Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 7

Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 7
Ðzsfir ÞRIDJUDAGUR 3. MARS 1998 - 7 ÞJÓÐMÁL Þegar góðar mann- eskjur hafast ekki að Kofi Annan. „Enginn vafi leikur á að Sameinuðu þjóðirnar þurfa í fyrirsjáanlegri framtíð að gefa meiri gaum að hinum fyrirbyggjandi þætti í starfsemi sinni, “ segir utanríkisráðherra. IJALLUOR ASGRIMS- SON UTANRÍKIS- RÁÐHERRA SKRIFAR Afskipti Sameinuðu þjóðanna af málefnum Irak hafa verið í brennidepli að undanförnu. Eft- ir árangursríka för framkvæmda- stjóra, Kofi Annans, til Baghdad, hefur loftárásum Bandaríkjanna á valin skotmörk í írak verið af- stýrt, að minnsta kosti um sinn. Vissulega hlýtur það að vera öll- um siðmenntuðum þjóðum fagnaðarefni að saklausum borg- urum skuli þannig hafa verið forðað frá þeim hörmungum og eyðileggingu sem óumflýjanlega hljótast af hernaðaraðgerðum, í hvaða mynd sem er. Friðarför framkvæmda- stjórans En mikilvægt er að draga réttar ályktanir. Friðarför fram- kvæmdastjórans skilaði árangri vegna þess að Saddam Hussein áttaði sig á afleiðingum þess að virða ályktanir öryggisráðsins að vettugi. Hefðu bandarísk stjórn- völd, studd af bandamönnum, ekki sýnt það í verki að þeim var full alvara með að knýja á um efndir, er ólíklegt að Saddam hefði fallist á það að lokum að heimila eftirlitsmönnum SÞ óheftan aðgang að vettvangi, þar sem Irakar eru taldir geta leynt lífefna- og eiturvopnum. Hótun- in um beitingu hervalds var því á vissan hátt forsenda hinnar frið- samlegu niðurstöðu, sem nú liggur fyrir. Fleyg orð Winston Churchills „viljir þú halda frið- inn skaltu búa þig undir stríð“ koma óneitanlega í hugann af þessu tilefni. Umræðan um Irak leiðir hugann einnig að almennu hlutverki Sameinuðu þjóðanna. Hvernig búum við samtökin best úr garði til að takast á við við- fangsefni framtíðarinnar? Geta Sameinuðu þjóðirnar hlutast til um ástandið í einstökum ríkjum með herboði? Og hvaða sess eiga aðgerðir af því tagi að hafa í sam- anburði við aðra starfsemi hins alþjóðlega samfélags, t.a.m. fyr- irbyggjandi aðgerðir? Hlutverk öryggisráðsins og framtíð þess Öryggisráðið er helsta valda- stofnun Sameinuðu þjóðanna, ásamt allsherjarþinginu. Sam- kvæmt stofnskránni ber aðildar- ríkjum öryggisráðsins að meta hvort fyrir hendi sé „ófriðar- hætta, friðrof eða árás“ og ákveða viðbrögð. Ráðið getur mælt fyrir um til hvaða aðgerða, annarra en hernaðaraðgerða, skuli gripið, t.d. viðskiptaþving- ana, samgöngubanns eða stjórn- málasambandsslita. Telji ráðið slíkar ráðstafanir ekki nægja til varðveislu friðar og öryggis, get- ur það lagt á ráðin um hernaðar- aðgerðir. Þar sem samtökin sem slík hafa ekki yfir eigin herstyrk að ráða, hefur verið litið svo á að öryggisráðið gæti veitt einstök- um ríkjum eða samtökum ríkja umboð til aðgerða, líkt og gert var í Flóabardaga árið 1991. Þótt stofnskráin hafi að flestu leyti staðist tímans tönn, hefur margt breyst frá þeim tíma að hún var samin. Við stofnun sam- takanna voru aðildarríki 50 og sætin í öryggisráðinu 10, 5 föst og 5 kjörin sæti. Hálfri öld síðar eru aðildarríkin 185, en sætin í öryggisráðinu 15, 5 föst og 10 kjörin sæti. Ein afleiðing hinnar öru fjölgunar aðildarríkjanna, ekki síst hin síðari ár, er að sam- setning öryggisráðsins getur vart talist endurspegla lengur á raun- hæfan hátt hið fjölbreytilega pólitíska og landafræðilega litróf hins alþjóðlega samfélags. Svo tryggt sé að aðgerðir öryggisráðs- ins njóti stuðnings sem flestra aðildarríkjanna er nauðsynlegt að breytingar verði gerðar á ör- yggisráðinu og það útvíkkað. Samkomulag er um þetta meg- inmarkmið meðal aðildarríkj- anna. En mikið lengra nær sam- komulagið ekki. Aðildarríkin, sem ráðgast hafa um stækkun ráðsins frá árinu 1993, greinir enn á um mörg atriði, m.a. hvort fjölga beri föstum og kjörnum sætum eða einungis kjörnum sætum, hvaða ríkjum skuli út- hlutað föstum sætum og hvort slíkum sætum skuli fylgja neit- unarvald. Af hálfu Norðurlanda hefur verið lagt til að bæði föst- um og lausum sætum verði fjölg- að, að svæðahópar ákveði sjálfir hvaða ríki skuli hreppa föst sæti, en heildarfjöldi sæta verði um 23. Einnig eru Norðurlöndin Þegar forvamarstarf ber ekki árangur og heimsfriði er