Dagur - 10.07.1998, Side 5
Ðagttr
FÖSTUDAGUR 10. JÚLÍ 1998 - 5
FRÉTTIR
L
Playboyslær í gegn
meðal Islendmga
Gríðarlegur áhugi á
nýjasta heftinu.
Myndir af fáklæddum
íslenskum konum. Út-
gáfuhátíð á Astró.
„Okkur finnst alveg gríðarlegur
áhugi vera fyrir þessu. Síðast-
liðna daga hafa margar konur,
ungar stelpur og jaínvel full-
orðnar konur verið að spyrjast
fyrir hvort blaðið sé ekki komið,“
segir Oddný Sturludóttir hjá Ey-
mundsson í Austurstræti.
MildU áhugi
Svo virðist sem töluverður áhugi
sé fyrir nýútkomnu hefti banda-
ríska tímaritsins Playboy sem
m.a. er helgað íslenskum kon-
um. I blaðinu eru fjölmargar
myndir af fáklæddum íslenskum
konum ásamt texta sem gefur til
kynna að ekkert mál sé fyrir karl-
menn að næla sér í íslenska
ljósku með kynlíf í huga. Athygli
vekur að áhuginn fyrir blaðinu er
ekki aðeins bundinn við karl-
menn heldur virðast konur einn-
ig hafa mikinn áhuga. Hinsvegar
hefur afgreiðslufólk bókabúða
ekki orðið vart við að neinir
öfuguggar hafi sýnt blaðinu
áhuga, enn sem komið er.
Sem dæmi um áhuga landans
hafa nokkrir tugir manna ef ekki
hundrað pantað tímaritið íyrir-
fram til að vera vissir um að fá
eintak af blaðinu. Til að mæta
þessari eftirspurn verða flutt inn
nokkur hundruð eintök af tíma-
ritinu til að byrja með. Til sam-
anburðar má geta þess að mán-
aðarleg sala þessa tímarits er
eitthvað á þriðja tug að öllu
jöfnu en eintakið kostar um 900
krónur.
Útgáfuteiti
„Eg get ekki trúað að þetta hafi
verri áhrif á landkynninguna en
rigningin sem var markaðsett í
þættinum Good Morning Amer-
ica fyrir ári síðan,“ segir Einar
Þór Bárðarson, sem unnið hefur
að miklu útgáfuteiti á veitinga-
húsinu Astró í kvöld í tilefni af
útkomu blaðsins. Það er m.a.
gert í samvinnu við Playboy,
dreifingaraðila og þá sem sáu um
ljósmyndun stúlknanna.
Öllum stúlkunum hefur verið
boðið í veisluna þar sem kampa-
vínið mun fljóta að öllum líkind-
um ásamt öðrum guðaveigum.
Búist er við húsfylli en almenn-
ingi gefst kostur á að sjá dýrðina
eftir miðnætti. Veislustjóri verð-
ur Berglind Olafsdóttir, sem
sögð er upprennandi kvikmynda-
stjarna í Los Angeles, en hún
hefur m.a. komið fram í Strand-
vörðum fyrir utan að hafa verið
kjörin ungfrú Reykjavík. Þá mun
Páll Óskar og hljómsveitin
Casino skemmta til viðbótar við
ýmisar aðrar uppákomur í anda
Playboy. -grh
Sjá bls. 19 í Lífinu í landinu.
Sophia Hansen hitti Dagbjörtu og
Rúnu i smáþorpi og háifgiidings her-
stöð i háfjöiium Tyrklands. Fjölmiðlar
áhugasamir um endurfundina.
Loksins!
„Ég hlakka til næstu endur-
funda okkar,“ sagði Sophia Han-
sen í tyrkneska sjónvarpinu
NTV í fréttaútsendingu um
hálfsex að staðartíma í gær.
Sophia lýsti því hversu gleðilegt
það væri lyrir sig að hitta dæt-
urnar aftur. Fjölmiðlar í Tyrk-
landi hafa fylgst grannt með
ánægjulegum endurfundum
mæðgnanna í háfjallaþoipinu
Divrigi í Austur-Tyrklandi. I gær
áttu þær góðan dag saman.
Sophia hitti dætur sínar, Dag-
björtu og Rúnu, í fyrradag, þeg-
ar hún kom til þorpsins. Hæsti-
réttur landsins í Ankara úr-
skurðaði á síðasta ári að Sophia
skyldi njóta umgengni við dæt-
urnar í júlí og ágúst á hvetju ári
innan Tyrklands. I fyrra var
þessi réttur hennar brotinn,
fyrrverandi eiginmaður hennar,
Halim AI, fór til fjalla með dæt-
urnar og þótti óráðlegt þá að
fara þangað vegna öfgafullra
múslíma. -JBP
Smygl í Dettifossi.
Nokkrir skipveijar á Dettifossi hafa játað að hafa staðið að smygltil-
raun sem uppgvötaðist í fyrradag, þegar tollgæslan á Akureyri gerði
upptækt töluvert af smyglvarningi um borð í skipinu. Teknar voru
253 flöskur af sterku áfengi, fimm bjórkassar og 73 hylki af sígarett-
um.
