Dagur - 10.01.1998, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998
Leikskólakennarar
Akureyrarbær óskar eftir að ráða leikskólakennara við
Leikskólann Kiðagil. Eftirfarandi stöður eru lausar
frá 1. mars nk.:
1 staða deildarstjóra,
4 stöður almennra leikskólakennara.
Um er að ræða 100% stöður, einnig kemur til greina að
ráða í hlutastöður.
Laun skv. kjarasamningi Félags íslenskra leikskólakennara
eða STAK við launanefnd sveitarfélaga.
Upplýsinqar um störfin veitir leikskólastjóri Kiðaqils í
síma 462 1761.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir starfsmannastjóri í
síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, og skal þeim skilað þangað.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar.
Starfsmannastjóri.
Stærsta, dýrasta og glæsilegasta mynd ársins.
Titanic er meistaraverk leikstjórans James Cameron, sem þekktur
er fyrir Terminator myndirnar, Aliens og True Lies. Það neistar á milli
Leonardo DiCaprio og Kate Winslett í aðalhlutverkunum. Umgjörð,
leikmynd og tæknibrellur í Titanic eru á heimsmælikvarða enda hefur
ekkert verið sparað til við að endursegja þessa mögnuðu sögu um
mesta sjóslys aldarinnar.
Hugsaðu stór á nýja árinu, hugsaðu TITANIC
CcrGArbic
JtjflfA Staða deildarstjóra við
l Heilsugæslustöð Húsavíkur
er laus til umsóknar.
Fyrsta janúar 1998 var Sjúkrahús Þingeyinga og Heilsugæslustöðin
á Húsavík sameinuð í eina stofnun. Við þessa sameiningu var gerð
breyting á stjórnskipulagi stofnunarinnar. Nú vantar að ráða til starfa
við stofnunina deildarstjóra á heilsugæslustöðina. Starfið felur í sér
stjórnun, áætlanagerð, þátttöku í stefnumótun hinnar nýju stofnunar,
ýmiskonar forvarnarstarf, ungbarnaeftirlit, heimahjúkrun, skólahjúkr-
un og heilbrigðisfræðslu. Við leitum að hjúkrunarfræðingi með
reynslu af heilsugæsluhjúkrun og/eða stjórnun, einstaklingi sem hef-
ur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu nýrrar stofnunar og takast á
við ný og krefjandi verkefni.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1998. Nánari upplýsingar gefur
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir hjúkrunarforstjóri í síma 464 0542 eða
464 0500.
Heilbrigðisstofnunin Húsavík,
Dagbjört Þyri Þorvarðardóttir
hjúkrunarforstjóri.
ÍÞRÓTTIR
rD^tr
Stórleikiir í
KA-heiniiIinu
íslandsmeistarar KA í handknatt-
leik taka á móti Badel Zagreb frá
Króatíu í Evrópukeppni Meistara-
liða á sunnudaginn. Leikurinn
hefst kl. 16.00 í KA-heimilinu.
Blaðamaður Dags heyrði hljóðið í
Jóhanni G. Jóhannssyni, fyrirliða
KA, um átökin um helgina.
„Ahorfendur verða ekki sviknir
af handknattleiknum sem verður í
KA-heimilinu á sunnudag. Zagreb
er án efa eitt besta lið heims um
þessar mundir fyrir utan kannski
Barcelona frá Spáni. Við töpuð-
um stórt fyrir þeim á útivelli en
nú mætum hins vegar í þennan
leik til þess að vinna og það má
ekki bera neina virðingu fyrir
þessum körlum. Liðið mun æfa á
föstudag og laugardag og koma
svo saman í hádeginu á sunnudag
fyrir leikinn. Við töpuðum fyrir
Celje hérna heima fyrir áramót og
vorum ósáttir við það tap. Við
erum enn ekki búnir að sigra í
riðlinum en eigum við ekki bara
að byrja á því núna!“ sagði Jó-
hann.
Það er vel hægt að taka undir
orð fyrirliðans um getu
Króatanna. Liðið sem mætir til
KA-menn voru ósáttir viö tapið fyrir Celje fyrr i kepninni.
Akureyrar er skipað tólf leik-
mönnum og eru níu þeirra króat-
ískir landsliðsmenn. Liðið tapaði
fyrir Barcelona í úrslitaleik evr-
ópukeppni meistaraliða í fyrra og
árið þar áður í úrslitaleik evrópu-
keppni bikarhafa fyrir Bidasoa frá
Spáni. Liðið hefur orðið króatísk-
ur meistari og bikarmeistari síð-
ustu sex árin og hefur það verið
nánast formsatriði fyrir félagið.
