Dagur - 30.07.1998, Blaðsíða 12
12- FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 1998
rD^ftr
ÍÞRÓTTIR 1
k *
Þor og HK í fallsætuin
Þegar ellefu umferðum er lokið
af átján í 1. deild karla í knatt-
spyrnu er ljóst að staða Þórs og
HK er orðin frekar slæm á botni
deildarinnar.
Þegar Iitið er á markahlutfall
liðanna kemur í ljós að HK hef-
ur fengið á sig hvorki meira né
minna en 34 mörk og skorað 15,
en Þórasarar fengið á sig 18 og
skorað 9.
Þórsarar hafa ekki skorað
mark síðan í áttundu umferð, en
það var í leiknum gegn Víking-
um. Af þeim átta leikjum sem
Þórsarar hafa tapað hafa þeir
tapað sex leikjum með aðeins
einu marki, sem sýnir að einhver
óheppni virðist fylgja liðinu.
Vandamálið hjá HK er ekki
markaskorunin, því þeir hafa
skorað lítið færri mörk en liðin í
efri hluta deildarinnar.
I innbyrðis leik liðanna í
Kópavogi unnu Þórsarar 1 -4 og í
næstu umferð mætast þau aftur
og þá á Akureyri þann 6. ágúst
nk. Hvernig fer þá?
Staðan í
1. deild karla
Breiðabl. 11 9 0 2 22:9 27
Víkingur 11 6 3 2 17:12 21
FH 11 6 1 4 18:12 19
KVA 11 5 3 3 16:11 18
Fylkir 11 5 2 4 17:15 17
Skallagr. 11 4 3 4 19:18 15
KA 11 4 3 4 13:14 15
Stjarnan 11 3 4 4 8:11 13
Þór 11 1 2 8 9:18 5
HK 11 1 1 9 15:34 4
Markahæstir
Atli Kristjánsson, Breiðab. 7
Hörður Magnússon, FH 6
Valdim. K. Sigurðss. Skall. 6
Boban Ristic, KVA 5
Hjörtur Hjartars., Skallagr. 5
Steindór Elísson, HK 5
Brynjar Gestsson, FH 5
Sumarliði Arnason, Víkingi 5
Staðan í
Meistaradeild
kvenna
Valur 9 9 0 0 38:6 27
KR 9 8 0 1 40:3 24
Breiðabl. 9 5 2 2 19:9 17
ÍBV 9 3 2 4 17:20 11
Stjarnan 9 3 1 5 14:19 10
Fjölnir 9 2 0 7 3:30 6
ÍA 9 1 2 6 7:22 5
Haukar 9 1 1 7 3:32 4
Markahæstar
Olga Færseth, KR__________T7
Ásgerður Ingibergsd., Val 12
Laufey Olafsdóttir, Val 12
Ásthildur Helgadóttir, KR 9
Helena Ólafsdóttir, KR 7
Bergþóra Laxdal, Val 6
Kristrún Daðad., Breiðabl. 6
Erla Hendriksd., Breiðabl. 5
ÍA og ÍB V úr leik
í A og ÍBV töpuðu í
gær leikjum síuum í
Evrópukeppni félags-
liða og eru þar með
úr leik.
I gærkvöld töpuðu Skagamenn
síðari leik sínum gegn Iithá-
enska Iiðinu Zalgiris Vilnius í
fyrstu umferð Evrópukeppni
félagsliða. Leikurinn fór fram
ytra og sigraði litháenska liðið
1-0 með marki sem skorað var
á fjórtándu mínútu. Skaga-
menn fengu nokkur góð mark-
tækifæri í leiknum en tókst
ekki að skora og eru þar með úr
Ieik í keppninni. Litháarnir
komast áfram í keppninni á
fleiri skoruðum mörkum á úti-
velli.
I Vestmannaeyjum fór fram
Ieikur ÍBV og FK Obilic frá
Júgóslavíu og unnu Júgó-
slavamir leikinn 1-2. Eyjamenn
skoruðu fyrsta markið í leikn-
um, en það gerði Kristinn Haf-
liðason á 21. mínútu leiksins.
Eyjamenn sóttu stíft eftir
markið en tókst ekki að skora.
Júgóslavar mættu ákveðnir til
leiks eftir leikhlé og um miðjan
hálfleikinn jöfnuðu þeir með
marki Aco Vasiljevic. Liðin
skiptust á að sækja það sem eft-
ir var leiksins, en rétt fyrir
leikslok þrumaði Nenad Grozd-
ic boltanum í netið yfir Gunn-
ar markvörð Eyjamanna og
staðan orðin 1-2 fyrir FK Obil-
ic, sem urðu úrslit leiksins.
Eyjamenn eru þar með úr
keppni ( Meistarakeppni Evr-
ópu, en FK Obilic mætir þýska
stórliðinu Bayern Múnchen í
annari umferð.
Landssúnadeildin
11. utnferð
Þróttur-Valur 0-3
Sigurbjörn Hreiðarsson og
Arnór Guðjohnsen 2
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf„
Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. ísafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG
bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, sími 482 37 00. Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17.
Ertu sammála fagblöðunum?
Suzuki Grand Vitara hefur þá sjaldgœfu eiginleika, að geta raun-
verulega sameinað í einum bíl hinn hefðbundna lipra fjölskyldubíl
í bcejarumferðinni og jeppann án þess að sprengja kaupgetuna.
Ökuþór
... fcer„Óskarsverðlaun":
Fyrir þcegindi og áncegjulegan akstur ásamt góðum utanvega-
eiginleikum og lágum rekstrarkostnaði fcer Suzuki Grand Vitara
titilinn „Bestu 4X4 kaupin undir 200.000 SEK"
Motor (Svíþjóð)
Með Grand Vitara hefur Suzuki komiðfram með nýja kynslóð
jeppa sem ergreinilega „fullorðnari" en sú á undan.
Auto Zeitung (Þýskaland)
2.5 V6 vélin... er áreynslulaus og öflug lágum snúning og hún
feykir Grand áfram á hraða sem kemur á óvart.
Car (Bretland)
Okkurfinnst hann vera réttur kostur fyrir kaupendur sem hugsa
um verð, útlit, og vilja njóta lífsins.
Truckworld online (Bandaríkin)
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
frá 2.179.000 1
FUIL'P^
frame|>!I
mm