íslenskur bónusvinnmgur
Islendingur var með fimm rétta og bónustölu í Víkingalottóinu í
fyrrakvöld. Hann fékk rúmlega 1,2 milljóna króna bónusvinninginn
óskiptan. Vinningsmiðinn var keyptur í söluturninum við Grundar-
stíg í Reykjavík. Enginn var með sex réttar tölur og verður fyrsti vinn-
ingur því tvöfaldur á miðvikudaginn kemur.
Fundust heil á jöklinum
Fjórir Islendingar og 35 norskir ferðamenn fundust heilir í fyrrinótt
eftir að hópur sem var á vélsleðum varð viðskila við snjóbíl og leið-
angursstjórn á leið yfir jökulinn í fyrrakvöld. Ekkert amaði að hópn-
um en hann hafðist við í skála Jöklarannsóknarfélagsins. Yfir eitt
hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni.
I fréttatilkynningu frá Landsstjórn björgunarsveita kemur fram að
vont veður hafi verið á þessum slóðum, 8-9 vindstig og lítið skyggni.
Þrátt fyrir það gekk vel að komast á Ieitarsvæðið og voru björgunar-
sveitarmenn komnir þangað um klukkan hálf eitt í nótt.
GSM símamir yfir
50.000
Notendum GSM-síma á Islandi hef-
ur fjölgað um tíu þúsund frá áramót-
um og eru nú orðnir yfir 50.000 í
dreifikerfí Landssímans. Samkvæmt
Símafréttum tók Landsíminn fyrir
nokkru á móti 50-þúsundasta GSM
notandanum og leysti hann út með
gjöfum: GSM-síma og 50.000 krón-
um upp í væntanlega símareikninga.
-hei
Ovíst með val á lista
Kratar hafa valið á
framboðslista sína
með galopnnm próf-
kjörum. Alþýðu-
baudalag og Kvernta-
listi verið með innaii
ilokks skoðaiiakaim
auir.
Eitt af því sem menn hafa velt
mikið fyrir sér varðandi sameig-
inlegt framboð A-flokkanna og
Kvennalista við næstu alþingis-
kosningar er hvernig stillt verður
upp á framboðslistana. Alþýðu-
bandalagið, og raunar Kvenna-
listi líka, hafa ekki verið með
bein prófkjör heldur einhvers-
konar innanflokks skoðanakann-
anir fyrir uppstillingarnefndir til
að styðjast við. Hins vegar hefur
Alþýðuflokkurinn verið með
opnustu prófkjör allra flokka í
mörg ár. En hvað verður nú?
Kjördæmisráðin
„Þetta er eitt af því sem við þurf-
um að ræða en mér þykir afar
líklegt að fylgi flokkanna og
staða þeirra í dag ráði þar nokkru
um. En eins og ég segi þetta á
eftir að ræða í botn og það þarf
að gera í kjördæmisráðunum í
samráði við flokksforystuna,"
sagði Margrét Frímannsdóttir,
formaður Alþýðubandalagsins, í
samtali \áð Dag.
Hún segir að auðvitað verði
það síðan kjördæmisráðin í hver-
ju kjördæmi sem hafí lokaorðið
um hverning listarnir verða
mannaðir og hvernig að því verð-
ur staðið.
Með ýmsu móti
Sighvatur Björgvinsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, tekur undir
með Margréti um að þetta eigi
eftir að ræða. Hann segir ljóst að
það verði kjördæmisráðin í hver-
ju kjördæmi sem taki ákvörðun
um hvernig á listana verði skip-
að.
„Það þarf ekki endilega að vera
með sama móti allsstaðar, frekar
en verið hefur fyrir nokkrar síð-
ustu kosningar," sagði Sighvatur
Björg\ánsson. -S.DOR
Kaupa 127 Subaru-blla
Bflaleiga Akureyrar, sem er í eigu
Höldurs hf., fékk á miðvikudag
afhenta 127 bíla af Subaru-gerð,
sem verða til notkunar fyrir við-
skiptavini. „Þessir bílar eru af
ýmsum gerðum og flestir ljór-
hjóladrifnir. Okkar reynsla af
svona bílum til útleigu er góð og
fjórhjóladrif hefur gefið okkur
forskot á keppinautana á þessum
markaði," sagði Birgir Agústsson
hjá Bílalcigu Akureyrar. - Fyrir-
tækið á um 400 bíla af ýmsum
gerðum og stærðum og reynt er
að endurnýja bílana á um tveggja
ára fresti. „Þetta er stærsta ein-
staka bílapöntun sem við höfum
afgreitt. Oft höfum við afgreitt
Gengið frá kaupum á 127 Subaru-bíium. Birgir, t.v„ og Vilhelm Ágústssynir frá Bila-
leigu Akureyrar.. Milli þeirra Helgi Ingvarsson, forstjóri Ingvars Helgasonar hf.
um 100 bíla í einni pöntun til
Bílaleigu Akureyrar, en aldrei
hefa þeir verið jafn margir sem
nú,“ sagði Helgi Ingvarsson, for-
stjóri Ingvars Helgasonar hf., þeg-
ar bílarnir voru afhentir. -SBS.