Dagur - 29.04.1998, Qupperneq 5
X^MT
MIÐVIKUDAGUR 29.APRÍL 1998 - 21
MENNINGARLÍFIÐ t LANDINU
Sæluvikan var opnuð formlega
sl. sunnudag með tréskurðarsýn-
ingu í Safnahúsinu á Sauðár-
króki, þar sem skagfirskir lista-
menn sýna rennda muni og út-
skorna. Um kvöldið frumsýndi
Leikfélag Sauðárkróks nýtt ís-
lenskt verk eftir Jón Ormar
Ormsson sem heitir Sporið er
tangó.
Sjö skáld á Kaffi Krók
Asdís Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri Sæluvikunnar seg-
ir að sýningin hafi tekist geysi-
lega vel og að undirtektir áhorf-
enda hafi verið góðar. Til stóð að
Andrea Gylfadóttir syngi djass á
Kaffi Krók í kvöld, en af óviðráð-
anlegum orsökum gat ekki af því
orðið. „Hins vegar brást María
Björk Ingvadóttir á Kaffi Krók
skjótt við, svo í kvöld Iesa sjö
ung skáld úr Fjölbrautarskólan-
um á Sauðárkróki úr verkum
sínum. María hefur mildnn
metnað fyrir hönd Sæluvikunn-
ar og er dugleg við að standa fyr-
ir menningamðburðum á Kaffi
Krók,“ segir Asdís.
Fimmtudagurinn verðu helg-
aður unglingunum, því þá verð-
ur Ijósmyndamaraþon sem fé-
lagsmiðstöðin Friður hefur veg
og vanda að. „Myndirnar úr
keppninni verða svo sýndar dag-
inn eftir í Gagnfræðaskólanum.
Um kvöldið er svo unglingaball,
þar sem hljómsveitin 200.000
naglbítar leikur fyrir dansi," seg-
ir Asdís.
Matui og mennmg
Asdís segir að mikið fjör verði
svo um helgina, því á föstudags-
kvöld verður haldin dægurlaga-
keppni Kvenfélags Sauðárkróks.
„Það eru tíu lög sem keppa til
úrslita. Bæði þátttakendur og
flytjendur koma af Norðurland-
vestra, frá Húnavatnssýslu til
Siglufjarðar, þannig að þetta er
á kjördæmisvísu. Fyrir keppnina
ætlar Kaffi Krókur að hita upp
með skagfirskri matarveislu, þar
sem boðið er upp á kjötvörur frá
KS, rækjur frá Dögun og svo
auðvitað Barrann frá Gúnda og
fleira góðgæti. Eg veit að María
er búin að setja upp skemmti-
Iegan matseðil úr þessu.
Lokahnykkurinn er svo kóra-
kvöld í Miðgarði sem karlakór-
inn Heimir og Rökkurkórinn eru
með. Það er fastur liður og alveg
meiriháttar gaman. Að því loknu
tekur Geirmundur við með sína
landskunnu sveiflu og heldur
uppi fjöri fram á nótt. Það verð-
ur líka ýmislegt við að vera fyrir
þá sem ekki fara í Miðgarð á
Sauðárkróki á laugardagskvöld.11
Auk þessa eru söfnin í sýsl-
unni opin, þar sem gera má sér
margt til fróðleiks og skemmt-
unar. „Það má svo ekki gleyma
því að við erum með skemmti-
lega myndlistarsýningu á leik-
Ásdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Sætuviku Skagfirðinga, hefur í nógu að
snúast, enda fjölbreytt og iifandi dagskrá á Sæluvikunni.
Dásamlegir
tónleikar
Fjölskylduleikritið
RYMPA Á
RUSLAHAUGNUM
Sæluvika Skagfirðinga ervaxandi hátíð sem hvílir á gamalli hefð. Skag-
firðingareru kunnir gleðimenn og nóg erhægt að gera sér til skemmtunar
og menningarauka á Sæluvikunni.
skólanum Glaðheimum. Þar
sýna börnin á leikskólanum verk
sem þau hafa unnið," segir As-
dís.
Asdís segir að Sæluvikunni
fylgi alltaf gríðarleg stemmning.
