Dagur - 20.05.1998, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998 - S
FRÉTTIR
Engar áhyggjur af at-
vinnu fynr nóttafólk
Stefán Guðmundsson virðist nokkuð
öruggur með sæti í bæjarstjórn i
Skagafirði samkvæmt nýrri Gallup
könnun.
Framsókn
meðbyr
Framsóknarflokkurinn fær fjóra
menn kjörna í sveitarstjórn í
nýju sameinuðu sveitarfélagi í
Skagafirði, Sjálfstæðisflokkur-
inn 3 menn, Skagafjarðarlistinn
3 og Vinsældalistinn 1 sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Gallup fyrir Ríkisútvarpið.
Af þeim sem afstöðu tóku
kváðust 34,7% ætla að kjósa
Framsóknarflokkinn, 31,6%
Sjálfstæðisflokk, 25,2% Skaga-
Ijarðarlistann og 8,6% Vinsælda-
listann, framboð ungs fólks í
Skagafirði. Um 6% ætluðu ekki
að kjósa eða skila auðu og
16,8% höfðu ekki tekið afstöðu
þegar könnunin var gerð. Konur
studdu Skagafjarðarlistann í
meira mæli en karlar, sam-
kvæmt könnuninni.
Könnunin fór frarn um liðna
helgi. I úrtakinu voru 600 Skag-
firðingar, 18 ára og eldri. Svar-
hlutfall var 73,7%. - SBS
30-40 maims eru án
atvinmi á Blönduósi.
RíMsstjóm skipar
nefnd til að gera til-
lögur til úrbóta í at-
vinniunálum Norður-
lands vestra.
Bæjaryfirvöld á Blönduósi hafa
engar áhyggjur af því hvort hægt
verði að útvega flóttafólkinu
vinnu sem kemur þangað eftir
mánuð frá fyrrum ríkjum
Júgóslavíu. I það minnsta telja
hvorki Skúli Þórðarson bæjar-
stjóri né Jón Ingi Einarsson verk-
efnisstjóri ástæðu til að hafa
áhyggjur af atvinnumálum þessa
fólks. Hinsvegar hafa stjórnvöld
áhyggjur af atvinnuástandinu al-
mennt á Norðurlandi vestra.
Ekkert mál
„Við ætlum að vera búnir að
Ieysa þetta atvinnumál þegar að
því kemur," segir Jón Ingi.
Hann minnir á að flóttafólkið,
sem er alls um 25 manns að
meðtöldum börnum, kemur ekki
til bæjarins fyrr en 20. júní nk.
Þá muni það ekki byija að vinna
fyrr en í fyrsta lagi eftir tvo mán-
Bæjaryfirvöld á Blönduósi eru bjartsýn og telja ástæðulaust að hafa einhverjar
áhyggjur af atvinnumálum flóttafólksins sem þangað er væntanlegt eftir mánuð. f
það minnsta telja þau að búið verði að leysa það mál þegar þar að kemur.
uði þar í frá, eða um mánaða-
mótin ágúst-september. Þar fyrir
utan verða þeir að læra íslensku
hálfan daginn fyrstu níu mánuð-
ina.
Jón Ingi segir að ein helsta
ástæðan fyrir atvinnuleysi í bæn-
um sé vegna þess að Fiskur 2000
hætti starfsemi. Hins vegar
binda menn vonir við að starf-
semi geti hafist á ný í því húsi
áður en langt um líður. Hvort
þar verður síðan unninn fiskur
eða eitthvað annað á síðan eftir
að koma í Ijós.
Aðgerðir gegn atvinnuleysi
Um 30-40 manns hafa verið á
atvinnuleysisskrá á Blönduósi
undanfarna mánuði, samkvæmt
yfirliti Vinnumálastofnunarinnar
um atvinnuástandið. Jón Ingi
segir að þrátt fyrir þetta viti hann
ekki annað en að t.d. skólafólki
hafi gengið vel að fá vinnu í
sumar. Þá verði alltaf einhvað að
gera við slátrun og annað í haust
þegar skólafólkið hverfur af
vinnumarkaði.
A fundi ríkisstjórnarinnar í
gær var samþykkt tillaga frá Páli
Péturssyni félagsmálaráðherra
að skipa nefnd fimm ráðuneyta
til að gera tillögur til úrbóta í at-
vinnumálum á Norðurlandi
vestra. Gert er ráð fyrir að
nefndin skili af sér í haust. Þetta
er gert vegna þess að hlutfalls-
Iegt atvinnuleysi er hvergi meira
en á þessu svæði. Það er m.a.
rakið til þeirra breytinga sem þar
hafa átt sér stað í vinnslu land-
búnaðar- og sjávarafurða.
- GRH
Orrusta töpuð en
ekki stnðið
Borgin styrkir KR uni 250 milljónir
króna
Borgarráð samþykkti í gær að styrkja Knattspyrnufélag Reykjavíkur -
KR - um 250 milljónir króna til framkvæmda við iþróttamannvirki við
Frostaskjól. Um er að ræða endurbætur á eldri mannvirkjum og bygg-
ingu nýs íþróttahúss. Borgin ætlar að greiða 60 milljónir þann 1. júní
næstkomandi, hundrað milljónir á næsta ári og 80 milljónir árið
2000. KR hefur þegar fengið 10 milljónir króna.
Foreldraverðlaunin
til Vestmannaeyja
Hjálmfríður Sveinsdóttir skóla-
stjóri og kennarar í Barnaskóla
Vestmannaeyja fengu Foreldra-
verðlaun Heimilis og skóla sem út-
hlutað var í gær. Samtökunum bár-
ust 20 tilnefningar til Foreldra-
verðlaunanna. Vestmannaeying-
arnir fengu viðurkenninguna íyrir
verkefnið Vinahringir en tilgangur
þess var að nemendur kynntust
betur innan bekkjarins og að fá for-
eldra til að hafa meira samband sín
í milli.
