Dagur - 15.08.1998, Page 8
8- LAUGARDAGVH 1S. ÁGÚST 1998
rD^ir
Tkypir
FRÉTTASKÝRING
A-flokkamir allsstaöar
í tveiimir efstu sætum
SIGURDÓR
SIGURDÖRS-
SON
SKRIFAR
Margir eru famir aö
velta fyrir sér með
hvaða hætti verði rað-
að á lista sameigin-
legs framhoðs A-flokk-
anua og Kvennalista
við þingko sniiigarnar
í vor. Sú aðferð sem
fiestir nefna er su sem
Reykjavíkurlistinn
notaði 1994.
Margrét Frímannsdóttir, formað-
ur Alþýðubandalagsins, skýrði frá
því í samtali við Dag í vikunni að
vinna við undirbúning sameigin-
legs framboðs A-lista og Kvenna-
lista væri í fullum gangi. Eitt af
því sem fólk er farið að ræða sín í
milli varðandi sameiginlegt fram-
boð í vor er fyrirkomulag röðunar
á lista slíks framboðs. Ein hug-
myndin er að notuð verði sama
aðferð og var hjá Reykjavíkurlist-
anum 1994. Það er þannig að
stærsti flokkurinn fær efsta sætið
í hveiju kjördæmi, næst stærsti
annað sætið og síðan koll af kolli.
Hins vegar ráði flokkarnir því,
hver fyrir sig, hverjir verði á list-
anum fyrir þá. Einnig kemur til
greina að raða á listana eftir at-
kvæðamagni flokkanna í hverju
kjördæmi.
Sighvatur Björgvinsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sagði í
samtali við Dag að í raun gæti
verið um margar aðferðir að ræða
við niðurröðun á listana. Það
gæti verið opið prófkjör í einu
kjördæmi, raðað eftir styrk í öðru
og eftir atkvæðamagni í því þriðja
og síðan einhvers konar sam-
komulag í því fjórða.
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins tók
mjög f sama streng. Hún bendir á
að það sé alfarið í höndum kjör-
dæmisráðs í hverju kjördæmi
hvernig staðið verður að niður-
röðun á Iista og aðferðirnar geti
orðið fleiri en ein og þurfi alls
ekki að vera eins í öllum kjör-
dæmum. Hún segir að kjördæm-
isráðin hljóti að velja þá aðferð
sem þeim þyki skynsamlegust við
val á frambjóðendum.
Ef miðað er við styrk í hverju
kjördæmi í síðustu þingkosning-
um yrði Alþýðubandalagsmaður í
efsta sæti í öllum kjördæmum
nema Reykjanesi og Vestfjörðum.
Alþýðuflokksmaður yrði í öðru
sæti alls staðar nema í þessum
tveimur kjördæmum þar sem
krati yrði í efsta sæti. Samkvæmt
þessu kerfi yrði kvennalistakona
eða fulltrúi Þjóðvaka alls staðar í
þriðja sæti eða fjórða sæti.
Formlega er Þjóðvaki enn til
enda þótt þrír af fjórum þing-
mönnum hans séu gengnir í Al-
þýðuflokkinn. Jóhanna Sigurðar-
dóttir ein er enn í Þjóðvaka og
samstarf hennar og þingflokks Al-
þýðuflokksins veldur því að hann
heitir Þingflokkur jafnaðar-
manna. Ef atkvæði Alþýðuflokks
og Þjóðvaka eru lögð saman, þeg-
ar stillt verður upp á lista eftir
þessu kerfi, breytir það miklu
víða. Ef ekki og atkvæði flokka
eru talin sitt í hvoru lagi mun
fulltrúi Þjóðvaka sumstaðar fara
upp fyrir fulltrúa Kvennalista.
Margrét Frímannsdóttir sagði
að það væri alveg órætt hvernig
að þessu máli með Þjóðvaka og
Alþýðuflokk verður staðið. Hún
bendir á að taka verði tillit til sér-
stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur í
málinu með einhverjum hætti.
Það er eitt alveg ljóst í þessu sam-
bandi en það er að niðurröðun á
lista, hvaða aðferð sem notuð
verður, er ofur viðkvæmt mál,
kannski það viðkvæmasta í sam-
fylkingunni.
