Dagur - 25.08.1998, Page 5
ÞR'IBfVJrA‘G’V-R 2 5 r Á&VST' 155 8’« !9
T)mpr—
FRÉTTTR
Fjarkennsla framhalds-
skólanema í uppnámi
Framlög til fjar
kennslu Verkmennta-
skólans á Akureyri
hafa verið lækkuð og
telja kennarar þar að
verið sé að skerða
kjör þeirra. Því neitar
menntamálaráðuneyt-
ið.
Fjarkennsla Verkmenntaskólans
á Akureyri er í hættu vegna boð-
aðrar lækkunar á greiðslum fyrir
kennsluna.
Þessi áhrif af lokum tilrauna-
verkefnisins virðast hafa komið
bæði Hauki Agústssyni, kennslu-
stjóra fjarkennslu, og Bernharð
Haraldssyni, skólameistara
VMA, í opna skjöldu, enda vildu
þeir ekkert ræða málið. Aðal-
heiður Steingrímsdóttir, trúnað-
armaður kennaranna, segir að
þar sem ekki hafi tekist að semja
um þessa vinnu á milli HIK og
ráðuneytisins, hafi skapast sú
hefð að greiða fyrir hana sam-
kvæmt öldungadeildartaxta. Hún
segir boðaða lækkun nema um
30 prósentum, en hún komi mis-
jafnlega út.
Mun VMA þá ekki bjóða upp á
fjarkennslu i vetur?
„Eg vil engu spá um það, en
mjög margir kennarar hafa kom-
ið að máli við mig og hluti af
þeim ætlar að hætta,“ segir Aðal-
heiður en kennarar ræddu þessi
mál á fundi í gær.
Tilkynning um fyrirhugaðar
breytingar á launum fyrir fjar-
kennsluna barst
kennurum i bréfi
frá skólanefnd.
Aðalheiður segir
ákvarðanir skóla-
nefndar ekki
teknar úr lausu
lofti, heldur að
fyrirskipan ráðu-
neytisins, sem
veiti ekki Ijárveit-
ingu til fjar-
kennslunnar
nema kennslu-
kostnaður verði
skorinn niður.
„Þetta gengur
þvert á allar ræð-
ur menntamála-
ráðherra um þá
möguleika og
þann stórkost-
lega ávinning sem fjarkennslu-
námið býður upp á,“ segir hún.
Dýrir nemendur
Hvorki Haukur Ágústsson né
Bernharð Haraldsson vildu ræða
málið við blaðamann. Það vildi
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra ekki heldur og vísaði á
Gísla Magnússon, deildarstjóra í
menntamálaráðuneytinu.
Gísli segir að ekki sé verið að
skerða laun kennaranna, heldur
sé verið að breyta fyrirkomulagi
kennslunnar. Það og greiðslur
til kennara hafi tekið mið af því
að um tilraunaverkefni var að
ræða, en nú sé gert ráð fyrir að
hvorttveggja taki mið af hefð-
bundinni kennslu en þróunar-
vinna verði fjármögnuð sérstak-
lega.
Hann segir kennslukostnað á
nemenda hafa verið allt að þvf
tvöfaldan á við það sem gerist í
dagskóla framhaldsskólanna.
Það hafi verið eðlilegt meðan
fjarkennslan var rekin sem til-
raunaverkefni. Þá hafi verið
fleiri kennslutímar, hlutfallslega
meiri tímanotkun og sérstakt
álag á laun kennaranna. „Nú er
gert ráð fyrir því að stærri hluti
af tíma kennaranna fari í
kennslu í stað tilraunastarfsemi
áður,“ segir Gísli.
Nokkur hundruð manns
hvaðanæva að hafa verið í fram-
haldsnámi f fjarkennslu Verk-
menntaskólans. Nemendur í
fjarkennslu hafa greitt frá átta og
upp í tólfþúsund krónur fyrir
hvern áfanga, sem þeir hafa tek-
ið. - is
Fæðingar-
deild lokað?
Stéttarfélagið Samstaða á
Blönduósi mótmælir harðlega
öllum áformum um lokun fæð-
ingardeildar á staðnum. I bréfi
til heilbrigðisráðherra segir að
það sé með öllu óviðunandi að
fólk sem vilji eiga heima í Húna-
vatnssýslum þurfi að búa við
mun minna öryggi í heilbrigðis-
þjónustu en var fyrir 25-30
árum. Stjórn Samstöðu krefst
þess að forsvarsmenn sjúkra-
hússins á Blönduósi beiti sér í
málinu.
Sigursteinn Guðmundsson,
yfirlæknir á heilsugæslustöðinni
á Blönduósi, varð hissa þegar
honum var sagt frá mótmælum
stéttarfélagsins í gær: „Stjórn
sjúkrahússins er ekki einu sinni
farin að fjalla um þetta og það
Iiggur engin ákvörðun fyrir. Hitt
er annað mál að þetta gæti kom-
ið upp vegna þess að ljósmóðir-
in sem verið hefur hér er að
flytja í Borgarnes og við veltum
fyrir okkur hvernig við leysum
það mál. En það liggur alls ekki
fyrir að fæðingardeildinni verði
Iokað.“
Sigursteinn segir að fæðingar
á Blönduósi séu milli 20 og 30
ár hvert. Vissulega hafi ráðu-
neytið boðað niðurskurð á sum-
um sviðum og m.a. lagt til að
fæðingardeildin yrði lögð niður.
Stjórnin hafi barist gegn því og
hann telji það vondan kost.
