Dagur - 05.05.1998, Side 3
ÞRIBJUDAGVR S.MAÍ 1998- 19
LÍFIÐ í
LANDINU
Kosningabaráttan íReykja-
vík erkomin á jullan skrið
með beinni útsendingufrá
framboðsfundiflokkanna í
Ráðhúsi Reykjavíkur á
sunnudag. Hvemig skyldi
frambjóðendunum hafa
gengið og hvaða þýðingu
hafa nýjuframboðin? Fjórir
einstaklingar svara þessum
spumingum.
Tímabærar umræður
„Mér fannst þátturinn ágætur og umræð-
urnar tímabærar. Málefnalega hafði Arni
Sigfússon langmest til málanna að Ieggja.
Umræðurnar einkenndust hins vegar af
dálitlu þrasi. Það var eins og við værum
komin aftur í gamla farið þar sem voru
margir aðilar að skiptast á skoðunum um
sömu málin. Það voru meiri endurtekn-
ingar en annars hefði verið. Mér fannst
Árni málefnalegastur og þeir tveir frá
nýju framboðunum undirstrikuðu sjálfir
að þeir voru að gefa kost á sér út af mjög
afmörkuðum málum og höfðu þess vegna
lítið að leggja til hinna málaflokkanna,"
segir Ásdís Halla Bragadóttir, formaður
Sambands ungra sjálfstæðismanna.
Ásdís Halla tekur undir orð Árna Sig-
fússonar um að framboð húmanista og
launalistinn væru klofningsframboð úr
Reykjavíkurlistanum, ekki sé hægt að
túlka það öðruvísi, að hennar sögn. Hún
segir að megnið af frambjóðendunum á
þessum Iistum hafi stutt Reykjavíkurlist-
ann áður og bjóði sig fram vegna óá-
nægju með störf hans á kjörtímabilinu og
bendir á að skoðanakannanir á fylgi
flokkanna hafi ekki verið gerðar eftir að
litlu framboðin tvö hafi komið fram. Það
sé því óráðið hvaða þýðingu þau hafi.
Stóð sig eftir bókinni
„Mér fannst borgarstjóri standa sig eftir
bókinni. Hún var eins og ég átti von á,
hún átti engan stjörnuleik en var bara „í
lagi“, hún var í eðlilegu formi. Mér
fannst Árni Sigfússon koma betur út úr
þessum þætti en rnörgum öðrum sem ég
hef séð hann í. Mér fannst hann standa
sig mjög vel og gera gott að flestu Ieyti.
Það bar ekkert á pirringnum eða fýlunni
sem hefur stundum verið í honum, hann
var Iéttari og yfirbragð hans skilaði sér
betur en áður,“ segir Atli Rúnar Halldórs-
son, áhugamaður um stjórnmál.
Borgarstjóri átti engan stjörnuleik í þættinum en Árni
stóð sig vel, að sögn Atla Rúnars Halldórssonar.
„Mér fannst tngibjörg Sólrún geis/a út úr þessu en
Árni standa sig vel miðað við höggið sem hann fékk I
hádeginu, “ segir Mörður Árnason.
Atli kveðst ekki sjá að framboð
húmanista eða launalistann komi til með
að skipta neinu máli í kosningunum þó
að vissulega megi segja að launalistinn sé
klofningur úr Reykjavíkurlistanum, að-
eins sé um nokkur hundruð atkvæði að
ræða. Ef til vill sé þeim gert fullhátt und-
ir höfði að kalla þá klofningsframboð úr
Reykjavíkurlistanum, að minnsta kosti
hafi Flokkur mannsins ekki verið þar
með. Frambjóðendur húmanista og
Ásdís Halla Bragadóttir: „Málefnalega hafði Árni Sig-
fússon langmest til málanna að leggja."
