Dagur - 05.05.1998, Side 6
22 - i> ni i) i u i) a a u n s. maí i 9 9 s
Dagjltr
LÍFIÐ í LANDINU
Riddarar hálendisins
Frá Dimmuborgum sem eru eitt afmörgum sérkenniiegum náttúrufyrirbærum íslands. Náttúruverndarsamtök ístands hafa það á
stefnuskrá sinni að miðhálendi íslands verði allt gert að þjóðgarði vegna einstakrar náttúru svæðisins.
Náttúruvemdarsam-
tök íslands em ung
samtök, en þau hafa
mikið látið að sér
kveða í umræðu um
miðhálendi íslands.
Sjónarmið þeirra sem láta sig
umhverfismál varða verða sífellt
háværari og á sú umræða greið-
ari leið til almennings, en áður
tíðkaðist. Náttúruverndarsam-
tök Islands eru ársgömul samtök
sem hafa Iátið til sín taka í um-
hverfisumræðu á undanförnum
mánuðum. Samtökin hafa gert
athugasemdir við ákvarðanir
stjórnvalda og látið hálendi Is-
lands til sín taka.
Nýjasta dæmið eru athuga-
semdir Náttúruverndarsamtaka
Islands við frumvörpin þrjú um
verndun og skipulag miðhálend-
isins, sveitarstjórnarfrumvarpið,
þjóðlendufrumvarpið og frum-
varp um eignarhald og nýtingu
auðlinda f jörðu. Arni Finnsson
er í stjórn samtakanna. „Það
sem einkennir þessi þrjú frum-
vörp er að verið er að færa for-
sætisráðherra og iðnaðarráð-
herra gífurlegt vald um nýtingu
og verndun miðhálendisins, en
umhverfisráðuneytið er gjörsam-
Iega afskipt."
Velkomin í
Villta vestrið
AUKASÝNINGAR
AUKASYNINGAR
Nýtt ísl. leikrit
eftir
Ingihjargu Hjartardóttur.
Leikstjóri
Helga E. Jónsdóttir.
Tónl. stj.
Ingólfur Jóhannsson
17. sýning
fost. 8. maí. kl. 20.30
18. sýning
laug. 9. maí. kl 20.30
Allra síðustu
sýningar
Miðapantanir í síma
463 119S irá kl. 17.00. - 19.00.
VISA - EURO
Gisting og matur fyrir
hópa að Öngulsstöðum í
Eyjafjarðarsveit.
HLAÐAN er opin eftir
sýningar upplýsingar í
síma 463 1380
Freyvangs-
leikhúsið
Málin ekki kynnt
Arni segir almannarétt ekki
tryggðan með frumvörpunum og
aðgengi almennings að miðhá-
lendinu mildu óljósara en þyrfti
að vera. „Að okkar áliti er ekki
tryggt í frumvörpunum að al-
Árni Finnsson.
menningur hafi áhrif á ákvarð-
anir varðandi miðhálendið. Við
höfum ekki haft tíma til að
kynna okkur frumvarp umhverf-
isráðherra, en það kemur fram á
síðustu stundu, svona eins og
plástur á sárin.
Arni segir að samvinnunefnd
um svæðisskipulag hálendisins
sem skipuð var fulltrúum sveit-
arfélaga víða um land, nema frá
Vestljörðum og Reykjavíkur-
svæðinu, hafi á margan hátt
unnið þarft og merkilegt starf,
þótt samtökin hafi gagnrýnt ým-
islegt í því. „Tillögunni var skil-
að fyrir ári síðan, en umræðan
um hana hófst ekki fyrr en nú á
vormánuðum. Það er eins og
skorti þann skilning hjá stjórn-
völdum hér á landi að það þurfi
að kynna svona ákvarðanir og
fyrirætlanir til þess að almenn-
ingur geti sett sig inn í málin“
Ekki á móti virkjimum
Hilmar Malmquist sem sæti á í
stjórn Náttúruverndarsamtaka
Islands segist sammála því að
umræðan um náttúruvernd á
hálendinu hafi tekið stakka-
skiptum eftir að samtökin voru
stofnuð. Samtökin eru ekki á
móti virkjunum á hálendinu, en
þau leggja áherslu á mikilvægi
þess að verndun hálendisins
vegi þyngra en önnur sjónarmið,
þegar framkvæmdir eru annars
vegar. „I mörgum tilfellum eru
sjónarmið náttúruverndar og
virkjanaframkvæmda ekki sam-
rýmanleg. Grundvallarstefna
samtakanna er að miðhálendi
Islands verði gert að þjóðgarði
og lúti einni yfirstjórn sem er
lýðræðislega kjörin með þátt-
töku Alþingis og hagsmunasam-
taka almennings. Samtökin líta
svo á að hálendið sé þvílík nátt-
úrugersemi að öll meiriháttar
mannvirkjagerð eigi að heyra til
undantekninga," segir Hilmar.
