Dagur - 03.02.1998, Page 13

Dagur - 03.02.1998, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 - 13 KR-ingar funheitir Darryl Wilson og félagar í Grindavík tróna enn á toppnum i DHL-deildinni. KRingar gerðu góða ferð á ísafjörð. Ilauk ar rassskelltu ÍR. Grindvíkiugar máttu þakka fyrir sigurinu á Akranesi. UMFN - Valux 113-89 Valsmenn fengu kennslustund í körfubolta er þeir heimsóttu Njarðvíkinga á sunnudaginn. Heimamenn, sem unnið hafa tvo leiki í röð, komu fullir sjálfs- trausts til leiks og réðu gangi mála frá fyrstu mínútu. Þeir berjast nú hatrammri baráttu um hagstætt sæti í deildinni sem gefur þeim heimaleikjarétt í úr- slitakeppninni. Valsmenn eiga hinsvegar sáralitla möguleika á að komast í úrslitakeppnina og sigla Iygnan sjó í deildinni með- an Þór og IR halda áfram að tapa leikjum sínum. ÍR-Haukar 54 105 ÍR-ingar fengu einhverja verstu útreið sem lið hefur fengið á heimavelli í DHL-deiIdinni f vet- ur. Haukarnir gerðu það sem þeir vildu gera meðan rænulaus- ir Breiðhyltingarnir voru í elt- ingaleik við sjálfa sig og Hauk- ana allan tímann. Hætt er við því, að erfitt geti verið fyrir þá að ná upp sjáifstraustinu eftir 51 stigs tap á heimavelli og ekkert annað en erfið fallbaráttan er framundan fari IR-ingar ekki að taka sig saman í andlitinu og vinna leiki. stiga forystu þegar nokkrar sek- úndur lifðu af leiknum. Það nægði en Damon Johnson náði að minnka muninn niður í eitt stig með þriggjastiga flautu- körfu. Benedikt og Iærisveinar hans gátu andað léttar. Svona kæruleysi komast þeir þó varla upp með aftur. Damon Johnson fékk allt það svæði sem hann vildi og skoraði hann rúmlega helminginn af stigum ÍA. Vandinn er bara sá að það vinnur enginn einstaklingur leik. Til þess þarf lið. Helgi Bragason og Sigmundur Herbertsson dæmdu þennan leik. Helgi dæmdi vel og senni- lega hefði leikurinn verið betur dæmdur ef hann hefði dæmt einn. KR -KFÍ 72 89 KR-ingum tókst það sem fáum hefur tekist í vetur, að rótbursta Isfirðinga á Isafirði. Þetta er annar leikurinn í röð sem liðið tapar á heimavelli sínum og nú hefur KFI hrapað úr öðru sætinu í deildinni í það fjórða. KR er aft- ur á móti að rétta úr kútnum og hefur unnið tvo leiki í röð, nokk- uð sem ekki hefur oft gerst í vet- ur. Keith Vassel er leikmaður sem Hrðist falla vel inn í Iiðið og Baldur Olafsson er að blómstra þessa dagana hjá Vesturbæjarlið- inu, sem þarf að vinna næstu leiki sína til að tryggja sig inn í úrslitin. Baráttan verður milli KR, Skallanna og IA um tvö síð- ustu sætin í úrslitakeppninni. Keflavík - UMFT 100-94 Keflavík marði sigur á Tindastóli á heimavelli sínum í framlengd- um leik. Fannar Olafsson átti mjög góðan Ieik fyrir Keflvíkinga og á eftir að reynast liðinu drjúg- ur í úrslitakeppninni. Oslípaður demantur þar á ferð. Stólarnir mættu ákveðnir til leiks og voru óheppnir að vera rændir sigrinum á síðustu stundu. Guðjón Skúlason, fyrir- liði Keflvíkinga, veit betur en flestir hvernig á að bregðast við undir slíkri pressu og það var hann sem lagði grunninn að þessum mikilvæga sigri sinna manna á lokasekúndunum. Keflavík er nú komið í þriðja sætið í DHL-deildinni, átta stig- um á eftir toppliði Grindvíldnga, sem virðast nokkuð öruggir með toppsætið leiki þeir eins og þeir best geta. — GÞÖ Skallagrímux - Þór 88 - 71 Skallagrímsmenn kláruðu leik- inn gegn Þór síðustu tvær mín- úturnar í fyrri hálfleik á meðan gestirnir stóðu og horfðu á. Stað- an í leikhléi var því 45:30 fyrir heimamenn. