Dagur - 05.02.1998, Side 15

Dagur - 05.02.1998, Side 15
FIMMTVDAGVR S.FEBRVAR 1998 - 31 Ðwptr. BÍLALÍFIÐ í LANDINU Hvað kostar bílalán? Innflytjendur bíla urðu til skainms tíma varirvið að kaupendur lögðu meiri áherslu á útlit og græjur en ör- yggi og styrkleika. Nú erþetta að breytast fullyrða menn, ungir kaupendurhugsa um öryggi fjölskyldunnar. Framleiðendur leggja aðaláherslu á að auka öryggið - og minnka mengunina. Fyrir um það bil tveim árum Iögðu bílkaupendur almennt frekar áherslu á að nýi fjöl- skyldubíllinn væri á álfelgum en að hann væri búinn Ioftpúðum. Ljóst var að fleiri spurðu um hljómflutningstækin en það hvort bíllinn væri styrktur með sérstökum burðarbitum. Sem sagt: Öryggið var ekki efst í huga kaupenda, heldur miklu frekar útlit og hljómgæði! Þegar talað er um vaxandi kröfur neytenda til bifreiða kem- ur í ljós að þær kröfur snúa fyrst og fremst að öryggisþættinum. Úti í Evrópu láta yfir 45.000 manns lífið á ári hverju í bílslys- um. Það er von að þeir í Brussel hafi áhyggjur af ástandinu. Is- lendingar hafa yfirleitt ekki rek- ið upp nein fagnaðaróp vegna nýjunga sem leiða af sér stór- aukið öryggi í farþegarýminu. En þetta kann að vera að breyt- ast. Runólfur Ólafsson, FÍB: Öryggið og mengunin „Núna hafa menn orðið varir \ið það í auknum mæli að öll örygg- isuppbygging er að aukast. Þar má nefna hliðarstyrktarbitana, sem eru að koma í alla bíla. Þetta er orðið hin almenna krafa á neytendamarkaði. Bílar hafa fyrir bragðið þyngst nokkuð, en svo hefur á móti náðst góður ár- angur með tölvustýringu á bens- ínnotkun. Tilhneiging bílamark- aðarins í dag er öryggi og um- hverfisvernd," sagði Bunólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra bifreiðaeigenda, í samtali við Dag. Sem dæmi um umhverfis- vænni bíl nefndi Bunólfur Mitsubishi GTI. Hann sagðist ekki viss um að stór hluti neyt- enda skellti sér á slfkan bíl vegna þess að þeir væru svo meðvitaðir um eigin mengun. „En sá hluti á eftir að aukast,“ spáði Runólfur. Hann sagði að menn myndu neyðast til að kaupa slíka bíla, framleiðendur væru á fullu að koma með lausnir á umhverfisvandamálum - og auknu öryggi farþega. „Varðandi öryggi bílanna skilst mér á sölumönnum bíla að mun meira sé spurt um öryggisatriðin núna, sérstaklega >Tigra fólkið sem á lítil börn, og er umhugað um öryggi þeirra og umhverfi í bílnum,“ sagði Runólfur. Siguröur Helgason, Umferð- arráði: Mun öruggari bílar „Vitund fólks gagnvart öryggisat- riðunum held ég að sé alltaf að aukast. Nú er loftpúðinn að verða fastur búnaður í flestum bílum til dæmis. Það er þróunin að bílaframleiðendur leggja sí- fellt aukna áherslu á öryggið innan í bílnum, það er að þetta rými innan í bílnum þar sem ökumaður og farþegar hans sitja, verði eins öruggt og nokk- ur kostur er,“ sagði Sigurður Helgason hjá Umferðarráði. „Þegar þú skoðar myndir af bílum sem fara í árekstrapróf þá sérðu að þeir brotna að framan og gefa að sumu Ieyti eftir. En farþegarýmið helst oftar en ekki nokkuð heillegt. Það stafar af því að Evrópureglur, sem margir setja nú hornin í á neikvæðan hátt, eru strangar og kröfurnar til öryggis bílsins, bæði hvað varðar árekstur framan á, og eins gagnvart hliðum og hurð- um, hafa aukist alveg gríðarlega mikið. Rýmið er alltaf að verða öruggara og öruggara. Þú sérð kannski í sjónvaqrinu og á blaðamyndum slys og árekstra þar sem fólk nánast labbar út lítið meitt eða ómeitt, en hefði allt saman steindrepist fyrir svona 10 til 20 árum,“ sagði Sig- urður. Sigurður sagði að bílar væru mun öruggari í dag þegar stál- bitar eru settir bæði framan og aftan við farþegarými og hafa gífurlega mikið að segja. Notkun þessara bita kom inn í Evrópu- reglur í hitteðfyrra. Talandi um Evrópusambandið og Evrópska efnahagssvæðið, þar sem Island er statt, þá er mikil áhersla Iögð á umferðar- málin. Þeir vilja fækka slysum stórlega. Engin smámenni eru kölluð til að stjórna aðgerðum í umferðarmálum Evrópu. Sem dæmi má nefna að formaður nefndar sem mest hefur með umferðarmálin að gera innan ESB er Neil Kinnock, lyTrver- andi