I síðustu kosningum fékk Al-
þýðubandalagið á landsvísu
23.597 atkvæði eða 14,3 prósent,
Alþýðuflokkur fékk 18.846 at-
kvæði eða 11,4 prósent, Þjóðvaki
fékk 11,806 atkvæði eða 7,1 pró-
sent og Kvennalisti 8.031 at-
kvæði eða 4,9 prósent greiddra
atkvæða.
Alþýðuhandalagsmað-
ur verður í efsta sæti í
öllum kjördæmum
nema Reykjauesi og
Vestfjörðum ef félags-
hyggjuflokkamir nota
styrk flokkanna til að
raða á framboðslista.
Á Reykjanesi og fyrir
vestan yrði krati í
efsta sæti.
Reykjavík
I Reykjavík fékk Alþýðubandalag-
ið 9,440 atkvæði og 3 þingmenn.
Alþýðuflokkurinn fékk 7.498 at-
kvæði og 2 menn kjörna. Þjóðvaki
fékk 5.777 atkvæði og 2 menn og
Kvennalisti 4.954 atkvæði og 2
menn kjörna. Samtals eru þetta 9
þingmenn.
Ef raðað verður samkvæmt
Reykjavíkurlista aðferðinni frá
1994 yrði alþýðubandalagsmaður
í 1. sæti, krati í 2. sæti, þjóðvaka-
maður í 3. sæti, kvennalistakona í
4. sæti og Alþýðubandalagsmaður
í 5. sæti, krati í 6. sæti, Þjóðvaka-
maður í 7. sæti, Kvennalistakona
í 8. sæti og Alþýðubandalagsmað-
ur í 9. sæti og krati í 10. sæti. Ef
þetta sameiginlega framboð bætir
við sig manni frá þeim 9 þing-
mönnum í Reykjavík, sem flokk-
Jón Baldvin Hannibalsson, nú sendiherra, Krissján Már Unnarsson fréttamaður Stövar tvö, Óiafur Þ. Harðarson prófessor og Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra „skoða nýjustu tölur einhverja
kosninganóttina. Nú velta menn mikið fyrir sér hvernig sætaskiptingin verði milli þeirra sem standa að sameiginlegu framboði á vinstri væng ef af framboðinu verður.
efsti maður listans varð uppbótar-
þingmaður. Þjóðvaki fékk 524 at-
kvæði og Kvennalistinn 294 at-
kvæði og hvorugt framboðið náði
manni inn. Röðun á lista yrði því
í þessari röð nema ef raðað verð-
ur eftir atkvæðamagni yrðu Al-
þýðubandalagsmenn í tveimur
efstu sætunum og krati í því
þriðja.
Austurlandskj ördæmi
I Austurlandskjördæmi er Alþýðu-
bandalagið einnig lang stærsti
flokkurinn í hópnum. Það hlaut
1.257 atkvæði og einn mann kjör-
inn í síðustu kosningum. Enginn
hinna flokkanna náði inn manni á
Austurlandi. Alþýðuflokkurinn
fékk 577 atkvæði, Þjóðvaki 365
og Kvennalisti 191 atkvæði. Röð-
in yrði þá þessi nema ef raðað
arnir hafa núna yrði það sam-
kvæmt þessari reglu krati sem
bættist við.
Röðunin yrði eins ef raðað yrði
á listann eftir atkvæðamagni.
Reykj aneskj ördæmi
I Reykjaneskjördæmi er það Al-
þýðuflokkurinn sem er stóri
flokkurinn miðað við siðustu
kosningar. Hann fékk 6.603 at-
kvæði, tvo menn kjörna og einn
uppbótarþingmann. Alþýðu-
bandalagið fékk 5.330 atkvæði og
einn mann kjörinn. Þarna falla
dauð mörg atkvæði. Þjóðvaki fékk
2.545 atkvæði og 1 mann og
Kvennalistinn fékk 1.761 atkvæði
og 1 mann kjörinn.
Ef raðað verður á sameiginleg-
an lista eftir atkvæðamagni yrði
það Alþýðuflokksmaður f 1. sæti,
Margrét Frímannsdóttir, formaður
Alþýðubandalagsins: Taka verði tillit
til sérstöðu Jóhönnu Sigurðardóttur
í málinu með einhverjum hætti.
