Dagur - 19.09.1998, Qupperneq 11

Dagur - 19.09.1998, Qupperneq 11
Dagur. 6 '* 9 * ÍH’VSL3? ’V 8' I kOÍ Aí.Mki- 0 j LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1998 - 11 ERLENDARFRETTIR Indverskir hermenn með hefðbundna sprengju í höndunum. Voru kjarnorkumannalætin bara blekkingarleikur? Kj amorkuveldi í blekkiugarleik Indland og Pakistan ýktu mjög bæði fjölda og stærð þeirra kjam- orkuvopna sem sprengd vom fyrr á ár- inu. Samkvæmt íyrstu skýrslunni, sem óháðir vísindamenn hafa gert um tilraunasprengingarnar á Indlandi og í Pakistan, var afl vopnanna sagt vera a.m.k. fjórum sinnum meira en raun var á. Flest bendir til þess að Indverj- ar hafi aldrei sprengt nema þijár kjarnasprengjur, en ekki fimm eins og þeir lýstu yfir opinberlega, segir í skýrslunni. Og einungis tvær af þeim kjarn- orkutilraunum, sem Pakistanar sögðust hafa gert, voru raunveru- Iegar kjarnorkusprengingar, að því er fullyrt er í skýrslunni. Pakist- anskir ráðamenn hafa fullyrt að sprengingarnar hafi verið allt að sjö, en yfirlýsingum ber þó ekki alveg saman um fjöldann. „Þetta er alveg greinilega dæmi um það að stjórnvöld hafi gert til- raunir í pólitískum tilgangi frekar en vísindalegum, þannig að við verðum að taka yfirlýsingum þeirra með varúð,“ sagði Terry Wallace, virtur vísindamaður við Háskólann í Arizona í Bandaríkj- unum. Hann beitti nákvæmum jarðskjálftamælingum til þess að komast að því hvað raunverulega hafi gerst, hversu margar sprengj- urnar hafi verið og af hvaða stærðargráðu. Skýrslan var birt á miðvikudag- inn, og niðurstaða hennar er sú að stjórnvöld beggja landanna hafi beitt blekkingarleik til að villa um fyrir hinum, og sömu- leiðis hafi þau villt um fyrir öðr- um ríkjum sem áhyggjur höfðu af þróun mála í þessum heimshluta. „Skjálftamælingarnar veittu okkur nákvæmar upplýsingar um hvað gerðist og okkur tókst að afla okkur mikillar þekkingar á þess- um sprengingum," sagði Wallace. „Þannig gátum við gengið úr skugga um áreiðanleika þeirra yf- irlýsinga sem komu frá ríkis- stjórnum landanna." Það var 11. maí síðastliðinn, sem Indveijar tilkynntu að þeir hefðu sprengt 43 kílótonna vetn- issprengju, 12 kílótonna kjarna- sprengju og eins kílótonns kjarna- sprengju. Þann 13. maí sögðust indversk stjórnvöld svo hafa sprengt tvær Iitlar kjarnasprengj- ur til viðbótar, sem hefðu samtals verið um 800 tonn. Pakistanar svöruðu svo fyrir sig rúmum tveimur vikum síðar með því að tilkynna um sínar eigin kjarnasprengingar þann 28. og 30. maí. Sögðu þeir fyrri sprengj- urnar hafa verið samtals 40-45 kílótonn, en í seinna skiptið sögð- ust þeir hafa sprengt 15-18 kíló- tonna kjarnaodd. Rannsóknir Wallace voru byggðar á gögnum frá 22 skjálfta- mælum, sem staðsettir eru víða á jörðinni. Hann komst að þeirri niðurstöðu að sprengingarnar þann 11. maí á Indlandi hefðu ekki numið nema 15 kílótonnum samtals, sem er það lítið að vart getur hafa verið um vetnis- sprengju að ræða heldur einhver frumstæðari gerð af klofnunar- sprengju. Sömuleiðis er ekkert í gögnunum sem bendir til þess að neinar sprengingar hafi átt sér stað á Indlandi þann 13. maí. Þá telur Wallace nokkuð öruggt að pakistönsku sprengingarnar þann 28. maí hafi ekki verið stærri en 9-12 kílótonn samtals, en sprengingarnar þann 30. mai ekki nema 4-6 kílótonn. Það er um fjórðungur af því sem fullyrt var. — Washington Post. í ÞJOÐLEIKHUSIÐ Sýnt á stóra sviði Bróðir minn Ijónshjarta - Astrid Lindgren Frumsýning í dag Id. kl. 14.00 - sud. 20/9 kl. 14.00 - sud. 27/9 kl. 14.00 - sud. 4/10 kl. 14.00 Óskastjarnan - Birgir Sigurðsson föd. 25/9 - Id. 3/10 Sala áskriftarkorta stendur yfir. Innifalið í áskriftarkorti eru 6 sýningar. 5 sýningar á stóra sviðinu: Sólveig - Tveir tvöfaldir - Brúðuheimili - Sjálfstætt fólk, Bjartur - Sjálfstætt fólk, Ásta Sóllilja. Ein eftirtalinna sýninga að eigin vali: R.E.N.T. - Maður í mislitum sokkum - Gamansami harmleikurinn - Óskastjarnan - Bróðir minn Ijónshjarta. Almennt verð áskriftarkorta er kr. 8.700 Ellilífeyrisþegar og öryrkjar kr. 7.200 Miðasalan er opin mánud. - þriðjud. 13-18, miðvikud. - sunnud. 