Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 10.10.1998, Blaðsíða 1
Laugardagur 10, október 1998 Verð í lausasölu 200 kr. 81. og 82. árgangur- 191. tölublað Hvert orð á gullvog Nýtt fnunvarp uiii gagnagnmn óbreytt í aðalatriðum, en ýmis nýmæli eiga að tryggja persónuvemd- ina og aðgang vísinda- manna að upplýsing- um. Læknar fara með málið undir smásjána og úrskurða í dag. BSKB óttast misnotk- un. Ný útgáfa af gagnagrunnsfrum- varpi verður lögð fram á Alþingi eftir helgi. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra segir aðspurð að breytingarnar á frumvarpinu séu gagngerar og að ekki sé rétt- mætt að segja að einungis hafi verið fyllt upp í göt. „Breytingarnar eru mikilvægar og sú allra mikilvaegasta Iýtur að því að tryggja persónuverndina, t.d. með þreföldun á dulkóðun- inni. Þá er gagnrýnum spurning- um um trúnaðarsamband sjúk- linga og lækna svarað og tryggt að aðeins fari tölfræðilegar upp- lýsingar í gagnagrunninn og að engar upplýsingar fari út um ein- staklinga. Aðgengi vísindamanna er tryggt og ég tel að eftir að við höfum tekið inn allar þessar ábendingar ætti að geta náðst sátt um málið,“ segir ráðherra. Margar breytingar Aðalfundur Læknafélags- ins hófst í gær, í sama mund og ríkisstjórn- in samþykkti frumvarpið. Guðmundur Björnsson, formaður fé- lagsins, sagði í gær að fundarmenn væru ekki farnir að skoða frumvarpið. „Þetta eru margar breytingar sem þarf að skoða í samhengi og við þurfum tíma til að átta okkur á þeim. Eg get lofað því að hvert orð frumvarpsins verður vegið á gullvog," sagði Guðmundur. A kollegum Guðmundar var að heyra að flest grundvallaratriði virtust Iítt breytt. Afram er reikn- að með miðlægum gagnagrunni, áætluðu samþykki sjúklinga, einkarétti á starfsleyfi og að full- trúi starfsleyfishafa hafi fulltrúa í aðgengis- nefnd. BSRB hef- ur ályktað um gagnagrunns- málið, fyrst verkalýðsfé- laga, og þar er varað við hugsanlegri misnotkun upplýsing- anna, komist þær í hendur atvinnurek- enda, sem vilja ráða heilsuhraust fólk, og trygg- ingafélaga, sem vilja mismuna fólki eftir áhættuhópum. Sex mánuðir til að ihuga neitunarvald Nú er í frumvarpinu skýrar kveð- ið á um að heilsufarsupplýsingar séu ópersónugreinanlegar. Skil- yrt er að rekstrarleyfishafi sé staðsettur hér á landi. Skilgrein- ing á persónuupplýsingum er samkvæmt tilskipun Evrópusam- bandsins. Skerpt er á ákvæði um höfundarrétt gagnagrunnsins. Sérstök starfrækslunefnd hefur umsjón með gerð og starfrækslu gagnagrunnsins. Einstaklingar geta neitað því að upplýsingar um þá fari í grunninn og er nú kveðið á um að þetta eigi við um allar upplýsingar. Þriggja manna aðgengisnefnd, undir for- mennsku fulltrúa landlæknis (áður heilbrigðisráðuneytisins), stýrir aðgengi vísindamanna að upplýsingum og er fulltrúi rekstrarleyfishafa háður meiri- hiutavaldi hinna. Flutningur upplýsinga í gagna- grunninn á ekki að hefjast fyrr en 6 mánuðum eftir gildistöku laganna til að sjúklingar hafi svigrúm til að koma neitunar- valdi sínu á framfæri og ákvæði er um úttekt óháðs sérfræðings á sviði öryggismála