Dagur - 29.04.1998, Qupperneq 3
MIDVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 - 19
LÍFIÐ t LANDINU
Afþjónandi prestum lands-
inshefursr. Sváfnir Svein-
bjamarson á Breiðabólstað í
Fljótshlíð lengststaðið vakt-
ina, eða í alls 46 ár. Hann tók
vígslu 1952 og hejurveríð
þjónandiprestur síðan - og
verðurþar til íjúlí í sumar. Þá
verða reyndar önnurkafla-
skilþvíþá lýkur á Breiðaból-
stað 71 árs prestskapartíð
feðga þar.
„Mér hefur þótt fara vel saman að vera
prestur og bóndi. Kannski er það vegna
þess að ég er mikill sveitamaður í mér, en
hitt er annað að með þessu hef ég ef til
vill náð að kynnast sóknarbörnunum bet-
ur en annars hefði orðið. Eg þykist hafa
verið úti á akrinum og ávallt reiðubúinn
til þjónustu og samhjálpar þegar á hefur
reynt. Ég hef reynt að fylgja mínum sókn-
arbörnum, bæði í guðsþjónustunni í
kirkjunni og í þeim störfum og áformum
sem upp hafa komið, bæði í gleði og
þraut. Kirkjan á ekki að vera einangrað
jaðarfyrirbæri, heldur í hjartastað þjóð-
lífsins," segir séra Sváfnir Sveinbjarnar-
son, prestur á Breiðbólstað í Fljótshlíð.
í sjöimda lið frá
Prcsta-Högna
Af þjónandi prestum landsins hefur sr.
Sváfnir þeirra lengst staðið vaktina eða í
alls 46 ár. Hann tók vígslu sumarið 1952
og hefur verið þjónandi prestur síðan og
verður fram í júlí á þessu ári, þegar hann
verður sjötugur. - Þá verða reyndar önnur
kaflaskil, því þá lýkur á Breiðabólstað 71
árs prestskapartíð feðga þar. Sr. Svein-
björn Högnarson sat staðinn frá 1927 til
1963, og sinnti prestskap lengst af sam-
hliða þingmennsku. Arið 1963 tók sr.
Sváfnir við, en áður hafði hann um ellefu
ára skeið verið prestur á Kálfafellsstað í
Suðursveit og tvo fyrstu mánuðina eftir
vígslu var hann reyndar aðstoðarprestur
föður síns.
Breiðabólstaður í Fljótshlíð þótti löng-
um eitt af bestu brauðum landsins og var
á því löngum konungsveiting einsog
nokkrum öðrum vildarbrauðum landsins.
Margir sögufrægir klerkar hafa setið á
Breiðabólstað og má þar nefna þann
fræga Presta-Högna, sem sat staðinn frá
1750 til 1770 og á eftir honum kom einn
þeirra átta sona hans sem tók prestvígslu,
Stefán, sem sat til 1792. - Viðmælandi
okkar, sr. Sváfnir, er afkomandi Presta-
Högna í sjöunda lið í beinan karllegg.
Móðir Sváfnis er Þórhildur Þorsteinsdótt-
ir frá Vestmannaeyjum, en hún býr í dag
á Fambey í Fljótshlíð hjá Bagnhildi dótt-
ur sinni og Jóni Kristinssyni, manni
hennar.
íslandsmeistari í
fataskiptum
„Ég tók stúdentspróf frá Menntaskólan-
um á Akureyri árið 1948 og innritaðist
fyrst í læknadeild Háskóla Islands. Ari
síðar fór ég í guðfræðideildina. Það
blundaði víst í mér draumurinn um að
upar yfir Islandi, allt frá Sigurgeir Sig-
urðssyni til Karls Sigurbjörnssonar. „Alla
þessa menn hef ég mikils metið og þeim
Asmundi Guðmundssyni og Sigurbirni
Einarssyni kynntist ég vel sem kennurum
í guðfræðideild. Sjálfum finnst mér nú
vera uppi þær aðstæður að efla megi boð-
unarstarf og áhrif kirkjunnar í þjóðlífinu
og til þess höfum við reyndar gott tæki-
færi nú, sem er kristnitökuafmælið eftir
tvö ár,“ segir sr. Sváfnir.
Aðspurður segir hann að sér hafi næst
boðuninni í kirkjunni þótt vera skírnir,
fermingarfræðsla og giftingar, því þar sé
um að ræða náin samskipti við sóknar-
böm; samskipti á gleðistundum í þeirra
lífi. Þau samskipti verði ef til vill hvergi
nánari en einmitt í sveitinni og það sé
kostur, að sínu mati, við starf og hlut-
skipti presta sem þar þjóna.
