Dagur - 25.08.1998, Blaðsíða 12
12r- ÞtUBiUD-AGUM
Röntgentæknir
Óskum að ráða röntgentækni sem fyrst eða eftir nánara
samkomulagi við Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða 75% starf auk bakvakta.
Umsóknarfrestur er til 4. september 1998.
Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum skiptist í sjúkrahús-
svið og heilsugæslusvið og er stöðugildi 1.5.
Umsóknir sendist Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum,
pósthólf 400, 902 Vestmannaeyjum.
Allar nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 481
1955.
Heilbrigðisstofnunin
í Vestmannaeyjum.
Kentucky Fried Chícken
Starfsfólk óskast
Óskum eftir hressu og ábyrgu starfsfólki í
afgreiðslu og eldhús. Vaktavinna.
Einungis fullt starf kemur til greina.
Upplýsingar veittar á Kentucky, Faxafeni 2,
Reykjavík, Hjallahrauni 15, Hafnarfirði, og
Suðurlandsvegi, Selfossi.
Sölumaður óskast
Kjötiðnaðarstöð KEA óskar að ráða starfsmann til sölu- og þjón-
ustustarfa í matvöruverslanir á Akureyri. Óskað er eftir duglegum,
jákvæðum og reglusömum einstaklingi til framtíðarstarfa.
Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri eða framkvæmdastjóri í síma
460 3360 eða á staðnum.
Hjá kjötiðnaði KEA, sem er hluti KEA samstæðunnar, starfa um 90
manns. Um er að ræða eina af stærstu kjötvinnslum landsins
ásamt stórgripa- og sauðfjársláturhúsi.
Skattstjóri Norðurlands-
umdæmis eystra, Akureyri
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra óskar að ráða
starfsmenn til starfa er lúta að vinnu við álagningu og öðru
er tengist skattskilum fyrirtækja og einstaklinga. Æskilegt er
að umsækjendur hafi lokið prófi í viðskiptafræði eða rekstr-
arfræðum á háskólastigi, hafi sambærilega menntun eða víð-
tæka þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, reynslu og fyrri
störf óskast sendar skattstjóra Norðurlandsumdæmis
eystra, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri, fyrir 15. september
nk.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfs-
manna.
Nánari upplýsingar veitir skattstjóri í síma 461 2400.
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
í P R Ó T TIR
Tekur Ruud Gullit við Tottenham af
Christian Gross?
Allar líkur á að Gross fái sparkið.
Er Gareth Southgate á leið til
Tottenham frá Aston Villa?
Ruud Gullit til
Tottenham?
Áhaugendur æfir
vegna slaks gengis
liðsins. Vilja Alan
Sugar stjómarfor-
mann burt.
Allar Iíkur eru nú á því að
Christian Gross fái sparkið frá
Tottenham í vikunni. Stuðnings-
menn félagsins eru æfir vegna
hins slaka gengis liðsins en þeir
kenna ekki eingöngu Gross um
ófarirnar. Stjórnarformaðurinn,
Alan Sugar, er sá sem lýðurinn
vill burt. Frá því hann tók við
stjórninni hjá Tottenham hefur
leiðin Iegið niður á við.
Sugar og Gullit skelltu sér
saman í siglingu á sunnudaginn
og talið er víst að þá hafi Sugar
boðið Hollendingnum knatt-
spyrnustjórastöðuna á White
Hart Lane.
Gareth Southgate til
Tottenham?
Tottenham ætlar ekki bara að
losa sig við Christian Gross. Þar
á bæ vilja menn nú kaupa varn-
armanninn sterka Gareth South-
gate, frá Aston Villa á átta millj-
ónir punda. Southgate er mjög
ósáttur við að ViIIa er búið missa
bæði Dwight Yorke og Steve
Staunton úr sínum röðum og vill
nú yfirgefa félagið. Það fer því að
verða vandamál hjá John
Gregory að stöðva leik-
mannaflóttann úr herbúðum
sínum. — GÞÖ
FH-iiigar bikarmeistarar
Bikarkeppni 16 ára
og yngri í ITjáisum
íþróttiun fór fram í
Laugardal um helg-
ina. Lið FH-inga sigr-
aði í stigakeppninni
og sett voru tvö ís-
landsmet.
