Dagur - 25.08.1998, Blaðsíða 10
10- ÞRJBJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
FRÉTTIR
Ölvaður maður
beit lögregluþj ón
Það var mikið að gera hjá iögregiunni í borginni á menningarnótt enda tugir þúsunda í miðbænum. Allt fór þó til-
tölulega vel fram. - mynd: hari
Kona réðst á lögreglu-
ineim þegar þeir ætl-
uðu að ræða við son
hennar sem grunaður
var um stuld á bíl.
Flytja þurfti lögreglu-
mann á slysavarðs-
stofu eftir að ölvaður
maður beit hann.
Þetta er meðal þess
sem fram kemur í dag-
bók lögreglunnar í
Reykjavik.
Helgin var mjög annasöm og
kenndi margvíslegra verkeína hjá
Iögreglumönnum. Ber þar hæst
mikil þátttaka borgara í Menning-
arnótt Reykjavíkurborgar sem
nánar verður vikið að síðar,
Reykjavíkurmaraþoni auk ýmissa
annarra verka. Föstudagskvöldið
var mjög rólegt á miðborgarsvæð-
inu og var greinilegt að borgarbú-
ar höfðu ætlað sér að geyma þrótt
sinn til skemmtanahalds til
menningarnætur. Þó voru höfð
afskipti af ungmennum vegna
ölvunar og brota á útivistarregl-
um.
Alls eru skráð 609 verkefni í
dagbók okkar þetta tímabil.
Geysileg þátttaka
Lögreglan tók þátt í undirbúningi
fyrir Menningarnótt Reykjavíkur-
borgar sem var á laugardag og
stóð til sunnudagsmorguns.
Ohaétt er að segja að þátttaka
borgara hafi farið fram úr björt-
ustu vonum og varð Iögreglan að
grípa til meiri gatnalokana en
áður höfðu verið ráðgerðar, til
hagsbóta fyrir gangandi vegfar-
endur. Nokkrar tafir urðu því fyr-
ir ökumenn sem flestir mættu af
skilningi enda var það almennt
það yfirbragð sem lögreglumenn
mættu þennan dag. Hins vegar
finnast alltaf fáeinir ökumenn
sem virðast eiga erfitt með að
skilja grundvallaratriði umferðar-
laga um nauðsyn þess að sýna
öðrum vegfarendum tillit.
Frá miðjum laugardegi var
mjög mikið af gangandi fólki á
Laugavegi og öðrum götum á
miðborgarsvæðinu. Hámarki náði
síðan fólksfjöldinn um miðnætti
þegar talið er að rúmlega þriðji
tugur þúsunda borgarbúa hafi
fylgst mgð flugeldasýningu við
Tjörnina. Aberandi var hversu
margt fjölskyldna var á svæðinu
og hélst svo þar til um kl. 02 að-
faranótt sunnudags.
Ölvun var ekki áberandi en fór
þó vaxandi þegar líða tók á
sunnudagsmorgun. Lögreglu-
stjóri hafði í samráði við borgaryf-
irvöld og dómsmálaráðuneytið
heimilað að veitingastaðir mættu
vera opnir til ld. 05 að morgni
sunnudags. Reyndar er það í sam-
ræmi við hugmyndír sem nú eru
ræddar samhliða breyttri löggjöf
um vínveitingahús. Svo virðist
sem flest húsa á miðborgarsvæð-
inu hafi verið vel sótt og skemmt-
anahald farið að mestu vel fram.
Nokkrar tafir urðu síðan að koma
fólki heim til sín og má leita skýr-
inga þess meðal annars í því sem
áður hefur verið bent á með
fjölda miðborgargesta þessa nótt.
Troðfullir af fólki óku strætis-
vagnar miðborgargestum til
helstu hverfa og sömu sögu má
segja um leigubíla sem Iöng bið-
röð var eftir allt til 8 að morgni
sunnudags.
Þegar á heildina er Iitið er ekki
hægt annað fyrir lögreglu en að
vera ánægða með þennan sólar-
hring þar sem Ijölmargir borgar-
búa nýttu sér þá fjölbreyttu
menningarviðburði sem í boði
voru.
