Dagur - 24.06.1998, Side 10

Dagur - 24.06.1998, Side 10
2£ MIÐVIKUDAGUR 24. . ------5--;-;—i—r~ LÍFIÐ t LANDINU i. 19 9 8 \ \ < .»■ Emifjölgar í gæðingakeppnum Nú hafa öll hesta- mannafélög sem taka þátt í landsmótinu á Melgerðismelum valið sína keppnishesta en skráningarfrestur rann út í fyrra dag. Hér á eftir verður skýrt frá úrslitum hjá þremur félögum austan Hellisheiðar. Holtsmúlamæðgur í fremstu röð knapa Félagsmóti Geysis lauk 14. júní. Þar var keppendum skipt í tvo flokka í gæðinga- keppninni A-flokkur I og II og B-flokk- ur I og II. í A-flokki I sigraði Saga frá Holts- múla knapi Katrín Sigurðardóttir, annar varð Askur frá Hofi (stóðhestur) knapi Hallgrímur Birkisson, þriðji varð Tinni frá Ulfsstöðum knapi Auðunn Krist- jánsson, fjórði Hávarður frá Hávarðar- koti (stóðhestur) knapi Sigurbjörn Bárðarson og fimmti Vigri knapi Her- mann Ingason. A-flokk II vann Hrafn- hildur frá Glæsibæ knapi Lísbet Sæ- mundsson. B-flokk I sigraði Álfheiður Björk frá Lækjarbotnum knapi Maijolyn Tiepen, annar varð Hjörtur frá Hjarðarhaga knapi Sigurbjörn Bárðarson, þriðji varð Hasar frá Þykkvabæ knapi Hallgrímur Birkisson, íjórði Glanni frá Kálfholti knapi ísleifur Jónasson og fimmti Sa- brína frá Hamrahól knapi Friðþjófur Ö. Vignison. B-flokk II vann Kári frá Ey I knapi Karl G. Davíðsson en þessi hest- ur hafði það háa einkunn að hann vann sér rétt til að fara á landsmótið og þvi fór hestur úr A-flokki I út í staðinn. Ungmennaflokkinn sigraði Kristín Þórðardóttir á Glanna frá Vindási, í öðru sæti varð Erlendur Ingvarsson á Vöku frá Strönd, í þriðja sæti Elvar Þormarsson á Kát, £ Ijórða sæti Nanna Jónsdóttir á Feyki frá Stóra Armóti og í fimmta sæti Unnur Olga Ingvarsdóttir á Gosa frá Asi. Unglingaflokkinn sigraði Rakel Róbertsdóttir á Hersi frá Þverá í Skíðadal, annar varð Heiðar Þormars- son á Flugu frá Hvolsvelli, þriðji Ylfa Sigurðardóttir á Litbrá frá Hamraholt- um, fjórði Andri Leó Egilsson á Léttingi frá Berustöðum og fimmti Daði Freyr Bæringsson á Hildingi frá Asmundar- stöðum. ^ Barnaflokkinn sigraði /Laufey G. Kristinsdóttir á Kosti frá Tókastöðum, önnur varð Katla Gísladóttir á Ulfi, þriðja Elín Hrönyi Sigurðardóttir á Ósk frá Ey I, fjórði Þórir Pálsson á Helmimgi irá Hvolsvelli og fimmta Kristín Hermundsdóttir á Rökkva frá Strönd. Það verður að segjast eins og er að oft hafa Geysismenn teflt fram sterkara Iiði í A og B flokki og er skemmst að minnast fjórðungsmótsins 1996 þegar Seimur frá Víðivöllum fremri keppti í A- flokknum og Þyrill frá Vatnsleysu og Næla frá Bakkakoti í B-flokknum. Þrír stóðhestar í liði Smára Um síðust helgi lauk úrtöku hjá Ijórum félögum austan heiðar og voru þau saman með keppnina á Gaddstaðaflöt- um. Urslit hef ég fengið frá tveimur fé- lögum, Smára og Sleipni. A-flokkinn sigraði Dimma frá Hvítár- holti knapi Guðmundur Einarsson í öðru sæti Nökkvi frá Vestra Geldinga- holti (stóðhestur) knapi Sigfús Guð- mundsson og þriðja varð Hlýja frá Vestra Geldingaholti knapi Rósmarie Þorleifsdóttir. B-flokkinn sigraði Nasi frá Hrepp- hólum (stóðhestur) knapi Olil Amble. Annar Garri frá Grund (stóðhestur) knapi Atli Guðmundsson og þriðji Bylgja frá Berghyl knapi Einar Öder Magnússon. í ungmennaflokki var einn keppandi Sigfús B. Sigfússon á Vorsól frá Vestra- Geldingaholti. Enginn keppandi var í unglinga- eða barnaflokki svo ekki verð- ur um að ræða þátttöku frá Smára í þeim flokkum. Hjá Sleipni var mun meiri þátttaka. I A-flokki sigraði Gammur frá Hreiður- borg knapi Vignir Siggeirson, annar varð Roði frá Egilsstaðakoti knapi Hall- dór Vilhjálmsson og þriðji Hrannar frá Stokkseyri knapi Sigurður V. Matthías- son. B-flokkinn sigraði Kjarkur frá Horni í Skorradal knapi Olil Amble, annar varð Olíver frá Garðsauka knapi Ólafur Asgeirsson og þriðji Heljar frá Skíð- bakka I knapi Brynjar J. Stefánsson. I barnaflokki sigraði Freyja Amble Gísladóttir á Mugg frá Stangarholti, önnur varð Sandra Hróbjartsdóttir á Hlyn frá Selfossi og þriðji Daníel Ingi Larsen á Jarp frá Lágafelli. í