Dagur - 16.04.1998, Síða 3
FIMMTUDAGUR 16.APRÍL 1998 - 19
D ÝRALÍFIÐ í LANDINU
Páskalambið kom
snemma íEinarsstaði í
Reykjahverfi og var
nokkuð aldurhingið,
eftirvetrardvöl áfjöll-
um.
Það voru fagnaðarfundir hjá
þeim stöllum Jennýju og Guð-
nýju þegar þær hittust í síðustu
viku eftir langan aðskilnað.
Jenný hafði dvalið á fjöllum með
syni sínum í vetur en Guðný
haldið sig í byggð. Báðar eru
þær búsettar á Einarsstöðum í
Reykjahverfi, þar sem Guðný
Buch er bóndi en Jenný ein af
kindum hennar. Og Jenný hafði
sem sé ekki Iátið handsama sig í
göngum sl. haust heldur haldið
til í óbyggðum í vetur ásamt
lambhrúti sínum. Mæðginin
voru nokkuð vel á sig komin
þegar þau fundust
og voru færð til
byggða. Ærin var
35 kíló og hrútur-
inn 26, sem er
vissulega vel undir
meðallagi, en báð-
um heilsaðist þeim
vel. Og Jenný kom
ær ekki einsömul af
fjalli, því hún er með
lambi og líklega af
völdum sonar síns
sem hefur látið varn-
aðarorð búnaðarsam-
bandsins um skyld-
leikaræktun sem vind
um eyrun þjóta.
Skeggjaður Blöndal
Víkurblaðið heimsótti
Einarsstaði á dögun-
um, en þar býr Guðný
Buch félagsbúi með
bróður sínum Helga
Buch og mágkonu
Guðrúnu Benedikts-
dóttir. Hundar tóku á
móti blaðamanni
hlaðinu og voru hinir
líflegustu. Og fjöl-
breytni dýralífs í fjár-
húsunum reyndist mik-
il þegar Guðný leiddi
blaðamann þangað til
að heilsa upp á Jenný
og son. Þarna voru, auk
kinda, geitur og kanínur
og kettir gerðu vart við
sig. Og hestar eru að
sjálfsögðu á bænum.
Enda algengt að kennar-
ar komi í Einarsstaði
með skólabörn á vorin til
að uppfræða þau um hús-
dýrin. Þar vantar ekkert
nema kýr og svín.
Guðný er mikill dýra-
vinur og hefur ánægju af
skepnum. Og var heldur
betur ánægð með endur-
heimt Jennýjar og sonar.
Hún sýndi okkur kanínu-
búrið, sem krakkarnir á
bænum eiga en þar var heil
hersing kanínuunga að orna sér
niðri í holu í heyinu. Um 400
kindur eru í fjárhúsinu en Guðný
Hrúturinn Svanur skartar konungskórónu.
arlega nafn Halldór Blöndal.
Guðný var alveg til með að
draga Blöndal út úr krónni
þannig að hægt yrði að mynda
þau saman. En hafurinn með
ráðherranafnið spyrnti við fótum
og sinnti í engu fortölum og
blíðmælgi Guðnýjar. En svo náði
hún taki á skeggi hans og þá var
björninn unnin og Blöndal auð-
veldlega dreginn út á höku-
toppnum til myndatöku.
Gott uppeldi
Jenný og sonur voru fúsari til að
stilla sér upp fyrir ljósmyndara
og virtust hvurgi stygg þrátt fyrir
að hafa ekki umgengist mann-
skepnur í marga mánuði. Og
geiturnar sem sleiktu saltsteina í
garðanum með velþóknum létu
sér fátt um finnast blossa leift-
urljóssins.
Greinilega taugasterkar
skepnur sem tóku truflunum
með jafnaðargeði. Og báru hús-
móður sinni, Guðnýu Buch og
uppeldi hennar, fagurt vitni. JS
Saltsteinninn er mikid iostæti.
Iðandi kös af kanínuungum.
sér um sauðfjárbúskapinn. Fag-
urhyrndir hrútar vöktu athygli
en einnig og ekki síður glæsileg-
ur geithafur, sem bar hið hátign-
Jenný er kominn af fjaiii með hrútinn sinn og er ær ekki einsömul.