Dagur - 03.02.1998, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Clinton og Monica Lewinsky: „veiðiskapurínn“ er e.t.v. ekki eingöngu afhans háifu.
Sá stóri pilsaveiðari
Það væsir ekki um Bandaríkin
þessa dagana, ef marka má mat
fréttaskýrenda, sérfræðinga ým-
iskonar og framtíðarspámanna,
a.m.k. þegar efnahagsmál eru á
döfinni. Þetta virðist eiga
nokkurn veginn jafnt við um að-
ila sem samkvæmt hefð teljast til
vinstri og þá sem samkvæmt
sömu hefð teljast til hægri.
Matið á þróun mála í efna-
hagslífi Bandaríkjanna er yfir-
leitt jákvætt, jafnvel mjög já-
kvætt. A stjórnarárum „þess
stóra pilsaveiðara" Clintons
(miðað við málflutning sumra
um núverandi Bandaríkjafor-
seta) eru Bandaríkin sögð hafa
verið lengur á uppleið samfleytt í
efnahagsmálum en nokkru sinni
fyrr eftir heimsstyrjöldina síðari.
(Um þessar mundir virðist ríkj-
andi mat á frammistöðu Reagan-
stjórnarinnar í efnahagsmálum
vera að sú frammistaðan hafi
verið herfileg.)
Ár Mðar og hagvaxfar
Hagvöxtur Bandaríkjanna hefur
undanfarið verið stöðugur, at-
vinnuleysi undir 5%, verðbólga
er vart merkjanleg. Nokkurrar
ókyrrðar hefur gætt á verðbréfa-
markaðnum út frá kreppunni í
Austur- og Suðaustur-Asíu, en
flestir virðast telja litlar líkur á
að sú kreppa nái verulega til
Bandaríkjanna á næstunni.
í félagsmálum eru Bandaríkin
einnig sögð á uppleið. Glæpa-
tíðni fer lækkandi, sem og tala
fólks sem er komið upp á félags-
hjálp og dánartalan af völdum al-
næmis. Fóstureyðingum fækkar
og einnig fæðingum blökku-
barna utar hjónabands. Niður-
stöður kannana benda til þess að
árangur skólakerfis landsins,
sem mjög hefur verið gagnrýnt,
fari batnandi.
Spárnar fyrir heiminn um fyrir
skömmu byrjað ár geisla a.m.k.
sumar af bjartsýni. Spáð er að
gróska í efnahagsmálum verði í
ár meiri en nokkru sinni fyrr á
áratugnum. Efnahagsvandræðin
í mörgum ríkja Austur- og Suð-
austur-Asíu verði bætt upp með
miklum hagvexti í Rómönsku
Ameríku, Indlandi og Kína,
meira verði til skiptanna fyrir
mannkynið í árslok en var í byrj-
un árs, þrátt fyrir Ijölgun þess
um 80 milljónir. 1998 verði eitt
mesta friðarárið í minnum núlif-
andi manna; engin stríð milli
ríkja og tala drepinna í hernaðar-
aðgerðum með lægsta móti eftir
því sem gerst hafi á síðari tím-
um.
70% ánægðir
Þetta þakka sumir að talsverðu
eða mestu leyti forystu Banda-
ríkjanna, risaveldisins eina. Vel-
gengni Bandaríkjanna í efna-
hagsmálum sé grundvöllur að
velgengni annarra í þeim efnum.
Baksviö
Að margra mati hafa
BandaríMn notið
óvenjumíkillar efna-
hagslegrar velgengni
og verið voldugri í
hlutfalli við heiminn
en iiolíkm sinni fyrr
á stjómarárum Bills
Clinton.
Hernaðarlega séu Bandaríkin
það öflug í krafti gervitungla og
tölvutækni að þau hafi á þeim
vettvangi sterkari tök á heimin-
um en nokkru sinni fyrr og neyti
þess til að tryggja frið.
Niðurstöður skoðanakannana
benda til vaxandi bjartsýni al-
mennings í Bandaríkjunum um
land sitt og samkvæmt þeim nið-
urstöðum telja 70% landsmanna
sig hafa það sæmilegt eða gott
efnahagslega séð.