unglingaflokki sigraði Ólöf Har- aldsdóttir á Bagnsa ffá Gróimshúsum S-Þing. Ungmennaflokkinn sigraði Helgi Þór Guðjónsson á Örvari frá Kirkjuhóli, annar varð Haukur Hauksson á Höfða- dís frá Heiðarbrún og þriðji Hjalti Vikt- orsson á Eddu frá Arbakka. I næstu tveimur þáttum verður um- fjöllun um forskoðun kynbótahrossa á Vestur- Norður- og Austurlandi. Forvitnin er góð - í hófi Nýlega kom upp í hendurnar á mér ágætis bók, þar sem safn- að er saman tilvitnunum í venjulegt fólk sem hefur komist að raun um ýmislegt í lífinu. Bestu tilvitnanirnar eru frá þeim yngstu - og þeim elstu. Meðal þess sem hinir eldri hafa að segja er þetta: „Mér er orðið ljóst að sá sem haldinn er óseðj- andi forvitni fær aldrei á tilfinninguna að hann sé orðinn gamall.“ (71 árs). Þetta heillaði mig algjörlega, enda er ég með forvitnari manneskjum. Það er líka staðreynd að fólk sem heldur við áhuga á umhverfi sínu og því sem er að gerast í kringum sig - er svolítið forvitið - það heldur sér betur við andlega, en hinir sem eru áhugalausir um allt og alla. Kenn- arar vita það líka að nemendurnir sem standa sig best, eru þeir sem sýna mestan áhuga - eru forvitnastir. Hins vegar má forvitnin ekki ganga of langt, það verður að virða einkamál og einkalíf annarra. SVOJMA ER LIFID Ingibjörg Stefánsdóttir skrifar Ingibjörg svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Lesandi hringdi og sagðist alltaf vera jafii hissa á því að Is- lendingar skuli ekki geta lært að gefa sjens í um- ferðinni. „Umferð- in á að geta gengið eins og tannhjól, þar sem hver tekur við af öðrum. Ef hver og einn hleypir einum bíl inn á aðalbraut, þá gengur umferðin örugglega miklu betur.“ Mæl þú manna heillastur, sjálf hef ég oft velt þessu fyrir mér, spurningin er bara hvenær fólk fer að fara eftir þessu. Kynlíf karla og alduriim H Ég heiti Sveinn og er kominn vel á sextugs- aldurinn. Mig langar til að vita hvort þú hef- ur vitneskju um það hversu lengi ég get bú- ist við að hafa kynlöngun eða kynþörf. Enn sem komið er hefur ekki borið á því að löng- unin hafi neitt minkað, en ég hef einhverstaðar lesið eða heyrt að það sé óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að eldast. Til allrar hamingju eru aðstæður mínar þannig að þær hafa ekki valdið mér neinum vandkvæðum í þessum efn- um, en þetta er mér dálítið hugstætt og ég vildi gjarnan vita meira um málið. Ég ræddi þetta mál við Halldóru Bjarnadóttur hjúkrunar- fræðing og kynlífsráðgjafa Dags. Hún sagði að kynlöngun og kynþörf væri mjög einstaklingsbundin og að það væri ekkert sem segði það að karlar færu skyndilega inn á eitthvað skeið þar sem þá hættir að langa í kynlíf. „Þannig eru til dæmi um menn eins og Axel Clausen sem átti barn á níræðisaldri.“ Við þetta má bæta því að það er sitt hvað kyngeta og -löngun og sagði Halldóra að kyngeta karla, færi m.a. eftir líkamlegu formi, t.d. hefðu reykingar slæm áhrif. I framhaldi af þessu má benda á ágæta grein Óttars Guðmundssonar læknis um kynlíf eftir miðjan aldur f bókinni „Arin eftir sextugt“, sem Blóðflokkar og mataræði Nýlegar rannsóknir sérfræðinga við Oxford-háskóla hafa sýnt fram á tengsl milli blóðflokka fólks og þeirra sjúkdóma sem það er líklegt til að þjást af. Blóð- flokkur Hætta á... O gigt, magasári, bólguvaldandi sjúkdómum. A krabbameini og hjartasjúk- dómum, B vírussjúkdóm- um í tauga kerfi Hvað á að borða/ hvað á að forðast? Borðið kolvetnasnautt og prótein- ríkt fæði - minnkið neyslu hveitis og kornmetis og borðið mikið af afmögru kjöti. grænmetisfæðið hentar best, borðið kolvetnaríka fæðu, t.d. brauð, pasta og hrísgrjón, en reynið að skera niður fituna í fæðunni. Fjölbreytt fæði hentar vel, en gætið þess að fá nóg af kjöti og mjólkurvörum. AB þú hefur gott ónæmiskerfi, svo að þínir áhættuþættir eru almennir og ekki meiri hætta á einum sjúkdómi en öðrum Þú þolir flestar fæðutegundir, en best fyrir þig er að neyta kolvetnaríkrar og fitusnauðrar fæðu. I

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.