Dagur - 20.05.1998, Page 3
rD^ftr
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 199 8 - 3
FRÉTTIR
Lán komi í stað
verkfallsgreiðslna
Á næsta ári greiða bankamenn fimmfalt meira í vinnudeilusjóð sinn en þeir hafa
áður gert. Með því eru þeir m.a. að búa í haginn en kjarasamningar þeirra renna út
þá um haustið.
Viimudeilusjóði jafn-
vel breytt í lánasjóð.
Kemur í veg fyrir tví-
skðttun. Framlag í
vinnudeilusjóð SÍB
hækkar úr 2,8
milljónum í 14 millj-
ónir á ári.
Samband íslenskra banka-
manna, SIB, hefur hugleitt að
veita félagsmönnum í verkfalli
lán úr vinnudeilusjóðnum til að
koma í veg fyrir verkfallsgreiðsl-
ur verði skattlagðar. Þá kemur
einnig til álita að slá lán hjá Nor-
ræna bankamannasjóðnum í
sama skyni. Sérhver félagsmaður
endurgreiðir síðan sitt lán með
framlagi sínu í vinnudeilusjóð-
inn. A síðasta þingi sambandsins
var samþykkt að stórefla vinnu-
deilusjóð bankamanna.
Fáránlegt
Friðbert Traustason, formaður
SIB að það sé minnsta mál að
breyta reglum vinnudeilusjóðs
og gera hann að lánasjóði til að
koma í veg fyrir þann fáránleika
sem skattheimta á verkfalls-
greiðslum óneitanlega er. Hann
segir lögfræðinga hafa mælt með
þessari lánaleið þegar málið var
til skoðunar í fyrra þegar stefndi
í verkfall bankamanna.
Hann segir að um tvísköttun
sé að ræða þegar fólki sé gert að
greiða skatta af því sem það fær
úr verkfallssjóði í verkfalli, þótt
Héraðsdómur Reykjavíkur hafi
verið á öndverðri skoðun í máli
sem kennari tapaði á dögunum.
Fólk sé þegar búið að greiða
skatta af launum sínum sem fé-
Iagsgjald er reiknað af, en hluti
féíagsgjaldsins rennur síðan í
vinnudeilusjóð SIB. Formaður
SIB undrast að þessi tvísköttun
skuli enn vera til staðar í ljósi
þeirra breytinga sem gerðar hafa
verið á þessum málum í sam-
bandi við lífeyrisgreiðslur.
Ftmmfold hækkun
Þann 1. apríl á næsta ári hækkar
framlag bankamanna í vinnu-
deilusjóð SÍB úr 0,05% af laun-
um í 0,25%, eða fimmfalt. Hins-
vegar verður félagsgjaldið
óbreytt, eða 0,45%. Samkvæmt
samþykktri fjárhagsáætlun SIB
hækka framlög til vinnudeilu-
sjóðsins í krónum talið úr 2,8
milljónum króna á ári í röskar 14
milljónir. Um síðustu áramót
námu eignir vinnudeilusjóðsins
tæplega 36 milljónum króna.
Formaður SIB segir að með
þessari hækkun í vinnudeilu-
sjóðinn sé einfaldega verið að
búa í haginn fyrir framtíðina en
kjarasamningar bankamanna
verða lausir 1. september á
næsta ári. Þar fyrir utan þótti
ástæða til að efla sjóðinn svo
hægt sé að fjármagna verkfall í
allt að einn til tvo mánuði, ef svo
ber undir. Auk þess var ákveðið
að hækka framlagið til samræm-
is við það sem tíðkast í þessum
málum hjá öðrum norrænum
bankamönnum. - GRH
Sigurður Þórðarson, ríkiendurskoðandi.
Er að skoða
málið
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi segir að verið sé að
skoða ósk lögfræðings Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi
bankastjóra, um endurupptöku
greinargerðar Ríkisendurskoðun-
ar um Landsbankamál. Akvörðun
verði tekin eftir helgi.
„Það er ekki mitt eða stjórnar
þingsins að svara ósk lögfræðings
Sverris Hermannssonar um end-
urupptöku hans máls hjá Ríkis-
endurskoðun. Það er alfarið mál
ríkisendurskoðanda, sem einn
tekur ákvörðun um endurupp-
töku og hvort hann víkur sæti. Ef
Sigurður Þórðarson ákveður að
taka málið upp aftur og víkja sæti
þá kemur það til kasta forsætis-
nefndar Alþingis að skipa annan
mann í hans stað,“ sagði Ólafur
G. Einarsson, forseti Alþingis.
Þess má geta að í bréfi lögffæð-
ings Sverris um ósk um endur-
upptöku lofar hann að birta lista
yfir alla Iaxveiðigesti Landsbank-
ans sl. 5 ár ef málið fæst tekið aft-
ur upp. — s.DÓR
„Skilbara ekki
svona vitleysu“
„Ég bara skil ekki svona vit-
leysu,“ segir Þorkell Sigurbjörns-
son, tónskáld og fulltrúi í stjórn
Tónlistarhúss Kópsvogs, um þá
ákvörðun fulltrúa Alþýðubanda-
lags og krata að mæta ekki við
lagningu hornsteins Tónlistar-
hússins af pólitískum ástæðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
kosningamiðstöð K-listans í
Kópavogi situr Þorkell í stjórn
tónlistarhússins fyrir minnihlut-
ann í bæjarstjórninni. Sjálfur vill
hann ekki gera mikið úr því og
telur sig hafa verið tilnefndan í
stjórnina sem tónlistarmann og
fulltrúa hins almenna borgara í
Kópavogi.