Fullyrding gegn fullyrdmgu
Álfhildur Andrésdóttir sem vann hjá Hrannari Arnarssyni 1994 segir
hann hafa farið með rangt mál þegar hann fullyrti í Degi í gær að
hann hefði skilað skattinum upplýsingum um tekjur hennar. Hrann-
ar segist standa við hvert orð.
I yfirlýsingu frá Alfhildi segir að samkvæmt skattstjóranum í
Reykjavík hafi skattstofunni ekki borist upplýsingar um vinnu henn-
ar fyrir Markaðsmenn árið 1994. Það hafi ekki verið fyrr en við skatt-
rannsókn hjá fyrirtækinu árið 1996 sem skattstofan hafi fengið upp-
Iýsingar um þær tekjur sem hún hafi haft þar.
Hrannar segir þetta rangt. Markaðsmenn hafi aldrei verið teknir til
skattrannsóknar. Hann hafi sent skattyfirvöldum upplýsingar um
tekjur Alfhildar sem og annarra sem unnið hafi hjá sér. Astæða fyrir-
spurnar skattyfirvalda 1996 um Alfhildi kunni að vera sú að hún hafi
ekki gefið upp þær tekjur sem Markaðsmenn gáfu upp á hana, en þar
sé ekki við sig að sakast.
Hjálmfríður Sveinsdóttir og Guðbjörg
Matthíasdóttir.
Stjómarandstæðmgar
segja að þótt hin imi-
deildu frumvörp um
hálendið og húsnæðis-
frumvarpið verði sam-
þykkt í vor verði har-
áttunni fyrir hreyt-
ingum á þeim haldið
áfram næsta vetur og
þau gerð að kosninga-
máli.
„Eg skal játa að ég er ekki búin að
sætta mig við það að þessi fjögur
stóru mál verði afgreidd fyrir
þingfrestun. Vandinn sem við
okkur blasir er að við vildum fá
fram breytingar á þeim en því
miður horfir ekki svo að við náum
þeim fram. Að þessu leyti er ég
ósátt við stöðuna og það sam-
komulag sem gert hefur verið um
þinglokin og afgreiðslu mála,“
sagði Guðný Guðbjörnsdóttir,
þingkona Kvennalista, um það
samkomulag sem gert hefur verið
um þingfrestunina.
Þingfundum var frestað í gær
og þing kemur ekki saman aftur
fyrr en á mánudag. Þá er fyrir-
hugað að það starfi í tvær vikur
og hálendismálin þrjú og hús-
næðismálið verði afgreitt fyrir
þinglok 6. júní.
„Enda þótt að þessar séu mála-
Iyktir tel ég að okkur hafi með
baráttunni hér á Alþingi að und-
anförnu tekist að vekja fólk til
umhugsunar um hvað verið er að
Við ætlum að reyna að koma í veg fyrir
að þessar miklu auðlindir verði færðar
landeigendum á silfurfati, segir Guðný
Guðbjörnsdóttir um hálendisfrumvörpin
sem allt útlit er fyrir að verði að lögum
innan skamms.
gera í hálendisþætti sveitarstjórn-
arfrumvarpsins. En vegna þess
hve stutt var á milli umræðna um
húsnæðisfrumvarpið hefur ef til
vill ekki tekist eins vel að vekja
áhuga fólks á því,“ sagði Guðný.
Hún sagði að þegar að loka af-
greiðslu þessara frumvarpa kem-
ur í næstu viku muni stjórnar-
andstæðingar koma með breyt-
ingatillögur. Ekki síst verði þá
tekist á um frumvarpið um eign-
arhaldið og mikil vinna hafi átt
sér stað á milli 2. og 3. umræðu f
því.
„Þær breytingatillögur munu
sfðan verða gerðar að kosninga-
máli hér á Alþingi þegar það kem-
ur saman í haust og framundan
verður kosningaþing. Við ætlum
að reyna að koma í veg fyrir að
þessar miklu auðlindir verði
færðar landeigendum á silfurfati.
Sömuleiðis vil ég að farið verði
„Efþessi fjögur frumvörp verða öll
samþykkt, þá erum það ekki bara við í
stjórnarandstöðunni sem höfum tapað
heldur þjóðin öll, “ segir Margrét
Frímannsdóttir.
með sveitarstjórnarlögin sem
kosningamál næsta vetur," sagði
Guðný Guðbjörnsdóttir.
„Ef þessi fjögur frumvörp verða
öll samþykkt, þá erum það ekki
bara við í stjórnarandstöðunni
sem höfum tapað heldur þjóðin
öll,“ sagði Margrét Frímannsdótt-
ir, formaður Alþýðubandalagsins,
aðspurð hvort stjórnarandstaðan
hafi tapað orrustu í stríðinu við
stjórnarflokkana að undanförnu.
„En ég vil taka skýrt fram að
barátta okkar hér að undanförnu
hefur orðið til þess að kynna
þessi mál. Almenningur er orðinn
meðvitaður um hvað hér er á
ferðinni og hvað það er sem
stjórnarmeirihlutinn ætlar að
keyra í gegn. Jafnvel þótt þessi
frumvörp verði öll samþykkt
munum við halda áfram barátt-
unni fyrir breytingum á þeim
næsta vetur,“ sagði Margrét Frí-
mannsdóttir. - S.DÓR