Dagur - 25.08.1998, Qupperneq 6

Dagur - 25.08.1998, Qupperneq 6
22 -ÞRIBJUDAGUR 2S.ÁGÚST 1998 ro^tr LÍFIÐ í LANDINU Um þrjátíu þúsund manns mættu á menn- ingamótt Reykjavíkur- borgar. íþeim hópi var Kolbrún Bergþórsdótt- irsem stóð menningar- vaktina í nafni Dags. Það var huggulegt af máttar- völdunum að gefa okkur logn og blíðu á menningarnótt, rétt eins og í evrópskri stórborg. Borgin var full af fólki, allt frá korna- börnum í barnavögnum til elli- lífeyrisþega. Hugsanlega vildi einhver líkja stemmningunni við þjóðhátíðardag landsmanna. En það væri óheppileg samlfking því þarna var ekki mögulegt að greina það sambland Ieiða og þijósku sem svo auðveldlega op- inberast í andlitum fullorðinna á 17. júní. Það var eins og enginn hefði mætt af skyldu heldur ein- göngu ánægjunnar vegna. Það hvarflaði að mér að þegar allt kæmi til alls væru Islendingar kannski með vinalegri þjóðum. Þáttur minn í menningarnótt Reykjavíkur hófst klukkan átta í Listasafni Reykjvíkur þar sem við Rósa Ingólfsdóttir gengum ásamt gestum um sýningu á myndum Errós og ræddum um kvenímyndir verkanna. Þetta var eitt þessara tiltækja sem maður botnar ekkert í að hafa látið hafa sig út í. En reyndist þó hin ánægjulegasta stund. Kannski var það föðurlegt umhyggjubros eins sýningargesta, Ágústs Ein- arssonar þingmanns, sem róaði mig, enda er hann þriðji mesti mannkostamaður sem ég hef kynnst í íslenskri pólitík. Hjörtu okkar Rósu slógu ekki hug- myndafræðilegan takt þar sem við skiptumst á skoðunum um myndirnar. Þar sem Rósa sá kvenlega mýkt og hlédrægni kom ég auga á aldalanga kúgun. En þrátt fyrir ágreininginn ríkti systurleg hlýja milli okkar Rósu enda er hún með skemmtilegri konum. Sirngið í Bankastræti Úr listasafninu lá leiðin á upp- Iestrarkvöld í Iðnó. Við tjarnar- bakkann var fjölmenni sem virt- ist ekkert sérstaklega leggja eyr- un við þeim skáldlegu orðum sem bárust úr hátalarakerfinu. Innan dyra biðu menn í biðröð eftir því að vera hleypt inn í helgidóminn þar sem flutning- urinn fór fram. Listþyrst ung- menni Iagði eyra að hurðinni til að nema betur orðin sem þaðan bárust. Mér fannst eitthvað næsta óútskýranlega göfugt en um leið sakleysislegt við þá sjón. Sennilega er ég orðin of verald- arvön í íslenskum listaheimi því ekki hvarflaði að mér að koma 12 II Það var huggulegt af máttarvöldunum að gefa okkur logn og blíðu á menningarnótt, rétt eins og í evrópskri stórborg. Borgin var full af fólki mér fyrir í röðinni; sú hugmynd var mér reyndar álíka fjarlæg og sú að standa í biðröð í banka til þess eins að greiða reikninga. I Austurstrætinu mætti ég Ás- laugu Ragnars sem reyndi að toga mig í átt að Iðnó þaðan sem ég var nýkomin. Ég barðist á móti og sagðist ekki vera hald- in sérstakri löngun til að hlusta á Olínu Þorvarðardóttur kveða. „Hvenær ætlarðu að hætta þess- um þvergirðingshætti, kona komin á fimmtugsaldur?" kvart- aði Áslaug. „Aldrei," hvæsti ég sármóðguð og hélt mína leið. I Bankastrætinu var kveikt á kertum f sýningarglugganum í blómabúðinni Ráðhúsblóm og óperutónlist leikin af geislaspil- ara. Tónarnir bárust út á götu og ég var rétt að ná menningarlegu flugi þegar harmónikutónar ífá Islandsbanka hrifu mig burt úr hámenningunni og þeyttu mér inn í íslenska afdalastemmningu. Við hlið harmónikuleikaranna voru mættir þrír vel klæddir og mátulega drukknir karlmenn sem hvunndags gætu verið vel laun- aðir viðskiptaffæðingar í einka- geiranum. Þeir kepptust við að biðja um óskalög, sem öll reynd- ust vera ættjarðarljóð í ung- mennafélagsanda, og tóku sömu- leiðis að sér sönghlutverkin. Þeir gátu ekki sungið en sungu samt. Mér fannst framlag þeirra virð- ingarvert. Bleikt klám og fleiri vísur Orlítið ofar í götunni, á móts við Sólon, voru félagarnir Börkur Gunnarsson og Pétur Blöndal, í spjátrungslegum jakkafötum og hroðalegum blúnduskyrtum, að selja ljóð sín í lausasölu á hundr- að kall stykkið. Utan um hvert ljóð var vafið borða og liturinn sagði til um innihaldið. Rauður borði táknaði ástarljóð, grænn náttúruljóð, svartur dauðaljóð, blár pólitískt ljóð og bleikur var litur klámvísnanna. Unglingarn- ir voru vel á veg komnir með að hrifsa til sín allt það bleika. Sem flokksbundinn blaðamaður ákvað ég að kaupa pólitískt ljóð. Það var eftir Pétur Blöndal og fjallaði um ungu stúlkuna sem tókst á svo eftirminnilegan hátt að fá Bandaríkjaforseta til að leysa niðrum sig: Af því seyði saup hún hýsn að sinna Clintons þörfum með brostið hjarta, blindafýsn og bletti ifatalörfum Ég hélt áfram göngu minni og mætti næst ungum pilti sem stóð uppi á háum stöpli og tal- aði í farsíma. „Er þetta gjörning- ur?“ spurði ég. Þessi fulhrúi ungu kynslóðarinnar horfði á mig með hryllingi, baðaði út höndum og hristi jafnframt höf- uðið í ákafri tilraun til að bera af sér listræna tilburði. Við bóka- búð Máls og menningar var Ingibjörg Sólrún ásamt Sigurði Svavarssyni að vígja spraut-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.