreisti og köll og
menn reiðir þegar fundi var
framhaldið. Þá lagði Ellert
Borgar Þorvaldsson fram tillögu
um að fresta bæjarstjórnarfundi,
en það var fellt.
Jóhann Bergþórsson Iét þá
bóka hótun um samstarfsslit við
krata ef þeir leystu ekki sín inn-
anhúsvandamál, enda hafi bæði
Tryggvi og Valgerður áður sam-
þykkt fjárhagsáætlunina. „Ég Iít
á þetta sem innanbúðar\'anda-
mál hjá krötum og bókun mín
laut að því að ef ekki yrði farið að
samstarfsreglum meirihlutans
væri grundvöllur samstarfsins
brostinn."
Jóhann segist reikna með að
kratar leysi vandamál sín. „Við
erum nú sjö og það þarf aðeins
sex í meirihluta. Ef Tryggvi
Harðarson vill ganga í Alþýðu-
bandalagið þá gerir hann það.“
Kratar segja að ástæðan fyrir
áhuga Jóhanns á nýju húsnæði
fyrir bókasafnið sé sú að hann
vilji kaupa húsnæði í Dvergs-
húsi. Bærinn á efstu hæðina en
einn helsti stuðningsmaður Jó-
hanns á stóran part f hinum
hluta hússins og vill losna við
hann. Jóhann staðfesti í samtali
við Dag að þetta hús væri eitt af
þeim sem hann teldi koma til
greina sem framtíðarhúsnæði
fyrir bókasafnið.
Blekkingarvefur
Tryggvi segist ekki geta svarað
þ\i hvert framhald verði á sam-
starfi Alþýðuflokksins við Jóhann
og Ellert. „Ég var fyrir löngu bú-
inn að Iýsa því yfir að ég tæki
efnislega afstöðu til mála í bæj-
arstjórn í þessum meirihluta og
myndi ekki láta einhverjar meiri-
hlutasamþykktir þ\ánga mig til
að greiða atkvæði gegn sannfær-
ingu minni. Ég vissi að það var
Jóhann sem pressaði á að koma
þessum húsnæðismálum bóka-
safnsins í gegn. Ég fann Iíka að
menn vildu láta undan til að
halda frið í meirihlutanum án
þess þó að ætla að fara út í hús-
næðismál bókasafnsins. Þetta
var því bara blekkingarvefur og
ég sé enga ástæðu til að halda
uppi einhverjum blekkingarvef
fyrir Jóhann Bergþórsson," segir
Tryggvi. — FÞG/S.DÓR
Frá undirritun samnings SÁA og heil-
brigðisráðuneytis i gær.
Samstarf
umfor-
vamir
Heilbrigðisráðuneytið hefur gert
tveggja ára samstarfssamning
við SÁA um að vinna áfram og
af auknum krafti að forvörnum
gegn fíkniefnaneyslu í samvinnu
\ið sveitarfélög, félagasamtök og
áhugamenn á hverjum stað.
Ráðuneytið leggur fram 13
milljónir til verkefnisins en SÁA
sérhæft starfsfólk, þekkingu og
afnot af fræðslu- og kynningar-
efni sem þróað hefur verið í
þessu skyni. Jafnframt stendur
til að fræða heilbrigðisstarfsfólk
um hvernig það geti greint óhóf-
lega áfengisneyslu og ólöglega
fíkniefnaneyslu skjólstæðinga
sinna og hvernig þeir geti gripið
til viðeigandi ráðstafana.
SÁA hefur sl. tvö ár fengið
samtals 3ja milljóna króna styrki
úr forvarnasjóði til undirbún-
ings víðtæks forvarnastarfs, sem
verið hefur í gangi í fimm sveit-
arfélögum. Ráðuneytismenn
segja góða reynslu af þessu
starfi. - HEI
Breyttar áherslur
hiá vélstjónun
í athugun er að fresta
boðuðu verkfaUi vél-
stjóra í anuað sinn til
loka janúar.
„Við gerum okkur grein fyrir því
að þessi verðmyndun á fiski verð-
ur ekki leyst nema allir komi að
því máli. Við viljum standa að
þeirri lausn með öðrum og á
þeim grundvelli höfum við rætt
um að fresta boðuðu verkfalli,"
segir Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Islands.
Nokkur viðsnúningur virðist
hafa orðið i áherslum vélstjóra
eftir afgerandi niðurstöðu í at-
kvæðagreiðslum aðildarfélaga
Sjómannasambandsins og Far-
manna- og fiskimannasamþands-
ins um boðun verkfalls í byrjun
næsta mánaðar, hafi ekki samist
áður. Þeir hafa m.a. rætt um að
fresta boðuðu verkfalli vélstjóra á
80 stærstu skipum flotans til 29.
Véistjórar eru tilbúnir til að biða með kröf-
una um aukinn skiptahlut efþað skyldi
verða til þess að sameina sjómenn i bar-
áttunni gegn kvótabraskinu, segir Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins.
janúar, en það á að hefjast 16.