13-20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga í síma 551-1200. www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR HEIMURINN Hryðjuverkamöimuin sleppt NORÐUR-IRLAND - Fyrstu norður-írsku hryðjuverkamönnunum, sem hlotið höfðu ævilangan fangelsisdóm, var f gær sleppt úr haldi samkvæmt ákvæðum friðarsamningsins sem gerður var í vor. Fimm mönnum var sleppt í gær, og sátu þeir allir inni vegna morðs. Þeir höfðu afplánað á bilinu 10 til 14 ár í fangelsinu. Alls hefur nú 24 föng- um verið sleppt lausum frá því í síðustu viku en alls verða þeir um 400 sem fá frelsið í samræmi \dð friðarsamninginn. Berisha sviptur jþiughelgi ALBANÍA - Salí Berisha, leiotogi albanskra stjórnarandstæðinga og fyrrverandi forsætisráðherra, var í gær sviptur þinghelgi. Var það gert til þess að hægt verði að höfða mál á hendur honum fyrir að hvetja til uppreisnar gegn stjórnvöldum í landinu. Óttast margir að það auki enn á óróleikann í Iandinu ef Berisha verður handtekinn. MiUjónir írana mótmæla Talihönum IRAN - Fjölmennur mótmælafundur var haldinn í Teheran, höfuðborg Irans, í gær og voru þar uppi kröfur um að efnt yrði til „heilags stríðs" gegn Talibönum, hinum róttæku bókstafstrúarmönnum sem sölsað hafa undir sig völd í Afganistan. Var Khameini, hinn andlegi leiðtogi íranskra múslima, hvattur til þess að lýsa yfir stríði þegar í stað. BORGARBÍÓ KYNNIR: ANTONK) BANDF.RAS ANTHONY HOPKINS THE MASK O F ZORRO GRIMA Z0RR0S, FRA LEIKSTJORA „G0LDENEYE" OG FRAMLEIÐENDUM „MEN IN BLACK". LANGFLOTTASTA STÓRMYND ÁRSINS ER K0MIN. SPENNA, HASAR, RÓMANTÍK 0G HÚM0R Í BLAND. STÓRKOSTLEGIR LEIKARAR ANT0NI0 BANDERAS 0G ANTH0NY H0P- KINS ÁSAMT FRÁBÆRRI TÓNLIST JAMES H0RNERSV http://WWW.NET.IS/BORGARBIO □□'M D I G I T A L EcrGvrbic SOUND S Y S T E M Leikfélag Akureyrar Verkefni leikársins 1998-1999 Rummungur ræningi Ævintýri fyrir börn með tónlist og töfrum eftir Otfried Preussler. Þýðendur: Hulda Valtýsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir. Söngtextar: Hjörleifur Hjartarson. Tónllst: Daníel Þorsteinsson og Eiríkur Stepensen. Leikarar: Aðalsteinn Bergdal, Agnar Jón Egiisson, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Oddur Bjarni Þorkelsson og Þráinn Karlsson. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason. Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir. Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Frumsýning laugardaginn 3. okt. ki. 14.00. 2. sýning sunnudaginn 4. okt. kl. 14.00. 3. sýning fimmtudaginn 8. okt. kl. 15.00. 4. sýning laugardaginn 10. okt. kl. 14.00. 5. sýning sunnudaginn 11. okt. kl. 14.00. Miðasalan er opin frá kl. 13-17 virka daga. Sími 462 1400. Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen. Eitt mesta leikna sviðsverk allra tíma. Frumflutningur nýrrar þýðingar Helga Hálfdánarsonar. Aðalhlutverk: Pétur Gautur. Jakob Þór Einarsson. Ása: Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Sólveig: Pálína Jónsdóttir. Tónlist: Guðni Fransson. Búningar: Hulda Kristín Magnúsdóttir. Lýsing og leikmynd: Kristin Bredal. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. Þetta sígilda verk norska skáldjöfursins hefur ekki fyrr verið leikið á Akureyri. Listfengi þýðandans nýtur sín til fullnustu í margslungnum texta Ibsens sem með Pétri Gaut skapaði magnað leikverk, ævintýri fyrir fullorðna sem á engan sinn líka. Frumsýning 28. desember. Systur í syndinni eftir Iðunni og Kristinu Steinsdætur. I þessu nýja leikriti þeirra Iðunnar og Kristcnar er á ferðinni litrík saga frá liðinni öld, þrungin spennu og eftirvæntingu en jafnframt mikilli hlýju og næmri kímnf sem eru ein af aðalsmerkjum höfundanna. Tónlist: Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson. Aðaiflytjendur tónlistar: Tjarnarkvartettinn. Lýsing: Ingvar Björnsson. Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir. Leikstjórn: Kolbrún Halldórsdóttir. Frumsýning áformuð 12. mars. Sala áskriftarkorta er hafin. Notið ykkur frábær kjör á áskriftarkortum og eigið góðar stundlr I fallegu leikhúsi á Akureyri. Miðasaian er opin kl. 13-17 virka daga og fram að sýningum sýningardaga. Listin er löng en lífið stutt. Simi 462 1400. er st>TktaraÖili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.