„Mér fannst þetta llflegur þáttur og gaman að mörgu
því sem hraut af vörum nýju frambjóðendanna, “ segir
Ólafur Hauksson.
launalistans þvæli umræðurnar, að öðru
leyti skipti þeir ekki máli. Magnús Skarp-
héðinsson hafi þó verið sniðugur í taktík
að leggja sig upp að Reykjavíkurlistanum
í sumum málum en höggva svo í hann í
öðrum málum. Það hafi skilað sér þó að
það skili sér kannski ekki í mörgum at-
kvæðum.
-Finnst þér kosningarnar spennandi
þegar kannanir sýna aukið fylgi Reykjavík-
urlistans?
„Ég hef ekki mikla trú á því að kosn-
ingaúrslitin verði í líkingu við síðustu
könnun, 10-5. Mér hefur iengi fundist að
Reykjavíkurlistinn eiga innistæðu fyrir
níu mönnum og það eiga þau hiklaust
ennþá en það getur saxast á það þegar
nær dregur,“ segir hann.
Ekki alvöru framboð
„Mér fannst áberandi að einu kosninga-
málin sem rætt var um voru áherslur
sjálfstæðismanna. Mér fannst áberandi
að Ingibjörg Sólrún var fyrst og fremst í
vörn og að hún hafði ekkert nýtt á prjón-
unum. Mér fannst þetta líflegur þáttur og
gaman að mörgu því sem hraut af vörum
nýju frambjóðendanna þó að mér finnist
fulltakmarkað að gefa kost á sér í borgar-
stjórn út á mjög afmarkað málefnasvið,"
segir Olafur Hauksson blaðamaður.
- Hvaða þýðingu heldurðu að þessi
framhoð hafi?
„Þetta er fólk sem er óánægt með hvað
R-Iistinn hefur staðið sig illa. Eg held að
þessi framboð taki fyrst og fremst fylgi af
R-listanum en af því að þetta eru ekkert
sérlega trúverðugir pappírar, sem standa
að þessu, þá held ég að það verði ósköp
lítið. Ég flokka þessi framboð ekki sem
alvöru framboð,“ svarar Ólafur.
Klaufalegt
„Þetta var ekki mjög skemmtilegt að
horfa á. Mér fannst Ingibjörg Sólrún
geisla út úr þessu en Árni standa sig vel
miðað við höggið sem hann fékk í hádeg-
inu þegar skoðanakönnun upp á 10-5 var
birt. Hún var verri en hann hefur
nokkurn tímann séð áður og hlýtur að
hafa verið áfall,“ segir Mörður Árnason
blaðamaður.
„Mér fannst þátturinn illa skipulagður.
Auðvitað er erfitt fyrir stjórnendur að fá
allt í einu fjóra menn í þáttinn en þeir
náðu ekki tökum á neinu af þeim málefn-
um sem þeir settu á dagskrárborðið. Þeir
skildu áhorfendur stundum eftir í lausu
lofti í tölum því að þeim gafst ekki færi á
að ganga á frambjóðendur með slíka
hluti,“ segir hann.
Merði finnst klaufalegt að safna sam-
an fólki sem sé augljóslega á vegum fram-
boðanna. Það spyrji spurninga sem allir
\ati að séu samdar fyrirfram og lesi þær
jafnvel upp af blaði. Flestir frambjóðend-
ur hafi svarað þessum spurningum en
Árni hafi svolítið verið í því að skjóta nið-
ur spurningar, sem voru neikvæðar fyrir
hann, og byrja svo „á sinni þulu,“ segir
Mörður.
Pólitískt heldur hann að fundurinn
hafi ekki breytt þeirri stöðu sem kynnt
var í hádegisfréttum Útvarps á sunnudag-
inn, það er 10 borgarfulltrúar til Reykja-
víkurlista og fimm til sjálfstæðismanna,
frekar sé það á hinn veginn - að Ingibjörg
Sólrún hafi grætt atkvæði á fundinum.
-GHS