Dagur - 03.02.1998, Side 2

Dagur - 03.02.1998, Side 2
X^M!~ 2 -ÞRIDJVDAGUR 3.FEBHÚAR 1998 FRÉTTIR „Það er kominn örlltill lífsneisti í mig,“ segir Hallbjörn Hjartarson frá Skagaströnd, sem hefur brátt útvarpsútsendingar eftir nokkurra mánaða hlé. Mynd/na tók Ijósmyndari Dags daginn eftir að Kántribær brann. mynd: gs Hallbjöm nær flugi Hann er búinn að vera lít- ill í sér síðustu vikur eu ætlar ekki að láta deigan síga. Draumakáutríbær HaUbjöms kostar 35 miUjónir. „Ég bíð bara núna eftir tæknimanni sem ætlar að setja þetta upp hjá mér og þá get ég farið í loftið á ný. Ég býst við að útvarpsútsendingar geti hafist bráð- Iega upp úr mánaðamótunum," segir Hallbjörn Hjartarson, kántríkóngur á Skagaströnd. 11 milljónir úr trygginguin Eins og alþjóð er kunnugt eyðilagðist Kántríbær í bruna snemma í vetur og hefur Hallbjörn hvorki starfað við veit- ingasölu né í útvaqii sfðan. Til að b)aja með hefur Hallbjörn nú fengið inni í gamla barnaskólanum á Hofsósi og þaðan munu kántrítónarnir berast, til að byrja með a.m.k. Hallbjörn segist hafa fengið um 11 milljónir út úr tryggingunum vegna brunans en draumahúsið hans, nýr Kántrýbær, myndi kosta um 35 milljónir króna. Landsmenn hafa stutt Hallbjörn dyggi- Iega og hefur Ijársöfnun dugað fyrir helmingi tækjakaupa fyrir nýja út- varpsstöð. Örlítill lífneisti „Ég viðurkenni að þetta er búinn að vera erfiður tími og ég er búinn að vera mjög lítill í mér, gagnslaus og áhuga- laus. En með hækkandi sólu og stuðn- ingi vina minna sé ég fram á að ég gef- ist ekkert upp. Það er kominn örlítill Iífsneisti í mig og ég ætla að reyna að láta drauma mína verða að veruleika. Enn er fjöldi manns að hringja sem hvetur mig til að gefast ekki upp. Meira og minna allir landsmenn hafa sýnt mér geysilega velvild," segir Hall- björn, sem fyrr hefur lent í miklu mót- læti. Seltirningar á hlustunarsvæði Tvær Ióðir koma til greina undir nýjan Kántríbæ. Onnur er skammt neðan við kirkjuna á Hofsósi en hin er þar sem áhaldahús Skagastrandar stendur nú. -En hvað með útsendingarsvæðið'? Stendur til að stækka það? „Nei, það held ég ekki en menn geta náð þessu býsna víða. Ég vil t.d. benda þeim Reykvíkingum á það sem vilja hlusta á kántrítónlistina mína, að þeim nægir að keyra yst út á Seltjarnarnes og þar geta þeir náð stöðinni,11 segir Hallbjörn Hjartarson. Maðurinn sem fundið hefur fyrir því að undanförnu að fjölmargir landsmenn telja hann ómissandi fyrir Island í menningarlegu tilliti. - BÞ Reykjavíkurlistafólk var al- mennt í skýjunum yfir prófkjör- inu um helgina. Ýmsir iykaóir vöknuðu þó við vondan draum eftir hádegi viö Guðrúnu Ágústsdóttur á Rás 2 bera sorgir sem þóttu í meira lagi óþarfar á torg. „Steppað á jarðsprengju- svæði“ tautaði einn í pottinum sem fannst vel fengnum höfuðverk að loknu góðu teiti lítill sómi sýndur. Sjálfstæðismennþóttu sýna góð- an leik í höfuðborginni með aö skipta nýliðum inn í nefndir og ráð. Guörún Pétursdóttir er ein af þeim og nýtur nú þeirrar ein- stæðu stöðu að sitja sem slík bæði iyrir hönd meirihluta og GuðrúnPét- minniMuta. „Líklcga eini pólit- ursdóttir. íkusimi sem ekki þarí að hafa áhyggjur af kosningunum í vor,“ sagði Pottverji góður með sig. Guðrún Ágústsdóttir. Við álitsgjöf um prólkjörsúrslitin hjá Reykja- vikurlistanum hefur oddviti D-listans, Árni Sig fússon, verið óspar að stríða krötum með því að scgja að enginn krati hefði náð borgarfulltrúa- sæti. Þar með er hann að segja að hvorki Hrann- ar B. Amarsson né Helgi Pétursson séu í raun og veru kratar þótt að minnsta kosti sá síðamefndi sé genginn í flokkinn. Þetta var til þess að í pott- inum fóra