„Þetta byggir á gamalli hefð hér-
aðsfundanna sem haldnir voru á
árum áður. Nú er verið að finna
upp alls konar hátíðir víða um
land, en Sæluvika í Skagafirði er
alveg „orginal," þó hún hafi
breyst í tímanns rás og sé löguð
að háttum nútímamannsins. Við
hvetjum fólk til að koma og
heimsækja okkur á þessa hátíð
og ef gistirými á hótelinu í
Varmahlíð og Gistiheimilinu hér
á Sauðárkróki dugar ekki til, þá
erum við mjög gestrisið fólk hér
í Skagafirði og alltaf hægt að
bjarga húsaskjóli fyrir góða
gesti," segir Asdís að lokum. hh
Rympa á
Melum
Gestrisni
á Sæluviku
Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna, sem Ingvar Jónas-
son stofnaði árið 1990 og
stjórnar, er alltaf að fara
fram, og tónleikar hennar í
Neskirkju sunnudaginn 26.
apríl voru alveg sérstaklega
skemmtilegir. Fyrst lék
Helga Þórarinsdóttir, Is-
landsmeistari í lágfiðluleik,
einleik í konsert fyrir víólu
og strengjasveit eftir Telemann, sem kann að
vera hinn fyrsti sinnar tegundar, gefinn út
1731. Lágfiðlan telst vera í hópi hógværustu
hljóðfæra, og tónskáld skrifuðu konserta
gjarnan fyrir einleikarann - sjálfa sig eða
aðra - til að „brilliera" og það gerðu menn
einkum á fiðlu eða píanó, eiris og kunnugt
er. Þessi konsert Telemanns var hins vegar
alveg sérstaklega skemmtilegur í llutningi
Helgu og hljómsveitarinnar, sem spilaði með
bústnum og syngjandi tóni, og tandurhreint.
Næst kom fram söngkona sem ég hafði
ekki vitað að væri til, Hulda Guðrún Geirs-
dóttir, og söng Bréfaríuna úr óperunni
Evgen Onegin eftir Tsjækovský. Þetta er
gríðarlöng og viðamikil aría, með miklum
hljómsveitarundirleik sem því miður var í
sterkasta Iagi með köflum. En Hulda Guð-
rún söng geysilega vel, af þrótti og öryggi og
með afar fallegri og vel mótaðri rödd sem er
jafnágæt efst sem neðst á raddsviðinu. Eftir
því sem fram kemur í tónleikaskránni, var
Hulda Guðrún búin að koma undir sig fót-
um sem söngkona í Þýzkalandi að Ioknu
námi þar, en sneri þó heim fyrir nokkrum
árum - þessa söngkonu þyrftum við að heyra
miklu oftar.
Eftir hlé fluttu Hulda Guðrún Geirsdóttir
og hljómsveitin tvær frægðararíur eftir
Puccini, aríu Musettu úr La Bohéme, og
aríu Laurettu úr Gianni Schicchi, hvort
tveggja dálaglega.
Rúsínan í pylsuendanum var svo frum-
flutningur á Blönduðum dönsum eftir
Hildigunni Rúnarsdóttur, tónskáld og fiðlu-
leikara í Sinfóníuhljómsveit áhugamanna,
sem hún samdi fyrir hljómsveitina á árunum
1997 og ‘98. Hildigunnur lærði fræði sín í
tónlistarskólum Garðabæjar, Reykjavíkur,
Hamborgar og Kaupmannahafnar og hefur
komið víða við í tónlistarlífi og samið mörg
tónverk. Og þessir dansar eru alveg sérstak-
Iega skemmtilegir, með mið-evrópsku eða
balkönsku ívafi, auk þess sem þeir gáfu
hljóðfæraleikurunum tækifæri til að sýna
sig. Þessir dansar þurfa endilega að koma út
á geisladiski svo fleiri getið notið þeirra.
Þessir ágætu tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar áhugamanna voru prýðilega sóttir
og sýndu það, svo ekki verður um villzt, að
hljómsveitin er ákjósanlegur vettvangur til
að koma á framfæri upprennandi ein-
söngvurum, einleikurum og tónskáldum,
auk þess sem frægðarfólk hefur haft gam-
an að því að spreyta sig með henni. En
þessir tónleikar voru með þeim skemmti-
legustu sem ég hefi sótt um langa hríð,
enda er ljóst að hið ágæta starf Ingvars
Jónassonar er farið að bera ríkulegan ávöxt
í síbatnandi hljómsveit.
Höfundur: Herdís Egilsdóttir.
Leikstjóri: Sunna Borg.
Sýningar á Melum Hörgárdal
Sýningar
Föstud. 1 maí
kl. 14.00
Laugard. 2. maí
kl.14.00
Allra síðustu sýningar
Miðapantanir í síma 462 6564
kl. 18-20 virka daga og
11-13 um helgar og í
síma 461 4040
virka daga til kl. 18.
Leikfélag Hörgdæla