Dagur - 30.07.1998, Qupperneq 3
Xk^MT
FIMMTVDAGVR 30. JÚLÍ 1998 - 3
FRÉTTIR
Sameining gæti tafið
fydr emkavæðingu
Velkomin heim Halldór gæti Valgerdur Sverrisdóttir hafa sagt við for-
manninn Ásgímsson áður en þau, Guðni Ágústsson, Jón Kristjánsson og
aðrir Framsóknarmenn hófu að ræða bankamálin.
Framsóknarmeim viljíi
sameina Fjárfestingar-
bankann og Búnaðar-
bankann og fá erlenda
banka inn í kerfið.
Sjálfstæðismenn vilja
bara selja ríkisbank-
ana og láta markaðinn
ráða því hver samein-
ast hverjnm.
Ljóst er eftir þingflokksfundi
stjómarflokkanna sl. þriðjudag að
flokkana greinir mjög á um stefn-
una í bankamálunum. Sam-
kvæmt heimildum Dags er meiri-
hluti fyrir því innan þingflokks
Framsóknar að Fjárfestingabank-
inn verði sameinaður Búnaðar-
bankanum og það mun vera vilji
Finns Ingólfssonar viðskiptaráð-
herra. Hann hefur líka sagt í sam-
tali við Dag að hann vilji erlenda
banka til samstarfs eða samein-
ingu við ríkisbankana. Sjálfstæð-
ismenn telja hins vegar brýnast að
selja ríldsbankana sem fyrst og
láta síðan markaðinn ráða fram-
haldinu. Það kom vel fram hjá
Vilhjálmi Egilssyni, formanni
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, í Degi í gær.
„Eg vil helst ekki ganga í að
sameina. Eg held að þörf manna
til að finna einhverja heildarlausn
í slíku eða fagurfræðilega út-
færslu á því máli geri ekkert ann-
að en telja fyrir einkavæðingu
bankanna..,“ segir Vilhjálmur.
Hann segir að menn eigi að halda
sig við það sem búið er að ákveða
að selja 49% í Fjárfestingabank-
anum og auka hlutafé ríkisbank-
anna eins og heimilað hefur verið.
Undir þetta sjónarmið tók Pétur
H. Blöndal alþingismaður í Degi í
gær.
Engin fegurðarsjónamiið
„Menn verða að átta sig á því að
eign þjóðarinnar í ríkisbönkunum
ber engan arð. Hún eykst bara og
minnkar á víxl. Við teljum að það
sé hægt að selja þessar eignir og
lækka skuldir ríkissjóðs og þar
með lækka vexti í landinu. Eg legg
á það höfuð áherslu að þegar
hlutur ríkisins í Landsbanka og
Búnaðarbanka verður seldur fáist
sem allra mest fyrir hann. Það eru
nú þegar heimildir til að selja
49% af hlut ríkisins í Fjárfesting-
arbankanum og það tel ég að eigi
að gera sem fyrst," sagði Sturla
Böðvarsson, varaformaður fjár-
Iaganefndar Alþingis, í samtali við
Dag í gær.
Hann var spurður hvort hann
vildi einhverskonar sameiningu í
bankakerfinu. Sturla sagði að ef
það gerði hlut ríkisins verðmætari
telji hann það forsvaranlegt.
„Eg tel að við eigum ekki að
hugsa þetta út frá einhverju feg-
urðarsjónarmiði heldur eingöngu
út frá því hvernig bankakerfið
virkar best annars vegar og svo
hins vegar hvert verðgildi bank-
anna verður eftir þær sameining-
ar sem menn gætu komist að nið-
urstöðu um að þyrfti að gera,“
sagði Sturla Böðvarsson. - S.DÓl!
Pétur Jónsson.
Kratar kjósa
viðræðu-
nefnd
Stjórn fulltrúaráðs Alþýðuflokks-
ins í Reyjavík hefur kosið þriggja
manna nefnd til þess að ræða við
fulltrúa Alþýðubandalags og
Kvennalista um framkvæmd
sameiginlegs framboðs, m.a. val
manna á framboðslista. Pétur
Jónsson, borgarfulltrúi, er for-
maður nefndarinnar sem í eru
einnig Birgir Dýrfjörð og Kol-
beinn Stefánsson.
Flokkstjórn Alþýðuflokksins fól
kjördæmisráðum íyrir skömmu
að heQa þegar undirbúning að
sameiginlegu framboði. Þriggja
manna nefndin á að gera stjórn
fulltrúarráðsins í Reykjavík grein
fyrir gangi mála og má ekki
skuldbinda stjómina án samráðs
við hana.
Aukalandsfundur Alþýðu-
bandalagsins samþykkti einnig að
beina því til kjördæmaráða
flokksins að hefja undirbúning að
sameiginlegu framboði.
Útgerðarfélagið
hagnast loksins
Hagnaður Útgerðarfé-
lags Akureyringa nam
nærri 200 milljónum
króna á fyrri helm-
ingi ársins sem er
mun hetri afkoma en í
fyrra.
