Dagur - 02.10.1998, Qupperneq 1
Útvarpsstöðvar koma
ogfara og stundum
rekurmann í rogastans
þegar einhver stöðin
sem hingað til hefur
samviskusamlega fyllt
hílinn afljúfum tónum
breytist skyndilega í
öskrandi tölvupopp.
Ein ný stöð hejurbæst
við í hópinn, en henni
er ætlað að ná eyrum
homma og lesbíafyrst
ogfremst.
„Þú ert að hlusta á YMCA,“
heyrðist í útvarpinu einn morg-
uninn þegar blaðamaður var á
leið í vinnu og fiktaði að vanda í
stöðvartakkanum til að finna
eitthvað vit í útvarpinu.
YMCA??? Amerísk stöð og þar að
auki kristileg, hér á Islandi?
Þetta með að stöðin væri kristileg
kom til af því að YMCA - KFUM
er óslítanlega tengt við hugsjón-
ir Friðriks Friðrikssonar frá barn-
æsku og því óhugsandi að um
annað en kristilega stöð væri að
ræða. En eitthvað reynist það
málum blandið því það næsta
sem þulurinn sagði var: „YMCA
er samkynhneigð útvarpsstöð."
Þetta þurfti að athuga nánar og
hringt var í Ijölmiðlasamsteypur
en enginn vildi kannast við kró-
ann. En Samtökin ‘78 gátu gefið
upplýsingar hratt og vel þegar
náðist í menn þar. Jú, þannig var
nefnilega mál með vexti að einn
meðlima samtakanna er með af-
Ágúst Sverrír Beaumont er útvarpsstjóri nýrrar útvarpsstöðvar fyrir samkynhneigða. mynd: gva
brigðum „ofvirkur" og fram-
kvæmir yfirleitt hugmyndir sínar
með það sama. Og nú hafði hon-
um dottið í hug að setja upp út-
varpsstöð.
Þessi meðlimur samtakanna er
ungur, rétt nýorðinn 22 ára og
lítur hreint ekki út eins og vinnu-
alki. Kemur vel fyrir, grannur og
vel klæddur, svolítið feimnislegur
og brosir oft til að dylja óstyrk
sinn. Hann heitir Ágúst
Beumond og fyrir utan að reka
eitt stykki útvarpsstöð er hann
með á sinni könnu stefnumóta-
línu fyrir homma og lesbíur, nýju
stefnumótalínuna.
Dýrt að auglýsa
„Við vorum tveir félagar sem rák-
um sitt hvort fyrirtækið," segir
Agúst, „og okkur blöskraði verð á
auglýsingum í útvarpi, þannig að
ég ákvað bara að setja upp útvarp
sjálfur. Fékk á Ieigu tæki og byrj-
aði að senda út.“
Ekki flóknara en svo. Oll vinna
við stöðina sem aðeins hefur sent
út í nokkra daga er unnin í sjálf-
boðavinnu enn sem komið er.
Útsending er allan sólarhringinn,
en dagskrá öll kvöld frá kl. 20-24
og þá koma aðskiljanlegust menn
og konur og láta Ijós sitt skína í
útvarpinu. „Það er alveg ótrúlegt
hvað fólk hefur verið bjálpsamt
og til í að koma og vinna,“ segir
Ágúst. „Eg hefði ekki trúað þessu
að óreyndu, en svo kemur þetta
nú eitthvað til með að breytast
þegar frammí sækir. Eg get ekki
beðið fólk um að vinna ókeypis
endalaust."
Gaybisness, stór bisness
Tækjakosturinn er ekki marg-
brotinn. Eitt borð og á því er
sími, hljómtækjastæða, hljóð-
nemi, tölva og skjár, sem er vand-
lega merktur TOLVA. „Þetta var
gert fyrir ljóskurnar," skýtur
Agúst skelmislega inni og glottir.
Svipaðar merkingar eru á stæð-
unni og meira að segja síminn
merktur til öryggis. Enda aldrei
að vita með nútíma tækni hvern-
ig tækin líta út...
Tónlistarstefnan er engin eftir
því sem Ágúst segir, en dagskrár-
gerðarmenn eru beðnir um að
forðast þunga klassíska tónlist
eftir megni. Hins vegar mega
þeir spjalla um hvað sem er og
sumir þeirra hafa fundið upp á
því að semja eigin texta við fræg
Iög, eins og Titanic Iagið sem
tveir dagskrárgerðarmanna hafa
gert gríntexta við og sungið inn á
band. Þetta spila Jsau svo öðru
hvoru sér og öðrum til ánægju,
enda textinn bráðfyndinn.
Útvarpsstöðinni er ætlað að ná
fyrst og fremst til homma og les-
bía, en Ágúst segir mikið vera að
gerast í þeim heimi þessa stund-
ina. „Allt að opnast upp og nýir
klúbbar að opna og gaman að
taka þátt í þessu. „Bleikir pening-
ar“ eru sterkir og mikið af þeim
enda er þetta stór markaður."
Ágúst hefur fengið nokkra fjár-
festa í Iið með sér en telur að
„gaybisnessinn" eigi að sjá sér
hag í því að auglýsa í miðli sem
sérstaídega er miðaður að þeim
hópi. „Útt'arpsstöðin er komin til
að vera,“ segir hann, „það er eng-
inn vafi því viðtökur hafa verið
góðar." Hins vegar þarf að breyta
bæði nafni stöðvarinnar og stað-
setningu því nafnið samræmist
ekki reglum og útsendingin trufl-
ar stöð í Borgarnesi. Stöðin næst
í Reykjavík og nágrenni „og í
Keflavík ef maður er í bíl.“ -VS
Bleik útvarpsstöð
-k