Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 1
VerkfaH blasir við Djúpt á lausn í sjd- iiiaiiiiadeiliiimi. Við- ræður síðustu vikiia hafa litlu sem engu skilað. Þríhöfðanefnd- in á endasprettinum. „Það horfir alveg tvímælalaust þunglega um lausn, því miður. Við þessar aðstæður er það arfa- vitlaust að fara í verkfall. Eg hef hinsvegar þær væntingar uppi að menn sjái að sér,“ segir Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna. „Utvegsmenn eru bara ekki til- búnir til viðræðna um eitt eða neitt og ræða ekki við okkur efn- islega um kröfurnar," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Islands. Hann segir undangengna sáttafundi með útvegsmönnum ekki hafa skilað neinu. Sáttafundur er boð- aður í dag, þriðjudag, en þeir hafa verið haldnir að jafnaði tvisvar í viku frá því verkfallinu var frestað tímabundið. Nær ekkert hefur þokast í átt til samkomulags í viðræðum samn- inganefnda sjómanna og útvegs- manna frá því verkfallinu á fiski- skipaflotanum var frestað að kveldi 11. febrúar sl. til 15 mars nk. Gangi ekki saman fyrir þann tíma stöðvast flotinn í annað sinn á tveimur mánuðum. Ef allt um þrýtur geta menn frestað verkfalli enn og aftur ef menn ná saman um það. I húfi er sem fyrr Ioðnu- vertíðin og aðrar fiskveiðar. Beðiö eftir Þríhöfða Svo virðist sem menn bíði eftir til- Iögum Þríhöfðanefndarinnar svokölluðu um verðmyndun fisk- verðs og kvótabraskið. I þeim efn- um er búist við að gerðar verði til- lögur um kvótabanka, lágmarks- verð og að úrskurðarnefndin verði efld. Reiknað er með að nefndin muni jafnvel skila tillögum sínum til ráðherra í þessari viku og jafn- vel á morgun, miðvikudag. Ef að líkum lætur mun hart verða tekist á um tillögur nefndarinnar því út- vegsmenn hafa verið mótfallnir kvótabanka og efla úrskurðar- nefndina. Sjómenn hafa hinsveg- ar verið jákvæðari til þessara atr- iða. Þótt útvegsmenn hafi Ijáð máls á lágmarksverði hafa sjó- menn hafnað verðhugmynd þeirra og talið hana of lága. Arni Kolbeinsson, ráðuneytis- stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og formaður Þríhöfðanefndarinn- ar, vill hinsvegar ekki tjá sig um neinar dagsetningar né efnisatr- iði. Hann segir nefndina vinna eins hratt og kostur er og hafa nefndarmenn fundað nær daglega síðustu vikur. Jákvæðir vélstjórar Vélstjórar virðast þeir einu sem telja sig hafa haft eitthvert gagn af sáttafundum síðustu vikna við útvegsmenn. I það minnsta telur Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags Islands, að menn færist nær samkomulagi með hverjum fundinum, þótt ekkert sé orðið naglfast. Meðal annars sé búið að skipa í nefnd sem hefur aukahluti og starfsumhverfi vélstjóra á sinni könnu og aðra nefnd um endur- menntunarmál vélstjóra. Þeir funduðu með útvegsmönnum í gær í Karphúsinu en annar fund- ur hefur ekki verið boðaður. - GRH Fátt virðist benda til annars en að fiskiskipaflotinn stöðvist á nýj'an leik eftir tæpan hálfan mánuð. Nær ekkert hefur miðað í samkomulagsátt frá því verkfallinu var frestað 1 /. febrúar sl. Á meðan bíða menn tillagna um verðmyndun og kvótabrask frá Þríhöfðanefndinni sem hugsanlega kunna að sjá dags/ns Ijós á morgun, mið- vikudag. - mynd: e.ól. Gullog gersemar Á þriðja hundrað konur og karlar komu í gær að líta á skartgripi úr góðmálmum og dýrum steinum, eftir heimsfræga hönnuði, á sýn- ingu uppboðsfyrirtækisins Sothe- by’s í Islandsbanka, sem lýkur í dag. Um 50 gripir eru á sýning- unni metnir á samtals rúmar 30 milljónir króna. Að sögn Sigríðar Ingvarsdóttur skiptir það kannski ekki megin- máli hvort einhverjir sýningar- gestanna muni bjóða í gripina. Sýning sé jafnvel fremur hugsuð sem kynning. Og til leiðréttingar á hugsanlegum ranghugmyndum um að fólk þurfi að hafa hundrað milljónir handbærar til að eiga er- indi á skartgripauppboð hjá Sotheby’s, eins og fréttir af allra frægustu uppboðunum geti gefið til kynna. Matsverð gripanna á sýningunni sé frá um 50 þús. kr. og upp í 3 milljónir og kaupendur haldi sig yfirleitt innan þess ramma. Þannig að „venjulegt" fólk getur átt fullt erindi á skartgripa- uppboð, jafnvel hjá Sotheby’s. Margir renna eflaust hýru auga til skartgripanna sem sýndir eru i íslandsbanka af hálfu Sotheby's. - mynd: bg Rýmingarsala á áfengi hefst f dag. Brjóstbirtan lækkar um 25% og ÁTVR býr sig undir biðraðir. „Nammi- dagur“ hjá ATVR Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins efnir til rýmingarsölu sem hefst í dag og stendur til 10. mars nk. Lækkun frá verðskrá er að meðal- tali 25%. Einar S. Einarsson, full- trúi hjá ÁTVR, segir að ekki sé um gamlar birgðir að ræða, eins og einhver kynni að halda, heldur er verðlækkunin á áfengi sem hef- ur verið á reynslusölu, en ekki náð inn í innflutningskjarna ÁTVR. Megnið er flutt inn á seinni hluta síðasta árs. „Það er alltaf mikill áhugi fyrir rýmingarsölu hjá okkur. Þær eru mjög vel sóttar og biðraðir hafa stundum myndast. Magnið af hverri tegund er mjög mismun- andi, allt frá 700-800 flöskum af tegund niður í eina eða tvær,“ segir Einar. Og verður þetta eini „nammidagur“ ársins sem ÁTVR efnir til? „Já, ég þori að fullyrða það. Það er engin ástæða til ann- ars en að safna þessu saman og hafa þessar útsölur bara einu sinni á ári,“ segir Einar. - BÞ Leikskólaiun- sókn við skím Foreldrar eða forráðamenn barna á Akureyri geta nú lagt inn um- sóknir vegna leikskóladvalar barna á leikskóla Akureyrar um Ieið og barnið hefur fengið nafn og kennitölu. Þannig kemst barn- ið fyrr inn á umsóknarlista en ver- ið hefur. Bensín lækkar umkrónu Olíufélögin Iækkuðu í gær verð á 95 og 98 oktana bensíni um eina krónur lítrann eða um 1,2 til 1,4 prósent. Verð á 95 oktana bensíni lækkaði úr 76 í 75 krónur líter- inn, en verð á 98 oktana bensíni lækkaði úr 80,70 krónum í 79,70 krónur. Lækkunin er eins hjá stóru olíufélögunum þremur. - FÞG GabrioMÍ Chöggdeyfar) GS varahlutir Hamarshöfða 1-112 Reykjavík Sími 567 6744-Fax 567 3703 Alfa Laval Varmaskiptar SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNt 31 • S!M! 562 7222 • SRÉFASÍM! 562-1024 t

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.