Dagur - 20.05.1998, Síða 11
MIDVIKUDAGUR 20. MAÍ 1998 - 11
Kári Halldórsson sölu-
maöur:
„Eg spái því að kratar fái fjóra,
Sjálfstæðisflokkur þijá og H-
listi og F-listi fá tvo fulltrúa
hvor. Þetta er mín tilfinning en
hinsvegar er þetta allt í mjög
mikilli óvissu."
Bjarney Ásgeirsdóttir
húsmóðir:
„Ég held að F-listinn vinni
þetta vegna áherslu hans á
Ijölskyldu- og skólamál. Það
mun eflaust veita honum
brautargengi í bæjarstjórn og
meirihluta."
Gunnar Bjami Ragnars-
son tónlistarmaður og
Gunni:
„Ég óska þess að sjálfsögðu
að Tónlistinn fái sem mest.
Að öðru leyti held ég að
Sjálfstæðisflokkurinn komi
sterkur út og sömuleiðis Al-
þýðuflokkurinn."
Ingileif Vang húsmóðir:
„Ég spái því að Alþýðuflokk-
ur og Fjarðarlisti muni vinna
þessar kosningar. Þetta er
bara mín tilfinning án þess
að ég geti útskýrt það eitt-
hvað frekar.“
geta tekið á málum Hafnarfjarð-
ar á annan máta en gert hefur
verið til þessa.
Þorsteinn segir að Framsókn-
arflokkurinn vilji breyta hugsun-
arhætti bæjarbúa með því að
grundvalla öll málefni á fjöl-
skyldum og einstaklingum.
Hann segir Hafnfirðinga vilja
hafa skólana í lagi og sömuleiðis
samgöngurnar. Þeir vilja einnig
að þeim standi byggingalóðir til
boða, leiguíbúðir og góð félags-
leg þjónusta o.s.frv.
Þótt skuldastaða bæjarins sé
slæm, þá telur Þorsteinn að bæj-
arfélagið verði að fjárfesta í
framtíðinni og m.a. til að gera
bæinn meira aðlaðandi fyrir fólk
og fyrirtæki. Þær fjárfestingar
munu síðan skila sér til baka
með auknum tekjum eftir því
sem fleiri velja að búa í Hafnar-
firði. Það gefur svo aftur tæki-
færi til að fara að greiða niður
skuldir bæjarsjóðs. — GRH
Sjálfstæðisflokkur
1. Magnús Gunnarsson
2. Valgerður Sigurðardóttir
3. Þorgils Óttar Mathiesen
4. Gissur Guðmundsson
5. Steinunn Guðnadóttir
6. Skarphéðinn Orri Björnsson
7. Ágúst Sindri Karlsson
8. Halla Snorradóttir
9. Sigurður Einarsson
10. Helga R. Stefánsdóttir
Tónlistinn
1. Kristján Hjálmarsson
2. Hermann F. Valgarðsson
3. Ingibjörg H. Björnsdóttir
4. Jón 1. Reimarsson
5. Gunnar Axel Axelsson
6. Kjartan Þórisson
7. Huld Óskarsdóttir
8. Friðrik Snær Friðriksson
9. Smári Johnsen
10. Haraldur F. Gíslason
Kristján
Hjálmarsson
ERLENDAR FRÉTTIR
Indónesíski herínn hefur ákveðið að standa við bakið á Suharto.
Reynir að þrauka
svolítið lengur
DAGUR
ÞORLEEFS-
SON
SKRIFAR
Amien Rais, sem verið hefur í far-
arbroddi stjórnarandstæðinga á
Indónesíu, sagðist hafa orðið fyrir
miklum vonbrigðum með hug-
myndir Suhartos um að segja ekki
strax af sér heldur boða til kosn-
inga „sem fyrst“ og láta íyrst af
völdum að þeim loknum. Jafn-
framt lofaði Rais þvi að fjölmenn
mótmæli verði haldin í dag, um
Iand allt þrátt fyrir að Wiranto
hershöfðingi hafi beðið mótmæl-
endur um að bíða átekta.
Suharto hefur verið við völd
samfleytt í 32 ár, og í mars síðast-
Iiðnum var ákveðið á þingi lands-
ins að hann yrði áfram í embætti
næstu fimm árin, sjöunda kjör-
tímabilið í röð. Suharto hefur
stjórnað með harðri hendi og
meðan vel gekk í efnahagslífinu
létu reyndar landsmenn flestir
sér það lynda.
Þolmmæðm á þrotuni
Þolinmæðina þraut hins vegar í
efnahagskreppunni sem hófst á
miðju síðasta ári, sem varð til
þess að Suharto neyddist til þess
að leita á náðir Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. Sjóðurinn gerir strangar
kröfur um efnahagsumbætur til
þeirra ríkja sem hann veitir að-
stoð, og nú í byijun maf var til að
mynda að kröfu sjóðsins hætt öll-
um niðurgreiðslum á eldsneyti
sem olli því að bensínverð hækk-
aði um 71% á einum degi. Sama
dag létust a.m.k. fjórir í óeirðum
sem urðu í Iandinu.
