Dagur - 05.05.1998, Síða 2

Dagur - 05.05.1998, Síða 2
18 - Þ RIÐJ V DAG U R 5 . M A í 199 8 Ðagur LtFIÐ í LANDINU Dagur • Straudgötu 31 • 600 Akureyri og Þverholti 14 • 105 Reykjavík ii:\'J1J♦i 'Æ Súninn hjá lesendaþjónustunni: SI31121 netfang: ritstjori@dagur.is Simhréf: 411 611 eða SSl 6270 itni Skúli Thorodd- sen og lands- höfðingjamir Mér hefur skilist á ýmsu sem Þorsteinn Pálsson ráðherra hef- ur sagt og eftir honum er haft að hann telji það ekki fátítt að sýslumenn séu skipaðir í emb- ætti með úrskurði æðra valds án þess að þeir hafi sótt um emb- ættið. Þar sem ég man lítið eftir slíkum veitingum þætti mér gott að heyra um nokkur dæmi. Eg veit að á fyrri öldum höfðu yfirvöld rétt til að skipa presta í embætti með vissum skilyrðum. Hefði maður fengið opinberan styrk til að læra það sem þurfti til að fá prestvígslu þá gátu stiftsyfirvöldin sent hann í lélegt brauð. Gengið var út frá að prestur fengi svo betra brauð eftir nokkurra ára þjónustu. Þetta var kallað að skikka menn. Og þessi aðferð var notuð til að tryggja Grímseyingum prests- þjónustu. En þetta er löngu liðin tíð. Ekki hreppsómagi Árið 1892 var Skúli Thoroddsen sýslumaður ísfirðinga. Lands- höfðinginn vék honum frá emb- ætti og skipaði Lárus H. Bjarna- son sýslumann og þar með rann- sóknardómara í málum þeim sem búin yrðu á hendur Skúla. Allt var það gert eftir fyrirmæl- um Islandsráðherra í Kaup- mannahöfn. Lárus dæmdi Skúla frá emb- ætti samkvæmt kæru hins opin- bera í 8 greinum hegningarlaga. Landsyfirréttur dæmdi hann til að greiða 600 króna sekt í Iands- sjóð en embættinu héldi hann. Hæstiréttur í Kaupmannahöfn, sem var æðsta dómsvald Islend- inga allt til 1918 að ísland varð fullvalda ríki, sýknaði Skúla af öllum þeim sökum sem honum var stefnt fyrir. Það gerðist 15. febrúar 1895. Þá var í óvissu hvað stjórnin gerði við Skúla. Mörgum fannst það eitt eðlilegt að sýknudómur- inn yrði til þess að hann fengi sitt gamla embætti. I þess stað var honum boðið að fá Rangár- vallasýslu. Þar voru tekjur sýslu- manns miklu minni en á Isa- firði. Þegar Skúli fékk það tilboð í bréfi landshöfðingja bað hann fyrir þau skilaboð til ráðherrans „að ég Iæt ekki setja mig niður sem hreppsómaga". Það kom því aldrei til þess að boðinu væri tekið. Skúli hvarf ífá embætti, fékk eftirlaun 36 ára gamall. Sennilega hafa eftirlaunin á Isa- firði verið meiri en laun starf- andi sýslumanns í Rangárvalla- sýslu. Skúli taldi sjálfur að mun- aði 2.000-3.000 krónum á sýslu- mannstekjunum á þessum stöð- um. Halldór Kristjánsson. Frábær ferð! Lesandi hringdi Móðir nemanda í 10. bekk Brekkuskóla á Akureyri hringdi og lýsti mikilli ánægju með „óvissuferðina" sem farin var að loknum samræmdu prófunum. Hún sagði rikja almenna ánægju með þessa ferð, hvort tveggja hjá nemendum og foreldrum og væri hér um gott framtak að ræða. 9" 9* Voðalega getur það verið hallærislegt þegar fólk er sí- fellt að stíga á hælana á hvort öðru þegar það er á gangi á fjölförnum gangstéttum. Það er eins og fólk sé ekki lengur með augun í höfðinu eða hreinlega ekki með á nótunum. Það fer mjög í taugarnar á meinhyrningi dagsins að geta ekki farið á fundi án þess að verið sé að plaga mann með allskyns pésum og bæklingum. Ef að líkum Iætur verður maður að hafa með sér tösku á næsta fund í stað þess að troða þessu í vasa, eins og verið hefur, áður en því er varpað í næstu öskutunnu. Það Iíður varla sá mánaður núorðið að ekki berist fréttir um ný meðferðarúrræði við hinu og þessu. Aður en langt um Ifður verður án efa boðið upp á meðferð fyrir þá sem eru örvhentir. ,Með samstilltu átaki manna og féiaga næst oft ótrúlegur árangur á nokkrum árum. Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Á undanförnum árum hef ég oft velt fyrir mér ástandi gróð- urlendis á Reykjanesskaganum og ástæðum þess hversu hann er vfða skjóllítill og örfoka og þá oft lítt aðlaðandi til útivistar vegna vindnæðings og moldroks. Auðvitað eig- um við marga fallega reiti sem jafnast fyllilega á við það fegursta í öðrum landshlutum og gjarn- an er það fórnfúsu starfi hugsjónamanna og annarra sem komið hafa að umhverfisverndun, landgræðslu og skógrækt að þakka. Kærkominn liðsauM I ræktunarmálum eru jafnan mörg sjónarmið og sýnist sitt hverjum. Sumir hugleiða beitarþol og hverjar landnytjar megi hafa af því sem ræktað er. Aðrir sjá skjólið og fegurðina og enn aðrir sjá ekkert nema urð og grjót, -þar sem ekkert fær þrifist að þeirra áliti. Þá eru þeir jafnvel til sem óttast skerðingu á útsýni verði ráðist í stórfellda trjárækt. Með tilkomu fjölmargra nýrra afbrigða af fljótsprottnum, seltuþolnum víðitrjám og öspum, svo eitthvað sé nefnt ásamt haldgóðu aðgengi upplýsinga á gróðurstöðvum, hefur þeim er stunda trjárækt í mögru og nær örfoka íandi nálægt sjávarsíðunni borist kærkominn liðsauki við að hefja ræktun með árangri. Eig- endur húseigna í sjávarþorpum og bæjum byrja nú strax á frumbyggingarstigi að rækta garðinn sinn, -og árangurinn er skjólgóð íbúðabyggð, sem er öllum til ánægju. Samstillt átak Otrúleg vakning er nú í umhverfis- og ræktun- armálum og virðist sem flestir séu sammála um að skaganum sé hægt að skila byggilegum til komandi kynslóða. Hvað getum við gert til að svo megi verða? Væri hugsanlega hægt að virkja betur viljann til verksins með því að ræktunar- menn alísstaðar af svæðinu tækju sig saman og samhæfðu haldbærar hugmyndir í þessa átt? Hvað með strandlengjurnar og holtin gróður- snauðu? Hugsanlega mætti byrja þar á skjól- beltum með fyrrgreindum tijátegundum í bland við nokkrar Iúpínur og grasfræ, -og jafnvel strax á þriðja til fjórða ári væri þá komið nægjanlegt skjól fyrir ýmsar vandmeðfarnari greni- og birki- tegundir til enn frekari skjólræktunar og feg- urðarauka. Með samstilltu átaki manna og félaga næst oft ótrúlegur árangur á nokkrum árum. Nærtæk dæmi eru Heiðmörkin, þar sem fyrirtæki, félög og einstaklingar stóðu sameiginlega að áráng- ursríkri ræktun. Þá má einnig nefna svæði Golfklúbbsins í Leiru og nýræktarsvæði Hesta- mannafélagsins Mána, en ræktun þess félags getur í dag séð flest öllum hrossum félags- manna fyrir sumarbeit langt fram á haust. Ræktunarsvæðið er á vinstri hönd þegar ekið er frá Keflavík út í Garð og stingur það óneitan- lega í stúf við annars gróðurvana umhverfið. Þetta er aðeins brot af öllu því sem áhugamenn og samtök áhugamanna um ræktun eru að fást við. Og þetta varðar alla. Því ættu sem flestir að koma að þessu með einhverjum hætti, því hvað er í rauninni merkilegra en að rækta landið. Sjá það vaxa og verða byggilegra með hverjum degi sem Iíður. Að byrja smátt Flag í fóstur. Hvernig væri að taka lítið flag í fóstur. Fá dellu fyrir vænlega staðsettu flagi og hætta ekki fyrr en það er uppræktað, -grænt. Fyrst og fremst grænt og hætt að blása frá því moldryki hvenær sem vind hreyfir. Byrja smátt. Kaupa ef til vill smávegis grasfræ og tvær til þrjár þriggja ára víðisplöntur á gróðrarstöð, (kosta ca. 90 kr. stykkið). Skreppa með þetta upp á holt og róta til smá jarðvegi. Stinga hrísl- unum niður, -bæta smá áburði í jarðveginn, - búið. Þú getur snúið þér síðan að næsta ílagi og gert eitthvað allt annað þar. Ef þetta verður ein- bven tímann fyrir skipulagi þá verður þetta ein- faldlega fært til eða fellt af þeim sem telja þetta framtak þitt fyrir. Og hvað með það, -þú átt jafnvel fullt af flögum annars staðar sem fá að vera í friði. Sjáðu hvað hann komst upp með maðurinn sem ræktaði upp svæðið inn við El- liðaár í Reykjavík. Hann ræktaði allan dalinn! Menn skildu ekkert í því að einn góðan veður- dag var kominn þarna skógur. Skógur fyrir þig og komandi kynslóðir til að njóta og hafa skjól af. Stðari hluti hréfsins hirtist i hlaðinu á morgun.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.