Dagur - 10.01.1998, Page 12
28 - LAUGAIIDAGUR 10.JANÚAR 1998
MA TARLÍFIÐ í LANDINU
llalaifiilii)
Kjötsósa(stór uppskrift)
4 msk. olía
1,5 kg nautahakk
3 saxaðir Iaukar
3 skornar paprikur
6 marðir hvítlauksgeirar
3 dósir af niðursoðnum tómötum
2 bollar tómatpúrra
2 bollar tómatpasta (þynnra en púrran)
1 msk. oreganó
3 msk. basilikum
'A tsk. pipar
1 'A bolli rauðvín
4 msk. kjötkraftur
Hakkið er brúnað á pönnu og kryddað.
Laukur, hvítlaukur og paprika sett með á
pönnuna og steikt. Niðursoðnir tómatar,
tómatpúrra og tómatpasta hrært út í kjöt-
blönduna ásamt rauðvíni. Látið malla í
30 mín. áður en borið fram.
Þægilegt er að frysta þessa kjötsósu.
Túnfiskpasta
90 g smjör
1 marið hvítlauksrif
250 g ferksir sveppir, niðurskornir
■54 bolli tómatpúrra
1 dós túnfiskur
svartur pipar
Hvítlaukur og sveppir eru steiktir í smjöri
á pönnu. Tómatpúrra og túnfiskur settur
á pönnuna og kryddað með pipar. Látið
malla í 10 mín. áður en rétturinn er bor-
inn fram.
Pasta með sveppasósu
60 g smjör
185 g sveppir, skornir
1 marið hvítlauksrif
300 ml rjómi
1 tsk. sítrónusafi
pipar
múskat
parmesan ostur
Hvítlaukur og sveppir eru steiktir í smjöri
á pönnu. Rjóma, sitrónusafa, pipar og
múskati bætt saman við og látið malla í
nokkrar mínútur áður en sósan er borin
fram með nýsoðnu pasta.
Pasta með tómatsósu
1 msk. olía
2 laukar, saxaðir
'A bolli sellerí, saxað
2 marin hvítlauksrif
4 bollar tómatar, afhýddir og létt marðir
1 msk. sykur
óreganó
svartur pipar
Iárviðarlauf
Laukur og sellerí er steikt á pönnu. Hvít-
lauknum bætt út í ásamt tómötum,
óreganó, pipar, sykri og lárviðarlaufi. Sós-
an íátin malla í 30 mín. áður en hún er
borin fram.
Pasta með „heitri“ sósu
1 msk. olía
1 laukur, saxaður
1 marið hvítlauksrif
4 sveppir, sneiddir
400 g ansjósur
1 dós niðursoðnir tómatar
10 svartar ólífur, sneiddar
2 tsk. fersk chillialdin, smátt skorin
'A tsk. basilikum
svartur pipar
Laukur og hvftlaukur er mýktur á pönnu
og sveppirnir settir saman við áður en
hinu hráefninu er öllu bætt á pönnuna.
Gott að setja smá rauðvín út í sósuna og
jafnvel smá vatn til að vökvinn verði næg-
ur.
Pasta með rjómasósu
og laxi
1 bolli rjómi
2 vorlaukar, hvíti hlutinn
paprikukrydd
svartur pipar
60 g reyktur lax, skorinn í strimla
Laukur og ijómi er soðið saman í 5 mín.
þá er sósan krydduð. Laxastrimlarnir sett-
ir út í sósuna og hún borin fram með
steinselju og rauðum kavíar.
Kjötbaka með pasta
214 bolli soðið pasta
1 bolli kotasæla
1 bolli sýrður ijómi
'A bolli skallottlaukur, saxaður
2 boliar kjötsósa, sbr. að framan
1 bolli rifinn ostur
graslaukur
Soðið pastað er hrært saman við kotasæl-
una og sýrða rjómann. Laukurinn settur
saman við og blandað vei. Sett í eldfast
mót og kjötsósunni hellt yfir pastað. Rifn-
um osti stráð yfir. Bakað í 180°C heitum
ofni í 30 mín.
Pasta með ostasósu
30 g smjör
2 kúrbítar, sneiddir
100 ml hvítvín
100 g gráðaostur
300 ml ijómi
Kúrbíturinn er steiktur í smjöri á pönnu.
Hvítvíni hellt yfir hann. Þá er osturinn
settur á pönnuna og bræddur, rjómanum
bætt út í. Látið malla í 10 mín. og smakk-
að til með pipar. Soðnu pastanu blandað
saman við sósuna og allt látið hitna vel.
Borið fram með parmesan osti.
Ofnréttur með pasta og
____________beikoni________________
250 g beikon, skorið í 5 cm bita og steikt
mjög vel
1 Iaukur, saxaður
_______________4 egg_______________
1A, bollar mjólk
125 g rifinn ostur, feitur
'A bolli parmesan ostur
/ tsk. basilikum
14 tsk. pipar
örlítið múskat
Beikonið er steikt á pönnu, tekið úr feit-
inni og laukurinn steiktur í henni. Soðið
pastað er lagt í eldfast mót og beikoninu
stráð yfir það, þá lauknuni. Eggin eru
hrærð saman í mjólk, ostinum þætt út í
blönduna og hún krydduð. Hellt yfir
pastað í mótinu. Rétturinn er bakaður í
180°C heita í 30 mín.
Pasta með steinselju-,
hvítlauk- og hvítvms-
sósu
3 msk. hvítvín
3 franskbrauðssneiðar, án skorpu
1 bolli fersk steinselja
3 marin hvítlauksrif
14 tsk. svartur pipar
'A bolli ólífuolía
Hvítvíninu er hellt yfir brauðsneiðarnar
og þá rifið. Steinselju og hvítlauk er
blandað vel saman og ólífuolíunni hellt
yfir blönduna, hún hrærð vel. Þá er
brauðinu blandað út í þessa olíublöndu
og hún látin standa örlítið áður en henni
er hellt yfir nýsoðið pastað.
Pasta með kartöflum og
spínati
300 g soðnar kartöflur, afhýddar og
skornar í teninga
1 marið hvítlauksrif
2 rauð chillialdin, vel hreinsuð og skorin
spínat, forsoðið
Soðnum kartöflunum og pastanu er
blandað vel saman. Hvítlaukur og chilli
léttsteikt á pönnu. Spínatinu bætt á
pönnuna og steikt með. Þessu hellt yfir
pastað og kartöflurnar.