Háskólastúdentar hafa staðið
fyrir friðsamlegum mótmælaað-
gerðum gegn Suharto nærri dag-
lega allt frá því í apríl. í síðustu
viku kom þó til átaka milli hers-
ins og stúdenta með þeim afleið-
ingum að sex stúdentar létu lífið
og allmargir að auki hlutu meiðs-
li. Eftir það fór allt úr böndunum
og meira en 500 manns hafa lát-
ið lífið í átökum undanfarna
viku.
Suharto var þá staddur í
Egyptalandi, en hraðaði sér heim
og tilkynnti Ioks í gær að hann
myndi láta af völdum eftir að
kosningar hafa farið fram. Hann
sagði þó ekki hvenær það yrði, en
í ávarpi sínu til þjóðarinnar sagð-
ist hann myndu boða til þing-
kosninga „eins fljótt og hægt er“.
Situr ekki út kjörtúnabilið
„Ég gef ekki kost á mér til kosn-
inga oftar," sagði hann og mun þá
ekki sitja út sjöunda kjörtímabil
sitt, sem hefði lokið árið 2003.
Harmako, einn nánasti sam-
starfsmaður og vinur Suhartos
sem jafnframt er leiðtogi valda-
mesta flokks landsins, hvatti á
mánudag Suharto til þess að
segja af sér og kom sú yfirlýsing
verulega á óvart. Sama dag hélt
yfirstjórn hersins fund og Iýsti
því yfir að honum loknum að
herinn mjmdi standa sameinaður
að baki Suhartos þar sem kröfur
um afsögn hans samræmist ekki
landslögum.
BaJksvið
Fjölmeim mótmæli
gegn Suharto verða
imi alla Indónesíu í
dag, og óttast margir
að til blóðug átök.
Harmako er þriðji valdamesti
maður landsins, næst á eftir for-
seta og varaforseta. Sem forseti
hins 500 manna ráðgjafarþings
landsins hefur Harmako hins
vegar fullt vald til þess að kalla
saman neyðarfund þingsins, en
það hefur einmitt verið megin-
krafa stúdenta og annarra sem
barist hafa fyrir pólitískum um-
bótum í Iandinu.
ViH tryggingax
Harmako gaf yfirlýsingu sína eft-
ir að hafa átt fund með helstu
leiðtogum þingsins, sem allir eru
stuðningsmenn Suhartos og hafa
verið það til margra ára. Þeir
veittu Harmako samþykki sitt til
þess, en þingið hefur yfirleitt
ekki verið annað en afgreiðslu-
stofnun fyrir þær ákvarðanir sem
Suharto hefur tekið. Ákvörðun
þingleiðtoganna var því f senn
undrunar- og fagnaðarefni mót-
mælenda.
Ljóst er samt að það mun taka
nokkurn tíma að skipta um æðstu
stjórn landsins. Suharto hafði
strax á mánudag samband við
Harmako og viidi fá tryggingu
fyrir nokkrum atriðum: hann vill
að varaforsetinn, J.B. Habibie,
taki við af sér. Hann krefst þess
einnig að stjórnarskiptin fari
fram í einu og öllu samkvæmt
stjórnarskrá landsins. Loks vill
hann tryggingu fyrir því að ekki
verði horfið frá stefnu sinni í
efnahagsmálum.
Herinn er hins vegar ekki ýkja
hrifinn af varaforsetanum og lík-
lega yrði hann ekki mikið meira
en sýndarforseti sem færi í einu
og öllu að vilja hershöfðingjanna.
Herinn er hvort eð er í lykilstöðu
og eina aflið í landinu sem getur
í raun ráðið framvindu mála.
Niðurstoðu Hvalveiðiráðs beðið
ÓMAN - í dag Iýkur fimm daga ráðstefnu Alþjóða hvalveiðiráðsins í
Óman þar sem tekist hefur verið á um tillögu frá írlandi um að leyfa
hvalveiðar innan 200 mílna landhelgi, en þær verði áfram bannaðar
annars staðar. Hvaiveiðibann ráðsins hefur verið í gildi frá því árið
1986, en á þeim 12 árum hafa meira en 18.000 hvalir verið veiddir
í heiminum. Uppnám varð á ráðstefnunni þegar tvenn umhverfis-
samtök sökuðu Japani um að hafa varpað sprengjum á hvalveiðieftir-
litsskip.
Stofnuu PalestíuuríMs árið 1999
ISRAEL - Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna.sagðist í gær ætla
að Iýsa yfir stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna í maí á næsta ári.
Palestínumenn væru nú reiðubúnir að þola hvað sem er til þess að
láta draum sinn um sjálfstætt ríki verða að veruleika. Jerúsalem á að
verða höfuðborg hins nýja ríkis.