Bandaríska forsetaembættið er
æðsta tákn Bandaríkjanna sem
ríkis, forsetinn er æðsti maður
þeirra formlega og sem stjórnar-
formaður valdamesti embættis-
maður þeirra. Með hliðsjón af
velgengni þeirri, sem Bandaríkin
hafa að rnargra mati átt að fagna
í stjórnartíð Clintons, bæði
heimafyrir og í heimsmálum,
mætti því ætla að hann væri í há-
vegum hafður í landi sínu.
„SkcUilega gagnkynhneigður“
Niðurstöður skoðanakannana
benda og til þess að landsmenn
séu almennt nokkuð ánægðir
með Bill forseta Clinton. I
þriggja ára þvargi í Whitewater-
málinu hefur ekki tekist að
sanna nein lögbrot upp á Clint-
on-hjónin og kvennafarssögurn-
ar af forsetanum virðist mildll
þorri manna láta sér í léttu rúmi
liggja. Margir telja að eitthvað sé
til í þeim. Þekktur bandarískur
rithöfundur - vinveittur Clinton
- sagði nýlega að forsetinn væri
„skelfilega gagnkynhneigður".
Hann er myndarmaður í sjón,
unglegur eftir aldri og margra
mál hefur lengi verið að árangur
og vald hafi kynlaðandi áhrif á
konur. Hugsanlegt væri þvf að
„veiðiskapurinn" í samskiptum
Clintons við hitt kynið væri ekki
síður af hálfu þess en hans. Sig-
ur sinn í síðustu forsetakosning-
um mun hann ekki síst hafa átt
aðjtakka fylgi meðal kvenna.
Ymsir, þ.á m. bandarískir rit-
stjórar, blaðamenn og fjölmiðla-
fræðingar í fremstu röð, segja
allan fyrirganginn í fjölmiðlum
gegn Clinton-hjónum fyrr og nú
stafa a.m.k. sumpart af hraðri
gæðarýrnun í fjölmiðlunargeir-
anurn. Stjórnunar-, markaðs- og
hagfræðingar verði stöðugt
áhrifameiri við íjölmiðlunarfyrir-
tækin. Þeir hugsi fyrst og fremst
um markaðinn, en síður það að
fjölmiðlar gæti þess að vera hlut-
lægir og heiðarlegir. Þar við bæt-
ist síharðnandi keppni um að
verða fyrstur með fréttirnar. Sú
keppni hafi harðnað með til-
komu alnetsins, því að blöð geti
verið komin með efni sitt inn á
það áður en þau koma út. Hafi
sú keppni forgang verði minna
ráðrúm til þess að athuga málin,
tala við fleiri en einn eða fleiri en
tvo •heimildarmenn þegar eitt-
hvað æsandi efni er á döfinni.
Fyrir fjölmiðlana verði minna
ráðrúm og minni tími til þess að
reyna að vera heiðarlegir og hlut-
lægir.
Þetta kunni andstæðingar
Clinton-hjóna að reyna að not-
færa sér.
Farþegaflugvél hrapar
FILIPSEYJAR - Farþegaflugvél ar gerðinni DC-9 með 104 manns
innanborðs hrapaði í gær á Filipseyjum. Vélin var í innanlandsflugi
frá höfuðborginni Manila til Mindanao þegar hún rakst á fjall sunn-
an til á Filipseyjum. Brot úr flakinu fundust á víð og dreif og nánast
engar líkur voru taldar á því að neinn hafi komist lífs af.
ArabaríMn lítt hrifiu af árás á írak
KÚVEIT - Leiðtogar í arabaheiminum hafa sívaxandi áhyggjur af því
að gerð verði árás á írak, og vilja heldur leita friðsamlegra lausna.
Allsherjarsamtök múslima fóru í gær fram á það við Kofi Annan,
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að hann leiti allra ráða til
að hjá því verði komist að hernaðaraðgerðum verði beitt, sem endað
gætu með skelfingu. Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hvatti enn-
fremur Saddam Hussein til þess að forðast það að til átaka komi.
Meira laudnám á Vesturhakkanum
ÍSRAEL - Israelsk dagblöð skýrðu frá því að stjórnvöld hyggi á enn
frekari húsbyggingar týrir gyðinga á Vesturbakkanum, þrátt fyrir
harða gagnrýni sem þau áform hafa sætt. Tugþúsundir nýrra land-
nema, einkum rétttrúaðir gyðingar, eiga að flytjast í Etzion-byggðina,
sem er á milli Betlehem og Hebron.
