Dagur - 29.04.1998, Blaðsíða 11

Dagur - 29.04.1998, Blaðsíða 11
 MIDVIKUDAGUR 29. APRÍL 1998 - 27 LÍFIÐ í LANDINU Mæðrastyrks- nefndin í Reykjavík er 70 ára í ár. Þörfin fyrir starfnefnd- arinnarhefur margfaldast með árunum. Guðlaug Runólfsdóttir hefur verið starfsmaður hinnar sjötugu Mæðrastyrksnefndar i 25 ár. Hún segir að þörfin á aðstoð hafi margfaldast með árunum, úr 250 beiðnum á ári i um 1.000 nú. Dimmu breytt / 1 . 1 • y í „Þetta starf höfðar ákaflega sterkt til mín. Mér finnst óum- ræðilega gaman að geta verið í þeirri stöðu að geta hjálpað öðr- um. Það gefur mikið að vera í starfi þar sem maður finnur að maður gerir eitthvað gagn. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt eins og Einar Ben sagði,“ segir Guðlaug Runólfsdóttir. Mæðrastyrksnefnd heldur há- tíðlegt í ár sitt sjötugasta starfsár og svo skemmtilega vill til að í ár hefur Guðlaug verið starfsmaður Mæðrastyrksnefndarinnar í Reykjavík í 25 ár. Þegar hún hóf störf hafði hún aðeins verið fengin til að leysa af gjaldkera nefndarinnar í þrjár vikur en það teygðist heldur betur úr þeim. Guðlaug var fengin til að rifja upp sögu og starfsemi nefndarinnar. Seldiblóm Mæðrastyrksnefndin var stofnuð 20. apríl 1920 að tilstuðlan Kvenréttindafélags Islands um svipað leyti og Forsetinn fórst. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Starf Mæðrastyrksnefndar hefurhaft mikið að segja fyrirmarga. Tíu kvenfélög stofnuðu Mæðra- styrksnefnd Reykjavíkur og var markmiðið að hjálpa ekkjum og munaðarlausum börnum. 1929 opnaði nefndin skrifstofu að Njálsgötu 3 og þar hefur hún verið til húsa alla tíð síðan. Fljótlega fór nefndin að selja blóm á mæðradaginn til að afla tekna og smám saman komst á sá siður að bjóða konum og börnum til sumardvalar, til að byrja með að Laugarvatni. Reykjavíkurborg gaf síðar einn hektara í landi Reykja í Mos- fellssveit og árið 1953 var Hlað- gerðarkot byggt þar. Þangað gátu konur komið með börn til sumardvalar. Arið 1974 var Hlaðgerðarkot selt Hvítasunnusöfnuðinum og húsnæði að Hagamel 19 í Reykjavík keypt. Þar var rekið skólaathvarf á vegum Skólaskrif- stofu Reykjavíkurborgar um Iangt skeið. Þetta húsnæði var svo selt og nýtt keypt að Sól- vallagötu 48. Þar hefur verið starfræktur flóamarkaður og fataúthlutun. Allan ársins hring Guðlaug segir að þörfin fyrir nefndina hafi ekki minnkað með árunum, þvert á móti. Mest sé annríkið fyrir jólin, bæði við matarúthlutanir og fataúthlut- anir, en nefndin reyni að hjálpa fólki „undir sérstökum kringum- stæðum“ og nú sé bókstaflega leitað til hennar allan ársins hring. Aður hafi beiðnirnar verið um 250 talsins en séu nú um 1.000 á hverju ári. Lögfræðingur nefndarinnar er til viðtals alla mánudaga frá 10 til 12. -GHS ...