Dagur - 21.03.1998, Blaðsíða 8
24 - LAUGARDAGUR 21. MARS 1997
Xfc^nr
LÍFIÐ í LANDINU
Vofa gengur Ijósum
logum í Suður-Þingeyj-
axsýslu. Sjálfurleik-
húsdraugurinn. Og
viðhaldið draugsa,
leiklistargyðjan, ríður
nú svo ákafliga sam-
komuhúsum héraðsins
að undir tekur í Kinn-
arfjöllunum og Skjálf-
andaflóinn víbrarog
berloksnafnmeð
rentu.
Á leiðinni frá
Húsavík í
Breiðumýri í
Reykjadal, sem
er um hálftíma
akstur á t.d.
grárri Toyotabif-
reið, Iítið eitt
beyglaðari á
vinstra fram-
bretti, er verið að
æfa og leika þrjá söngleiki.
Hjá flestum leikhúsum áhuga-
og atvinnumanna er uppsetning
söngleikja talin bera vott um
metnað og vilja til að mæta ýtr-
ustu kröfum áhorfenda um
skemmtan. En það er meira en að
segja það að setja upp söngleik.
Öfugt við t.d. Godot, þar sem
nægir að hafa fjóra laglausa leik-
ara í lörfum á sviðinu og eitt visið
tré, þá krefst söngleikur 30-70
lagvissra leikara og söngvara,
hljómsveitar, kóreógrafs, glæsi-
legra búninga og sviðs og guð má
vita hvað eða Godot. Söngleikur
er því dýrt og mikið verkeíhi sem
ekki verður hrist fram úr erminni.
Söngleikirnir þrír á „söng-
Ieikjarúntinum" í S-Þing., bera
því fagurt vitni öflugu menning-
arlífi og menningarmetnaði á
þessu svæði, þar sem greiniiegt
er að ekki eru „allir í boltanum"
eingöngu, án þess að hér sé
nokkurri rýrð kastað á knatt-
Ieikjafólk sem á auðvitað allt
gott skilið.
Hat-trick
Allt er þá þrennt er, stendur þar
og þrír söngleikir á sviði á litlu
svæði á sama tíma, hlýtur að
teljast fullkomin þrenna, „hat-
trick“ eins og fótboltabullurnar
bresku orða það.
Leikdeild Eflingar í Reykjadal
reið á söngleikjavaðið með sýn-
ingu á Kabarett eftir Masteroff,
Ebb og Kander í samkomuhús-
inu á Breiðumýri. Leikfélag
Húsvíkur frumsýnir í dag Þrek
og tár eftir Ólaf Hauk Símonar-
son. Og Ieikfélagið BúkoIIa
frumsýnir í byrjun apríl söng-
Ieikinn Oliver eftir Lionel Bart.
Kabarett
Arnór Benónýsson leikari og
leikstjóri snéri heim í heiðardal-
inn til að Ieikstýra ættingjum og
vinum í Kabarett. Og gerir það
með miklum bravör. Sýningin
hefur fengið mjög góða dóma og
vakið hrifningu áhorfenda.
Margir leggja hönd á plóg og
sameinaðir eru kraftar reyndra
Ieikara og byijenda úr Fram-
haldsskólanum á Laugum og
Litlulaugaskóla.
Það er ekki heiglum hent að
feta í fótspor Óskarsverðlauna-
hafanna Lizu Minelli og Joel
Gray í hlutverkum Sally Bowles
og siðameistarans, en það gera
Birna Hjaltadóttir og Hörður
Benónýsson svo að sómi er að.
Birna er kornung og er þarna að
stíga sín fyrstu spor á leiksviði
og hafði lítið sungið áður. „Ég
lærði eiginlega að syngja á æf-
ingunum," sagði hún í samtali
við Dag. Og hefur greinilega
Iært vel og mikið. Enda kennar-
inn ekki af verri endanum. Eist-
lendingurinn Valmar Valjaots,
fiðlusnillingur og alhliða tónlist-
arundur, sem starfar nú sem
skólastjóri Tónlistarskólans í
dalnum. Hann er jafnframt
hljómsveitarstjóri í Kabarett og
leikur á píanó og á einn stærst-
an þátt í að sýningin er jafn góð
og raun ber vitni.
Þrck og tár
Leikfélag Húsavíkur er margróm-
að fyrir öflugt starf á undanförn-
um áratugum. Á Húsavík búa
um 2.500 manns en það þykir
ekki tíðindum sæta þó á fjórða
þúsund manns sæki sýningar fé-
lagins og er skemmst að minnast
Gauragangs fyrir tveimur árum.
LH rær nú á sömu mið og í
Gauragangi með Þrek og tár eftir
Ólaf Hauk og Sigrún Valbergs-
dóttir leikstýrir nú eins og þá.
Það er spenna í lofti í gamla
Samkomuhúsinu í dag þegar
Þrek og tár verður frumsýnt.
Eins og venjulega er leikarahóp-
urinn blanda af þrautreyndum
leikurum og byrjendum. M.a.
leikur Ingimundur Jónsson,
einn af Nestorum leikhúslífs á
Húsavík.
Dagur leit inn á æfingu á dög-
unum og greinilegt að það stefn-
ir allt í glæsilega sýningu og ör-
ugglega fjölsótta.
Oliver!
Sigurður Hallmarsson leikstýrir
Oliver hjá Leikfélaginu Búkollu.
Og þar er á ferðinni fjölmenn-
asta leiksýning sem sett hefur
verið upp í Þingeyjarþingi og
þótt víðar væri leitað, því rúm-
lega 80 manns koma á svið.
Sýningin er samstarfsverkefni
Búkollu og Hafralækjarskóla og
um 40 nemendur skólans koma
við sögu í verkinu.
Þegar Dagur leit við á æfingu
í Ydölum eitt kvöldið í vikunni
var mikið um að vera og sviðið
nánast pakkað, þó ekki væri
nema um 30 af 80 leikurum og
söngvurum á æfingunni! „Það
þarf að æfa lokaatriðið vel svo
fólk troðist ekki undir á svið-
inu,“ segir leikstjórinn og glottir.
Hann nýtur á þessari æfingu að-
stoðar Þórdísar Arnljótsdóttur,
útvarpsmanns með meiru, sem
gefur góð ráð varðandi dans og
sviðshreyfingar og hefur dvalið
nokkra daga í Aðaldal við þá
iðju.
Leikstjórinn verður sjálfur að
fara á svið og bregða sér í hlut-
verk Fagins, því Fagin, leikinn af
Oddi Bjarna Þorkelssyni, er á
æfingu hjá LH í Þrek og tár á
Húsavík! Menn láta sig ekki
Sviðsmynd úr Oliver.