ógnað, Jjurfa allar þjóðir, stórar sem smáar, að hafa hugrekki til að hregðast við. Afþeim sökum gat ísland ekki látið sitt eftir liggja í tilrauuum til að afstýra frekari stríðshörmungum við Persaflóa. hlynnt því að settar verði skorður við beitingu neitunarvaldsins, sem einungis hinir föstu með- limir hafa fengið að njóta til þessa. Með þátttöku í tillögun- um hefur Island viljað leggja sitt af mörkum til þess að öryggis- ráðið verði skilvirkara og betur í stakk búið til að koma fram sem fulltrúi allra aðildarríkja SÞ á sviði öryggismála í framtíðinni. Breyttar áherslur Sameinuðu þjóðanna En fleira hefur breyst í heimin- um en fjöldi aðildarríkja Samein- uðu þjóðanna. Eina markverð- ustu breytingu síðari ára má þakka lokum kalda stríðsins, en hún er fólgin í auknum skilningi á því sjónarmiði að leiðin til að tryggja öryggi fólks sé ekki að vígvæða það, heldur skapa því mannsæmandi lífsskilyrði. I þvi sambandi er mikilvægast að upp- ræta fátækt, bæta menntun, standa vörð um mannréttindi, stuðla að félagslegum jöfnuði og afstýra ógnum við hið náttúru- lega umhverfi. Aðgerðir sem þessar jafngilda í rauninni starfs- skrá til að komast fyrir rætur ófriðar. Það er ekki síst af þess- um sökum að friðargæsla á veg- um samfélags þjóðanna skarast nú æ meir við aðra starfsemi, svo sem félagslega uppbyggingu, flóttamannaaðstoð, kosninga- ráðgjöf og löggæslu; starfsemi sem Island hefur tekið aukinn þátt í á undanförnum árum. Sameinuðu þjóðirnar hafa reynt að aðlaga sig þessum áherslubreytingum, ekki síður en einstök ríki. Þegar núverandi framkvæmdastjóri tók við störf- um fyrir ári lýsti hann því yfir að hann myndi setja endurbætur á samtökunum á oddinn í störfum sínum. Á liðnu sumri lagði hann fram umfangsmikla áætlun, sem miðar m.a. að því að gera þróun- armál og ýmsa tengda þætti, svo sem mannréttindi, fyrirferðar- meiri í störfum samtakanna. I viðræðum okkar við fram- kvæmdastjórann þegar hann heimsótti Island í byijun sept- ember sl., fullvissaði ég hann um að Island styddi endurbótastarfið af heilum hug. Fyrirbyggjandi starf er besta tryggingin fyrir fridi Enginn vafi leikur á að Samein- uðu þjóðirnar þurfa í fyrirsjáan- legri framtíð að gefa meiri gaum að hinum fyrirbyggjandi þætti í starfsemi sinni. A Austfjörðum var eitt sinn haft á orði að auð- veldara væri að fela fiskinn en elta köttinn. I alþjóðlegu sam- starfi á hið sama við. Það er í alla staði hagkvæmara og vænlegra til árangurs að koma í veg fyrir vandamál, sem oft eru undirrót ófriðar, en slökkva eldana eftir að ófriður hefur brotist út. Upp- byggingarstarf af þessu tagi er hins vegar bæði tímafrekt og kostnaðarsamt. Við bætist að Sameinuðu þjóðirnar geta ekki gert hlé á störfum til að aðlaga sig breyttum aðstæðum. Að end- urbæta samtökin er því að sumu Ieyti eins og að freista þess að gera við ökutæki á ferð. Enginn vafi leikur á að endur- bætur á störfum Sameinuðu þjóðanna, þ. á m. útvíkkun ör- yggisráðsins, geta ráðið miklu um hvort samtökin ná fullum tökum á verkefnum sínum í framtíðinni. En við skulum ekki láta blekkjast. Jafnvel þótt Sam- einuðu þjóðunum tækist það ætlunarverk sitt að útrýma fá- tækt, ráða bót á hungri, vernda náttúruauðlindir og koma á lýð- ræðislegum stjórnarháttum, er ekki þar með sagt að ófriði manna og ríkja í millum verði af- stýrt. A átjándu öld var því spáð að viðskipti og efnahagsleg auð- sæld myndu þegar tímar liðu gera átök óþörf. Sú von hefur ekki staðist frekar en margar aðr- ar tálsýnir manna. Valdagræðgi, ofbeldishneigð og virðingarleysi fyrir lífi og lifnaðarháttum ann- ars fólks hafa því miður fylgt mannkyninu frá upphafi og munu gera það áfram. Með al- þjóðlegu samstarfi getum við á hinn bóginn haldið áhrifunum af slíkum meinvörpum í skefjum. Þegar forvarnarstarf ber ekki árangur og heimsfriði er ógnað, þurfa allar þjóðir, stórar sem smáar, að hafa hugrekki til að bregðast við og axla sína ábyrgð. Af þeim sökum gat Island ekki látið sitt eftir liggja í tilraunum til að afstýra frekari stríðshörm- ungum við Persaflóa. Sagði ekki kunnur breskur hugsuður eitt sinn: „Allt sem þarf til að hið illa nái yfirhöndinni í heiminum, er að góðar manneskjur hafist ekki að“?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.