formaður breska Verka- mannaflokksins, mikill baráttu- jaxl og dugnaðarforkur. Vonir standa til að fækka dauðsföllum vegna umferðarslysa í Evrópu um allt 'að fi 'með aukinni belta- notkun einni saman. -JBP Kaup á nýjum bílum og notuðum eru auð- veldari í dag en nokkru sinni. Þúsundir manna notfæra sér bílalánin, sem fjármögnunarfyr- irtæki og tryggingafélög bjóða upp á, og langflestum tekst að standa í skilum með greiðslur. Dagur forvitnaðist um bílalánin hjá Glitni hf. sem vinnur við fjármögnun atvinnutækja og fjármögnu n bíla fyrir einstak- linga. Heiður Agnes Björnsdótt- ir er markaðsstjóri Glitnis. „Það segir sig sjálft að kostn- aður fylgir því að taka fé að láni. En frá því að sérstök lán til bíla- kaupa komu á markað hérlendis hefur kostnaður við þau sífellt farið lækkandi. Nú er staðan þannig að kjör á bílafjármögnun Glitnis eru í flestum tilfellum hagstæðari en kjör lána sem teldn væru í banka til sömu nota. Vextir á verðtryggðum lán- um hjá Glitni eru 7,8%, en dæmigerður viðskiptavinur fengi slíkt lán í banka með 8,95% vöxtum gegn fasteigna- veði en 10,7% gegn sjálfskuldar- ábyrgð. Kaupandi bíls ræðir við bíla- salann um Ijármögnun kaupanna. Bílasalinn sækir um Iánið sem kaupandinn þarfnast og umsókninni er svarað fljótt og vel, langoftast innan fárra mínútna. Boðið er upp á 75% lánshlutfall til kaupa á nýjum bílum til allt að 7 ára, 84 mán- aða,“ en vilji menn fá 100% lán til kaupa á nýjum bíl þá skal greiða lánið á 4 árum. Þýöa í raun staðgreiðslu- afslátt „Hjá mörgum er það að taka bílalán orðið hluti af því að kaupa bíl. Þessi lán miðast við það að gera kaupin þægileg. Engu að síður sjá sumir noklu-um ofsjónum yfir bílalán- unum og eru búnir að gleyma hvernig þessum málum var háttað fyrir daga þeirra. Reynd- in var sú að Ijölmargir fjár- mögnuðu hluta bilverðsins með lánum, annað hvort frá bílaum- boðinu eða slógu lán í banka. Ef bílasalinn Ijármagnaði bílinn að hluta missti viðskiptavinur- inn af staðgreiðsluafslættinum, sem oft var umtalsverður, en eftir að farið var að bjóða hefð- bundin bílalán er aðeins um eitt verð að ræða, staðgreiðsluverð." Heiður segir að Frjáls bílalán Glitnis séu sérstæð fyrir þær sakir að bíleigandinn getur tryggt bílinn þar sem honum hentar, en kraía er um að bíll- inn sé kaskótryggður á samn- ingstímanum. Tvær leiðir bjóðast. Annars vegar eru Frjáls bílalán Glitnis, veðlán þar sem kaupandi er skráður eigandi bílsins frá upp- hafi. Hins vegar er Bílasamn- ingur Glitnis, kaupleiga, sem boðin hefur verið undanfarið ár. Fjármagnið kosfar sitt Hvað kostar að taka Fijálst bíla- lán? Við skulum taka dæmi. Maður kemur með bíl sinn til bílasalans. Hann fær 1.100 þúsund krónur fyrir gamla bílinn en vill eignast bil sem kostar 2 milljónir króna. Mismunurinn er 900 þúsund, og bílasalinn sækir um hjá Glitni. I upphafi hækkar höfuð- stóll skuldarinnar í 943.670 krónur. Þar kemur til 28 þúsund króna stofngjald, auk stimpilgjalds og þinglýsingar- kostnaðar, en al- gengast er að þessi lántöku- kostnaður sé lán- aður einnig. Lengd lánsins er 84 mánuðir með jöfnum afborgun- um, 11.234 krónur á mánuði plús vextir og greiðslugjald. Heildarmánaðargreiðslan verð- ur hæst 18.696 krónur en lægst í lok tímabilsins, 13.280 krónur. Eftir 7 ár er bíllinn væntan- lega kominn á miðjan aldur, jafnvel orðinn aldraður. En það sem þú hefur borgað fyrir 900 þúsund króna lánið er eftirfar- andi: Vextir 261.711 krónur, greiðslugjöld 23.100 krónur og auðvitað afborganir, samtals 943.670 krónur. Heildargreiðsl- ur nema því 1.228.481 krónu. Kostnaðurinn við lántökuna er vissulega orðinn nokkur, eða 328.481 króna. Þetta þýðir ljár- magnsgjöld uppá nærri 47 þús- und krónur á ári eða um 3.900 krónur á mánuði. Ef tekið hefði verið Frjálst bílalán til 5 ára hefði heildarkostnaður orðið töluvert lægri, eða 248.273 krónur. -jpb Heiöur Agnes Björnsdóttir fulltrúi hjá Glitni hf., - afgreiðsla bílalána tekur oft ekki nema nokkrar mínútur og staðfesting fljót að berast til bílasalans. mynd: hilmar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.