Dagur - 29.04.1998, Síða 7

Dagur - 29.04.1998, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 - 23 Oagur. LIFIÐ I LANDINU P I RT ÁM ABYREÐAR Tveggja mínútna auðæfi Stanley S. Newberg hét maður sem lést 81 árs að aldri nú fyrir skömmu. Hann var Gyðingur, bjó framan af ævi í Evrópu en tókst að flýja undan ofsóknum nasista og komast til Bandaríkj- anna. Þar komst hann í álnir og þegar hann lést skildi hann eftir sig eignir sem metnar voru á 8,4 milljónir dala, eða sem svarar rúmlega 600 milljónum króna. Newberg var þakklátur Banda- ríkjunum fyrir að hafa veitt sér hæli á sínum tíma, og ánafnaði því rfkissjóði Bandaríkjanna sem svarar um 400 milljónum króna, eða tveimur þriðju allra eigna sinna. Það fé hefur áreiðanlega komið sér vel, en reiknings- glöggir menn hafa fundið út að miðað við eyðslu bandaríska rík- isins hafi það horfið úr ríkis- sjóðnum á tveimur mínútum. Borgarstjóra- pókerinn Tveir frambjóðendur í borgar- stjórakosningum í Estanca í Nýju-Mexíkó urðu jafnir og efstir að Iokinni talningu at- kvæða. Þeir gripu þá til þess ráðs að spila póker og létu úr- slitin ráða um hvor fengi emb- ættið. Hvort þessi frumlega ný- breytni á eftir að hafa fordæmis- gildi í öðrum kosningum skal hins vegar ósagt látið. Öryggi bamsins í skottinu Dawn Weber, kona f Wisconsin í Bandaríkjunum, hafði víst ekki efni á að greiða barnapíu fyrir að passa tveggja ára son sinn þegar hún þurfti að skreppa frá í einhverjum erindagjörðum. Hún gerði sér því lítið fyrir og tók krakkann með í bíltúr. Eínhverra hluta vegna skipti lögreglan sér af bifreiðinni og rak upp stór augu þegar í ljós kom að sá tveggja ára var í skottinu. Þegar Weber mætti síðar fyrir rétti vegna málsins sagðist hún hafa talið að barnið yrði „öruggara" í skottinu. Garður fullur af drasli Sumir hafa tilhneigingu til að safna að sér drasli. Maður að nafni Paul Iverson í Illinois í Bandaríkjunum gengur þó lengra en flestir aðrir. Eftir að kvörtun barst frá nágrönnum var honum gert að Ijarlægja heilu haugana af ýmis konar dóti og drasli úr garðinum hjá sér. Þegar Iverson hafði afrekað það að flytja 30 bílfarma úr garðinum, þótti dómaranum samt ekki nóg að gert og lætur sekta hann um fimm hundruð dollara á dag þangað til hann hefur orðið við tilmælunum. Samtals er sektin komin upp í 49.000 dollara, og fangelsi gæti orðið næsta skref- ið. Meðal þess sem enn er að finna í garðinum er bolur af gamalli 727 flugvél. Iverson þverneitar að láta fjarlægja flug- vélarbolinn og segist nota hann sér til dægrastyttingar. Sl Innlausnarverð árgreiðslumiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 2. maí 1998 er 2. fasti gjalddagi árgreiðslumiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1995. Gegn framvísun árgreiðslumiða nr. 2 verður frá og með 4. maí nk. greitt sem hér segir: Árgreiðslumiði að nafnverði: 50.000 kr. = 52.584,70 kr. 100.000 kr. = 105.169,40 kr. 1.000.000 kr. = 1.051.694,40 kr. Ofangreind fjárhæð er afborgun af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 1. október 1995 til 2. maí 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á vísitölu neysluverðs. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð árgreiðslumiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn árgreiðslumiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 4. maí 1998. Reykjavík, 29. apríl 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS ..................II..........I IVITARA DIESEL Vitara Diesel er með forþjöppu og millikæli: aflmikill, einstaklega hljóðlátur, lipur í akstri, með miklum staðalbúnaði og öllum þægindum eðaljeppans. Hann er ekta jeppi, upphækkanlegur, sterkbyggður á grind, með háu og lágu drifi, stöðugri fjöðrun og góðu veggripi. Dieselvélin er ein sú kraftmesta á markaðnum og hefur mikið tog (brekkurnar verða leikur einn). Samt eyðir hún einstaklega litlu - þú getur t.d. komist. fram og til baka á milli Akureyrar og Reykjavíkur á innan við einum tanki! VITARA DIESEL 5 dyra .. VERÐ: Handskiptur 2.180.000 KR. Sjálfskiptur 2.340.000 KR. $ SUZUKI ] ALLIR > ^SUZUKU 1 SUZUKI BÍLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM. > : AFL OG ÖRVGGI , SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„ Miðési 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. isafjörður: Bilagarður ehf„ Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Leikfélag Akureyrar Söngvaseiður The Sound of Music eftlr Richard Rodgers og Oscar Hanunerstein II, sýn. föst. 1. maí kl. 20.30 UPPSELT sýn. laug. 2. mal kl. 20.30 UPPSELT sýn. simnud. 3. maí kl. 16.00 laus sæti sýn. föst. 8. maí kl. 20.30 UPPSELT sýn. laug. 9. maí kl. 20.30 UPPSELT sýn. sun. lO.maíkl. 16.00 sýn.föst. lS.maíkl. 20.30 sýn. laug. 16.maíkl. 20.30 sýn.mið. 20.maíkl. 20.30 sýn. fhnm. 21. malkl. 20.30 sýn. laug. 23. maí kl. 20.30 sýn. sunn. 24. maí kl. 20.30 Sýðustu sýningar Markúsar- guðspjall Einleikur Aðalsteins Bergdal. á Renniverkstæðinu. Lýsing: Ingvar Bjömsson. Leikinyiid: Manfred Lemke. Lelkstjóm: Trausti Ölafsson. sýn. fimmt. 30. apríl kl. 20.30 sýn. fimmt. 7. maí kl. 20.30 sýn.fimmt. lá.maíkl. 20.30 sýn. smm. 17.maíkl. 17.00 síðustu sýningar á Akureyri í Bústaðaldrkju í Reykjavík 31. maíkl. 20.30 og 1. júníkl. 20.30 Gjafakort á MarkúsarguðspjaU tilvalin fermingargjöf Landsbanki íslands veitir liandhöfum gull-debctkorta 2S% afslátt. Miðasalan cr opin þriðjud.-fimmlud. kl. 13-17. föstud.-sunnud. fram að sýningu. Símsvari allan sólarlLringinn. Muniðþakkaferðiniar. Sími 462 1400 er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.