——— ——«m NÝJAR ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR Tengdapabba í Vitann Um drykklanga stund var blaða- maður á Degi Marín Guðrún Hrafnsdóttir, ættuð úr Svartár- dal. Starfaði hún hér á blaðinu allt fram á síðasta haust, þegar hún og hennar ektamaður, Steingrímur Olafsson, fluttu suður - er hún tók við starfi menningarfulltrúa Hafnarfjarð- arbæjar. Saga þessi þarfnast nokkurra ættfræðiskýringa, það er þeirra að Steingrímur er sonur þess víðfræga komma, Ólafs Þ. Jóns- sonar, sem frægastur er fyrir að hafa lengi gegnt störfum vita- varðar vestur á Horni. Okkur vinnufélögum Marínar Guðrúnar þótti skarð fyrir skildi þegar við fréttum að hún væri á förum, enda er Svarárdalsstúlk- an kappmikill blaðamaður. En hér á blaðinu sáum við Iíka fleiri fleti á málinu, til að mynda sá fréttahaukurinn Hafliði Helga- son þann flöt á málinu að at- vinnumálum tengdaQölskyldu hennar væri nú endanlega bjarg- að. Marín gæti komið sínu fólki í vinnu hjá Hafnarfjarðarbæ. „Og hvernig er það með fé- lagsmiðstöð unga fólksins í Hafnarfirði. Heitir hún ekki Vit- inn,“ sagði félagi Hafliði. Klór- aði sér síðan í glófextu hári sínu og sagði: „Það hlýur nú að vera mjög lógískt að Öli kommi fari að vinna í Vitanum." Umsjón: Sigurður Bogi Sævarsson. SMÁTT OG STÓRT Bjönn Þorláksson skrifar Ó sú náð að eiga Sverri Hváð sem annars má segja um Sverri Hermannsson þakkar margur pistla- og rímnasmiðurinn fyrir fram- tak hans að undanförnu. Það er líkt og maðurinn geti hvorki sagt neitt né rit- að án þess að styggja ein- hvern, nú síðast botnar maður ekkert í hvað kynlíf Steinunnar Jóhannesdóttur kemur Sverri við. Sverrir hneykslar þjóðina og fyrir vikið brjótast löngu upp- þornaðir blaðapennar fram á ritvöllinn þar sem allar gáttir opnast. Ó sú náð að eiga Sverri. Síðast í þrekkniun Langt er hins vegar um liðið síðan Sverrir blés. Ef ofanritað- ur man rétt var það þegar hann sagði Hrafn Jökulsson hafa brugðist trúnaði við sig eftir símtal. En muna lesendur hvert var tískuorð Sverris þá? Það var þrekkur, sem merkir skítur. Fréttir og Dagsljós í slag Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur er hættur að koma fram í veðurfréttum Sjón- varpsins en hann hefur störf á Stöð 2 í sumar. Einar segir Sjónvarpið vera að veslast upp hægt og bítandi og það sé ekki síst vegna þess að fréttastofan sé hornreka. Þar fái hæfileikamenn fréttastof- unnar nánast engin tækifæri til að vera með málefnalega umfjöllun og umræðu en Dagsljóssfólkið leiki sér að vild. Og svo eru veðurfrétt- irnar náttúrlega í kuldanum. Ekki verður hér lagt mat á hvort eitthvað sé hæft í þessu en Síðasti leikur Dagsljóss hlýtur að hafa verið umdeildur. Ómar Ragnarsson í þrautakeppni og gagnrýnendur í kökuskreytingum gáfu a.m.k. ofanrituðum ákaflega lítið. Aldrei staðið við neitt Það er eins og vant er með íslensku þjóðina. Þegar Hval- Ijarðargöngin voru samþykkt var ein af forsendunum sú að ekki myndi kosta meira en kannski 600 krónur að aka í gegn þegar þau yrðu opnuð. Nú hefur verðbólga verið í sögulegu lágmarki frá því að ákvörðun var tekin og efna- hagslíf allt í miklum blóma. Samt sem áður á að rukka minnstu bílana um 1000 krónur fyrir hverja ferð. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvernig viðbrögð þjóðarinnar verða á næstunni. Þetta er óeðli- legt okur og nú ber Blöndal að aðhafast. Netfang: bjorn@ dagur.is (Skemtilegar sögur og kveðskapur er vel þeginn)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.