Dagur - 07.10.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 07.10.1998, Blaðsíða 1
Enn deilt um lóð við nofnina Fiskvinnsluhús Korra ehf. Eigendur vilja stækka það um helming til suðurs. Fyrr á árinu voru rniWar deilur um lóðaveitiugar á hafn- arsvæðiuu á Húsavík. Og eun er deilt um lóðir. Utgerðarfyrirtækið Korri ehf. sótti um stækkun á lóð fyrirtæk- isns á hafnarsvæðinu svo unnt væri að byggja við húsið þar sem GPG fiskverkun er með starf- semi sína. Ennfremur óskaði fyr- irtækið eftir byggingaleyfi fyrir viðbyggingu við húsið. Um er að ræða lengingu hússins um 25 metra til suðurs og er stærð við- byggingar 411 m2 og 2134 m3. Bygginganefhd Húsavíkur hafn- aði erindi um byggingu af þessari stærð á þessari lóð á þeim for- sendum að nýtingarhlutfall lóð- arinnar væri með þessu orðið óeðlilega hátt. Forsvarsmenn Korra ehf. voru heldur óhressir með þessa af- greiðslu bygginganefndar. „Ég átti alls ekki von á þessu, að fá einfaldlega höfnun og ekki orð um það meir. Maður hefði frekar átt von á að menn kæmu þakklát- ir á hnjánum og fögnuðu því þeg- ar einhveijir vilja gera eitthvað sem máli skipti í atvinnumálum. Ekki síst þegar haft er í huga að bærinn fær einhveijar milljónir í fasteignagjöld af byggingunni, fleiri störf skapast og þar með aukin velta í bænum. I stað þess voru menn að hengja sig á ákvæði í byggingareglugerðum og án þessa að setja neina fyrir- vara um afgreiðslu málsins eða lausn þess, þeir sögðu bara nei og búið spil,“ sagði Gunnlaugur Hreinsson, framkvæmdastjóri GPG fiskverkunar. Hann segir að það sé einfald- lega lífsspursmál fyrir fyrirtækið að stækka. „Þetta er spurning um að vera áfram í þessu eða hætta. Það er ekki hagkvæmt að vera með litlar einingar í þessum bransa. Eftir stækkun gætum við Ijölgað starfsmönnum og unnið meira af fiski og ýmsir möguleik- ar skapast til fjölbreyttari starf- semi. Það er t.d. hægt að fá nóg af fiski fyrir sunnan yfir veturinn og flytja hann norður, en þá þarf að hafa nóg rými til að taka við miklu magni og vinna það. Þetta er rétti tíminn til að stækka, þeg- ar svo mikil upsveifla er £ þorsk- inum og útlitið gott þar.“ Gunnlaugur átti viðræður við fulltrúa bygginganefndar og bæj- arins á mánudaginn og annar fundur var fyrirhugaður í gær. Hann sagðist vera þokkaíega vongóður um að það tækist að leysa málið með farsælum hætti. „En ég hef þó allan fyrirvara á því, a.m.k. er ég ekki byrjaður að grafa fyrir grunninum ennþá.“ JS Úr hvala- skoðirn í þorsk- fLutninga Hvalskoðunarbáturinn Moby Dick fór á dögunum til Gríms- eyjar og náði í þorsk fyrir vinnsl- una á Húsavík. Það er GPG fiskverkun sem er að reyna þennan nýja flutninga- máta sem Gunnlaugur Hreins- son framkvæmdastjóri bindur vonir við. „Við flytjum fiskinn sem við kaupum í Grímsey í land með feijunni tvisvar í viku og þaðan kemur hann með bíl- um til okkar. Þá er fiskurinn orðinn heldur gamall, eða 3-4 daga. Moby gæti þessvegna far- ið á hveijum degi og við gætum hugsanlega aukið magnið úr eyj- unni hingað. Þetta getur orðið mjög góður kostur og vonandi verður framhald á þessum flutn- ingum, við erum að skoða það,“ sagði Gunnlaugur. Gárungarnir segja að það sé ekkert nýtt fyrir Moby að flytja þorsk, hann hafi gert það í allt sumar, því ekki sé hægt að kalla þá menn annað en þorska sem borga háar Ijárhæðir fyrir að fá að sigla um Skjálfanda í kulda og trekki til að sjá hvali. js Kitósan- verksmiðja úr sögiuini Undanfarna mánuði hefur verið unnið að könnun á hagvæmni kitósanverksmiðju á Húsavík, sem ynni efni úr rækjuskel sem til fellur í rækjuvinnslunni. Norskir aðilar hafa verið inni í þessari mynd og hafa tekið þátt í verkefninu. Nú er búið að slá þessa hug- mynd af, a.m.k. í bili, þar sem hinir erlendu samstarfsaðilar Húsvíkinga telja að verkefnið „sé ekki vænlegt á þessu stigi málsins". JS Jólasagan í ár Saga Húsavíkur verður væntan- lega jólabókin í ár á Húsavík. 1. bindi Sögu Húsavíkur, að mestu ritað af Karli Kristjáns- syni, kom út árið 1981. 2. bind- ið hefur látið nokkuð á sér standa, og m.a. hefur Víkurblað- ið nánast árlega birt ótímabærar fréttir um að nú væri það loksins að líta dagsins Ijós. Og nú er 2. bindið einmitt loksins að líta dagsins ljós, einn ganginn enn. Það er tilbúið í handriti og bæjarráð hefur fall- ist á tillögu Sögunefndar að taka tilboði í prentun frá As- prenti/Pob ehf. á Akureyri. Þá mun Bókaverslun Þórarins Stef- ánssonar sjá um sölu og mark- aðssetningu á verkinu. Sem sagt, jólabókin í ár (með fyrirvara um útkomu, vegna fyrri reynslu). JS 350 börn komu í afmælisveislu mörgæsarinnar Georgs á Húsavík í fyrri viku og þáðu góðgerðir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.