þ.m. Þá eru þeir einnig tilbúnir
til að bíða með kröfuna um auk-
inn skiptahlut ef það skyldi verða
til þess að sameina krafta sjó-
manna til verðmyndunarkröf-
unnar og gegn kvótabraskinu.
Benedikt Valsson, fram-
kvæmdastjóri FFSI, segir að það
væri fagnaðarefni ef vélstjórar
mundu víkja til hliðar kröfunni
um aukin hlutaskipti vélstjóra og
taki undir kröfur FFSÍ og SSl
um lausn á fiskverðsdeilunni.
Þær felast m.a. í því að allur fisk-
ur fari á markað og/eða að fiskur
tengist markaðsverði.
Engin árangur varð af stuttum
samningafundi vélstjóra og út-
vegsmanna í gær. Á fundinum
voru verðmyndunarmálin rædd
en ekki breytingar á hlutaskipt-
um vélstjóra. Þar voru m.a. reif-
aðar hugmyndir um kvótabanka,
tímabundið Iágmarksverð á fiski
og aukna veiðiskyldu útgerða úr
úthlutuðum kvóta. Vélstjórar
hafa verið boðaðir til nýs fundar
nk. þriðjudag.
Þá varð enginn árangur á sátta-
fundi undir- og yfirmanna með
útvegsmönnum í gær. Ekki hefur
verið ákveðið hvenær þeir koma
aftur í Karphúsið. -GRH
200 milljóiiir í gervilimi
Xryggingastofnim
semur um kaup á
speUmm, gervilimum
og smíði á hæklunar-
skóm fyrir skjólstæð-
iuga en 170-200
miUjónir hafa farið í
slík kaup á ári.
í kjölfar útboðs hefur Try'gginga-
stofnun gert tveggja ára samning
við sjö fyrirtæki um kaup á spelk-
um og gervilimum og auk þess
um viðurkenningu fjögurra fyrir-
tækja til sölu og smíði á bæklun-
arskóm. Innkaup Trygginga-
stofnunar á þessum útboðsvör-
um hafa að undanförnu numið
170-200 milljónum á ári.
Sú breyting varð nú um ára-
mótin að framvegis tekur stofn-
unin einungis þátt í kostnaði
vegna framangreindra hjálpar-
tækja séu þau fengin hjá hinum
samningsbundnu fyrirtækjum.
Og styrkir til kaupa á bæklunar-
skóm verða eingöngu fastákveðin
krónutala. Kaupi einhver dýrari
skó verður hann sjálfur að borga
mismuninn og fullt verð kaupi
hann af öðrum en samningsfyrir-
tækjunum. - HEI
Rannsókn steinolíumáls að I j uka
Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyðisfirði, segir að rannsókn sé
komin vel á veg vegna steinolíumálsins á Vopnafirði. Bensín og stein-
olía blandaðist saman í tanki Olíufélagsins á Vopnafirði með hörmu-
legum afleiðingum. Maður Iést eftir bruna sem hann varð fyrir vegna
blöndunarinnar, að talið er. Engin skaðabótakrafa hefur enn borist
að sögn sýslumanns og eins er ekki vitað um önnur tilfelli þar sem
menn hafi orðið fyrir tjóni eða skaða vegna mistakanna. —bþ
Ólga í Skógarstraudar-
hreppi
Mikil óánægja er ríkjandi meðal margra
íbúa fyrrum Skógarstrandarhrepps með
sameiningu við Dalabyggð. Páll Pétursson
félagsmálaráðherra ákvað að sameina
Skógarstrandarhrepp Dalabyggð þrátt fyr-
ir vilja margra íbúa til að skoða frekar aðr-
ar leiðir, t.d. sameiningu við Kolbeins-
staðahrepp. Daníel Njálsson á Breiða-
bólsstað segir að þvingaður hafi verið
fram hreppsfundur f vor um sameiningu,
en þar hlutu tvær tillögur jafnt fylgi, eða
12 atkvæði, þ.e. sameining við Kolbeins-
staðahrepp annars vegar og hins vegar við
Dalabyggð.
„Við ræddum við félagsmálaráðherra en það Hrðast aðrir úr
hreppnum hafa verið trúverðugri að hans mati. Það var valinn versti
kosturinn af 5. Við höfum í eitt ár mál-
skotsrétt til umboðsmanns AIþingis,“ seg-
ir Daníel.
Karpov hélt titlmum
Karpov, heimsmeistari í skák, náði að
verja titil sinn, þegar hann sigraði stór-
meistarann Anand í atskák í einvígi um
heimsmeistaratitiiinn í Sviss í gær.
Jafnt var eftir hefðbundnar sex skákir
en í gær átti að tefla til þrautar í atskák.
Það þurfti hins vegar ekki nema tvær
skákir til. Karpov sigraði í báðum og
tryggði sér þar með titilinn.
Anatoly Karpov.