Dagur - 07.10.1998, Blaðsíða 3

Dagur - 07.10.1998, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGU R 7. OKTÚBER 1998 - 3 VÍKURBLAÐIÐ úr öllum áttiim flokk. Þessvegna meðal annars hef alvarlega hugleitt það að draga mig alveg út úr pólitík við óbreytt- ar aðstæður. En ég geri ráð fyrir að einhverja næstu daga gefi ég út yf- irlýsingu um hvaða leið ég vel að fara. Og í þessari stöðu tel ég lík- legast að ég dragi mig í hlé í pólit- íkinni, a.m.k. tímabundið, og ein- beiti mér að störfum fyrir verka- I ýð s h re y fi ngu n a. “ Einkasnepill falsarans? Aðalsteinn er til umræðu á fleiri vígstöðvum. Hann fékk á dögun- um duglega yfirhalningu í grein sem Sigurjón Benediktsson vara- bæjarfultrúi D-lista ritaði í aug- lýsingablaðið Skrána. Þar fjallar greinarhöfundur m.a. um útgáfu fréttabréfs verkalýðsfélaganna sem Aðalsteinn ritstýrir og ábyrg- ist og segir Sigurjón Aðalstein „hafa litið á útgáfuna sem einka- snepil til að reka pólitískt skítkast og skrum fyrir sig og þá sem halda um strengina.“ Einnig seg- ir í greininni: „Abyrgðarmaður- inn (þ.e. Aðalsteinn) hefur falsað atvinnuleysistölur í skýrslum sín- um, misnotað fréttabréfið til árása á einstaklinga hér í bæ, reynt að láta Verkalýðsfélagið hirða hlutabréf í eigu starfsfólks Fiskiðjusamlagsins, miskunnar- laust beitt lákúrulegum áróðri í fréttabréfinu til misbeitingar á hinum pólitíska vígvelli og hirðir svo Iaun fyrir allt saman í nafni stéttarbaráttu." Þessi harðorða grein hefur mjög verið til umræðu í bænum síðustu daga. Stjórn og trúnaðar- mannaráð Verkalýðsfélagsins ályktaði um málið og birti í Skránni. Þar voru skrif Sigurjóns fordæmd og talin ómaldeg og með öllu tilhæfulaus. „Þá eru í skrifunum fullyrðingar um fals- anir og þjófnað sem bæði eru ósannar og ærumeiðandi. Slíkar ásakanir, sem ekki eru studdar neinum rökum, geta ekki flokk- ast undir annað en áróður og rógburð af versta tagi,“ segir í ályktuninni þar sem lýst er full- um stuðningi við formann félags- ins og starfsmenn þess. Tvímælalaust meiðyrði Aðalsteinn segist ekki hafa hug- mynd um hvaða hvatir liggja að baki þessum skrifum og hvers- vegna þau komi fram nú. Þeir Sigurjón hefðu deilt fyrir kosn- ingar s.l. vor, m.a. um fréttabréf- ið og atvinnuleysistölur, sem þeim bar ekki saman um, en þar var á ferðinni augljós misskiln- ingur, málið hefði verið útskýrt að fullu og hann hefði þar mð talið það úr sögunni. Aðalsteinn leitaði lögfræðiálits á grein Sigurjóns og í álitinu seg- ir m.a.: „Grein þessi brýtur tví- mælalaust gegn 234. gr. og 235 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.....Sérstaklega á þetta við um þann hluta greinarinnar sem ber yfirskriftina „Hver trúir svo ábyrgðarlausum ábyrgðar- manni.“ Sá hluti greinarinnar brýtur tvímælalaust gegn meið- yrðaákvæðum hegningarlaga enda Aðalsteinn borinn þar þungum sökum m.a. um hegn- ingarlagabrot t.d. skjalafals. Það er viðurkent af dómstólum að ganga má bísna langt í pólitísku orðaskaki og þá lengra en ella væri. A hinn bóginn er tvímæla- laust að mínu mati að með grein þeirri sem hér er til umfjöllunar er gengið mun lengra en heimilt er,“ segir í áliti lögfræðingsins. Aðalsteinn segist ekki hafa ákveðið hvort hann muni leita rétt- ar síns í þssu máli. „Ég mun hug- Ieiða það áfram. Það er leiðinlegt að sitja undir óhróðri af þessu tagi, þó svo sem betur fer enginn taki mark á þessu. En það er ekki held- ur skemmtilegt að þurfa að fara að kæra sveitunga sína fyrir meiðyrði, þó vissulega virðist grundvöllur fyrir slíku í þessu tilviki." Segir Aðalsteinn Arni Baldurs- son. JS Stéttin erfyrsta skrefið inn... Mikiðúival afhellum og steinum. Mjöggottverð. KLI I HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700 -FAX 577 1701 Haustblíða við Botnsvatn. Náttúruparadís Húsvíkinga. Helliilögn í myrkri Björgunarsveitarmenn gera ýmislegt fleira en að bjarga fóiki úr lifsháska. Þessir ungu menn unnu kappsamir við hellulagningu við höfuðstöðvar Garðars eitt kvöldið í vikunni. IT' HRISALUNDUR Íxrf 25% r-x of hespulopo fro Álofossi fil og með 14. okf. kjallarinn Hrísalundi Hrísalundur fyrir þig.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.