Alþýðubandalagsmaður í 2. sæti
Alþýðuflokksmaður í 3. sæti Al-
þýðubandalagsmaður í 4. sæti og
Þjóðvakamaður í 5. sæti og
Kvennalistakona í 6. sæti. En ef
raðað er niður eins og við gerðum
í Reykjavík yrði það Alþýðuflokk-
ur, Alþýðubandalag, Þjóðvaki,
Kvennalisti, Alþýðuflokkur, AI-
þýðubandalag og svo framvegis.
Miðað við að framboðið næði inn
6 mönnum í Reykjanesi eru tveir
Alþýðubandalagsmenn inni í
staðinn fyrir einn nú.
Suðurlandskj ördæmi
Alþýðubandalagið er lang stærsti
flokkurinn í þessum hópi í Suð-
urlandskjördæmi, fékk 2.043 at-
kvæði og einn mann kjörinn. Al-
þýðuflokkurinn fékk 877 atkvæði
og náði ekki manni kjörnum en
Sighvatur Björgvinsson, formaður
Alþýðuflokksins: Það er hægt að
nota margar aðferðir við röðun á
framboðslistana og mismunandi eft-
ir kjördæmum.
verður eftir atkvæðamagni að þá
yrðu Alþýðubandalagsmenn í
tveimur efstu sætunum, síðan
krati þá Þjóðvakamaður og loks
Kvennalistakona.
Norðurlandskjördæmin
I Norðurlandskjördæmi eystra er
Alþýðubandalagið stærsti flokkur-
inn, fékk 2.741 atkvæði og einn
mann kjörinn. Þjóðvaki fékk
1.414 atkvæði og uppbótarþing-
mann, Alþýðuflokkur 1.211 at-
kvæði og engan mann og Kvenna-
listinn fékk 351 atkvæði og engan
mann kjörinn. Þarna yrði röðun á
lista eins og röðin er hér að ofan
nema hvað ef raðað yrði eftir at-
kvæðamagni yrði nokkuð langt í
Kvennalistafulltrúann.
I Norðurlandskjördæmi vestra
er Alþýðubandalagið einnig
stærsti flokkurinn, fékk 987 at-
kvæði og einn mann kjörinn. Hin-
ir flokkarnir náðu þar ekki inn
manni en Þjóðvaki fékk 429 at-
kvæði Alþýðuflokkurinn 318 og
Kvennalistinn 204 atkvæði. Þarna
yrði röðun á Iista alveg eins og að
ofan er talið upp, alveg sama hvor
aðferðin yrði notuð við niðurröð-
un.
Vestfirðir
Alþýðuflokkurinn, með sjálfan
formanninn í efsta sæti, er stærst-
ur flokkanna á Vestfjörðum.
Hann fékk síðast 752 atkvæði og
einn mann kjörinn. Alþýðubanda-
lagið fékk 651 arkvæði og upp-
Niðurröðim á fram-
boðslista er ofur við-
kvæmt mál, kanuski
þaö viðkvæmasta í
samfylkingu félags-
hyggjuflokka og skipt-
ir þá engu hvaða að-
ferð verður notuð.
bótarþingmann. Kvennalistinn
fékk 312 atkvæði og Þjóðvaki 184
atkvæði og hvorugur listinn náði
inn manni. Þarna yrði niðurröð-
unin á listann eins og að ofan er
talið hvor aðferðin við niðurröð-
unina sem verður notuð.
Vesturland
Á Vesturlandi er Alþýðubandalag-
ið stærsti flokkurinn en náði ekki
inn manni. Alþýðuflokkurinn
kemur næst á eftir og náði inn
uppbótarmanni. Alþýðubandalag-
ið fékk 1.148 atkvæði, Alþýðu-
flokkurinn 1.010 atkvæði, Þjóð-
vaki 568 atkvæði og Kvennalist-
inn 324 atkvæði. Þarna er upp-
röðunin á listann augljós hvor að-
ferðin sem notuð verður. Astæða
er til að benda á að hér féllu rúm-
lega tvö þúsund atkvæði dauð og
sameiginlegt atkvæðamagn þess-
ara flokka hefði náð tveimur þing-
mönnum kjörnum í síðustu kosn-
ingum.
LAUGARDAGUR 1S. ÁGÚST 1998 - 9
' • ' ‘ é ' L----------------- _