Dagur - 19.09.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 19.09.1998, Blaðsíða 10
10-LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 rD^tr Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu ÓLAFAR KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR frá Bakkafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunar- heimilinu Seli Akureyri fyrir ómetanlega umönnun. Þórhalla Jónasdóttir, Arnmundur Jónasson, Sigurlaug Jónasdóttir, Ingi Þór Ingimarsson, Júlíus Jónasson, Anna Benediktsdóttir, Bára Jónasdóttir, Eðvarð Hjaltason, Ingvar Jónasson, Ingibjörg Þórhallsdóttir, Kolbrún Jónasdóttir, Björn Haraldur Sveinsson, Jóna Jónasdóttir, Jakob Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, amma og langamma AUÐUR JÓNSDÓTTIR ASPAR Skarðshlíð 12a Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt fimmtu- dagsins 17. september. Halldór B. Aspar, Hrefna Kristinsdóttir, Jón B. Aspar, Unnur Hermannsdóttir, Birgir B. Aspar, Stefán B. Aspar, Edda B. Aspar, Reynir Rósantsson, Torfi B. Aspar, Gunnar B. Aspar, Guðrún Jóhannesdóttir, Birna K. B. Aspar, Birgir Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuieg fóstra mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir BÁRA SIGURJÓNSDÓTTIR sem lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánu- daginn 21. september kl. 13.30. Jón Viðar Guðlaugsson, Kristjana I. Svavarsdóttir, Birna Viggósdóttir, ömmubörn og langömmubörn, Hulda Sigurjónsdóttir. Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir og mágur Örn Viöar Sverrisson Karlsbraut 17 Dalvík sem lést af slysförum 14. september sl. verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn 22. sep- tember kl. 13.30. Atli Heimir Arnarson Ingólfur Friðrik Arnarson Sara Dögg Arnardóttir Erna Hallgrímsdóttir Sverrir Sigurðsson Halla Sverrisdóttir Emelía Sverrisdóttir Sigurbjörn Benediktsson Hafdís Sverrisdóttir Stefán Björnsson Baldvina Sverrisdóttir Valþór Sigþórsson Sigfús Sverrisson Valgeir Sverrisson Ingi Birgir Sverrisson Margrét Adólfsdóttir Sigurður Sverrisson Elísabet Sverrisdóttir Guðjón Oddsson Ása Sverrisdóttir Stefán Stefánsson Inga Sverrisdóttir Rúnar Óskarsson Arnar Sverrisson Helga Arnadóttir Halldór Sverrisson Inga Rós Eiríksdóttir Hallgrímur Matthíasson Sigrún Ásgrímsdóttir Anna Lísa Sigfúsdóttir ÞJÓÐMÁL „Samfylkingin hafnar heimsmynd Davíðs Oddssonar um blóðuga baráttu þar sem hver er sjálfum sér næstur, segir Heimir Már m.a. í grein. M liverju sagði mér enginit frá pessu? HPMIRMÁR PETURSSON framkvæmdastjóri Aiþýðubandalagsins skrifar Heimir Már Péturs- son, framkvæmda- stjóri Alþýðubanda- lagsins, skrifar Það var haft eftir drossíu í Frans í den tíð þegar fólkið hrópaði á brauð að hún hafi spurt: Hvers vegna borða þau ekki bara kök- ur? Hún hafði lengi setið í vellystingum í höllu sinni og fékk orma í eyrun þegar grasrótin gerðist of hávær. Þannig er nú komið fyrir annarri prinsipissu austan af Selfossi. Hún minnist nú þunnilda og hnakkastykkja og ræðir um viðskiptavit í fiskbúð- um. Prinsipissan er í áfalli og hrópar yfir lýðinn: Hvers vegna sagði mér enginn frá þessu? Og hvað er það sem prinsipissan í Hvíta húsinu við Lækjargötu hefur ekki heyrt? Jú, hún hefur ekki heyrt af þeim pólitíska vilja sem er fyrir því í Bandaríkjunum að draga úr útgerð herstöðva í Evrópu. Hún er enn föst í heims- mynd kalda stríðsins. Hún omar sér við söngvana um stríðið sem gerði syni hennar ríka. En sem betur fer er til önnur heims- mynd, öfgalaus og fijáls frá upp- skriftum að Napóleónkökum. Með betlistaf í hendi Hrun Berlínarmúrsins er ekki bara slagorð. Það er hægt að fá það staðfest með