I gær kom einnig til átaka milli palestínskra ungmenna og •
ísraelskra hermanna í útjaðri Betlehem. Fjöldi ungmenna kom særð-
ur frá þeim hildarleik, en þau höfðu hent grjóti að hermönnunum.
Leiðtogar krefjast
kj amprkuvopnahanus
BÁNDARÍKIN - Meira en hundrað fyrr-
verandi eða núverandi þjóðarleiðtoga und-
irrituðu um helgina yfirlýsingu þar sem
þess er krafist að öll kjarnorkuvopn í
heiminum verði tekin úr viðbragðsstöðu
til að byrja með og jafnframt verði gripið
til annarra aðgerða sem miði að því að
þeim verði útrýmt með öllu. Meðal þeirra
sem undirrituðu yfirlýsinguna eru Jimmy
Carter, fyTrverandi forseti Bandaríkjanna,
og Mikhaíl Gorbatsjov', fyrrverandi leiðtogi
Sovétríkjanna, Helmut Schmidt, fyrrver-
andi kanslari Þýskalands, og James Mikhaii Gorbatsjov, einn
Gallagher, fyrrverandi forsætisráðherra þeirra sem undirrita áskorun
Bretlands. Alls eru það 117 Ieiðtogar sem um aiisherjar utrýmingu kjarn-
undirrita áskorunina, sem er hliðstæð orkuvopna.
sambærilegri áskorun 40 herforingja sem
undirrituð var árið 1996.
Bítlar selji hjölluna
ÞYSKALAND - Volkswagen verksmiðjurnar í Þýskalandi vilja fá Paul
McCartney, George Harrison og Ringo Starr til þess að auglýsa nýju
bjölluna sína, splunkunýja endurgerð af gömlu Volkswagen bjöllunni
sem var metsölubifreið áratugum saman. Framleiðslu bjöllunnar var
hætt í Þýskalandi fyrir tveimur áratugum, en nú á að taka upp þráð-
inn aftur þar sem frá var horfið.
Annan vill slaka á vidskiptahanninu
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR - Kofi Annan, rramkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, vill að írökum verði heimilað að selja olíu fyrir
nærri 400 milljarða íslenskra króna á sex mánaða tímabili gegn því að
andvirðið verði notað til kaupa á þTjum, matvælum og öðrum nauð-
synjavörum. Þetta er mun hærri upphæð en áður var gert ráð fyrir.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræddi tillögu Annans á fundi sínum
í gær.
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hafnarstræti 107, 600 Akureyri
sími 462 6900
UPPB0Ð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Hafnarstræti 107, Ak-
ureyri föstudaginn 6. febrúar 1998 kl.
10.00 á eftirfarandi eignum:
Byggðavegur 111, Akureyri, þingi.
eig. Gunnar Blöndal og Margrót
Hólm Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi
Fjárfestingarbanki atvinnul. hf.
Grænamýri 15, Akureyri, þingl. eig.
Aðalheiður M. Steindórsdóttir, gerð-
arbeiðendur Akureyrarbær og Líf-
eyrissjóður verslunarmanna.
Hvannavellir 2, íbúð á 1. hæð, Ak-
ureyri, þingl. eig. Sigríður Ása
Harðardóttir, gerðarbeiðendur Hús-
bréfadeild Húsnæðisstofnunar, ís-
landsbanki hf. höfuðst. 500 og
Tryggingastofnun ríkisins.
Skriðuland, Arnarneshreppi, þingl.
eig. Friðrik Árni Kristjánsson, Hörð-
ur Már Kristjánsson, Sigríður Ásta
Kristjánsdóttir, Berglind Ása Krist-
jánsdóttir og Halldóra L. Friðriks-
dóttir, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins og Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Sunnuhlíð 23f, Akureyri, þingi. eig.
Fanney Rafnsdóttir, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður verkamanna.
Vallargata 5, Grímsey, þingl. eig.
Steinunn Stefánsdóttir, gerðarbeið-
endur Endurskoðun Akureyri hf. og
Sýslumaðurinn á Akureyri.
Þverá II, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig.
Ari Biering Hilmarsson, gerðarbeið-
endur Eyjafjarðarsveit, íslands-
banki hf. höfuðst. 500, Sýslumaður-
inn á Akureyri, Vátryggingafélag ís-
lands hf. og Vélsmiðjan Akureyri
ehf.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
2. febrúar 1998.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.