Dagur - 29.04.1998, Page 10
26 - MIDVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998
LÍFIÐ t LANDINU
HESTAR
Vignir kominn med nýjan töitara, Ofsa frá Viðborðsseli. ( Mynd: EJJ
Töltkeppni á
skautasvelli
Kári
Arnórsson
skrifar
Á laugardaginn var fór
fram í Skautahöll
Reykjavíkur töltkeppni.
Hér var um frumraun
að ræða hvað keppnis-
svæðið varðar. Það var
Hestavöruverslunin
Reiðsport sem hafði
veg og vanda af þessu
_____________ móti og var það á
margan hátt kærkomin
tilbreyting eftir daufan vetur hjá sýning-
armönnum. SkautahöIIin rúmar um
1000 manns í sæti og aðstaðan til að
fylgjast með keppni þar er ágæt. Sem
fyrr segir var hér um algera nýjung að
ræða og ekki vitað fyrirfram hvernig
hestarnir tækju sig út við þessar að-
stæður. Þó þeir hafi margir hverjir kom-
ið áður á svell og sumir keppt á ískapp-
reiðum þá er svellið í skautahöllinni
talsvert öðruvísi en ís á vatni. Svellið í
höllinni er harðara og gefur ekkert eftir.
Fjöðrun er því engin, enda hvílir svellið
á steinsteypu. Vegna þess hve hart það
er þá er meiri hætta á því að hestarnir
skripli til eins og raun varð á. Einn
hestur fór flatur en meiddist þó ekki og
knapinn hélt áfram keppni. Sýnilegt var
að sumir hestarnir nutu sfn alls ekki
þarna inni, voru óöruggir og stressaðir.
Aðrir kunnu þessu vel og voru að bæta
sig allt kvöldið.
Toltsýning passar betur en keppni
Hvað keppina varðar þá eru kringum-
stæður þannig að mildu frekar ætti
þarna að vera um töltsýningu að ræða
en mót. Töltmót þar sem dæmt er eftir
skala íþróttamóts á þarna tæplega
heima. Það er t.d. mjög vafasamt að
leyfa hraðtölt þó það sé kallaður frjáls
hraði. Tölthraðinn sem kemur fram í
hraðabreytingunum á að nægja. Að
dæma töltkeppnina á skala íþróttamóts
en láta síðan tilviljun ráða því hvaða
hestar keppa saman í úrslitunum fer
ekki saman. En þrátt fyrir þessa ann-
marka, sem menn Iæra af, þá var kvöld-
ið skemmtilegt og ekki vantaði áhorf-
endur því húsið var þétt setið.
En víkjum þá að hestunum. Keppnin
var útsláttarkeppni þar sem einkunn
réði því hvaða átta hestar kæmust í
undanúrslit. I undanúrslitunum völdust
saman efsti hestur og neðsti og svo koll
af kolli. Þannig voru tveir hestar inni á
brautinni f einu og röðun réði því hvor
þeirra kæmist áfram.
Fjögurra hesta úrslitunum var háttað
þannig að klappmælir valdi saman hest-
ana og skar úr um það hvaða hestar
skyldu keppa um fyrsta og annað sætið
og hverjir um þriðja og fjórða sætið.
Þetta var óheppileg ráðstöfun úr því
verið var með dóma og einkunnir á
annað borð. Betur hefði farið á því að
þeir hefðu allir verið inná í einu og
dómarar skorið úr um röðun.
Sonur og sonarsonur Oturs
Þeir hestar sem komust í þessi fjögurra
hesta úrslit voru allt góðir töltarar.
Tveir þeirra eru nýir í töltkeppni eftir
því sem greinarhöfundur veit best en
hinir tveir hafa oft sést á keppnisvelli
áður. Þessir nýju hestar eru Ofsi frá
Viðborðsseli í Hornafirði, sem er sonur
Oturs frá Sauðárkróki og Blikar frá
Miðhjáleigu í Landeyjum, sonarsonur
Oturs. Auk þeirra voru þeir Valíant frá
Heggstöðum og Óður frá Brún í fjög-
urra hesta keppninni.
Urslit urðu þau að Valíant og Hafliði
Halldórsson sigruðu. I öðru sæti urðu
Blikar og Ragnar Hinriksson, í þriðja
sæti Óður og Auðunn Kristjánsson og í
Ijórða sæti Ofsi og Vignir Siggeirsson.
Það var gaman að sjá hve Auðunn Krist-
jánsson reið Óð af miklu öryggi og prúð-
mennsku. Það er talsverð áhætta að fara
með þekkta hátt dæmda hesta í svo
mikla óvissu sem svona keppni hlýtur að
bjóða upp á en Auðunn skilaði þessu
vel. Þá er ekki hægt annað en að geta
um reiðmennsku Vignis Siggeirssonar
því það er ekki oft sem maður sér jafn
góða útfærslu á hæga töltinu. Þar var
hesturinn frábær og knapinn öruggur.
Gaman verður að fylgjast með Blik-
ari og Ragnari á stærri velli í sumar og
eins mun Valíant eiga eftir að gleðja
augað á mótum sumarsins.
Hestadagar í ReiðhöHiiuii
Fákur og Hrossaræktarsamtök Suður-
lands bjóða upp á Hestadaga í Reiðhöll-
inni í Víðidal nú um helgina. Fyrsta
sýningin verður á fimmtudag 30. apríl
kl, 20:00 og síðan á föstudag 1. maí kl.
20:00 og Iaugardag 2. maí kl. 21:00.
