Dagur - 20.05.1998, Qupperneq 10
10- MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998
FRÉTTASKÝRING
Framboð hvergi fLeiri
Sex framboð í Hafnar-
firði. Tekist á um
skuldastöðu bæjar-
ins, siðleysi, upp-
byggiugu og að fá
Keiko í bæinu.
I 1 | : 5«
Bæjarpólitíkin í Hafnarfirði hefur iöngum verið stormasöm svo ekki sé meira sagt. Skuldir bæjarsjóðs Hafnarfjarðar nema tæp-
um 5 milljörðum króna, eða 260 þúsund á hvern íbúa.
Hafnfirskir kjósendur geta valið
á milli sex framboða að þessu
sinni og eru framboðin hvergi
fleiri í einu sveitarfélagi. Þau
voru þó nokkru fleiri í kosning-
unum 1990 þegar átta listar
voru í boði. Þetta segir kannski
meira en mörg orð um þá grósku
sem er í hafnfirskri pólitík, þótt
aðrir telji þetta vísbendingu um
mikinn óróleika og lítinn stöð-
ugleika í bæjarpólitíkinni. Þá
hafa orðið töluverðar breytingar
á skipan fólks á framboðslista
frá því síðast. Þar vekur einna
mesta athygli að Magnús Jón
Arnason, fyrrverandi bæjarstjóri
og oddviti Alþýðubandalags-
manna á undanfömum árum, er
ekki lengur í framboði né heldur
sjálfstæðismaðurinn Jóhann
Bergþórsson, bæjarfulltrúi og
verkfræðingur.
Kjolfestan
„Fólk á að kjósa okkur m.a.
vegna þess að Alþýðuflokkurinn
hefur verið kjölfestan í hafn-
firskri pólitík á undanförnum 12
árum og gert bæinn að fyrir-
myndarsveitarfélagi. Þeirri upp-
byggingu ætluðum við að halda
áfram,“ segir Ingvar Viktorsson,
bæjarstjóri og oddviti krata.
Hann minnir á að þeir hlutir
sem þykja sjálfsagðir í Hafnar-
firði í dag voru það ekki fyrir
rúmum áratug. Á þessu tímabili
hefur rými grunnskólans verið
tvöfaldað, leikskólinn margfald-
aður auk þess sem íþrótta- og
æskulýðsmál eru með því besta
sem þekkist á öllu landinu. Bæj-
arstjórinn segir það endurspegl-
ast svo aftur í árangri íþrótta-
fólksins. Þá er búið að bæta
verulega aðstöðu eldri borgara
með stóraukinni heimaþjónustu
samfara þvi sem þeim hefur ver-
ið sköpuð aðstaða til félags- og
tómstundastarfs í nýju húsnæði.
Bæjarstjórinn bendir einnig á
að umhverfismálin hafa verið
tekin föstum tökum. Um sl.
helgi var m.a. opnuð ný skólp-
hreinsistöð. Næsti áfangi er að
leiða skólpið á sjó út og gera
fjörur bæjarins hreinar.
Gegn sérhyggju og siðleysi
„Eina ráðið til að ná fram breytt-
um stjórnarháttum og hverfa af
braut siðleysis og sérhyggju er
að kjósa F-Iistann,“ segir Lúðvík
Geirsson, blaðamaður og oddviti
Fjarðarlistans. Að því framboði
stendur Alþýðubandalagið, al-
þýðuflokksfólk, óháðir og
Kvennalistinn.
Lúðvík segir að Fjarðarlistinn
sé eina pólitíska aflið sem lagt
hefur fram skýra og afdráttar-
lausa stefnu í því hvernig koma
eigi á lýðræðislegu og opnu
stjórnkerfi í Hafnarfirði. í þvf
skyni leggur F-listinn áherslu á
að komið verði á fót sérstökum
Iykilráðum, ígildi bæjraráðs und-
ir hvern málaflokk sem heyrir
svo aftur undir bæjarstjórn. Það
þýðir að bæjarfulltrúar verða
ábyrgari í allri stefnumótun og í
nefndarstörfum en verið hefur.
Samfara því er stefnt að því að
gefa almenningi meiri mögu-
leika til að fá upplýsingar úr
bæjarkerfinu og koma sjónar-
miðum sínum á framfæri við
bæjaryfirvöld.
„Stærsti þátturinn í þeirri
óráðsíu sem ríkt hefur í fjármál-
um, umhverfismálum, skipu-
lagsmálum og ýmsum rekstrar-
málum, stafar af ómarkvissri
stjórnsýslu. Um það eru menn
sammála,“ segir Lúðvík.
Samábyrgð allra
„H-listinn er samansettur af
góðu, reynslumiklu og áhuga-
sömu fólki sem ekki er undirselt
neinu flokksvaldi. Það fer fram á
þeim fosendum að vinna af
krafti og dugnaði fyrir sveitarfé-
Iagið," segir Ellert Borgar Þor-
valdsson, forseti bæjarstjórnar
og efsti maður á Hafnarfjarðar-
listanum.
Hann segir að helstu áherslur
framboðsins séu m.a. þær að
bæta stjórnskipan bæjarins,
meiri skilvirkni og skapa betri
tengsl við íbúana. Síðast en ekki
síst að vinna að hverjum þeim
málum sem horfa til framfara
fyrir bæinn, hvort heldur það sé
á sviði atvinnu-, skóla eða fé-
Iagsmála.