- BÞ
Forsetinn heim-
sótti Erfðagrein-
ingu
Olafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, sagðist í gær hafa talið það
siðferðislega skyldu sína að ræða
grundvallarspurningar sem nú
væri glímt við í tengslum við erfða-
rannsóknir, á Hólahátíð á dögun-
um. Eins og fram hefur komið
töldu ýmsir forsetann hafa farið út
fyrir verksvið sitt þegar hann ræddi
þetta viðkvæma deilumál.
Olafur kynnti sér starfsemi Is-
lenskrar erfðagreiningar í gær og ávarpaði starfsmenn fyrirtækisins.
Hann Iagði áherslu á mikilvægi rannsólmanna þar og sagði m.a. að
frá landnámi og kristnitöku hefði ekki verið fengist við mikilvægari
verkefni.
Ólafur Ragnar Grimsson, forseti ís-
lands, kynnti sérstarfsemi íslenskrar
erfðagreiningar í gær.
Hrossin heil þegar þau fóru héðan
Allt bendir til að hrossin sem drápust um borð í Norrönu hafi verið
alheil þegar þau fóru héðan. Yfirdýralæknir segir líklegast að þau hafi
kafnað en enn er ekki hægt að segja til um það með vissu. Hann seg-
ir að nauðsynlegt sé að komast að því hvað gerðist til að fyrirbyggja
að svona endurtaki sig. Meðal annars er til rannsóknar hvort lög um
dýraverndun hafi verið brotin eins og yfirdýralæknirinn í Færeyjum
heldur fram. — BÞ
Þmgmönnum á Netinu
fjölgar
Ágúst Einarsson, þingmaður, hefur opnað
vefsíður á Netinu undir heitinu Vefsíður
Ágústar. Þar á að birtast daglega ný umfjöll-
un um þau mál sem hæst bera í samfélaginu.
Síðurnar eru settar upp sem fréttablað á Net-
inu og auk þess boðið upp á í jölmargar teng-
ingar, allt frá orðasafni í sjávarútvegi að upp-
lýsingum um feril og störf Ágústar, að því er
segir í tilkynningu frá þingmanninum.
. _ Svavar Gestsson, alþingismaður, gefur út
Agúst Einarsson, blaðið Hugmynd á Netinu og Björn Bjarna-
þingmaður. son, menntamálaráðherra, hefur haldið þar
úti heimasíðu í nokkur ár.
StarfsfólMd
óttast uppsagnir
Strax og ótíðindi af
gengi Flugfélags ís-
lands bárust héldu
starfsmenn fundi og
ræddu vandamálin.
Innanlandsflugmenn, af-
greiðslumenn og hlaðmenn
Flugfélags Islands héldu fundi
sunnan og norðan heiða strax á
fimmtudagskvöldið í kjölfar
frétta um geigvænlegt tap á fyrir-
tæki þeirra. Seinna um kvöldið
funduðu flugmenn sérstaklega, í
Reykjavík og í félagsskap norð-
anmanna, Þvermóði á Akureyri.
Tryggvi Jónsson er í forsvari
fyrir flugmannahóp Flugfélags
Islands, innanlandsflugmenn-
ina. Hann kvaðst í gær ekki
kannast við sögusagnir um að
flugmenn hyggðust efna til setu-
verkfalla. Hann sagðist ekki geta
neitað því að menn óttuðust að
til fækkunar komi hjá félaginu.
„Það er auðvitað ekkert slíkt í
gangi. Félagið er í erfiðri stöðu,
það er Ijóst. En menn treysta að
ég held þeim mönnum sem Ieysa
eiga vandamálin," sagði Tryggvi.
„Þetta er orðið þreytandi ástand.
Svona fer frjálsræðið með flug-
málin hjá okkur. Menn verða að
átta sig á að það er ekki hægt að
stunda flug á þessum skelfingar-
prísum sem boðið er upp á,“
sagði Tryggvi.
Við stofnun Flugfélags Islands
og sameiningu við Flugfélag
Norðurlands var ætlunin að
koma á sameiginlegum starfsald-
urslista flugmanna FI og Flug-
leiða. Millifærsla flugmanna úr
innanlandsflugi yfir í millilanda-
flug átti að eiga sér stað líkt og
verið hafði þegar innanlandsflug
var í nafni Flugleiða. Ekkert hef-
ur enn ekki gerst í starfsaldurs-
málinu. Naerri 30 flugmenn
Flugfélags Islands hafa ekki
fengið þessar stöður ennþá og
bíða þess að ákvörðun verði tek-
in. Tryggvi sagði að þetta mál
væri helsta áhyggjuefni flug-
manna innanlandsflugsins. - JBP
Tap Flugleiða er allt í fluginu
Tap Flugleiða stafar eingöngu af
slæmum flugrekstri félagsins í
millilandaflugi og tapi Flugfélags
Islands hf., að sögn Einars Sig-
urðssonar, aðstoðarmanns for-
stjóra Flugleiða. Onnur dóttur-
fyrirtæki félagsins spjara sig vel
að hans sögn, ferðaskrifstofa,
gististaðir og bílaleiga.
Flugleiðir hf. skilgreina sig
sem ferðaþjónustufyrirtæki en
ekki eingöngu sem flugfélag.
Einar segir að mjög miklu máli
skipti að Flugleiðir styðji við
uppbyggingu ferðaþjónustu af
ýmsu tagi.
„Við einbeitum okkur að því að
reka ferðaþjónustu á Islandi þar
sem kjarni starfseminnar er.
Þetta er í eðli sínu öðru vísi en til
dæmis SAS er að gera, sem er
með alþjóðlega hótelkeðju,"
sagði Einar. „Það er eðlileg
spurning að spurt sé hvort við
séum að missa sjónar á fluginu.
Það er þess vegna sem við færum
þessa starfsemi út úr flugfélag-
inu yfir í sjálfstæð dótturfyrir-
tæki.“ - jbp