Dagur - 29.04.1998, Síða 1
Ómþýðirpíanóhljómar
ogfjörlegar harmoníku-
trillur heyrast iðulega
frá húsi nokkru rétt
fyrir ofan Árbæjarlaug-
ina íReykjavík.
Það er ekki algengt að fjórir aðil-
ar úr sömu fjölskyldu spili á
harmoníku og sjálfsagt ennþá
sjaldgæfara að allir séu kvenkyns.
Þetta þekkist þó og eru þessar
hressu konur/stúlkur allar í
harmoníkunámi hjá Karli Jón-
atanssyni.
Þær heita Asa Margrét 16 ára,
Ingunn Erla 14 ára, Hrafnhildur
Hekla 9 ára og svo mamman,
Ragnheiður Guðmundsdóttir. Að
auki eru í fjölskyldunni tvö lítil
börn, tveggja og fjögurra ára og svo
auðvitað pabbinn, Eiríkur Ingvar
Þorgeirsson. Þau yngstu eru ekki
farin að spila neitt ennþá, en eiga
vafalítið eftir að fylgja þeim eldri
eftir er fram Iíða stundir.
„Eldri systurnar tvær hafa æft
á harmoníkuna í rúm tvö ár,“ seg-
ir Ragnheiður, „en hafa hins veg-
ar verið í mörg ár í píanónámi.
Eg fór svo að æfa með Hrafnhildi
Heklu í haust og það kom eigin-
lega til af því að hann Karl Jón-
atansson stakk upp á því að þar
sem ég væri hvort sem er að
keyra stelpuna, þá gæti ég alveg
eins æft líka. Mér fannst ég varla
hafa tíma í það, en lét til leiðast
og er í stórsveitinni ásamt um 40
öðrum harmoníkuieikurum.“
Spila í Árbæjarsafni
Ragnheiður segir Karl mjög
hvetjandi og duglegan varðandi
allt sem snerti harmoníkuleik.
Hann sjái um að fólkið hafi tæki-
færi til að leika á skemmtunum
og eldri stelpurnar hafa til dæm-
Upp með nikkuna. Hér eru þær Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ása Margrét, Ingunn Erla, Hrafnhildur Hekla, en á myndina vantar Eirík Ingvar Þorgeirsson, Þorgerði Eddu,
Eirík Ara. mynd: hilmar.
is spilað í Árbæjarsafni og á
Laugavegi fyrir jólin fyrir utan að
spila á ýmsum skemmtunum og í
afmælum.
Hann hafí Iíka drifið þær syst-
ur með sér til Danmerkur fljót-
lega eftir að þær hófu námið og
farið með þær á mót þar. Hann
passi vel uppá að nemendur hans
æfi og spili eftir getu hvers og
eins og hafi mikinn eldmóð til að
bera.
Ingunn Erla æfir ásamt harm-
oníkunni og píanóinu líka tennis
og hefur náð góðum árangri í
þeirri grein m.a. orðið nokkrum
sinnum Islandsmeistari. Hún
segir það ekki hafa verið sérstak-
lega erfitt að læra á harmoníkuna
eftir að hafa æft svo lengi á pí-
anó. „Eg þurfti eiginlega bara að
læra bassann," segir hún. „Og
svo auðvitað að fara með belginn
og svo er sá munur á að píanóið
er lárétt en harmoníkan er lóð-
rétt og maður heldur á henni.“
Góð skipulagning
nauðsynleg
Hrafnhildur Hekla æfir einnig
fótbolta með liðinu í hverfinu.
Hún er í Árbæjarskóla eins og
systir hennar Ingunn Erla, en
Ása Margrét er í MR. Þær systur
eru greinilega ansi uppteknar og
duglegar hvort sem um skólanám
eða tómstundir er að ræða og
ekki með neitt hálfkák. Hrafn-
hildur Hekla er reyndar yngst
þeirra sem æfa á harmoníku hjá
Karli Jónatanssyni, flestir hinna
eru fullorðnir fyrir utan systur
hennar og nokkra aðra krakka.
„En er það ekki mikið mál fyrir
Ragnheiði að vera með fimm
börn, vinna úti hálfan daginn í
krefjandi starfi og vera Iíka í
hljómsvéit og æfa?
„Jú auðvitað er þetta talsverð
vinna," segir Ragnheiður. „En
með góðri skipulagningu hefst
þetta. Það er nú líka þannig að
þessar tónlistaræfingar eru engin
kvöð hjá okkur. Það þarf aldrei að
reka á eftir stelpunum að æfa sig,
þær sjá alveg um þetta sjálfar og
setjast við píanóið eða með
harmoníkuna þegar stund gefst
og spila." -VS
Áburður, kalk, yfirbreiðslur og öll verkfæri sem til þarf
Ráðgjöf sérfræðinga um garS- og gróðurrækt
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Smiðjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100
BJÓÐUM ÚRVALS
ÚTSÆÐI
I
t