inenn aö rifja upp stjórnmálamenn sem gengið hafa í Sjálfstæðisflokkinn frá öðram flokkum í gegnum tíðina; Jónas Haralz banka- stjóri, Guðmundur Magnússon sagnfræðingur, Pétur Reimarsson, Kristján Pálsson þingmaður, Hrafnkell A. Jónsson verkalýðsfrömuður, Krist- ín Kvaran fv. þingmaður, Ólafur IJannibalsson varaþingmaður, Sigríður Dúna Kristmundsdótt- ir fv. þingmaður, Bjami P. Magnússon ív. borgar- fulltrúi og fleiri. Samkvæmt skilgreiningu Áma er ekkert al þessu fólki í raun og veru sjálfstæð- ismenn.... V___________ Hef etki tekið þátt i öldu- gangi Neytendasauitakaima Úlfhildur Rögn- valdsdóttir staifsmaður Neytendasamtaliamia á Ahureyri Úlfliildur erfyrrveratidi bæjaifulltrúi Framsóknar- flokksins áAkureyri og hef ur tekið við sem starfsmað- ur Neytendasamtakanna með aðsetri íAlþýðuhúsinu áAkureyri. -Hvemig verður starfseminni hdttað? „Ég er í 80% starfi og er skrifstofan opin frá 13.00 til 15.00 alla daga en viðvera mín er frá 09.00 til 15.00. Ég veit ekki mjög náið hvernig starfseminni var háttað meðan hún var í höndunum á Vilhjálmi Inga og skrif- stofan úti í Glerárgötu. Þetta verður rekið sem útibú frá starfseminni í Reykjavík, hér veður kvörtunarþjónusta fyrir neytendur sem telja sig hafa verið órétti beittir og hér verða framkvæmdar neytendakannanir sem áður. Samningur Neytendasamtakanna við verkalýðsfélögin verður til skoðunar, mér heyrist að forsvarsmenn þeirra hafi meiri áhuga á því að það verði gerðar fleiri kann- anir en ekki ofboðslega viðamiklar en geti farið oftar fram á svæðinu, sérstaklega hvað varðar verðkannanir á neysluvörum. Ég mun leita eftir hugmyndum fólks um það hvað það hefur áhuga á. I samningi verka- lýðsfélaganna hér og Neytendasamtakanna er einnig lögð áhersla á að fylgjast með verð- merkingum ásamt verðkönnunum. Mér ber að halda fund með fulltrúum verkalýðsfélaganna fjórum sinnum á ári sem á að styrkja tengslin við þessi félög sem eru að fjármagna starfsemina að hluta til. Hér verður einnig lítils háttar sölustarfsemi í gangi. Gefið hefur verið út lagasafn neyt- enda sem er bæklingur sem kallast heimilis- bókhald og einnig græna bókin, sem fjallar um neytendur og umhverfi." -Ntí stóð um ttma töluverður styr um starfsemi Neytendasamtakanna, m.a. vegna ásakana þáverandi starfsmanns, Vilhjálms Inga, á hendur forsvarsmönn- um Neytendasamtakanna, en hann sat jafnframt þar i stjórn. Heldur þú að það bitni á starfseminni tindir þinni stjórn? „Ég sótti um starf sem var auglýst laust til umsóknar og ég hef ekki minnstu hugmynd, vilja eða þekkingu til að setja mig inn á það mál allt, hef ekld tekið þátt í neinum öldu- gangi innan samtakanna, og hef ekki áhuga á honum. Ég er í því starfi sem Vilhjálmur Ingi gegndi og annað hef ég ekki um málið að segja. Hann er formaður félagsins hér fyrir norðan og við spjöllum saman. Annað er ekki hægt, Neytendafélag Akureyrar er félagsskapur innan Neytendasamtakanna og ég er í því félagi. Það gefur auga leið að það verða að vera samskipti milli starfs- mannsins og formanns og félagsins á Akur- • « eyn. -Er nauðsynlegt að reka svona skrifstofu úti á landi? „Eftir því sem þjónustan er nær þeim sem þiggja hana, því betri ætti hún að vera og þægilegri fyrir þann sem hana þiggur. Það er ekki bara að ég muni framkvæma verð- könnun hér fyrir norðan, heldur mun ég einnig fara á aðra staði á landinu til þess að fá raunhæfan samanburð, t.d. við höfuð- borgarsvæðið. Fyrsta könnunin sem verður um matvöruverð verður einnig með viðmið í aðrar verslanir á Iandinu, en síðan koma t.d. kannanir um þjónustu." — GG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.