Ellert segir að fjárhagsstaða
bæjarsjóðs og sú skuldaaukning
sem varð á milli áranna 1996 og
Alþýðuflokkur
1. Ingvar Viktorsson
2. Jóna Dóra Karlsdóttir
3. Tryggvi Harðarson
4. Omar Smári Armannson
5. Hafrún Dóra Júlíusdóttir
6. Unnur A. Hauksdóttir
7. Eyjólfur Sæmundsson
8. Anna Margrét Fleckenstein
9. Gísli Ó. Valdimarsson
10. Eyjólfur Magnús Kristinsson
Ingvar
Viktorsson
Framsóknarflokkur
1. Þorsteinn Njálsson
2. Guðrún Hjörleifsdóttir
3. Hildur Helga Gísladóttir
4. Ingvar Kristinsson
5. Þórarinn Þórhallsson
6. Sigurgeir Ómar Sigmundsson
7. Hilmar Heiðar Eiríksson
8. Svava Guðnadóttir
9. Gunnar Bessi Þórisson
10. Eggert Bogason
Þorsteinn
Njáisson
Fjarðarlistinn
1. Lúðvík Geirsson
2. Valgerður Halldórsdóttir
3. Guðmundur Rúnar Arnason
4. Asta María Björnsdóttir
5. Sigurgeir Ólafsson
6. Gunnur Baldursdóttir
7. Herdís Hjörleifsdóttir
8. Hörður Þorsteinsson
9. Guðríður Einarsdóttir
10. Guðrún Sæmundsdóttir
Lúðvík
Geirsson
Hafhaíjarðarlistinn
1. Ellert Borgar Þorvaldsson
2. Birgir Finnbogason
3. Helga Ingólfsdóttir
4. Magnús Kjartansson
5. Sturla Haraldsson
6. Asa María Valdimarsdóttir
7. Guðmundur Asv. Tryggvason
8. Alda Ingibergsdóttir
9. Rúnar Brynjólfsson
10. Fjóla Rún Þorleifsdóttir
1997 sé vegna samhljóða
ákvarðana allra bæjarfulltrúa.
Hann bendir einnig á að rekstr-
arkostnaður bæjarsjóðs sé enn
undir 80% af heildartekjum. Það
sé mun betra en það var fyrir
nokkrum árum þegar aliar tekj-
urnar og gott betur fóru í rekst-
urinn.
Keiko í Fjorðinn
„Við erum eini framboðslistinn
sem er með raunhæfa tekjuleið
til að greiða niður skuldir bæjar-
sjóðs,“ segir Kristján Hjálmars-
son, Ieiðbeinandi og efsti maður
á I-listanum, Tónlistanum.
Þar er efst á baugi að fá há-
hyrninginn Keiko til Hafnar-
fjarðar og reisa styttu af Krist-
jáni Arasyni, þjálfara FH í hand-
bolta og fyrrverandi landsliðs-
manni. Þetta tvennt á að færa
bæjarsjóði umtalsverðar tekjur
af ferðamönnum. Þá ætlar I-iist-
inn af festa kaup á olíubor til að
leita að olíu í Firðinum. Ef það
gengur ekki eftir verður olíunni
einfaldlega stolið úr Norðursjó.
I skólamálum vill Tónlistinn
helja sérhæfingu nemenda strax
á fyrsta ári í grunnskóla og leyfa
börnunum að velja sína framtið.
Það gefur möguleika á því að
fyrstu ofurhetjurnar útskrifast
úr skólakerfinu innan fárra ára.
Þá vilja menn innlima Alftanes
og þá um leið forsetaembættið í
Hafnarfjörðinn.
Úrpólitískri herkví
„Þetta eru mikilvægustu kosn-
ingarnar sem fram hafa farið í
Hafnarfirði um Iangt árabil og
því mikilvægt að velja trausta
forustu," segir Magnús Gunn-
arsson, skrifstofumaður og odd-
viti Sjálfstæðisflokksins.
Hann segir núverandi meiri-
hluta hafa misst alla tiltrú bæjar-
búa og því augljóst að þeir vilja
breytingar. Magnús segir Sjálf-
stæðisflokkinn vilja leysa Hafn-
firðinga úr þeirri pólitísku herkví
sem þeir hafa verið í. Með því að
kjósa D-listann fá þeir samhenta
og styrka stjórn í bæjarfélaginu
til að takast á við verkefni fram-
tíðarinnar. Þar er efst á baugi
stækkun hafnarinnar, einsetning
grunnskólans, bygging íþrótta-
mannavirkja og safnahúss, átak í
umhverfismálum og skipulagn-
ing nýrra byggingarsvæða.
„Það þarf væntanlega að lengja
í lánum og ná hagstæðari kjör-
um,“ segir Magnús um áherslur
D-lista í fjármálum bæjarins.
Hann bendir á að tekjustofnar
bæjarins sé fullnýttir og því þarf
að fara gætilega með íjármun-
ina.
Nýir vendir sópa hest
„Nýir vendir sópa best,“ segir
Þorsteinn Njálsson, læknir og
efsti maður á lista Framsóknar-
Ilokksins. Hann segir að flokk-
urinn sé í góðri aðstöðu til að
Úrslit 1994
atkv. fulltr.
Alþýðufl. 3.724 5
Framsóknartt. 653 0
Sjálfstæðisfl. 3.413 4
Alþýðubandalag 1.489 2
Kvennalisti 547 0
Meirihlutasamstarf er með
Alþýðuflokki (A) og tveimur
fulltrúum á lista Sjálfstæð-
isflokks (D)