Dagur - 10.07.1998, Side 6
6-FÖSTUDAGUR ÍO.JÚLI 1998
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjórar:
Aðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
Netfang ritstjórnar:
Áskriftargjald m. vsk.:
wmmmmmmm
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
ritstjori@dagur.is
1.680 KR. A MANUÐI
Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símar auglýsingadeildar: (ReykjavíK)563-1615 Amundi Amundason
(AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson
OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir
Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjav(k)
Bumbult af
prófessoralaunum
í fyrsta lagi
Pétri Sigurðssyni er „bumbult" af launahækkun prófessora.
Skiljanlegt: tölurnar fyrir þá og verkalýðinn á Vestfjörðum eru
dálítið ólíkar. Annars vegar sex vikna verkfall fyrir lítið sem
ekkert, hins vegar 50% launahækkun frá kjaranefnd. Alyktun
verkalýðsforingjans fyrir vestan er sú að hreyfingin sem hann
talar fyrir þurfi að taka sjálfa sig í gegn. Það er rökrétt ályktun
í því andrúmslofti sem nú ríkir í gleðibankanum - allir að taka
út, nema láglaunafólkið sem er læst í hlekkjum samninga.
í öðru lagi
Hitt er annað mál að löngu er tímabært að prófessorar við Há-
skóla Islands fái laun. Breytingar kjaranefndar eru skynsam-
legar og hugsunin á bakvið rétt. „Sveigjanlegt og afkastahvetj-
andi kerfi sem gefur mönnum tækifæri á að helga sig starf-
inu,“ eru orð formanns Félags prófessora. Nákvæmlega það
sem þarf miklu víðar í hinu opinbera kerfi og veit vonandi á
betri tíð í Háskóla Islands. Reikna má með að tekjuauki
margra innan Háskólans verði umtalsverður, og þar með út-
gjöld skólans. Fjárveitingarvaldið ætlar sér vonandi ekki að
klípa þá upphæð af öðrum útgjaldaliðum skólans.
í þriðja lagi
I framhaldinu verður að koma gjörbreytt hugsun inn í Háskól-
ann. Munu vel haldnir prófessorar helga sig starfinu? Þýðir
„sveigjanlegt" eftirlitslaust? Hver sér um afkastamælingu í af-
kastahvetjandi kerfi? Prófessorar hafa sumir unnið mikla
aukavinnu utan skólans, rannsóknarskyldunni verið sinnt af
lítilli alvöru af mörgum ef marka má námsmenn við skólann.
Allt afsakað með lágum launum. Þegar sú afsökun er frá, hver
fylgist þá með því að sveigjanlegt, afkastahvetjandi og starfs-
helgandi launakerfi færi okkur þær umbætur sem við erum að
borga fyrir?
Stefán Jón Hafstein.
Garri fór í gær til ffamkvæmda-
stjóra Dags til að krefjast þess
að fá yfirvinnugreiðslurnar
færðar inn í dagvinnukaupið. Á
móti var Garri tilbúinn til að
setja þak á yfirvinnuna og skil-
greina upp á nýtt hlutfallið á
milli þess tíma sem hann eyðir
í skriftir og þess tíma sem hann
eyðir í rannsóknir fyrir skriftir.
Af einhveijum ástæðum tók
framkvæmdastjórinn þessu til-
boði fálega. Garri tók þá að
sjálfsögðu til við rökstuðning
sinn, sem einkum
fólst í tilvísun til úr-
skurðar kjaranefhdar
um launamál pró-
fessora. Þar var upp-
leggið nákvæmlega
þetta sama: yfirvinn-
an færð inn í dag-
vinnuna og þak sett
á yfirvinnu. Niður-
staðan var 50% Iaunahækkun
og það var auðvitað það sem
Garri vildi ná!
Ekkert veröur af
engu
Nú er þess að geta að Garri er
ekki prófessor og kann ekki al-
mennilega að setja fram hin
„ontológísku argúment“ sem
þarf til að sýna að eitthvað
verði ekki til af engu og að það
sé því nauðsynlegt að fá 50%
launahækkun til að borga fyrir
yfirvinnu sem hvort sem er hef-
ur alltaf verið unnin í dag-
vinnu. I það minnsta virtist
þessi röksemdafærsla ekki
hrífa vel á einkalaunafundi
Garra og framkvæmdastjóra
blaðsins. Framkvæmdastjórinn
kom einfaldlega með gagntil-
boð þar sem dagvinnulaunin
yrðu öll færð inn í yfirvinnu-
Iaunin og síðan yrði sett þak á
Háskóli íslands.
dagvinnuna, sem myndi þýða
að Garri héldi sínum launum
nær óskertum, en sleppti alfar-
ið við dagvinnuna. Að sjálf-
sögðu átti þetta heldur ekki að
raska vinnutímanum heldur,
þannig að niðurstaða yrði
Garra óvenju hagstæð. „Það
eru ekki margir sem fá tækifæri
til að sleppa alveg dagvinn-
unni,“ sagði ffamkvæmdastjór-
inn, „en geta bara byrjað á yfir-
vinnu kl. átta á morgnana!"