Reykj avíkimnaraþon
Reykjavíkurmaraþon hefur sett
nokkuð ríkan blæ á borgina með
aukinni þátttöku í þeim hlaupa-
leiðum sem í boði eru. Lögreglan
annast lokun gatna og ýmsa að-
stoð við þátttakendur eftir því
sem þurfa þykir. Að þessu sinni
var sú nýbreytni einnig að lög-
reglumenn á reiðhjólum fylgdu
hlaupurum eftir i því skyni að
veita aðstoð ef þörf yrði á. Það
kom til viðbótar vélhjólalögreglu-
mönnum sem stýrðu umferðar-
málum. Lögreglan er ánægð með
hvemig til tókst að þessu sinni.
Bílbeltalausir ökumeiin
A föstudag hafði lögreglan sér-
stakar gætur á notkun bílbelta. A
tímabilinu milli 17 og 19 að
kvöldi föstudags óku 798 bifreið-
ar austur Stekkjabakka þar sem
eftirlit var haft. Það voru 57 ein-
staklingar kærðir fyrir að nota
ekki bílbelti þar af 5 farþegar og
eitt mál var vegna þess að ekki var
notaður öryggisbúnaður fyrir
ungabarn.
A miðnætti á föstudag hafði
lögreglan sérstakar aðgerðir á
Hringbraut til að kanna með ölv-
unarakstur. Þá voru 176 ökutæki
stöðvuð og 40 ökumenn látnir
gefa öndunarprufu. Fjórar bif-
reiðar voru kyrrsettar þar sem
ökumenn þeirra sýndu að þeir
höfðu neytt áfengis þótt allir
væru þeir undir viðmiðunarmörk-
um. Þessi aðgerð lögreglu stóð
yfir í tvær stundir.
Þá voru 76 ökutæki stöðvuð á
Bústaðavegi í sambærilegri að-
gerð lögreglu sem stóð til 04:30.
Rúmlega tuttugu ökumenn gáfu
öndunarprufu og voru tvö öku-
tæki kyrrsett án þess að ökumenn
reyndust yfir viðmiðunarmörkum
Þá voru 143 bifreiðar stöðvaðar
á Stekkjabakka að morgni sunnu-
dags. 27 gáfu öndunarprufu og
eru tveir þeirra grunaðir um ölv-
unarakstur.
Árekstur varð á Grensásvegi við
Miklubraut um miðjan laugardag.
Bæði ökutæki skemmdust mikið
og er annar ökumanna grunaður
um ölvun við akstur.
Hraðakstur
Okumaður var á föstudagskvöld
stöðvaður á Vesturlandsvegi í
Kollafirði eftir að hafa mælst aka
á 131 km hraða.
Höfð voru afskipti af þremur
piltum í æfingaakstri á bifhjólum
um miðjan laugardag. Hafði öku-
kennarinn brotið umferðarlög
með því að heimila þeim að aka
eftirlitslaust.
I nokkur skipti um helgina
urðu lögreglumenn að hafa af-
skipti af ölvuðum einstaklingum
sem voru að færa til vegmerking-
ar á Vesturlandsvegi í Mosfells-
bæ. Fólkið sem var ölvað olli bæði
töfum og hættu fyrir umferð á
þessu svæði með athæfi sínu.
Piltur á fimmtánda ári var
stöðvaður við akstur bifreiðar á
Suðurlandsbraut að morgni
mánudags. Piltinum sem ekki
hefur ökuréttindi var ekið að
heimili sínu.
Ökumaður var stöðvaður á
Vesturlandsvegi á mánudags-
morgun eftir að hann hafði ekið í
gegnum Hvalfjarðargöngin án
þess að hafa greitt uppsett gjald.
Við skoðun lögreglu á málinu
kom í Ijós að maðurinn hafði
hluti í bílum sem hann gat ekki
gefið viðhlítandi skýringar á og
það því haldlagt sem þýfi.
Móðirin handteMn
A föstudag barst lögreglu tilkynn-
ing um að ökutæki hefði verið
stolið og við eftirlit fundu þeir bif-
reiðina við hús þekkts brota-
manns. Lögreglumenn knúðu
dyra til að ræða við piltinn vegna
hugsanlegar aðilar hans að þjófn-
aðinum. Móðir piltsins brást hins
vegar illa við heimsókn Iögreglu
og vildi ekki kannast við brota-
hegðan sonarins. Hún réðist að
Iögreglumönnunum, reif af ein-
kenni þeirra og skyrtur þar til ekki
var annað fært en að handtaka
hana. Voru því þau mæðgin vist-
uð í fangageymslu.