Frá upptökum til ósa
„Mig langar til þess að bæta hér við sögu
af því þegar ég fór austur til landsins
helga árið 1964, sögu sem mér finnst fela
í sér Iíkingu um kirkjuna og raunar einnig
um líf sérhvers kristins manns,“ segir sr.
Sváfnir:
„Ég stóð, ásamt fleira fólki, á bökkum
Jórdan og veitti því eftirtekt hversu
gruggug hún var, enda þótt uppspretturn-
ar væru tærar. En þar kemur til að á
langri leið árinnar frá uppptökum til ósa
tekur hún í skol bæði skol frá áveitum og
sandfok úr eyðimörkinni og gruggast
þannig. En á þessari leið í gegnum landið
nærir hún gróður árbakkanna, jafnvel
langar leiðir út frá sér með lokuðum
áveitustokkum sem ekki sjást. En þegar í
Dauðahafið er komið er áin aftur hrein
og morið í henni fallið til botns. Hið
hreina vatn gufar allt upp, því Dauðahaf-
ið er án afrennslis. Þessa sögu hef ég oft
sagt og læt hverjum og einum eftir að
velta þessum líkingum fyrir sér, og útfæra
þær nánar eftir eigin höfði.“ -SBS.
Sr. Sváfnir i Breiðabólstaðarkirkju, þar sem hann hefur þjónað sl. 35 ár. Áður hafði faðir hans, sr.
Sveinbjörn Högnason, setið staðinn frá 1927. myndir: sbs.
gerast sveitaprestur og ganga inn í þær
aðstæður sem ég ólst upp við, því á þess-
um tíma var hugsunin frentur við þjón-
ustu en laun. Mér fannst mín bíða
áhugaverðara verkefni á sviði anda en
efnis," segir sr. Sváfnir.
Sváfnir hefur alla tíð verið með
nokkurn búskap samhliða prestskap,
enda er Breiðabólstaður vildisgóð jörð.
Lengi var hann bæði með kýr og ldndur
en fyrir hálfum öðrum áratug lét hann
kýrnar frá sér og býr í dag aðeins með
kindur, um 200 fjár. „Auðvitað hefur það
útheimt gott skipulag að geta sinnt bæði
störfum prests og bónda og stundum hef
ég sagt að fyrir vikið sé ég íslandsmeistari
í því að hafa fataskipti. En fyrst og fremst
þakka ég það eiginkonu og fjölskyldu að
þetta hefur farið bærilega saman, að mér
finnst, að ógleymdum góðum nágrönn-
um.“
Sjálfsagt íhaldssamur
Undir Breiðabólstaðaprestakall heyrðu
löngum aðeins kirkjurnar tvær í Fljóts-
hlíð; á Breiðabólstað og Hlíðarenda. Og
þegar Sváfnir hóf prestskap í Hlíðinni
voru sóknarbörnin um 470, en eru í dag
orðin tæplega 300. Hinsvegar var sú
breyting gerð á kallinu fyrir tveimur árum
að Stórólfshvolssókn, sem nær meðal
annars yfir Hvolsvallarkauptún, var felld
undir það og eru sóknarbörn í
dag því ríflega 1000.
„Með því urðu verulegar
breytingar á störfum mínum og
annríki hefur aukist. En mér
finnst ekki tiltakanlegur mun-
ur á að þjóna fólki í sveit eða
bæ, störfin eru svipuð í eðli
sínu. Sjálfsagt hef ég verið
fremur íhaldssamur prestur
og hallur undir að fylgja
þeirri Iínu, til að mynda við
messugjörð, sem prestar
minnar kynslóð hafa verið á.
En þar með kasta ég engri
rýrð á það prýðisgóða unga
fólk sem í dag er í þjónustu
kirkjunnar og hefur kannski
um suma hluti önnur við-
horf og siði en fyrirrennar-
ar þess. Eins ber ég virð-
ingu fyrir þeim sem á und-
an okkur hafa borið fram
merki Krists og eftirlátið
okkur arfinn sem kirkj-
an býr við í dag,“ segir
sr. Sváfnir.
íþjónustu sex
biskupa
A 46 ára prestskapar-
tíð sr. Sváfnis hafa verið sex bisk-
hann Þekkti oo TrT Þa?nP 'nn iþær aðZZ? **
rsem