YfLmnuu-
skrif
Þetta var náttúru-
lega slíkt kostaboð
að Garri hlaut að
segja já. Enda er
þessi pistill nú skrif-
aður á yfirvinnu-
kaupi, en ekki dag-
vinnukaupi. Að vísu hækkar
heildarkaupið ekki við að færa
dagvinnukaupið inn í yfir-
vinnukaupið eins og gerist þeg-
ar yfirvinnukaupið er fært inn í
dagvinnukaupið og þess vegna
situr Garri eftir á sömu Iaunum
og áður á meðan prófessorar fá
50% hækkun. Og sannast
þarna enn einu sinni gildi lang-
skólamenntunar. Hins vegar
getur Garri þó alltént huggað
sig við að vera ekki eins og
sauðsvartur almúginn, sem
þykist vera að gera einhveija
heilmikla kaupmáttarsamninga
og fer jafnvel í verkfall til að ná
1-3% kauphækkun á mörgum
árum. Þá er nú betra að halda
stöðu sinni í þjóðfélaginu og
vera maður með mönnum sem
færir yfirvinnukaup að dag-
vinnukaupi eða dagvinnukaup
að yfirvinnukaupi. GARRI.
ODDUR
ÓLAFSSON
skrifar
Embætti ríkisendurskoðanda er
skrýtið fyrir margra hluta sakir.
Það starfar í umboði Alþingis og
er kostað af ríkissjóði. En til
skamms tíma greiddi það forset-
um Alþingis föst laun! Samtímis
þiggur ríkisendurskoðandi laun
hjá ríkisbönkunum fyrir að endur-
skoða þeirra rekstur. Þessi
nómenklatúra stjórnmálamanna
og embættismanna er að koma
fram í dagsljósið þessa dagana.
Það er vonandi ekki til of mikils
mælst að ríkisendurskoðun upp-
Iýsi hvort hér er um einangruð
fyrirbæri að ræða, eða hvort fleiri
áhrifamenn eru á launaskrá, eða
hafa verið. Eða hitt, hvort það er
alsiða að ríkisstofnanir greiði
starfsmönnum rikisendurskoðun-
ar fyrir að líta yfir bókhald sitt?
Svo geta Pétur og Páll og Petr-
ína og Páh'na úti í bæ velt fyrir sér
hvers konar siðgæðishugmyndir
það fólk hefur um sjálft sig sem
leikur slíka refskák með opinbera
fjármuni.
MUdlvæg stofaun eða
gagnslaus
Sullumbull
Núverandi þingforseti hefur fært
margt til betri vegar og sýnt rögg-
semi við endurskipulagningu
þingstarfa. Strax eftir að hann var
kosinn til starfa afnam
hann greiðslur ríkis-
endurskoðunar til sín.
Sú tiltekt sýnir hve
vafasamar greiðslur af
þessu tagi eru.
Þetta sullumbull rík-
isendurskoðunar með
launagreiðslur út og
inn er hluti af varð-
veislu láglaunakerfis-
ins. Islenska
nómenklatúran býr til
bitlinga og sporslur fyr-
ir sig til að fela raun-
verulegar tekjur. Stjórnmála-
menn og embættismenn eru
Iagnir að kvarta yfir Iélegum laun-
um sínum. En þeir bæta sér það
upp með því að afhenda hver öðr-
um laun og fríðindi undir borðið,
eins og sífellt fleiri dæmi sýna og
sanna.
Við og hinir
Nómenklatúran, eða launaaðall-
inn, er óþreytandi að brýna það
fyrir almúganum á lága kaupinu,
hve skelfilegt ástand
skapast ef kaupið
hækkar. Þá fer stöðug-
leikinn fjandans til og
allt efnahagskerfið úr
böndunum. Fólk fer að
Iáta ýmislegt eftir sér
til að auka lífsgæðin,
svo sem að kaupa bíl og
fara í ferðalag.
