Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 11

Dagur - 03.03.1998, Blaðsíða 11
ÞRIÐiUDAGUR 3. MARS 1998 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR ,, Prímako v-keraiingin6 6 Sergeje v marskálkur, varnarmálarádherra Rússlands. Hann er einn þeirra ráða- manna þar, sem taldir eru beita sér fyrir stefnubreytingu i utanríkismálum. Hættan á öðru stríði Bandaríkj- anna og bandamanna þeirra við Irak virðist liðin hjá í bráðina, en miðað við fengna reynslu er frek- ar ólíldegt að það friðvænlega ástand verði til langrar frambúð- ar. Til þess að gera hörð afstaða Rússlands gegn Bandaríkjunum í því máli, miðað við samskipti þeirra frá lokum kalda stríðsins, vakti athygli. Bandarískir sérfræðingar um Rússland og stjórnmálamenn ýmsir í grannríkjum þess telja að þessi afstaða Rússlands í Iraks- málum sé liður í nýrri stefnu þess í utanríkismálum. Gamalgróin heimsveldis- hyggja Meginmarkmiðin með þessari nýju stefnu sé að koma á víðtæku en e.t.v. mikið til óformlegu bandalagi gegn Bandaríkjunum og að tryggja að ríkin við suður- landamæri Rússlands, einkum fyrrverandi sovétlýðveldi þar, lúti Rússlandi sem forysturíki. í téðu bandalagi gegn Bandaríkjunum og e.t.v. Vesturlöndum yfirleitt geri ráðamenn í Moskvu sér von- ir um að helstu aðilar verði auk Rússlands Kína, Iran og Araba- lönd. Slík stefnubreyting Rússlands gæti átt rætur djúpt í heimsveld- ishneigð sem þar liggur í Iandi, hliðstætt og var og er í Kína, var í Rómaveldi, býsanska ríkinu, Tyrkjaveldi og Bretaveldi og hef- ur um skeið verið allofarlega í Bandaríkjunum. Ekki er vfst að siðaskipti í Rússlandi, frá komm- únisma til kapítalisma, breyti miklu hér um. Höfund þessarar meintu nýju utanríkismálastefnu Rússlands telja vissir bandarískir rússlands- fræðingar vera núverandi utan- ríkisráðherra landsins, Jevgeníj Prímakov, sem á síðasta bluta sovéska tímans var einn helsti sérfræðingur Sovétríkjastjórnar í málefnum Arabalanda. Ariel nokkur Cohen, einn sá hvassyrt- asti af Bandaríkjamönnum þeim, sem telja Rússland hafa tekið upp nýja og ágenga stefnu í utan- ríkismálum, talar í þ\a samhengi um „Prímakov-kenninguna." (Shr. Bresjnfevs-kenninguna gömlu.) Cohen þessi starfar við The Heritage Foundation, rann- sóknastofnun sem sögð er fjár- mögnuð af harðíhaldssömum að- ilum. Undir við hann taka m.a. Henry gamli Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, sem kallað hefur Prímakov ,;málaflutningsmann Saddams" Iraksforseta. Shevaidnadze, Petrosjan I samhengi við stefnu Rússlands í Iraksmálum hefur verið sett banatilræðið nýlega við Eduard Shevardnadze, sem einhverjir muna kannski eftir sem utanrík- isráðherra Sovétríkjanna á Gor- batsjovs-tímanum og er nú for- seti Georgíu. Shevardnadze hef- ur látið í ljós grunsemdir um, að rússneskir áhrifaaðilar hafi stað- ið á bak við tilræðið. Hann hefur beitt sér ákaft fyrir því að ný olíu- leiðsla verði Iögð frá Aserbædsjan yfir Georgíu til Supsa, hafnar- borgar í því landi við Svartahaf. Það yrði Georgíu, sem er næsta veikburða, til styrktar, en Rúss- landi vart til hagnaðar, því að við það myndi draga úr mildlvægi ol- íuleiðslu frá Aserbædsjan sem liggur um rússneskt land. Uppi er og grunur um að Rúss- land hafi verið með í ráðum er Baksvið Bandarískir rúss- landsfræðingar telja að Rússland reyni að fá Kína, íran og arabalönd með sér í bandalag gegn Vestnr- löndum. Levon Ter-Petrosjan, forseta Armeníu, var fyrir skömmu vikið úr því embætti. Var ekki laust \áð að aðfarirnar við það þættu minna á valdarán. Stephen Blank, rússlandsfræðingur við rannsóknastofnun á vegum bandaríska landhersins (U.S. Army College) í Pennsylvaníu, telur að við þetta hafi áhrif Rúss- lands í Armeníu aukist. Það muni á næstunni styðja Armeníu gegn Aserbædsjan, með það fyrir augum að þvinga síðarnefnda ríkið til undanlátssemi við Rúss- Iand. Mikilvægi Aserbædsjans í augum heimsins fer vaxandi vegna olíu lands þessa. A milli þess og Armeníu er nánast fullur fjandskapur. Óvinarheimt? Ekki er óhugsandi að sumum þeim aðilum