Dagur - 05.05.1998, Síða 1
Haukur Haraldsson
listamaður sker út
fomgripi, smíðaralls
konarvíkingahluti og
hefursíðustu 12 árin
unnið að því að húa til
rúnadagatal sem hann
segirgeta gengt ýms-
um hlutverkum.
„I dagatalinu hefur hver dagur
sitt heiti og merkingu og bera
vikur og mánuðir sérstök nöfn
líka. Merkin í gamla daga skipt-
ast nokkuð líkt og stjörnumerki
nútímans hvað varðar tímabil, en
heitin eru allt önnur. Eg hef
teiknað merki hvers dags og sett
inn texta fyrir daga, vikur og
tímabil og svo er ég að teikna lit-
m y n d
m e ð
merkingu
dagsins,
s e g i r
H a u ku r,
sem hefur
f e r ð a s t
víða um
heim til að
safna efni í
dagatalið
og segist
vera kom-
inn aftan úr
f o r n e s k j u
sjálfur.“
Hnikiiúiir
er dvar-
ganafn
Haukur tek-
ur til einn
dag, 29. maí,
og les það út að tímbilið, tímabil
tvíburans sé til forna tímabil
Hann sýnir okkur myndina fyrir 4. rew-
ZL9Sm.semdeidrBr0k.Pann
danklippamennlokkúrhárismuog
Miarftnr vatnsberinn í okkardmata .
Baldurs, nóttleysismánuður eða
Skerpla. Einnig brúðkaupsmán-
uður. Dagurinn heitir Hnikaður
sem er dverganafn og er hátíðis-
dagur auðs og valds. Þann dag
reyna bogamenn með sér og
karlar og konur reyna meira en
endranær. Vikan er tímabil
mistilteinsins og táknið er bogi.
Það eru líka skemmtileg nöfn-
in sem dagarnir hafa, mörg þeir-
ra eru dverganöfn, en önnur vísa
til atburða eða tíma sem hentar
fyrir einhverja atburði. „Tökum
til dæmis 25. júlí,“ segir Haukur.
„Sá dagur heitir miðsumardagur,
heitasti dagur ársins og þann dag
tóku menn sér frí, drukku bjór og
bjuggu sig undir slátt sem hófst
daginn eítir. Eða 17. júní, sem
heitir Jötunn eða Rót. Þann dag
söfnuðu menn rótum til átu...“
Hakakrossinn alþekktur
Tengslin við aðra hluta Evrópu
og Norðurlanda er auðsæ. Hauk-
ur segir að hvar sem hann komi
sjái hann tengsl og fái
upplýsingar sem passa
við það sem fyrir er.
„Hakakrossinn gamli til
dæmis, hann þekkist all-
staðar," segir hann.
hefur verið rak-
n alveg til Asíu, gömlu
Mongólíu, en ekki hefur
tekist að finna upp-
runann að tákninu enn-
þá þrátt fyrir mikla
leit.“
Haukur segir alveg
vera hægt að nota
rúnadagatalið Iíkt og
Tarot. Þetta sé byggt
upp á svipaðan hátt,
nema hvað dagatalið
er með 365 spilum,
en Tarot nokkuð
færri. Því sé jafnvel
hægt að fá nákvæm-
ari spá þannig en
með Tarot. Verkið er vel á veg
komið, en því er þó ekki lokið
þrátt fyrir mikla vinnu sem í því
Haukur gæti sem best stigið aftur í aldir og myndi passa vel inn I, alla vega hvað útlit varðar.
liggur. Hann segist vera kominn í
þrot með fé og þurfa að fá ein-
hvern bakhjarl.
Haukur hefur skoðað tengsl á
milli goðanna og gömlu jóla-
sveinanna okkar. „Það sagði mér
gömul kerling í Þýskalandi," seg-
ir hann og glottir, „merkilegar
þessar gömlu kerlingar út um all-
ann heim. En ég var þarna og við
vorum að tala um Sindurdag,
Zindertag, 6. desember, þegar
þjóðverjar hafa hátt. Þann dag
átti Þór að hafa komið með há-
vaða og látum og Heimdallur
kíkti inn um glugga á elskendur.
Annar stal pylsum og þá sá ég
tengslin skýrt. Þarna voru þeir
komnir gömlu jólasveinarnir okk-
ar, því víða er sagt frá því að goð-
in hafi komið til mannheima fyr-
ir jólin.“
Færanlegt viktnga-
veitingahús
Haukur fæst við ýmislegt annað
en rúnadagatalið. Þessa stundina
er hann að Ieggja lokahönd á
færanlegt víkingaveitingahús
sem á að taka 300 manns í sæti.
„Þetta er búinn að vera draumur
hjá mér lengi," segir hann. „Við
Jói vinur minn sjáum fram á geta
flakkað með þetta veitingahús
um víðan völl, farið til útlanda ef
því er að skipta og búið til vík-
ingaandrúmsloft á stundinni
með þessu veitingahúsi. Og svo
er ég auðvitað að vinna að vík-
ingahátíðinni sem á að vera í
Hafnarfirði 17. júní en sú hátíð
verður alveg frábær.“ -VS
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM
GARÐA- OG GRÓÐURRÆKT
Þarftu aö eyða illgresi? Eru pöddur í garöinum þínum?
Veistu ekki hvernig á aö bregöst viö? Leyfðu okkur aö aðstoða þig.
Ráðgjöf sérfræðinga um garð- og gróðurrækt
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SmiSjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100
Munið!
Fagmennska
í fyrirrúmi!
4