Dagur - 05.05.1998, Blaðsíða 10
26 - ÞRIÐJUDAGUR S. MAÍ 1998
TO^itr
LÍFIÐ t LANDINU
mm a
Á laugardagsmorgun fór ég á flakk
um bæinn eins og svo margir og
leit meðal annars inn í nokkrar
verslanir þegar ég var búin að
skoða bútasaumssýninguna í Virku
Handverkssýninguna í Laugardalnum.
(Alveg greinilegt hvar áhugasviðið liggur).
Eg verð að viðurkenna að mér varð ekki
um sel þegar ég kom í hina nýju verslun
Intersport sem er til húsa í Húsgagna-
höllinni, slíkur var atgangurinn. Það var
engu líkara en að stór hluti bæjarbúa væri
þar samankominn til að kaupa sér
íþróttavörur. Eg stóð lengi og horfði á
fólkið og fannst þetta svo dálítið hlægi-
legt. Fyrst kom Bónus með lágt verð á
matvörum og við höfum keppst við að
Stefánsdóttir
skrifar
°g
kaupa í matinn þar síðan eins og
von væri á hungursneyð næsta dag.
Svo kom Elkó með ódýrari raftæki
og þá hlupum við til og keyptum
raftæki í þeim mæli og nú mun vart að
finna það heimiii að ekki séu þar 3 sjón-
vörp, 6 útvörp og 10 hljómtæki. Nú síðast
eru það íþróttavörur og eftir magninu
sem fólk bar út er ekki annað að sjá en
þjóðin verði á hlaupum þetta sumarið,
bæði á íþróttavöllum og annars staðar.
Eitt gott hlýst þó af þessu kaupæði okkar.
Með nokkurri vissu má bóka það að að
gámar sem fara héðan með notaðan fatn-
að og annað til þróunarríkja í hjálparskyni
muni verða vel hlaðnir vörum.
Daewoo fólksbilarnir sem blaðamönnum voru kynntir á dögunum. - MYNDIR:OHR
Nýr og áhugaverður
valkostur í bflum
Að missa ættingja
Bílabúð Benna hefur
hafið innflutning á
fólksbílum frá kóreska
bílaframleiðandanum
Daewoo. Eins og kunn-
ugt er hefur Bílabúð
Benna flutt inn jeppa,
bæði Musso og Kor-
ando frá SsangYong en
í nóvember á síðasta
ári keypti Daewoo
53,5% eignarhlut í SsangYong.
Bílarnir voru kynntir fyrir blaða-
mönnum við Skaftafell á dögunum. Um
er að ræða þrjár gerðir fólksbíla. Lanos
sem er í minni kantinum með 1400,
1500 og 1600 rúmsentímetra vélum,
Nubira sem er millistærðar fólksbíll og
boðinn með 1600 og 2000 rúmsentí-
metra vélum og Leganza sem er lúxus-
útgáfa og einungis boðinn með 2.000
rúmsentímetra vél.
Þessir bílar eru sannarlega áhuga-
verður valkostur fyrir fólk sem er að
huga að endumýjun fjölskyldubílsins.
Verðið er ágætt og bílarnir sem slíkir
standast flestar væntingar sem maður
gerir til fólksbíla.
Hið ytra eru þeir hinir snotrustu og
hefur tekist ágætlega til með hönnun
þeirra útlitslega. Að innanverðu eru ó-
dýrari bílarnir látlausir og e.t.v. ekki
mjög spennandi hvað hönnun snertir,
en snyrtilegir og þokkalega snotrir og
þar er allt sem þarf. Sætin fara vel með
mann.
Gott inijanrými
Stærsti plúsinn við bílana er innanrým-
ið á breiddina. Maður tekur sérstaklega
eftir því hvað þeir eru rúmgóðir og hvað
maður hefur gott pláss út við hurðina,
jafnvel í minnstu bílunum. Þeir eru
búnir tveimur Iíknarbelgjum og raf-
knúnum rúðum og speglum auk þess að
vera með ABS hemlalæsivörn og fjar-
stýrðum samlæsingum. Hreyfiltengd
þjófavörn er staðalbúnaður. Útvarp með
Að innanverðu eru ódýrari bílarnir látlausir og e.t.v.
ekki mjög spennandi en þar er allt til alls.
geislaspilara er staðalbúnaður í öllum
bílunum nema tveimur minnstu og ó-
dýrustu gerðunum, þær eru með út-
varpi með segulbandi.
Á vegi eru Daewoo bílarnir stöðugir
og virka traustir. Hljóðeinangrun er á-
gætlega heppnuð og vindhljóð sáralítið
þó ekið sé Iétt mót vindi. Fjöðrunin fer
vel með mann án þess að bílarnir séu
svagir. Minnstu bílarnir voru m.a.s. vel
stöðugir og rásfastir.
Það eina sem ég get sagt að ég hafi
fundið að bílunum var að mér fannst
miðstokkurinn niður úr mælaborðinu í
minni bílunum liggja óþægilega við
hægra hnénu, en það var hægt að ráða
bót á því með því að hnika sætinu örlít-
ið aftar en maður er vanur að hafa það.