Þorkell segir að það hafi þótt
alveg sjálfsagt mál í stjórninni að
fá Davíð Oddsson forsætisráð-
herra til að leggja hornstein að
byggingunni við hátíðlega at-
höfn. í það minnsta vafðist það
ekki fyrir honum, enda stóð
aldrei annað til en að fá einhvern
af æðstu mönnum þjóðarinnar
til að sinna því verki. - GRH
Bæjarfulltrúar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks og fulltrúar flokkanna i lista- og
menningarráði Kópavogs mættu ekki við hátíðlega athöfn i gær þegar forsætisráð-
herra lagði hornstein að Tónlistarhúsi bæjarins. Það gerðu þeir í mótmælaskyni við
það sem þeir kalla „pólitíska leiksýningu" Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi. Sjálf/r
vildu þeir að Kópavogsbúi yrði fenginn til verksins i stað forsætisráðherra og fyrr-
verandi borgarstjóra, enda húsið fjármagnað einvörðungu af bæjarbúum.
Ekkert sjónvarpseinvígi
„Mér finnst að yfirmenn mínir
eigi að standa við ákvarðanir sín-
ar um dagskrá. Um það snýst
málið og ekkert annað,“ segir
Óðinn Jónsson, fréttamaður á
Ríkisútvarpinu.
Hann og Helgi Már Arthurs-
son, fréttamaður á Sjónvarpinu,
hafa ákveðið að stjórna ekki síð-
asta kosningaþætti Sjónvarpsins
á nk. föstudagskvöld eins og ráð-
gert hafði verið og auglýst hefur
verið í dagskrá. Upphaflega átti
að sjónvarpa einvígi á milli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra og Arna Sigfússonar
borgarstjóraefnis sjálfstæðis-
manna og voru þeir tvímenning-
ar búnir að undirbúa sig undir
það. Utvarpsráð ákvað hinsvegar
að leyfa forystumönnum
Húmistahreyfingarinnar og
Launalistans að vera einnig með
í þessum þætti.
I stað þeirra Óðins og Helga
munu þeir Jóhann Hauksson og
Logi Bergmann Eiðsson frétta-
menn stjórna þættinum í Sjón-
varpinu. - GRH
SH staðið við sitt
Á síðasta bæjarstjórnar-
fundi núverandi bæjar-
stjórnar Akureyrar sem
haldinn var í gær, svar-
aði Jakob Björnsson
bæjarstjóri fyrirspurn
Heimis Ingimarssonar
um það hvernig Sölu-
miðstöð hraðfrystihús-
anna hefði efnt íyrirheit
sitt um að skapa 80 ný
störf í bænum. Fram
kom í svari bæjarstjóra
að strax um miðjan júní
1996 hafi SH talið sig
vera búið að uppfylla
skuldbindingar sínar.
Hins vegar hefur störf-
um hjá UA fækkað milli áranna 1996 og 1997, úr 412 í 345 en er
það rakið til hagræðingar. Ljóst er samkvæmt sérstöku minnisblaði
frá SH í tilefni af fyrirspurninni að fyrirtækið telur að aðgerðir vegna
Slippstöðvarinnar hafi skapað 50 ný störf og að önnur sú starfsemi
sem stofnað var til á sínum tíma sé að mestu óbreytt. Einnig telur SH
að aukin umsvif hafi orðið í bænum í ýmsum þjónustugreinum með
tilkomu SH og tengdrar starfsemi.
Frá síðasta bæjarstjórnarfundi núverandi
bæjarstjórnar Akureyrar i gær þar sem m.a. var
rættt um efndir SH á fyrirheitum um að skapa 80
ný störfí bænum. - mynd: brink
Sjónvarpsstöðvununi hótað lögsókn
Hvorki Sjónvarpið né Stöð 2 sýndu frá leikjum í íslensku knattspyrn-
unni í gær.
Þýska fyrirtækið UFA sem keypt hefur sýningarrétt frá íslensku
knattspyrnunni af KSI, hótaði í gær báðum stöðvum lögsókn ef um
frekari myndbirtingar yrði að ræða frá leikjum í efstu deild karla í
knattspyrnu, en þær sýndu frá leik Þróttar og IBV í fréttum á mánu-
dagskvöld. Ekki hefur enn samist við þýska fyrirtækið um rétt til sýn-
inga og því allt í óvissu með framhald á íslenskri knattspyrnu í ís-
lenskum sjónvarpsstöðvum.
Bilið miimkar enn
Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn saxað á forskot Reykjavíkurlistans
samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið í gær. R-Iist-
inn nýtur fylgis 53,7% kjósenda og fengi 8 menn ef kosið væri nú og
D-Iistinn 44,4% og 7 menn. Samkvæmt könnuninni fengi Launalist-
inn 1% og Húmanistaflokkurinn tæpt prósent.