Dagur - 18.07.1998, Blaðsíða 6
22-LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Nú er talað um sameig-
inlegtframboð til
vinstri, en hvers konar
framboð? Dagurhóf
leitina að sterkasta
framboðslistajafnað-
armanna, kvenfrelsis-
sinna ogfélagshyggju-
fólks. Til liðs við sig
fékk blaðið vaska sveit
þátttakenda sem allir
þekkja stjómmálin.
Hérem úrslitin.
I þessari leit að draumaframboði
jafnaðarmanna voru þátttakend-
ur beðnir að raða þeim fram-
bjóðendum sem þeim þóttu fysi-
legasti kostur á lista. I Reykjavík
og á Reykjanesi voru þátttakend-
ur beðnir að nefna fimm efstu
menn og í öðrum kjördæmum
þá tvo efstu. Einnig voru þátt-
takendur beðnir um að tilnefna
forsætisráðherra og fjóra aðra
ráðherra. Stigin voru síðan talin
samviskusamlega og úrslitin
birtast hér. Þátttakendur áttu
upphaflega að vera fimmtán en
einn datt úr leik á síðustu
stundu þegar hann tilkynnti að
hann treysti sér ekki til þátttöku
þar sem hann væri sjálfur að
íhuga framboð.
Sigurvegari þessarar skoðana-
könnunar hlýtur að tefjast vera
borgarstjórinn í Reykjavík, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir. Hún
hefði malað alla aðra hugsan-
Iega og óhugsanlega frambjóð-
endur ef stór hluti viðmælenda
hefði ekki talið hana úr leik -
fasta í borginni. Atta þátttak-
endur af fjórtán tilnefndu hana
samt sem forsætisráðherraefni.
„Næstbesti kostur er að aftur-
kalla pólitískt orlof Jóns Bald-
vins og kveðja hann heim frá
Washington til forystu. Hann
dauðsér eftir að hafa gert Sig-
hvat að formanni en kemur
samt hvergi," sagði einn þeirra
sem vildi helst sjá borgarstjór-
ann taka að sér starfann. Þrír
þátttakendur nefndu Margréti
Frímannsdóttur og einn til-
nefndi Helga Hjörvar. Einn þátt-
takandi, sem ekki vildi missa
Ingibjörgu Sólrúnu úr stóli
borgarstjóra, sagðist engan sjá
sem gæti tekið að sér starfið.
Annar viðmælandi sagði spurn-
inguna óraunhæfa þar sem jafn-
aðarmenn gætu ekki myndað
ríkisstjórn án þess að fela Fram-
sóknarflokknum forystu. Rétt er
að taka fram að nokkrir þeirra
sem vildu sjá Ingibjörgu Sólrúnu
sem borgarstjóra settu hana ekki
á framboðslista heldur vildu
kalla hana til starfans. Þeir sem
völdu Jón Baldvin Hannibalsson
í starf utanríkisráðherra höfðu
yfirleitt sama hátt á.
Nokkuð var um að þátttak-
endur færðu menn milli kjör-
dæma. Þátttakandi sem vildi
setja Jóhönnu Sigurðardóttur í
framboð á Norðurlandi vestra
færði fram eftirfarandi rök máli
sínu til stuðnings: „Þar eru
sagðar minnstar tekjur launa-
fólks á öllu Iandinu og verk að
vinna fyrir formann Þjóðvaka að
byrja þarna á að sameina öreiga
allra landa.“ Annar sem vildi
senda Jóhönnu í framboð á
Austurlandi gerði það með eftir-
farandi rökum: „Það er eini
staðurinn á landinu þar sem ég
held að hún fái atkvæði.“
Þeir stjórnmálamenn sem röð-
uðu sér í þrjú efstu sætin í
Reykjavfk höfðu algjöra yfirburði
yfir þá sem á eftir komu. Hið
sama má segja um tvo efstu
menn á Reykjanesi, þau Rann-
veigu Guðmundsdóttur og Guð-
mund Arna Stefánsson. Kristinn
H. Gunnarsson og Sighvatur
Björgvinsson voru efstir og jafnir
á Vestfjörðum. A Norðurlandi
eystra átti enginn möguleika
gegn Svanfríði Jónasdóttur og
Sigríði Stefánsdóttur. Svanfríður
varð fyrir ofan Sigríði en einn
þáttakandi sagði : „Ef Sigríður
Stefánsdóttir gefur færi á sér til
framboðs nær hún forystusæt-
inu með glans, hvað sem Svan-
fríði Jónasdóttur kann að finnast
um slíkt.“ A Austfjörðum völt-
uðu Smári Geirsson og Einar
Már Sigurðsson yfir aðra sem
tilnefndir voru og á Suðurlandi
hlaut Margrét Frímannsdóttir
yfirburðakosningu. A Suður-
landi varð Lúðvík Bergvinsson
að víkja fyrir Guðmuncíi Þ. B.