Þetta veldur ráða-
mönnum miklum
áhyggjum og telja þeir
góðærin sín í mikilli
hættu ef kjör alþýðu
verða bætt. Óþarfi ætti
að vera að benda á, að allt það
fólk sem hæst bylur í þegar verið
er að vara við bílakaupum og
ferðalögum fær alla sína bíla og
ferðalög greidd af opinberu fé.
Það er sama hvort um er að ræða
samvisku efnahagskerfisins í
bönkum eða öðrum stofnunum,
hvort sem þar ráða húsum emb-
ættismenn eða kjörnir fulltrúar.
Ríkisendurskoðun er engin
heilög kýr eða dómstóll sem kveð-
ur upp úrskurði sem öðlast laga-
gildi. En þá kröfu verður að gera
að stofnunin sé heiðarleg og haf-
in yfir allan grun um sukk og mis-
ferli. Ella er hún gagnslaus og
verri en það. Hún verður að gera
háar siðferðiskröfur til sjálfrar sín
þótt hún starfi oft f óheiðarlegu
umhverfi.
Nýbúið er að endurráða ríkis-
endurskoðanda til margra ára og
fer vel á að hann hefji endurskoð-
un á eigin embætti og hreinsi það
af grun um að greiða kaup og
taka laun frá þeim sem síst skyldi.
Ríkisendurskoðun er alltof mikil-
væg stofnun til að vera partur af
svikamyllu nómenklatúrunnar,
sem lifir í sífelldu góðæri hvernig
sem árar.
Sigurður Þórðarson,
launagreiðandi og
launþegi.
.Xfc^wr
Ætlarþú aðfá þérsalí-
bunu um Hvalfjarðar-
göngin um helgina?
Sigfús Sigfússon
forstjóri Heklu hf.
„Eg er búinn að
fara og fannst
meiriháttar. Sér-
staklega dáist ég
að vinnubrögð-
um og frágangi
við þessa fram-
kvæmd. Þau eru verktakanum,
Istaki hf., til mikils sóma. Eg var
að fara norður í land um daginn
og hringdi þá í vin minn sem gat
bjargað því að ég fengi að renna í
gegn og það þótti mér æði. Á
suðurleið ók ég fyrir Hvalfjörð og
þakkaði ég mínum sæla að þetta
væri væntanlega í síðasta sinn
sem ég færi þá Ieiðinlegu og
hættulegu leið. Eg er viss um að
í framtíðinni fara allir um göngin
- og sjá ekki eftir þúsund kallin-
um.“
Sif Friðleifsdóttir
þingmaður.
„Nei, ég ætla að
fljúga með fjöl-
skyldunni á 80
ára kaupstaðaraf-
mæli Siglufjarð-
arbæjar og 180
ára verslunaraf-
mæli og hitta þar vini míni. Vera
á Hótel Læk á laugardagskvöldið
og fylgjast þar með hagyrðinga-
kvöldi þingmanna. En ég mun
örugglega fara göngin oft £ fram-
tíðinni, tengdafólk mitt á sumar-
bústað uppi í Borgarfirði og það
styttir leiðina að renna sér um
göngin, nú þegar þau eru kom-
in.“
Ómar Þ. Ragnarsson
fréttamaður.
„Nei, ég á ekkert
erindi og ætla því
að koma mér frá
því að lenda í því
öngþveiti sem
þarna verður um
komandi helgi.
Eg hef einu sinni farið niður í
göngin, hálfa leið, en fékk ekki
að fara alla leið í gegn. Sjálfur
hef ég alla tíð verið mjög með-
mæltur þessari framkvæmd og
hef aldrei skilið andstöðuna sem
hefur verið gegn þeim.“
Guðlaugur Bergmann
ferðaþjónustubóndi í Snæfellsásamfé-
laginu.
„Nei, ég ætla að
vera hér um helg-
ina að taka á móti
ferðamönnum,
sem verða þá
búnir að fá sér
salíbunu. Hvað
framtíðina varðar var það eitt það
fyrsta sem ég lærði þegar ég byrj-
aði sem sölumaður fyrir margt
löngu að setja vegalengdir ekki
fyrir mig og mér hefur aldrei
leiðst að aka fyrir Hvalfjörð. Héð-
an að vestan þarf ég oft að keyra
í bæinn og á mínum díselbíl kost-
ar eldsneytið fyrir þessa 400 km
Ieið 800 til 1.000 krónur. Ef ég
fer um göngin kostar það mig
1.600 kr. báðar leiðir, miðað við
afsláttarkortin og þó spara ég mér
aðeins hálftíma á hvorri leið. Því
held ég áfram að keyra fyrir fjörð-
inn og mér sýnist tímakaupið all-
gott.“