gerfitungla- myndum að Múrinn er farinn. Hverjum dettur í hug að það sé ekki hægt að ræða það við Bandaríkjamenn sem ein vina- þjóð við aðra, að Ieyfa þeim að spara? Ætlum við að halda áfram að þramma um ganga Pentagon og höfuðstöðva NATO með betlistaf í hendi. Samfylking fé- lagshyggju, jafnaðarstefnu og kvenfrelsis segir nei. Við ætlum að ræða af full- kominni hreinskilni hvernig Bandaríkjamenn geta farið heim. Hvernig Islendingar geta tekið yfir ýmis verkefni fyrir NATO á íslandi og um leið skotið stoðum undir atvinnulíf á Suðurnesjum. Við ætlum að ræða möguleika á að sameina öryggisstofnanir á ís- landi í eina heild með miðstöð í Keflavík. Hvernig við förum að því að haga okkur eins og menn með mönnum. Það er auðvitað eftirtektarvert hvernig forsætisráðherra íslands sleppir sér þegar hann heyrir af annarri draumsýn en þeirri sem hann hefur unnið að hörðum höndum undanfarin áratug. „Af hverju sagði mér enginn frá þessu,“ hrópar hann. Hafa fé- lagsmálaráðherra og heilbrigðis- ráðherra virkilega ekki borið þau boð inn á fundi ríkisstjórnarinn- ar að öryrkjar, aldraðir, sjúkir, einstæðar mæður, námsmenn og fleiri kveinki sér í Paradís frjáls- hyggjunnar? Er það raunveru- lega þannig að í Hvita húsinu við Lækjargötu undrist menn hvers vegna þessir hópar gæða sér ekki á kökum? Sitja menn virkilega í Það er auðvitað eftir- tektarvert hvemig forsætisráðherra ís- lands sleppir sér þeg- ar liaim heyrir af annarri draumsýn en þeirri sem hann hefur unnið að hðrðum hðndum undanfarin áratug. stjórnarráðinu strjúkandi á sér vömbina, hælandi hver öðrum fyrir hvað ástandið er dásamlegt? Brunaútsala ríkisins Skyldi nokkurn undra að for- stöðumenn brunaútsölu ríkisins fái hland fyrir hjartað þegar Samfylkingin birtir framtíðarsýn sem er algerlega öndverð við það niðurbrot þjóðfélags samstöðu og samhjálpar sem postular óheftrar frjálshyggju hafa staðið i á undanförnum árum? Samfylk- ingin hafnar heimsmynd Davíðs Oddssonar um blóðuga baráttu þar sem hver er sjálfum sér næst- ur. Hún dregur upp mynd af samfélagi þar sem félagshyggja, jöfnuður og kvenfrelsi eru í há- vegum haft. Samfélag þar sem allir eiga rétt á heilbrigðisþjón- ustu, menntun og stuðningi þeg- ar á móti blæs. Það er allt önnur mynd en sérhagsmunamálverk öfugsnúinnar frjálshyggju sem flokkar örykjra, gamalmenni, námsmenn úr verkalýðsstétt og einstæðar mæður sem úrkast og vandamál. Samfylkingin vill virk- ja frumkvæði allra í atvinnulífi. Kvenna jafrit sem karla. Seyð- firðinga jafnt sem Reykvíkinga en einblínir ekki á hags- munaklíku stjórnarflokkanna sem malar pattaraleg á góðær- isjötu sérhagsmunanna. Axunað hugarfar ,Af hveiju sagði mér enginn frá þessu,“ spyr strákurinn í fiskbúð- inni við Lækjargötu. Hver þorir að tala við prinsipissu sem önug- lega segist fá orma í eyrun þegar grasrótin talar og segir fólki að fá sér kökur þegar það á varla brauð? Og svo er fullyrt að lífs- sýn Samfylkingarinnar kosti milljarða. Það væri óskandi að kökugerð- armennirnir í Stjórnarráðinu hugleiddu milljarðana þegar þeir færa vinum sínum eignir al- mennings á silfurfati. Staðreynd- in er að flest það sem Samfylk- ingin leggur til kostar ekkert annað en hugarfarsbreytingu. Hún er líka með tillögur um að taka til í ríkisrekstrinum og færa milljarða frá vambvíðum eðalvin- um stjórnarflokkanna til þeirra sem á þurfa að halda. Og það er alveg ljóst að kökuuppskriftum fijálshyggjunnar verður sturtað niður um klósettið í Hvíta hús- inu við Lækjargötu á þeirri stun- du sem pattaralegar prinspissur helmingaskiptanna hrekjast það- an út.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.