Karlmaður var handtekinn á
föstudagskvöld eftir að hafa unn-
ið skemmdir á tveimur ökutækj-
um í Austurstræti. Tjónvaldur, 18
ára piltur, var færður í fanga-
geymslu.
Um klukkan hálf tvö að morgni
Iaugardags kom borgari með ein-
stalding á miðborgarstöð lögreglu
sem hann hafði staðið að því að
vinna skemmdir á bifreið. Tjón-
valdur sem var 17 ára piltur var
ölvaður og sóttur af foreldrum
sínum.
Tveir menn voru handteknir á
Laufásvegi að morgni laugardags
grunaðir um að hafa stolið úr bif-
reiðum á svæðinu. Piltarnir sem
báðir eru 19 ára voru fluttir á Iög-
reglustöð.
Brotist var inn í ökutæki á Ar-
túnshöfða og stolið nokkru magni
af verkfærum. Tjónvaldur er
ókunnur.
Brotist var inn í íbúð við Flóka-
götu aðfaranótt sunnudags og
stolið myndbandstæki. Ekki er
vitað um deili á þjófinum
Karlmaður var handtekinn við
innbrot í verslun í Seljahverfi.
Maðurinn hefur áður komið við
sögu fyrir ýmis afbrot og var flutt-
ur í fangahúsið við Hverfisgötu.
Teknir með líkniefni
Fimm aðilar voru handteknir í
ökutæki í austurborginni eftir að
lögreglumenn fundu ætluð fíkni-
efni og áhöld til slíkra reykinga í
bílþeirra.
A sunnudagsmorgun kom karl-
maður á slysadeild og hafði
stungusár á baki. Maðurinn sem
var mjög ölvaður hafði verið í
miðbænum en vissi ekki hvar,
hvernig eða hvenær hann hafði
hlotið sárið.
Þá gaf sig á tal við lögreglu karl-
maður sem kvaðst hafa orðið fyr-
ir árás í miðbænum að morgni
sunnudags. Hann hafði áverka á
höfði en þekkti ekki til árás-
armanns.
Skenundarverk
Lögreglu var á laugardag tilkynnt
um að fimm rúður hefðu verið
brotnar í skólabyggingu í Breið-
holti. Ekki er vitað um tjónvalda.
Rúða var brotin í verslun í mið-
borginni undir miðnætti á laugar-
dagskvöld. Ekki er vitað um tjón-
valda.
Karlmaður var handtekinn eftir
að hafa unnið skemmdir á bif-
reiðum við Amtmannsstíg að
morgni sunnudags. Tjónvaldur-
inn var fluttur í fangahús.
Þá voru þrír piltar og ein stúlka,
öll unglingar, færð á lögreglustöð
eftir að hafa verið að vinna
skemmdir á húsi við Vitastíg með
því að spreyja á það málningu.
Að morgni sunnudags var karl-
maður handtekinn fyrir að hafa
brotið rúðu í verslun á Laugavegi.
Hann var fluttur á Iögreglustöð-
ina.
Klifu fangelsið
Oskað var aðstoðar lögreglu
vegna ölvaðs manns á Ægissíðu á
laugardagskvöld. A vettvangi réð-
ist maðurinn að lögreglumönnun-
um og náði að bíta í einn þeirra
þannig að flytja varð á slysadeild.
Hinn ölvaði var fluttur í fanga-
geymslu en lögreglumaðurinn er
á góðum batavegi eftir skoðun á
slysadeild.
Fangaverðir í fangahúsinu við
Skólavörðustíg óskuðu aðstoðar
lögreglu vegna tveggja einstak-
linga sem voru að klifra á veggjum
hússins. Hvort mennirnir voru að
kanna hvort það væri laust rúm er
ekki Ijóst en þeir höfðu hlaupið á
brott er Iögreglan kom á vettvang.
Frá Öskjuhlíðarskóla
Skólasetning Öskjuhllðarskóla verður þriðjudaginn 1. septem-
ber.
Nemendur 7., 8., 9. og 10. bekkjar iraeti við skólasetningu
kl. 9:30.
Nemendur 1., 2., 3., 4., 5., og 6. bekkjar mæti við
skólasetningu kl. 11:30.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 2.sept-
ember.