En þessir fólksbílar eru nýir á mark-
aði hérlendis og því renna menn blint í
sjóinn hvað varðar endursöluverð og
jafnvel endingu, þó nokkur reynsla sé
Daewoo er ágætlega snotur bíll sem nýtur sýn
nokkuð vel i íslensku umhverfi, hér við
Breiðamerkurlón.
komin á þá erlendis. Hins vegar er á-
stæðulaust að tortryggja þá að ósekju,
enda bjóða bílarnir af sér góðan þokka
og virka traustlegir.
Mundi ég?
Eg verð að viðurkenna að ég mun alvar-
Iega skoða Daewoo þegar ég endurnýja
Qölskyldubílinn næst. Eg á rúmlega árs-
gamlan evrópskan langbak með 1600
vél, bíl sem ekki er með Ifknarbelgjum,
ABS hemlum, rafdrifnum rúðum og
speglum, fjarstýrðum samlæsingum eða
geislaspilara en kostar tæpar 1.500.000
krónur nýr. I hann kostar rafmagnið um
40.000 krónur og ABS hemlar um
100.000 krónur þar á ofan. Sambæri-
legur bíll frá Daewoo með öllum þess-
um aukabúnaði kostar rétt innan við
1.400.000 krónur. Reynsluleysi
Daewoo hérlendis héldi e.t.v. aftur af
mér, en það munar um minna en þetta.
Sæl Vigdfs. Mig Iangar til að vita hvort þú
getur sagt mér hvað ég get gert til að
komast yfir það að móðir mín er dáin og
mér finnst ég yfirgefin. Eg er í HI, en er
utan af landi og bý einn í leiguherbergi.
Mér finnst ég ekki geta leitað til nokkurs,
ég hef ekki kynnst mörgum í skólanum,
kannski af því að ég reyni ekki mikið til
þess. En þessi sorg er svo djúp og sterk
og veldur mér talsverðu þunglyndi.
Það að missa ættingja eða vini er alltaf
þungbært og á stundum liggur manni
við sturlun, finnst allt tilgangslaust og
finnur enga lausn. Tíminn vinnur þó
með manni og það kemur skorpa á sár-
in. Þetta ferli verður þó miklu mun
hraðara ef maður hefur einhvern til að
tala við og ég held að það sé eitthvað
• 1705 Iést
Leopolst I, keisari
Heilaga róm-
verska keisara-
veldisins
• 1818 fæddist
Karl Marx, sem,
skrifaði m.a. Das
Kapital og Komm-
únistaávarpið.
• 1840 voru
fyrstu frímerkin
búin til í Bret-
landi.
• 1889 var lok-
ið við smíði Eiffel turnsins í Frakk-
landi.
• 1900 fæddist Spencer Tracy leikari,
mikill hjartaknúsari.
• 1913 fæddist Tyrone Power leikari,
varð frægur fyrir að leika í Zorro.
• 1942 fæddist söngkonan Tammy Wy-
nette, sem söng lagið Stand by your
man og varð fræg fyrir. Hún lést ný-
lega.
• 1960 giftist Margrét prinsessa Antony
Armstrong-Jones.
sem þú þarft að vinna að hið snarasta.
Hér á landi eru til samtök um sorg og
sorgarviðbrögð og þangað geta allir
ieitað. Þau heita Ný dögun og eru til
húsa í Sigtúni 7. Síminn er 562 4844.
Bara við það eitt að hafa samskipti við
fólk sem er að eiga við það sama og þú,
getur þýtt að sársaukinn fær svolitla
útrás. Svo skaltu hið bráðasta eignast
vini. Taktu þátt í félagsstarfi af ein-
hverju tagi eða gefðu þig reglulega á
tal við þann eða þá sem þér líst vel á í
skólanum eða vinnunni í sumar. Einnig
skaltu lesa það sem þú nærð í um sorg-
ina til að skilja ferlið betur og endilega
hafðu reglulega samband við aðra ætt-
ingja þína sem mest. Þeir hafa Iíka
orðið fyrir sorg og skilja þig vel.
Afmælisbam dagsins
1813
fæddist
danski
heimspek-
ingurinn
Sören
Kirke-
gaard, sem
stundum
er nefndur
upphafs-
maður til-
vistarstefn-
unnar. Hann átti í óskaplegum erfið-
leikum í einkalífinu, varð ástfanginn af
stúlku en taldi sig ómöguiega geta lagt
það á hana að giftast sér og bjó því einn
til æviloka. I skrifum sínum, sem telja
má með fegurstu perlum heimsbók-
menntanna þótt ekki séu þau endilega
auðveld aflestrar, fjallar hann um ýmsa
þá erfiðleika sem stafa af því að vera til.
Eitt rita hans, Endurtekningin, hefur
komið út á íslensku í þýðingu Þorsteins
Gylfasonar.
Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: oIgeirheIgi@islandia.is Síminn: 437 2360
Olgein Helgi
Ragnarsson
skrifar
Vigdís svarar í símann!
Ertu með ráð, þarftu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdís svarar í símauu kl. 9-12.
Símiun er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Póstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
S.maíerídag