Útgerðarfélag Akureyringa var
rekið með 192 milljóna króna
hagnaði fyrstu sex mánuði ársins
1998, en félagið var rekið með
155 milljóna króna tapi á sama
tímabili 1997. Hagnaður af
reglulegri starfsemi móðurfé-
lagsins nam 18,6 milljónum
króna en tapið var 81 milljón
króna árið 1997. Aðrar tekjur
námu 179 milljónum króna og
er stærstur hluti þess sala hluta-
bréfa í Skagstrendingi fyrir 368
milljónir króna en söluhagnaður
nam 172 milljónum króna.
Veltufé frá rekstri nam 187 millj-
ónum króna hjá móðurfélaginu.
Tap á rekstri Mecklenburger
Hochseefischerei nam rúmum
15 milljónum á fyrri helmingi
Úr vinnslusal ÚA. Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri ÚA segir af-
komu félagsins í heild batna um nær 300 milljónir króna.
ársins en var 120 milljónir á
sama tíma í fyrra. ÚA hefur selt
hlut sinn í fyrirtækinu. Hluta-
bréf ÚA í Tanga á Vopnafirði
voru seld í þessum mánuði fyrir
275 milljónir króna og koma því
ekki inn í uppgjörið. Söluhagn-
aður nam 90 milljónum króna.
„Rekstrarbatinn af reglulegri
starfsemi móðurfélagsins er um
100 milljónir króna á milli ára og
afkoma félagsins £ heild batnar
um nær 300 milljónir króna.
Veltufé frá rekstri hefur einnig
aukist um 73 milljónir króna, en
veltufé frá rekstri gefur að mínu
mati oft á tíðum betri mynd af
rekstri fyrirtækja en niðurstaða
rekstrarreiknings," segir Guð-
brandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA. — GG
Fjölgar í Vesturbyggö
Ibúum Vesturbyggðar fjölgaði
im 45 á fyrstu sex mánuðum
írsins, aðfluttir voru 70 en brott-
fluttir 25. Aðeins í einu öðru
sveitarfélagi á Vestfjörðum, að
ísaQarðarbæ undanskildum þar
sem aðfluttir voru 20 fleiri en
brottfluttir, Kirkjubólshreppi í
Strandasýslu voru brottfluttir
faerrj en aðfluttir, einum mpnni.
Inni í þessum tölum er ekki að-
flutt vinnuafl að utan, t.d. Pól-
verjar, sem eru mjög fjölmennir í
útgerðarbæjunum fyrir vestan.
íbúatala Vesturbyggðar var
1.254 þann 1. desember sl. en
aðeins 49 í Kirkjubólshreppi.
Mjög góð veiði hefur verið fyr-
ir vestan seinni hluta vetrar og í
sumar og, það hefnr, ijþrjf á bú-
setuþróun. Mikil og stöðug
vinna hefur verið í fiskverkunar-
húsum á sunnanverðum Vest-
fjörðum. Ibúar á þessu svæði eru
nú mun jákvæðari til búsetu á
Vestfjörðum en verið hefur um
langa tíð, og sú jákvæðni skilar
sér til annara þátta. — GG
U t■-i f!i'.H ,í(iiii gíjl 49'f?Istl9 .SlJV
Kannski ákærö eða sektuð eftir ár
Sýslumannsembættið á Selfossi hefur ákveðið að bíða til næsta sum-
ars með að ákveða hvort þýsku hjónin sem óku utan slóða í Kerlinga-
fjöllum verði sektuð eða ákærð. Fréttastofa Útvarpsins greindi frá
þessu. Þar kom fram að eftir ár á að meta hvort varanlegar skemmd-
ir hafí orðið á viðkvæmu svæðinu og þá verður ákveðið hvort gripið
verði til aðgerða. Fulltrúi sýslumanns sagði að málinu væri engan
veginn Iokið.
Nýr aðstoðarforstjóri
Hreiðar Már Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Kaup-
þings og mun starfa við hlið Sigurðar Einarssonar forstjóra félagsins.
Hreiðar Már hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra verðbréfasjóðs
Kaupþings í Reykjavík og í Lúxemborg frá haustmánuðum 1995, en
áður starfaði hann á vegum Kaupþings sem sjóðsstjóri lífeyrissjóðs
Einingar og hlutabréfasjóðs Auðlindar. Hann er viðskiptafræðingur
frá Háskóla Islands og löggiltur verðbréfamiðlari. Kaupþing er fjár-
festingabanki sem sinnir miðlun verðbréfa, fjárvörslu og ráðgjök auk
þess sem félagið rekur 12 verðbréfasjóði í Reykjavík og Lúxemborg.
Brúarviima
við Borgar-
ijörð
Vinnu er nú að ljúka
við einn stöpul Borg-
aríjarðarbrúar, en þar
voru önnum kafnir
viðgerðarmenn langt
niðri í kví sem byggð
var utan um stöpul-
inn. Dæla pumpaði
vatni upp meðan
mennirnir athöfnuðu
sig. Þarna hefur nú
verið sett til muna
betri steypa en notuð
var upphaflega. Taka
verður flesta stöplana
í gegn, en þessi eini
Iátinn nægja í sumar.
Viðgerð á brúnni yfir
Brákarsund verður
hins vegar