Dagur - 25.08.1998, Page 1

Dagur - 25.08.1998, Page 1
Verð í lausasölu 150 kr. 81. og 82. árgangur - 157. tölublað Helgarsukkið mikill baggi á sjúkrahúsuui Nær allir „gestir“ slysadeilda inn helgar eru ölvaðir; 60-80 lun hverja helgi á Sjúkra- húsi Reykjavíkiir. Betri drykkjusiðir gætu minnkað heil- hrigðiskostnaðinn til mima. Heilbrigðisstarfsfólk, sem Dagur hefur rætt við, telur einsýnt að útgjöld og þar með fjárhagsvandi sjúkrahúsa Iandsins myndu dragast saman til mikilla muna ef það tækist að fækka þeim of- beldisverkum sem stafa af áfeng- isdrykkju, einkum um helgar. Ljóst er að þessi liður er afar stór í útgjöldum heilbrigðiskerfisins og um helgar má rekja 90-100 prósent allra heimsókna á slysa- deildir til ofbeldis og óhappa vegna drykkju og notkunar ann- arra vímuefna. Hvorki í heilbrigðisráðuneyt- inu né á sjúkrahúsunum var hægt að fá nálg- un á því í krónu- tölu hvað helgar- drykkja lands- manna kostar heilbrigðiskerfið og þá samfélagið í heild - engin út- tekt hefur farið fram á þessu sér- staklega. Hitt er ljóst að fólk í vímu er drjúgur hluti af skjól- stæðingum heil- brigðiskerfisins og á slysadeildum eru „gestirnir" um helgar yfir- leitt annað hvort í vímu eða hafa slasast vegna fólks í vímu. „Það er óhætt að fullyrða að ef ekki væri fyrir þessa siði landans væri tiltölulega Iítið að gera hjá okkur um helgar, sérstaklega á næturna," segir Pálína Asgeirs- dóttir, deildarstjóri slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur. „Flestir sem þá koma tengjast skemmt- analífinu beint eða óbeint, eru oftast undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna og hafa lent í áflogum eða hafa dottið og svo framvegis. Það er varla að það dettí inn fólk á biðstof- una um helgar sem ekki er þannig ástatt um. Dóm- greindin brest- ur, fólk fer glannalega og mest ber á of- beldisáverk- um,“ segir Pálína. 60-80 um helgar Að hennar sögn koma oft 20 til 50 einstaldingar með áverka á slysadeild sjúkrahússins á hverri nóttu um helgar og oftast alls um 60 til 80 einstaklingar að- faranætur laugardags, sunnu- dags og mánudags. Brynjólfur Mogensen, læknir á slysadeild, tekur undir það sem Pálína segir en hvorugt treysti sér til að nefna heildarkostnað- inn í krónutölu. „Það er erfitt að áætla heildarkostnaðinn fyrir samfélagið og má þannig búast við því að aðeins um helmingur þeirra sem hljóta áverka vegna ofbeldis komi til okkar. Af þeim sem þó koma er ljóst að mikið of- beldi á sér stað, einkum að- faranætur laugardags og sunnu- dags. Þar eru karlar í miklum meirihluta og mjög stór hluti þeirra ölvaður. Um leið er ljóst að karlar meiðast helst við eða á veitingastöðum, en konurnar í heimahúsum. En þó ég viti ekki hvað þetta kostar allt Ieyfi ég mér að fullyrða að ofbeldið er of- boðslega dýrt og miklu dýrara en við almennt höldum." Brynjólfur telur að mikið myndi draga úr ofbeldinu ef lög- reglan yrði sýnilegri. „Það myndi auka kostnaðinn við Iöggæsluna, en draga úr kostnaðinum vegna ofbeldisins. Og ætli peningunum sé ekki betur varið í lögregluna en í að lappa upp á allt of marga áverka vegna áfloga og bar- smíða.“ - FÞG Langflestar komur á slysadeild um helgar tengjast áfengi á einhvern hátt. Missti hjólið á Drotfcníxigar- brautinni Ferð langferðarbíls tók skjótan endi á þriðja tímanum í gær þeg- ar eitt hjólið yfirgaf farkostinn þegar hann var á ferð eftir Drottningarbrautinni. Engin slys urðu á farþegum. Lögreglan á Akureyri aðstoðaði vegfarendur við umferðarstjórn þar sem rút- an hafði áhrif á samgöngurnar um Drottningarbrautina. Rútan tekur 30 farþega og er frá Egils- stöðum. MYND BRINK I Halldór Blöndal samgönguráðherra varð sextugur í gær og sóttu margir góðir gestir hann heim í tilefni tímamót- anna. Þeirra á meðal var Davíð Oddsson forsætisráðherra sem hefur látið einhver skemmtileg orð falla I eyru Kristrúnar Eymundsdóttur, eiginkonu Halldórs. mynd brink Séra Þórir Jökull Þorsteinsson, sóknarprestur á Selfossi. Til þjónustu í Englandi Sr. Þórir Jökull Þorsteinsson, sóknarprestur á Selfossi, hefur fengið átta mánaða leyfi frá þjónustu við söfnuð sinn, en á næstunni fer hann til tímabund- inna starfa í borginni Scunt- horpe í Lincoln-skíri, norður af London. Hann er fyrstur ís- lenskra þjóðkirkjupresta að starfa innan vébanda ensku bisk- upakirkjunnar, en samkvæmt samkomulagi hennar og nor- rænu þjóðkirknanna, sem stofn- að var til á síðasta ári og er kennt við borgina Porvoo í Finnlandi, verða samskipti þeirra aukin og gagnkvæm viðurkenning veitt. „Eg mun starfa með tveimur öðrum prestum sem þjóna þrem- ur kirkjum og 20 til 30 þúsund manna söfnuði. Það eru gömul og ný sannindi að kirkjan er yfir- þjóðleg og yfir hana ná ekki nein landamæri. Því skapast hér fyrir kirkjunnar þjóna tækifæri til þess að öðlast nýja reynslu og sýn,“ segir Þórir Jökull. Sr. Þórir Jökull kveðst gera ráð fyrir því að fara utan í byrjun október og koma aftur til starfa á Selfossi um mánaðamótin maí og júní á næsta ári. Unnið er að því að finna prest í stað hans sem þjóna myndi Seifosspresta- kalli til vors. - SBS. Seldust upp samdægurs Skuldabréf sem Landsvirkjun gaf út á innlendum Qármagns- markaði í gær að fjárhæð 2,5 milljarðar seldist upp samdæg- urs. Forsvarsmenn Landsvirkj- unar og Islandsbanka skrifuðu í gærmorgun undir samning um umsjón bankans með útgáfu og sölu á skuldabréfunum. Skuldabréfaútgáfunni er ætl- að að fullnægja bluta af fjárþörf Landsvirkjunar vegna virkjunar- framkvæmda. Utgáfan er sú stærsta sem ráðist hefur verið í af fyrirtæki á fjármálamarkaði hérlendis. Afgreiddir sar Venjulegir og demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524 Með Baldri yfir Breiðafjörð Ferðir alla daga: Alltaf viðkoma í Flatey Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og 16:00 Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30 Flateyjarpakkinn á góða verðinu. Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.