Þarna verður um fjölbreytta sýningu
að ræða á kynbótahrossum og gæðing-
um. Boðið verður upp á afkvæmasýn-
ingar og ræktunarbússýningar. Það er
gott að þessir aðilar skuli drífa í því að
koma slíkri sýningu á. Það ber vott um
að eðlilegur gangur sé að verða í hesta-
mennskunni á Suður- og Suðvestur-
Iandi eftir pestarganginn. Miðaverðinu
er stillt f hóf og kostar miðinn kr. 1000.
Sími miðasölunnar er 567-0100.
Grænmeti er hollt fyrir okkur og
sjálfsagt hafa allir fengið að heyra
sem börn að svo sé, þó svo það hafi
kannski haft lítil áhrif á lystina. Gulrætur
eru meinhollar og ekki bara fyrir augun,
heldur fyrir hjartað og til að berjast á
móti sjúkdómum eins og krabbameini,
eða svo segja nýjustu rannsóknir. Auka-
verkanir af miklu gulrótaráti eru svo þær
að viðkomandi verður svolítið gulur, en
gula litarefnið í gulrótum er meðal ann-
ars notað til að Iita appelsín, drykkinn
sem allir Islendingar þekkja.
Hér eru nokkrar tilögur að því hvernig
gott er að framreiða gulrætur.
1. Sjóðið þær og stappið og notið
til að þykkja súpu.
2.Rífið þær smátt og setjið saman við
tómatmauk eða tómasósu.
3.Soðnar og smátt skornar eru þær góð
viðbót við kjötbollurnar.
4.Rífið þær smátt og blandið saman við
þær sítrónusafa og svörtum pipar. Þetta
er vinsælt í Frakklandi.
5.Skerið eða rífið í þunna stöngla og not-
ið til að skreyta súpu.
skrifar
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Vingjamleíki eða daðnr?
Sæl Vigdís. Ég vinn á fremur stórum
vinnustað og kærastinn minn vinnur þar
líka. Ég vil vera vingjarnleg við fólk, mér
líkar yfirleitt vel við það og finnst gott að
hrósa fólki af og til. Málið er það að sum-
ir (karlmenn) taka þessu þannig að ég sé
að daðra og kærastinn minn er með það
alveg á hreinu að þessi framkoma sé dað-
ur. En hvernig getur athugasemd eins og
sú að segja samstarfsmanni að hann sé í
fallegri skyrtu eða að nýja klippingin sé
góð, verið daður?
Daður og vingjarnleiki eru hreint
ekki það sama. Daður getur leitt til
nánara sambands og er oft fyrsta stig,
svona verið að prófa hvernig viðbrögð-
in eru, en getur reyndar verið hluti af
samskiptamynstri fólks, sumir eru
hreinlega fæddir daðrarar. Karlmenn
sem taka vingjamlegheitum sem daðri,
verða bara að eiga það við sjálfa sig og
þú auðvitað við þig hvort þú sýnir þeim
áfram slíkt viðmót eða verður bara svo-
lítið köld í viðmóti við þá.
Kærastinn þinn er áreiðanlega af-
brýðissamur, en kannski Iíka svolítið
óöruggur. Ykkar samband þarf að þró-
ast og það að þú sýnir öðrum vingjam-
legheit má ekki kosta vandræði ykkar á
milli. Reyndu að útskýra það fyrir hon-
um. Kannski ættir þú að horfa á málið
frá sjónarhóli kærastans og ímynda þér
hvernig þér liði við sömu kringumstæð-
ur og sjá hvort þú skilur hann betur.
En samskipti geta verið flókin og oft á
tíðum veldur smáatvik miklum vand-
ræðum.
Vigdís svarar í siiiiaiin!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símauu kl. 9-12.
Símiun er 563 1626 (beiut)
eða 800 7080
Pöstfaug: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
Húðflúrið vlnsæla
Húðflúr eða tattoo er vin-
sælt víða um heim. Þessi
maður, Glyn Hart að nafni
sem er atvinnulaus vörubfl-
stjóri, lét húðflúra sig fyrst
þegar hann var tvítugur, þá
saklaust hjarta á handlegg-
inn. Hann hreifst mjög af
hugmyndinni og hefur látið
flúra talsvert meira á sig
síðan. En af því að hann
stækkaði ekkert og plássið
jókst þar af leiðandi ekki,
þá var svo komið að ekkert
svæði var orðið eftir nema
augnlokin. Til að bæta úr því
lét Glyn flúra opin augu á
augnlokin, en það er í sam-
ræmi við Maori grímuna sem
flúruð er á andlit hans.Þess
er sérstaklega getið í blaða-
greininni sem fylgdi mynd-
unum að Glyn, sem er nú 38
ára gamall, sé einhleypur.
Hvort það er vegna þess að
enginn vill hann svona, eða
bara vegna þess að hann hef-
ur ekki tíma fyrir kvenfólk
vegna anna við húðflúrið
skal ósagt látið.
Mest, stærst og verst
Mesta syndin: Ótti
Stærstu mistökin: Að gefast
upp
Hin mesta blessun: Góð
heilsa
Verstu fíflin: Þeir sem ljúga að sjálfum
sér
Oruggast í lífinu: Breytingar
Hin mesta gleði: Aðrir hafa þörf fyrir
mann
Mesta aflið: Jákvæð hugsun
Mesta tækifærið: Hið næsta
Stærsti sigurinn: Sigurinn yfir sjálfum
sér
Mesta fötlunin: Sjálfselska
Mesti missirinn: Að tapa sjálfstraustinu
Stærsta veðmálið: Að skipta út von fyr-
ir staðreyndir.