Ólafssyni. Niðurstaðan varð þvf
sú, svo vitnað sé í orð eins þátt-
takandans, að: „Kjósendur biðja
Lúðvík Bergvinsson kurteislega
að finna sér aðra hillu í lífinu til
að kúra á.“
Og svo er einungis að bíða og
sjá hvað gerist á næstu mánuð-
um og hvort niðurstaðan verður
á svipaðan hátt og í þessu vali á
draumaliði jafnaðarmanna.
Reykjavík:
1. Össur Skarphéðinsson
2. Bryndís Hlöðversdóttir
3. Ingibjörg Sólrún*
4. Jóhanna Sigurðardóttir
5. Svavar Gestsson
*Hér ber að geta þess að enginn
vafi leikur á að Ingibjörg Sólrún
getur hirt fyrsta sætið ef hún
vill, Össur er fremstur vegna
fjarveru hennar. Jóhanna er í 4.
sæti, talsvert Iangt á eftir Ingi-
björgu sem fer í þriðja hvað sem
tautar og raular.
Einnig voru nefnd: Ari Skúla-
son, Arthur Morthens, Arni Þór
Sigurðsson, Asta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, Brynhildur
Flovenz, Guðný Guðbjörnsdótt-
ir, Gylfi Þ. Gíslason, Helgi
Hjörvar, Hreinn Hreinsson, 111-
ugi Jökulsson, Ingvar Sverris-
son, Jón Baldvin Hannibalsson,
Kristín Arnadóttir, Kristrún
Heimisdóttir, Mörður Árnason,
Skúli Helgason, Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir, Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
Ögmundur Jónasson.
Reykjanes:
1. Rannveig Guðmundsdóttir
2. Guðmundur Arni
Stefánsson
3. Magnús Jón Arnason
4. Agúst Einarsson
5. Kristín Halldórsdóttir
Einnig voru nefnd: Ari Skúla-
son, Brynhildur Flóvenz, Bubbi
Morthens, Eggert Eggertsson,
Flosi Eiríksson, Gestur G.
Gestsson, Guðmundur Rúnar
Arnason, Guðrún Jónsdóttir, Jó-
hann Geirdal, Jón Baldvin
Hannibalsson, Kristín Guð-
mundsdóttir, Lúðvík Bergvins-
son, Lúðvík Geirsson, Ólafur
Ragnar Grímsson, Petrína Bald-
ursdóttir, Sighvatur Björgvins-
son, Sigrfður Jóhannsdóttir, Sig-
rún Benediktsdóttir, Sigrún
Jónsdóttir, Þorvarður Tjörvi
Ólafsson, Þóra Arnórsdóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Vesturland:
1. Gísli S. Einarsson
2. Ari Skúlason
Einnig voru nefnd: Drífa Skúla-
dóttir, Eðvarð Ingólfsson, Guð-
bjartur Hannesson, Guðný Guð-
björnsdóttir, Guðrún Konný
Pálmadóttir, Hervar Gunnars-
son, Hólmfríður Sveinsdóttir,