Þeir segja að í skipulagstilög-
unni séu tekin frá svæði fyrir
virkjanir, en forsendur séu ekki
kynntar. „Það þarf að spyija sig
hversvegna sé verið að virkja til-
tekin vatnakerfi,“ segir Hilmar.
„Vatnsorkan er hrein með tilliti
til losunar gróðurhúsaloftteg-
unda, en það þarf að huga að
því hvaða önnur áhrif slíkar
framkvæmdir hafa á náttúruna.“
Þeir benda á að línulagning
og framkvæmdir hafi veruleg
áhrif á umhverfið. „Við það bæt-
ist að stórfelldar virkjanir og
miðlun á vatni hefur líklega
áhrif á til dæmis sjávarvistkerfið
hér við land,“ segir Hilmar.
Hann segir það ekkert smáræði
sem stór vatnsföll flytji af nær-
ingarefnum fýrir frumframleið-
endur í vistkerfinu. „Island er
mjög vatnsríkt land og afrennsli
af Iandinu á flatareiningu er
með því hæsta sem þekkist í
Evrópu. Það eru til frumrann-
sóknir á Hafrannsóknastofnun
sem benda til þess að jákvæð
tengsl séu á milli ferskvatnsinn-
streymis og stærðar á þorsk og
ýsustofnum. Rannsóknir á áhrif-
um slíkra framkvæmda eru því
allt of skammt á veg komnar."
Arni og Hilmar segja það afar
mikilvægt að þekking og rann-
Hilmar Malmquist.
sóknir séu Iagðar til grundvallar
þegar teknar eru ákvarðanir um
svo mikilvæg mál. Vandinn við
þessa umræðu sé sá að skjóttek-
inn gróði verði yfirsterkari stærri
hagsmunum þegar til lengri
tfma sé litið og fyrir það líði
náttúran. Náttúruverndarsam-
tök Islands séu til höfuðs þessu
og þau séu einu samtökin sem
ekki tilheyri hagsmunahópum,
heldur séu þau hópur fólks sem
hefur verndun náttúrunnar og
umhverfisins að Ieiðarljósi. HH
Kennara vantar
að Grunnskólanum í Bárðardal S.-Þing.
næsta skólaár.
Almenn kennsla 6 tiM2 ára nemenda.
Nánari upplýsingar gefa skólastjóri,
Svanhildur Hermannsdóttir í síma 464 3291
eða 464 3290, Ólafur Ólafsson formaður
skólanefndar í síma 464 3218 og oddviti Skarp-
héðinn Sigurðsson í síma 464 3400.
Umsóknarfrestur er til 29. maí nk.
HIN ÆSKILEGA FJARFESTING VERÐUR AÐ VERA:
i?
PIONEER
Fjárfestingasjóðir
síðan 1928
Q Jafn örugg og fasteign
Q| Vaxtaberandi
g Ávallt til reiöu
Hentug sem lífeyrissparnaður
Q Þægileg í framkvæmd
Frá árinu 1928 hefur Pioneer Fund að meðaltali
sýnt 12.8% ávöxtun ár hvert!
Tryggið ykkur hlutdeild í vexti og viðgangi
fyrirtækja í fararbroddi, undir leiðsögn
eins elsta hlutabréfasjóðs í Bandaríkjunum.
Takið enga áhættu: Veljið hlutabréfasjóð!
Kynnið ykkur eingreiðslusparnað, sparnaðaráætlun
og úttektar- eða lífeyrisáætlun.
Biðjið um frekari upplýsingar:
" Sími: 562-6920
Fax: 562-6905
if&islandia.is
e/ýC
Löggilt verðbréfamiðlun - Hafnarstræti 7