Dagur - 25.08.1998, Page 1
Þriðjudagur 25. ágúst 1998
n-.ll U< I n#/l .!•» M<! »nn!!•;«,« II
iiiutu^ ihul ()»i/Uon
Svíarganga gjaman
um með elgsspörð
hangandi í eymnum.
En hvaða íslendingur
vill vera með lamba-
spörð í eymnum? Það
er ekkihver sem er.
Alltofóhefðbundið fyr-
irmarga!
„Fólki finnst eyrnalokkarnir oft
rosalega fallegir. Þegar ég segi frá
því úr hveiju þeir eru þá fínnst
sumum það ógeðslegt en öðrum
rosalega fallegt. Þeir eru mjög
vinsælir til gjafa, sérstaklega
meðal ferðamanna. Þeim þykir
þetta frumlegt og sniðugt," segir
Asa Rönnbacka, handverkskona
og bóndi á Litla-Fljóti í Biskups-
tungum.
Lakkar spörðin með trélakki
Ása er með eldsmíði og býr til
skartgripi heima hjá sér. Hún
hefur líka framleitt eyrnalokka og
hálsmen úr lambaspörðum í
nokkur ár og segir að Islendingar
hafí tekið lambaspörðunum afar
vel. Mörgum þykir þau fyndin og
sniðug þegar þeir frétta úr hverju
eyrnalokkarnir séu gerðir. Hug-
myndin er ekki ný fyrir Ásu því
að hún hefur búið í Svíþjóð og
þar eru framleiddir eyrnalokkar
úr elgsspörðum. Islendingar hafa
hins vegar aldrei kynnst því að
lambaspörð væru til nokkurs nýt.
Asa safnar spörðum inni í fjár-
húsi og úti í móa, magnið mis-
jafnt eítir þörf og eftirspurn. Ása
og íslenskur sambýlismaður
hennar eru með fjárbú og því er
ekki langt fyrir hana að sækja
Lambaspörð í eyrun
einfaldle£a flott!
hráefnið, bara nokkurra sek-
úndna eða mínútna rölt. Þau eru
með 30 kindur og því er hráefnið
miklu meira en svo að hún nái að
nýta það allt í eyrnalokka en hún
þarf samt að vanda valið, til
dæmis að finna tvö spörð sem
passa saman í par.
Láttir í eyra
Eymalokkarnir hennar Ásu eru
afar einfaldir í vinnslu og gerð.
Asa tínir þau og þurrkar með því
að breiða út á ofn inni í stofu eða
dagblaðapappír á góðum þurrum
stað. Á sumrin tínir hún í góðu
veðri og þá þarf ekkert að þurrka
spörðin. Hún lakkar þau bara
með svörtu trélakki og bindur svo
gull- eða silfurvír utan um og býr
til lykkjuna í eyrað. Hún hefur
ekki prófað að hafa þau marglit og
því er ekki hægt að fá þau í bláu,
rauðu eða grænu. Bara svörtu.
Ása hefur Iíka verið með háls-
men úr lambaspörðum en heldur
virðist ganga betur að selja eyrna-
lokkana. Hún veit ekki hver
ástæðan er en getur sér þess til að
hún sé sú að þeir séu léttir að hafa
í eyra, léttari en menið er um
hálsinn. Það hljómar ekki ótrú-
lega en varla er menið svo þungt.
Bannað að fara i sturtu
„Lakkið er ekki vatnshelt og því
má ekki fara í sturtu með eyrna-
Iokkana," varar hún við en telur í
lagi að fara með þá út í rigningu
enda geta prúðbúnir Islendingar
aldrei treyst á að veðrið haldist
gott þegar haldið er út á lífið.
Ása er sænskur Finni að upp-
runa en hefur búið lengi í Svíþjóð.
Hún hefur sent vinum sínum í
Svíþjóð nokkra eymalokka til sölu
og þar hafa þeir slegið í gegn. „Þeir
þykja rosalega skemmtilegir og
það er líka gaman að gefa þá því að
enginn veit úr hveiju þeir eru,“
segir hún. „Það vekur athygli þeg-
ar sagt er frá því.“ -GHS
Finnsk handverkskona hefur fundið leið til að nýta hið ónýtanlega, lambaspörðin í íslenskri náttúru. Ása býr til eyrna-
lokka og hálsmen úr lambaspörðum, lakkar með trélakki og pakkar í heimagerða pappakassa. Afar vinsælt til gjafa!
mynd: hilmar þór
Stæiðir: 13"
14" I _____
I5" IHI
Wk
ðiiUift
Verð bí \
8.174,“np )
Stæiðir: 14”
Stæiðu: 14"
Stærðii: 13"
verð £rá
verð £rá
:
9.
W,4W\*ÉS3S^
8.658,\^
. L 3 fl n o ð. S
UNIROYAL
Sterk og
vönduð jeppadekk fyrir
íslenskar aðstæður
O
Gúmmívinnustofan ehf.
Réttarhálsi 2, sími: 587 5588
Skipholti 35, sími: 553 1055
Þjónustuaðilar um land allt.