upplýsinga- kerfa áður en vinnslan í grunn- inn hefst. Kostnaður við að koma upp miðlægum gagna- grunni og er nú áætlaður á bil- inu 10-20 milljarðar króna. - FÞG Nýja gagnagrunnsfrumvarpið var kynnt í gær og telur heilbrigðisráðherra að sátt eigi að nást um málið eftir gagngerar breytingar frá því í vor. Stjómin styrkir sjónvarps- þátt Ríkisstjórnin samþykkti í gær að styrkja gerð sjónvarpsþáttaraðar um íslenskan sjávarútveg um 10 milljónir króna á 3 árum. Páll Benediktsson fréttamaður er í leyfi frá Sjónvarpinu við að vinna að þáttaröðinni sem hefur hlotið nafnið Aldahvörf. Aætlað er að þættirnir kosti um 65 milljónir og eru þeir að mestu fjármagn- aðir af einkaaðilum. Þetta er eitt viðamesta verkefni Sjónvarpsins af tilefni aldamótanna. „Sjávarútvegur er sú undir- staða í okkar þjóðarbúskap að það er ástæða til að gera honum góð skil í sjónvarpi á þessum tímamótum. Sjónvarpið hafði tekið ákvörðun um að fara í þessa þáttagerð og við töldum eðlilegt að ríkisvaldið styddi það,“ segir Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. -vj Það er sjálfsagt ekkert auðvelt að túlka gróðurhúsaáhrif, bráðnun Grænlandsjökuls og áhrifþess á ísland i stutt- um leikþætti en það gerðu þessir krakkar úr Háteigsskóla með stakri prýði í gær. Tilefnið var athöfn á ári hafsins í Hafnarhúsinu. mynd: pjetur Straumur fólks af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins er enn mikill og er Kópavogur vinsælast- ur. Straiimur eim suður Fólksflóttinn af landsbyggðinni hefur haldið áfram á þessu ári og sums staðar með auknum hraða, t.d. á Austurlandi, þar sem brott- fluttir (umfram þá sem komu í staðinn) eru mun fleiri í ár en allt síðasta ár. Allir landshlutar hafa misst til höfuðborgarsvæð- isins, alls 1.350 manns. Hvergi hefur Ijölgunin verið eins mikil og í Kópavogi. Nær tveir tugir sveitarfélaga hafa þannig tapað meira en 4% íbúa sinna m.v. íbúafjölda um síðustu áramót. Fækkun um 7 manns úr Skorra- dal, þar sem aðeins bjuggu 46 manns um áramót, samsvarar 15%. I beinum tölum hefur stærsti hópurinn horfið frá Vest- mannaeyjum, 127 manns, í kjöl- far enn stærri hóps í fyrra. Alltaf sama fólkið „Þarna er enn og aftur sami hópurinn sem Hagstofan er að færa til. Taki þeir hann út aftur verða þeir búnir að flytja hann tvisvar úr hreppnum," segir Dav- íð Pétursson, oddviti í Skorradal. „En það verður látið reyna á það hvort það eiga að gilda aðrar skráningarreglur í Skorradal en í öðrum sveitarfélögum landsins. Þeir vilja t.d. skrá fólk út ef það tekur laun í öðrum sveitarfélög- um, sem væntanlega er t.d. al- gengt í Reykjavík.“ Austurland hefur misst hlut- fallslega flesta, þar sem brott- fluttir eru 335 fleiri en komu í staðinn, eða 2,7% allra íbúa Austurlands. Fleiri hafa farið en komið á nær öllum stöðum; flestir eða 70 úr nýju sveitarfé- lagi S-Múlasýslu. Brottflutningar frá Vestljörð- um og Norðurlandi vestra sam- svara 2,4% af íbúaljölda. — HEI GabrioJtf (höggpeyfar) QSvarahlutir Hamarshöfða 1-112 Reykjavík Símí 567 6744-Fax 567 3703 Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.