bandarískum, sem mest gera úr „Prímakov-kenning- unni,“ gangi í þvi að einhverju Ieyti til þörf fyrir endurheimt óvinarins stóra í austri. Þrátt fyr- ir mikla yfirburði Bandaríkjanna í efnahagsmálum og tækni eru þau á ýmsan hátt veik fýrir, einna helst vegna þess hve þetta risa- vaxna þjóðfélag, ef hægt er að kalla það því nafni, er sundurleitt á margan hátt. Það hefur orðið sundurleitara á síðustu áratugum og sú þróun heldur áfram. „Heimsveldi hins illa“ í austri var Bandaríkjamönnum mikilvægur sameiningarhvati, en síðan það gufaði upp er líklegt að athygli landsmanna beinist sífellt meira inn á við. Við slíkar aðstæður má ætla að ýmsir aðilar sjái ástæður til þess að óttast um sig og leitist því við að beina athygli landa sinna að sem geigvænlegustum óvinarímyndum erlendis. HEIMURINN Schröder valinn til höfuðs Kohl ÞYSKALAND - Framkvæmdastjórn þýska Sósíaldemókrataflokksins valdi í gær einróma Gerhard Schröder, forsætisráðherra Neðra- Saxlands, sem kanslaraefni flokksins í næstu kosningum til þýska sambandsþingsins. Schröder vann um helgina yfirburðasigur í þing- kosningum Neðra-Saxlands, og strax eftir að úrslit voru orðin ljós lagði Oskar Lafontaine, annar helsti forystumaður Sósíaldemókrata- flokksins, til að Schröder yrði kanslaraefni flokksins. Schröder og Lafontaine hafa báðir sóst ákaft eftir því að fá að etja kappi við „ei- lífðarkanslarann" Kohl í næstu kosningum. Deilur um tuLkun írakssaumingsms BANDARIKIN - Deilur eru þegar komnar upp varðandi túlkun samn- ingsins sem Kofi Annan gerði við íraka. Sendiherra íraks hjá Samein- uðu þjóðunum hélt því fram i viðtali við CNN-sjónvarpsstöðina að meiningin sé að stjórnarerindrekar hafi með höndum yfirstjórn vopnaeftirlitsins á forsetasvæðunum átta, en Richard Butler, yfirmað- ur vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í írak, andmælti þessu harð- lega og sagði engan vafa leika á því að samkvæmt samningnum bæri hann einnig ábyrgð á eftirlitinu á forsetasvæðunum. Hindúar imnu sigur INDLAND - Flokkur þjóðernissinnaðra hindúa vann augljósan sigur í þingkosningunum á Indlandi, og skortir aðeins nokkur þingsæti til að ná meirihluta. EYÞING Sambcmd sveitarfélaga i Eyjafirði og Þingeyjarsýslum Strandgötu 29 - 600 Akureyri - Sími 461 2733 - Fax 461 2729 kt. 561192-2199 - Netfang: eything@nett.is Framkvæmdastjóri EYÞING - Samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum óskar að ráða framkvæmdastjóra. Skrifstofa framkvæmdastjóra er staðsett á Akureyri. Starfið er laust frá 1. maí næstkomandi. Umsóknir sendist til Eyþings fyrir 20. mars 1998. Upplýsingar um starfið veitir Sigfríður Þorsteinsdóttir, stjórnarfor- maður í síma 462-4031 og Hjalti Jóhannesson, framkvæmdastjóri í síma 461-2733. EYÞING, Strandgötu 29, 600 Akureyri Framsóknarflokkurinn "Aukum framsókn kvenna" Málþing í Finnabæ, Bolungarvík, laugardaginn 7. mars 1998 kl. 13.00 Dagskrá 13:00 Setning Valdimar Guðmundsson, formaður Framsóknarfélags Bolungarvíkur 13:05 Ávarp Inga Ólafsdóttir, stjómarmaður í KFV 13:15 Kosningabarátta í sveitarstjórnarkosningum og starf kvenna innan Framsóknarflokksins Jóhanna Engilbertsdóttir, formaður LFK Fyrirspurnir og umræður 13:55 Þátttaka í sveitarstjórn Bergþóra Annasdóttir, varabæjarfulltrúi í ísafjarðarbæ Fyrirspurnir og umræður 14:35 Kaffihlé 14:50 Aðferðir í kosningabaráttu og samræming stjórnmála- og fjölskyldulífs Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður Fyrirspumir og umræður 15:45 Málþingsslit Fundarstjóri: Inga Ólafsdóttir. Málþingið er öllum opið Þátttakendum er boðið að koma á Góufagnað Framsóknarfélags Bolungarvíkur um kvöldið þar sem verður glaumur og gaman að hætti Bolvikinga. Nánari upplýsingar um ferðir og gistimöguleika em veittar hjá Valdimari Guðmundssyni (hs: 456-7338 og vs: 456-7310). Jafnréttisnefnd Framsóknarflokksins Kjördœmissamband framsóknarmanna ú Vestfjörðum Framsóknarfélag Bolungarvíkur Askriftarsíminn er 800 7080 BELTIN % d<ch '&Py\ 6 lUMFERÐAR Iráð

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.