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu í seinni hálfleik að minnka muninn en það gekk ekki eftir. Þórsarar fá þó hrós fyr- ir að gefast ekki upp og spiluðu af krafti þar til klukkan gall. Benard Garner fór fyrir heima- mönnum en Hafsteinn Lúðvíks- son og Jesse Ratliff voru bestir í Iiði gestanna og hefðu Þórsarar mátt nýta tröllið Ratliff meira í sókninni. ÍA - Grindavík 84-85 Það benti ekkert til þess að leik- ur Skagamanna og Grindvíkinga ætti eftir að verða spennandi þegar liðin gengu til leikhlés. Gestirnir leiddu með 13 stiga mun, 34 - 47, og höfðu haft Iít- ið fyrir leiknum. Darryl Wilson var ekki í byrjunarliði Grindvík- inga og kom ekki inn á fyrr en á 11. mínútu. Það dugði honum þó til að skora 17 stig. Konstant- in varði 5 skot og Helgi Jónas stjórnaði leik gestanna mjög vel í fyrri hálfleik. Skagamenn komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálf- Ieik og á nokkrum mínútum skoruðu þeir átta stig á móti tveimur frá Grindvíkingum. Þá hrökk Wilson aftur í gang og skoraði hverja þriggjastigakörf- una á fætur annarri. Grindvík- ingar léku eins og þeir best geta í 7-8 mínútur og náðu 19 stiga forskoti þegar nokkrar mínútur voru eftir af leiknum. Æðislegur endasprettur hjá Damon John- son ásamt óafsakanlegu kæru- leysi gestanna hafði nánast rænt þá sigrinum. Konstantin náði 4 $ SUZUKI //// Mikill búnaður, lítill rekstrarkostnaður og hagstætt verð eru aðalsmerki Suzuki bílanna. Útlitið, rýmið, fjórhjóladrifiö. Baleno skutbíll vinnur strax hug og tíjartár SUZUKi AFL £ ORYGGI Baleno 3d = 1.140.000,- . 4d = 1,265;00cr,” 4d, 4x4 = 1.435.000., Wagon 4x4 = 1.595.000,- Laufásgötu 9 • P.O. Box 358 • 602 Akureyri Símar: 462 6300 & 462 3809 • Fax 462 6539 SÚZUKI SWIFT BALENO ÍÞRÓTTIR Staðan eftir 17 umferðir Staðan í deildinni l. febr. 1998 Grindavík 17 14 2 1501:1332 28 Haukar 17 12 4 1369:1157 24 Keflavík 17 10 6 1473:1385 20 KFÍ 17 10 6 1399:1319 20 Njarðvík 17 9 7 1405:1315 18 Tindastóll 17 9 7 1260:1212 18 ÍA 17 8 8 1250:1249 16 KR 17 8 8 1293:1320 16 Skallagr. 17 7 9 1327:1415 14 Valur 17 5 1 1 1292:1392 10 Þór 17 2 14 1235:1479 4 ÍR 17 2 14 1247:1476 4 Línurnar eru nú heldur að skýrast í DHL-deildinni. Grind- víkingar hafa komið sér þægilega fyrir á toppnum en Haukarnir fylgja þeim fast eftir og eru eina liðið sem á raunhæfa möguleika á að ná Grindjánunum að stig- um. Skallarnir eiga veika von um úrslitasæti. Þeir þurfa að treysta á að KR og IA tapi leikjum og geta því ekki treyst eingöngu á sjálfa sig. IR og Þór berjast fyrir lífi sínu í deild þeirra bestu. Úr- slitin gætu ráðist á Akureyri í 19. umferðinni þegar Þórsarar taka á móti IR í Höllinni. Gunnar Sverrisson, þjálfari Þórs, fær þá það skemmtilega hlutverk að bjarga sínum mönnum frá falli með því að senda gömlu félag- ana niður um deild. — GÞÖ Boltamun ekkitil framdráttar Örn Magnússon fer mikinnn í svari sínu við mínum skrifum um aulaháttinn hjá forystu- mönnum HSI. Þar afsakar hann aulaháttinn með dómarahlutann með „mannlegum mistökum". Tvenn mistök af þessu tagi á einni viku segja allt sem segja þarf. Um mál Finns Jóhannssonar sakar Örn blaðamann um að hafa ekki kynnt sér málið, þ.e. ekki rætt við skrifstofu HSI. Það er alveg rétt hjá Erni, ég talaði ekki við skrifstofuna enda þarf ekki leyfi þaðan til að mynda sér skoðun á störfum handknatt- leiksforystunnar. Eftir samtöl við fjölda manna úr handboltanum, m. a. þjálfara, forráðamenn liða og dómara, er ijóst að altalað er í hreyfingunni að mönnum finnst skrýtið að veita manni keppnis- Ieyfi erlendis sem er í keppnis- banni hérlendis. Guðni Þ. Ölversson. Tony VaUejo hættir með ÍR Antonio Vallejo, sem þjálfað hefur körfuknattleikslið IR und- anfarin tvö tfmabil, hefur Iátið af störfum hjá félaginu. Eftir niðurlæginguna sem IR-ingar urðu fyrir í heimaleik sínum á móti Haukum á sunnudaginn, gekk Tony á fund stjórnarinnar og sagði starfi sínu Iausu. Það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að leikmenn IR hafa ekki verið á eitt sáttir við störf þjálf- arans. Liðið hefur ekki náð sam- an og árangurinn eftir því. Því voru margir til að trúa því að nú væri best að taka uppsögn hans gilda og fá annan til að þjálfa Iiðið. Til þess var valinn Karl Jónsson, sem þjálfað hefur meistaraflokk kvenna hjá IR og þar áður var hann hjá Snæfelli í Stykkishólmi. — GÞÖ

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.