FH-ingar gerðu það gott í bikar-
keppni 16 ára og yngri í frjálsum
íþróttum, sem fram fór í Laugar-
dalnum um helgina. Þeir sigr-
uðu þar í átta greinum af tutt-
ugu og urðu stigahæstir á mót-
inu með 156 stig. I öðru sæti
varð lið IR-inga með 118 stig og
í þriðja sæti Iið Armanns með
117 stig.
Sigrún Fjelsted.
Átta lið tóku þátt í keppninni,
en reglurnar eru þannig, að
hvert lið þarf að taka þátt f
minnst fimm greinum og má
hver keppandi aðeins keppa í
tveimur.
Tvö Islandsmet voru sett á
mótinu, en Sigrún Fjelsted úr
FH bætti nýlegt Islandsmet sitt í
spjótkasti, er hún kastaði 40,53
m. Hún hefur þar með bætt Is-
landsmetið um tæpa fimm metra
í sumar, sem er frábær árangur
hjá Sigrúnu, sem er 14 ára.
Sveit FH í 1000 m boðhlaupi
setti síðan íslenskt sveinamet, er
þeir hlupu á 2:26,91 mín.
Úrslit:
1. FH a-sveit 156 stig
2. ÍR 118 stig
3. Ármann 117 stig
4. FH b-sveit 101 stig
5. HSK 100 stig
Þrír N or ðurlandameist arar
Árangiix íslensku
unglinganna á Norð-
urlandameistaramót-
inu í frjálsum íþrótt
um sá besti frá upp-
hafi.
Norðurlandamót unglinga 20
ára og yngri fór fram í Dan-
mörku um helgina. Mjög góður
árangur náðist á mótinu, að sögn
Egils Eiðssonar landsliðsþjálfara
sá besti frá upphafi. „Krakkarnir
stóðu sig mjög vel og unnu þrjá
Norðurlandameistaratitla, tvö
brons og þrisvar lentu þau í
fjórða sæti. Þetta er tvímæla-
laust besti árangur hjá íslensk-
um unglingum frá upphafi,"
sagði Egill.
Norðurlandameistari unglinga
í spjótkasti varð Jón Ásgrímsson,
FH, er hann kastaði 69,56 m og
bætti þar eigið met um 26 cm.
Hann kastaði þremur cm Iengra
en Finninn Herri Hattainen sem
lenti í öðru sæti.
Sveinn Þórarinsson, FH, varð
Norðurlandameistari í 400 m
grindahlaupi, er hann hljóp í
þriðja sinn undir 53 sek. Sveinn
er aðeins 19 ára og gæti þar með
varið titilinn á næsta ári. Sveinn
náði þriðja sætinu í 400 m
hlaupi á 49,06 sek. og bætti fyrri
árangur um 34/100 úr sek.
Vala Flosadóttir, IR, var mætt
á mótið frá Búdapest sigraði ör-
ugglega í stangarstökkinu. Hún
stökk 4,00 m, en þær sem komu
næstar henni stukku 2,50 m.
Byijunarhæð Völu var 3,80 m.
Silja Úlfarsdóttir, FH, náði
þriðja sæti í 400 m hlaupi á tím-
anum 55,87 og bætti íyrri árang-
ur sinn um rúmlega 1,5 sek.
Silja er aðeins 17 ára er því
gjaldgeng á Norðurlandamót
unglinga næstu þrjú árin.
Guðný Eyþórsdóttir, 17 ára
IR-ingur, náði fjórða sæti í lang-
stökki og var aðeins 2 cm frá
bronsinu.
Guðleif Harðardóttir, kringlu-
kastari úr IR, náði ljórða sætinu
er hún kastaði 38,87 m, en það
er aðeins 1 cm frá Islandsmeti
Guðbjargar Viðarsdóttur.
íslensku stelpurnar náðu
fjórða sæti í 4 x 100 m boðhlaupi
á 47,8 sek. og voru aðeins 1 sek.
á eftir sænsku sveitinni sem varð
í þriðja sæti. I íslensku sveitínni
hlupu Sigurlaug Níelsdóttir,
Guðný Eyþórsdóttir, Silja Úlf-
arsdóttir og Anna F. Árnadóttir.
Sem sagt frábær árangur hjá
íslensku krökkunum.