Liðið vann alla leiki sína með
miklum mun. Það ætti því enginn
áhugamaður um góðan hand-
knattleik að missa af Ieiknum við
króatana á sunnudaginn. - JJ
Kristinn í 1. sæti
Kristinn Björnsson, skíðamaður
frá Olafsfirði, sigraði á Evrópu-
bikarmóti sem haldið var í Donn-
ers Bachwalb í Austurríki í gær-
dag. Kristinn kom í mark 68/100
úr sekúdnu á undan Diedier
Plaschy frá Sviss. Þrír íslendingar
tóku þátt í mótinu, Arnór Gunn-
arsson hafnaði í 36. sæti. Þá féll
ITaukur Arnórsson úr keppni í
fyrri ferðinni.
Mótið í gær var það fjórða sem
Kristinn tekur þátt í í Evrópubik-
arnum og hafði hann best náð 3.
og 4. sæti. Ljóst er að Kristinn er
meðal efstu manna í stigakeppni
mótsins, en stigaröðin lá ekki fyr-
ir í gærdag fyrir vinnslu blaðsins.
Þremenningarnir, Kristinn,
Haukur og Arnór taka þátt í öðru
heimsbikarmóti á sama stað, í
dag.
Kristinn Björnsson.
Beint á
Laugardagur 10. janúar.
RÚV kl. 16.00
Handholti - bikarkeppnin
Afturelding-ÍBV
Stöð 2 kl. 14.50
Enski boltinn
Man. United-Tottenham
SÝN kl. 19.25
Spænski boltinn
Atletico Madrid-Real Madrid
Sunnudagur 11. janúar.
Stöð 2 kl. 13.30
ítalski boltinn
AC Milan-Roma
SÝN kl. 13:00
íslenski boltinn
Islandsmótið innanhúss
SÝN kl. 15.50
Enski boltinn
Derby County-BIackburn
Rovers
skjániun
SÝN kl. 18.50
Nýr golfþúttur
- 19. holan (Views of golf)
SÝN kl. 19.25
ítalski boltinn
Udinese-Napoli
SÝN kl. 21.20
Ameríski fótboltinn (NFL)
San Francisco 49ers
- Green Bay Packers
Þetta er úrslitaleikurinn í Þjóð-
ardeildinni en sigurvegarinn
mætir Pittsburgh Steelers eða
Denver Broncos (úr Ameríku-
deildinni) í úrslitaleik (Super
Bowl) 25. jan nk. Sá leikur
verður sýndur beint á Sýn og
Stöð 2.
Miðvikudagur 14. janúar.
SÝN kl. 19.40
Enski boltinn
(Bikarkeppnin 3. umferð)
Port Vale-Arsenal
UM HELGINA
HANDBOLTI
Bikarkeppnin - 8 liða úrslit í
meistarafl. karla:
Laugardagur
Grótta/KR-Valur kl. 16:00
UMFA-ÍBV kl. 16:00
Sunnudagur
Fram-Haukar kl. 20:00
Bikarkeppni kvenna:
Laugardagur
Haukar-ÍBV kl. 16:00
Stjarnan-Valur kl. 16:30
FH-Víkingur kl. 17:00
Sunnudagur
Grótta/KR-Fram kl. 17:00
KARFA
Bikarkeppni karla
- 8-liða úrslit:
Sunnudagur
KFI-IR kl. 20:00
Grindavík-Haukar kl. 20:00
Njarðvík-ÍA kl. 20:00
Valur-Stjarnan kl. 20:00
Bikarkeppni kvenna:
Laugardagur
KR-Grindavík kl. 14:00
ÍR-ÍS kl. 14:00
Keflavík-KFÍ kl. 18:00
Skallagrímur situr hjá.
KNATTSPYRJVA
íslandsmótið í innanhússknatt-
spyrnu hefst um helgina, en þá er
Ieikið í 1. deild karla og kvenna og
í 4. deild karla í Laugardalshöll og
Austurbergi. Keppni í 1. deild
karla hefst kl. 10 í dag og stendur
til 19 og úrslitakeppnin hefst kl.
13 á morgun. Keppni í 1. deild
kvenna hefst í Austurbergi kl. 14 í
dag og verður framhaldið í Laug-
ardalshöll frá því kl. 9.