Dagur - 19.09.1998, Síða 4

Dagur - 19.09.1998, Síða 4
4-LAUGARDAGVR 19. SEPTEMBER 1998 FRÉTTIR L j AUSTURLAND ÍBIJARSJÖNVARPINUÁ akureyri LAUGAR0A6 OG SUNNUOAG KL. 17 -j^ Nýtt skip til Breiðdalsvíkur Utgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið Búlandstindur á Djúpavogi hefur keypt 142 tonna skip sem heitir Mánatindur og verður gert út frá Breiðdalsvík á fiskitroll og aflar hráefnis fyrir frystihús Búlandstinds á Djúpavogi og Breiðdalsvík. Skipinu fylgir 300 þorskígildistonna kvóti. Það hét áður Víkurnes og var gert út frá Hólmavík. Tölva í Klaustur Björn Bjarnason menntamálaráðherra afhenti nýlega fræðimannaíbúðinni á Skriðuklaustri á Fljótsdal öfl- uga tölvu sem var notuð nýverið í tengslum við Ólympíuleikana í eðlisfræði sem haldnir voru hér- Björn Bjarna- lendis fyrr í sumar. Fræðimannaíbúðinni hefur form- son. lega verið gefið nafnið „Klaustur“. Ofauflóðasf öður kaupir hús Ofanflóðasjóður hefur veitt styrk til Kaupa á sex íbúðarhúsum við Strandgötu og Naustahvamm sem eru á snjóflóðasvæði í Neskaup- stað en matsverð íbúðanna er 32 milljónir króna. Þegar gengið hef- ur verið frá kaupunum verður sameinað sveitarfélag Eskiljarðar, Nes- kaupstaðar og Reyðarljarðar, sem nú er nefnt til bráðabirgða Fjarða- byggð, eigandi allra húsanna. Hraðfrystihús Eskifjarðar kaupir Tríton Hraðfrystihús Eskifjarðar hefur keypt útgerðarfyrirtækið Tríton á Djúpavogi og fylgir báturinn rækjubáturinn Gestur SU með í kaupun- um ásamt öllum þorskígildiskvóta bátsins og 1.110 tonna síldarkvóta, sem er fyrsti síldarkvóti Hraðfrystihúss Eskifjarðar en fyrirtækið á einn stærsta loðnukvóta landsins. Skipafloti HE telur þá sex skip. Hótel Búðareyri stækkað Hótel Búðareyri á Reyðarfirði verður stækkað Ijórfalt í vetur, eða úr 5 herlbergjum í 20 og verða í herbergj- unum öll nútímaþægindi, þar með talið gervihnatta- sjónvarp. Að framkvæmdunum standa Ingi Gunnar Jóhannsson, tónlistarmaður í Reykjavík og Jónas A. Ingi Gunnar Jónsson lögmaður en hótelið verður rekið í samstarfi lóhannsson við aðra rekstraraðila, ef til vill hótelkeðju. — Seyðfirðingar fá nýtt íþróttahús Nýtt íþróttahús Seyofirðinga verður tilbúið til notkunar um miðjan októbermánuð og er gólfflötur þess nægjanlega stór til þess að þar geti farið fram ýmsar keppnir í vinsælum íþróttagreinum, svo sem körfubolta og handbolta. Segja má að tilvist þessa hús sé bylting í íþróttamálum Seyðfirðinga sem til þessa hafa þurft að notast við lít- ið hús. — GG Um 40 starfsmenn Foldu eiga allt undir því hvernig úr spilast á næstu dögum í fyrírtækinu. Framkvæmdastjóri lýsir eftir skilningi hjá opinberum aðilum. Það er ekki nó að skrífa skýrsíti opinbera aðila hafa sýnt fjárhags- stöðu Foldu algjört skilnings- leysi. Mjög erfið staða er hjá fyr- irtækinu og hefur öllum starfs- mönnum verið sagt upp. Iðnþró- unarfélag Eyjafjarðar er með mál Foldu á sínu borði en hefur ekki enn skilað tillögum um stöðuna. „Eg kem alveg af fjöllum varð- andi það að Folda sé að fara á hausinn, en það er Ijóst að náist ekki að endurskipuleggja rekst- urinn, mun Folda ekki starfa áfram," segir Hermann. „Eg held að það sé hægt að segja að við höfum ekki fengið neinn skilning hjá opinberum aðilum, maður skilur ekkert í því hvað menn virðast rólegir yfir stöð- unni, það er bara talað um hlut- ina. Hvernig getur það gengið að bæði sé talað um að styrkja at- vinnustarfsemi í bænum en á sama tíma sé ekkert gert til að koma að hlutunum með beinum stuðningi. Það er ekki nóg að skrifa skýrslur," segir Hermann. Smaaurar Um 40 manns starfa nú hjá Foldu og Hermann segir að það yrði mikil blóðtaka fyrir bæjarfé- lagið ef fyrirtækið verður látið rúlla. „Fortíðarvandinn í ullar- iðnaðinum spilar hér inn í, menn virðast ekki hafa trú á ullinni vegna fortíðarinnar. Eg sé hins vegar mjög góðan grundvöll til að starfrækja bæði ullarvinnsluna áfram og útivistarlínuna," segir Hermann. Aðspurður um hve mikinn fjárstuðning fyrirtækið þurfi nú segir Hermann það smáaura miðað við það sem er í húfi fyrir bæjarfélagið. „Þetta eru einhverjar milljónir en engar stórfjárhæðir." Ekki rasað uni ráð írain Elín Antonsdóttir hjá Iðnþróun- arfélagi Eyjaljarðar, er með mál Foldu á sinni könnu og býst hún við að skila áliti sínu til bæjarins í næstu viku. Elín sagðist ekki geta sagt til um á þessu stigi hvort Ijóst væri að fyrirtækið færi á hausinn ef ekki kæmi til aukið fjármagn. Vörur fyrirtækisins seldust greinilega. Þegar Dagur bar gagnrýni Hermanns um skilningsleysi opinberra aðila á stöðu Foldu sagði Elín: „Það var atvinnumálanefnd Akureyrar- bæjar sem fól mér að fara í gegn- um þetta. Það er ekki neikvætt, en við vitum að staðan er erfið og hefur verið það lengi. Því er e.t.v. eðlilegt að menn hlaupi ekki upp til handa og fóta heldur athugi stöðuna vel.“ Fluttur suður Þótt öll framleiðsla Foldu fari fram á Gleráreyrum á Akureyri og eigi sér næstum aldar gamla sögu, flutti framkvæmdastjórinn nýlega til Reykjavíkur. Dagur spurði hvort samband væri milli erfiðrar stöðu Foldu og þeirrar ákvörðunar hans. Hermann sagði svo alls ekki vera. Þvert á móti væri heppilegt fyrir hann að starfa á höfuðborgarsvæðinu þar sem 90 prósent sölunnar á inn- anlandsmarkaði væru fyrir sunn- an. — bþ Framkvæmdastjóri Foldu vandar opinber- imi aðilum í atvinnu- lífi á Akureyri ekki kveðjumar. Fjár- stuðningur er smáaur- ar miðað við blóðtöku bæjarfélagsins ef Folda fer á hausinn. Hermann Sigursteinsson, fram- kvæmdastjóri ullariðnaðarfyrir- tækisins Foldu á Akureyri, segir Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig með heimsóknum, heillaóskum og gjöfum á 80 ára afmæli mínu þann 12. september og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Sérstakar þakkir til barna minna, tengdabarna og fjölskyldna þeirra. Guð blessi ykkur öll. Birna Jóhannsdóttir frá Hauganesi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.